Dagblaðið - 07.11.1977, Síða 1
3. ARG. — MANUDAGUR 7. NOVEMBER 1977 — 247. TBL. RITSTJO?N SÍÐUMULA 12. AUGLVSINGAR ÞVERHOLTI 11. AFGREIÐSLA ÞVERHOLTI 2. — AÐALSÍMI 27022.
Óvirk ratsjá og
úreltar þotur
dómur her-
fræðínga um
Keflavflíurvöll
Sovézk þota í lágflugi væri
búin að eyðileggja öll hernaðar-
mannvirki áður en herþoturnar
á Keflavíkurflugvelli væru
búnar að hefja sig á loft.
Svo segir í grein, sem birtist í
timaritinu Aviation Week &
Space Technology, eftir Clar-
ence A. Robinson jr., hermála-
ritstjóra blaðsins. Hluti
greinarinnar birtist í DB í dag á
blaðsíðum 12 og 13.
Frekari lýsingar á hernaðar-
mætti varnarstöðvarinnar eru
þannig að upplýst er að stór
ratsjá, sem þar er, hefur vbrið
óvirk um árabil og þoturnar
eru ellefu ára og úreltar tækni-
lega. Ritstjórinn telur afstöðu
Bandaríkjastjórnar hlægilega
þegar hún tregðast við að koma
upp fullkomnum farþegavelli á
Keflavíkurflugvelli. Telur
hann mjög nauðsynlegt að
komast að sem beztu samstarfi
við íslendinga og fá jafnvel að
reisa fleiri ratsjárstöðvar á
landinu.
I greininni í Aviation Week,
sem er mjög virt tímarit og
skrifar mikið um hernaðarmál-.,
efni telur höfundurinn að mjög
mikilvægt sé að ná sem beztu
samstarfi við íslendinga en af-
staða þeirra gagnvart Banda-
ríkjamönnum sé enn neikvæð
og varnarsamningurinn frá
1974 komi líklega í veg fyrir að
fleiri en ein flugsveit fái að
hafa bækistöðvar á Keflavíkur-
flugvelli.
Sjá bls. 12—13
J.,, jjXBj
Smjörhúsið
víkur fyrir
þriggjahæða
stórhýsi
Enn fækkar gömlum húsum í
borginni og nú er Smjörhúsið við
Lækjartorg fallið fyrir kúlunni. í
stað Smjörhússins mun rísa hús
fyrir Strætisvagna Reykjavíkur á
lóðinni Hafnarstræti 20-22. Nýja
húsið verður stórt, á þremur
hæðum. Verður neðst? hæð húss-
ins inndregin og skagar önnur
hæðin því nokkuð út fyrir þá
fyrstu. í miðju húsinu verður
biðskýli fyrir SVR og á efri
hæðum verða verzlanir og skrif-
stofur og inngangur í veitingahús
ásamt salernum á neðstu hæð.
JH
DB-mynd Sveinn Þormóðsson
Eftir hálfs árs þóf við dómskerf ið:
„Rannsókn á kæru um
ótilhlýðilega beitingu
agaviðurlaga í Síðumúla"
— DB greinir f rá
rannsókninni,
ásökunum
tveggja fanga
og skýringum
fangavarða
Nær hálfs árs þófi Dagblaðs-
ins við dómskerfið er lokið með
því að blaðið hefur fengið að-
gang að öllum gögnum varð-
andi rannsókn á kæru um ótil-
hlýðilega beitingu agaviðurlaga
í Síðumúlafangelsinu í Reykja-
vík. Greinir frá þessari rann-
sókn í blaðinu í dag á bls. 6 og 7.
Síðari greinin birtist á morgun.
Það var 9. mai í vor að Dag-
blaðið óskaði eftir því við Stein-
grím Gaut Kristjánsson héraðs-
dómara í Hafnarfirði, sem ann-
aðist rannsóknina, að blaðið
fengi aðgang að rannsóknar-
skjölunum til athugunar og
hugsanlegrar umfjöllunar í
blaðinu. Steingrimur taldi sig
þó ekki geta látið skjölin af
hendi.
Þá var leitað til dómsmála-
ráðuneytisