Dagblaðið - 25.10.1977, Side 10

Dagblaðið - 25.10.1977, Side 10
10 DAGBLAÐIÐ. ÞRIÐJUDAGUR 25. OKTÖBER 1977. mBIAÐIÐ frjálst, óháð dagblað Útgefandi DagblaöiA hf. Framkvæmdastjóri: Sveinn R. Eyjclfsson. Ritstjóri: Jonas Kristjánsson. Fróttastjóri: Jón Birgir Pétursson. Ritstjórnarfulltrúi: Haukur Helgason. Skrifstofustjori ritstjórnar: Johannes Reykdal. íþróttir: Hallur Símonarson. AAstoöarfróttastjóri: Atli Steinarsson. Handrit: Ásgrímur Pálsson. Blaöamenn: Anna Bjamason, Ásgeir Tomasson, Bragi Sigurösson, Dóra Stefánsdóttir, Gissur Sigurösson, Hallur Hallsson, Helgi Pótursson, Jónas Haraldsson, Katrín Palsdóttir, Ólafur Geirsson, Ólafur Jonsson, Ómar Valdimarsson, Ragnar Lár. Ljósmyndir: Bja loifur Bjarnleifsson, Höröur Vilhjálmsson, Sveinn Þormóösson. Skrifstofustjori: Ólafur Eyjólfsson. Gjaldkeri: Þráinn Þorleifsson. Dreifingarstjóri: Már E. M. Halldórsson. Ritstiórn Siöumula 12. Afgreiösla Þverholti 2. Áskriftir, auqlýsingar og skrifstofur Þverholti 11. AAalsími blaösins 27022 (10 línur). Áskrift 1500 kr. á mánuöi innanlands. í lausasölu 80 kr eintakiö. Setning og umbrot: DagblaAiA og Steindórsprent hf., Ármúla 5. Mynda og plötugerö: Hilmir hf. SiAumula 12. Prentun: Árvakur hf. Skeifunni 19. Rangt stöðumat Fjarskiptastöð hersins gæti sprengt Norður- Þegar sáttatillaga var lögð fram fyrir mánuði í kjaradeilu opinberra starfsmanna, sagði Dag- blaðið, að hún gengi of skammt, einkum í neðstu flokkunum. Hún bar þess merki, að sáttanefnd hafði ekki metið stöðuna alveg rétt. Vandi nefndarinnar var auðvitað mikill. Hún var bæði að reyna að taka mið af samningum Alþýðusambandsins í sumar og að brúa nokkuð af því bili,sem er milli kjara hjá ríkinu og hjá einkafyrirtækjum. Neðstu kjaraflokkar opinberra starfsmanna eru tiltölulega hagstæðir í samanburði við hliðstæða flokka í atvinnulífinu. Sáttanefndin horfði of stíft á þetta og gerði í tillögu sinni ráð fyrir minni hlutfallshækkun þessara flokka en hinna um miðbik kjarastigans. Sáttatillagan féll réttilega, bæði vegna of lítillar hækkunar neðstu flokkanna og vegna of lítillar almennrar þrengingar á bilinu milli kjara opinberra starfsmanna og kjara atvinnu- lífsins. Töluverður kraftur komst í viðræður um samninga, þegar sáttatillagan hafði verið felld. Ríkisstjórnin tók snöggan kipp og gerði ráðherrana Matthías Á. Mathiesen og Halldór E. Sigurðsson út af örkinni til samninga. Þeir buðu nokkru betur en sáttatillagan í von um samninga fyrir verkfall. Samningamenn opinberra starfsmenna tóku nokkuð vel í viðleitni ráðherranna. Tilboðin gengu á víxl síðustu dægrin fyrir verkfall. Undir lokin bar lítið á milli, en ekki nógu lítiö til að komizt yrði hjá verkfalli. Um þetta leyti skildu leiðir í hópi opinberra starfsmanna. Forustumenn starfsmanna ýmissa bæjarfélaga, einkum Reykjavíkur, töldu verkfall vera óráð og vildu ná samningum án mikilla fórna. Þessi stefna leiddi smám saman til samninga í flestum sveitarfélögum landsins í fyrstu viku verkfallsins. Samningar þeir, sem bæjarstarfsmenn náðu, voru töluvert misjafnir eftir stöðum, en voru þó yfirleitt heldur betri en síðasta tilboð ríkis- stjórnarinnar fyrir verkfall. Forustumenn ríkisstarfsmanna töldu hins vegar, að meira blóð væri í kúnni og héldu áfram að kreista ríkið. Það kom hins vegar í ljós, að þeir höfðu metið stöðuna rangt. Ríkisstjórnin var búin að gera sér grein fyrir, að hennar eigið tilboð var frammi á yztu nöf. llún var ekki reiðubúin að ganga lengra en sveitarfélögin höfðu gert. Ríkisstjórnin hefur lítið svigrúm. Hún hefur í öðrum efnum reynt að kenna öðrum um verðbólguna í þjóðfélaginu. Hún er þegar með tilboðum sínum í kjaradeilunni búin að stimpla sig sem forustusauð í verðbólguþróuninni. Hún má ekki við miklu meira af því tagi. Ríkisstarfsmenn áttu að semja, þegar bæjar- starfsmenn sömdu. Þeir ná ekki út úr tveggja- þriggja vikna verkfalli neinum þeim launa- mismun, er réttlætt geti launatapið á verkfalls- tímanum. Stöðumat forustumanna þeirra var rangt. sjávaroiíubirgðir Breta í loft upp Brezka landvarnarraðuneyt- ið verður nú að horfast í augu við þann vanda að sendingar fra hingað til mjög leynilegri fjarskiptastöð sem nýlega hefur verið sett upp geti hugsanlega sprengt í loft upp stærstu olíuborstöð Breta í Norðursjónum. Mikið þref og deilur eru nú milli raðuneytisins og Atlants- hafsbandalagsins annars vegar og brezkra gas- og olíuyfirvalda og fyrirtækja hins vegar. Gagnkvæmar hótanir, kærur, skýrslur og alitsgerðir nefnda af ýmsu tagi hafa hrúgazt upp og eins og einn forsvarsmaður olíuiðnaðarins brezka sagði, allt er gert sem stór fyrirtæki og stofnanir lata sér detta í hug þegar erfitt vandamai ber að höndum. Vandamaiið liggur í því að varnarmaiaraðuneytið hefur komið upp fjarskiptastöð I Norðaustur-Skotlandi. Kostn- aður við að koma henni upp er talinn hafa numið jafnvirði þriggja milljarða íslenzkra króna og þar af hafi Atlants- hafsbandalagið greitt attunda hluta. I tæplega sjö kílómetra fjar- lægð fra fjarskiptastöðinni r i FJÖLSTARFA- AÐALL Svargrein nr. 2 við grein Davíðs Haraidssonar í Dag- blaðinu 3. okt. í grein þinni, Davíð, gefur þú heldur óskemmtilega lýsingu a Alþingi — sem því miður er helst til sönn. Þú talar um tóm sæti a Alþingi o.s.frv. Það skyldi þó ekki vera að kominn væri einhvers konar „nams- leiði“ í sjaifa alþingismennina? Margir þeirra eru búnir að sitja ansi lengi. En þessir sömu menn dæmdu þó æskufólkið okkar til skyldu til að sitja a skólabekkjum í 9 mánuði a ari í 9 ár. Það var vondur dómur, sem þyrfti að hnekkja. En þó ég telji mig hafa tilsvarandi ,,patentlausn“ a skólamaium unglinganna, par sem er „tvenndarskólafyrirkomulag- ið“ og sem m.a. er nokkuð greint frá í bók þeirri, er ég nefndi í síðustu grein, „patent- lausn" að sínu leyti tilsvarandi eins og hagkeðjuhugmyndina að því er efnahagsmálin varðar, þa skal nú ekki íata leiðast út í umræðu um skólamál. Höidum okkur við Alþingi — og tómu stólana þar. Þú lætur þér detta í hug, að þingmenn séu e.t.v. að sinna fyrirgreiðslum fyrir kjós- endur sína i stað þess að sitja í stólum sínum. Það er sjaifsagt rétt til getið hja þér, að ein- hverju leyti. Ég vil ekki alfarið fordæma fyrirgreiðslu- starfsemi alþingismanna. En lítum betur a maiið. Mikill meirihluti þingmanna hefur önnur störf með höndum en þingmennskuna, í sumum tilvikum fulllaunuð störf, jafn- vel mjög krefjandi störf. Svo hafa sumir aukabita til viðbótar við allt þetta. Hér mun komin meginskýringin a tómu stólunum og ,,namsleiða“ þing- mannanna. En lítum betur a þetta. Þegar sami maður hefur mörg störf, þ.e.a.s. er kominn i flokk þeirra sem mér finnst að mætti nefna fjölstarfa-aðal, þá er ekki nóg með að þessir ágætu menn hafi tvenn eða haif þriðju laun, sem út af fyrir sig er ef til vill ekki svo stórt mál, því mikið af þessum launum fer til baka inn í ríkiskassann í sköttum — en hitt er miklu alvarlegra, að með þvf að taka að sér störf, sem menn hafa ekki tíma til að vinna, þó vel séu verki farnir — þa kemur þetta f jölstarfa-fyrirkomulag iðulega í veg fyrir að mikilvæg störf séu raunveruiega unnin — eða þá unnin í flaustrí. Þetta er það alvarlegasta við fjölstarfaskipulagið. Þarna er siðbótar þörf. Ég held við verðum sammála um þetta Davíð, og við, pennavinirni'r, eigum eftir að verða sammála um fleira. En þetta vekur til umhugsun- ar um annað naskylt mál. Það er hvað þingmenn virðast hafa mikla tilhneigingu til að setja sömu menn í margar nefndir (oft sjaifa sig) og svo fa menn ekki tíma til að sinna nefndar- störfunum, grafa sig ofan í maiefnin, kynna sér þau ýtar- lega. Það er eins og þessir agætu þingmenn viti ekki að til er fjöldi manna meðal þeirra háttvirtu kjósenda, sem eru vel færir um að sinna slíkum störfum — og mundu gera það vel. Hér er bæði um að ræða að dreifa valdinu í þjóðfélaginu og auka þar með lýðræði — en engu síður hitt, að gegnum ýmis slík störf æfast menn I félagsmaiastörfum — og enn eitt: Gegnum þessa dreifingu vaidsins tekst oft að finna þa menn i hópi þegnanna, sem eru vel starfhæfir — og það er ein-

x

Dagblaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Dagblaðið
https://timarit.is/publication/260

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.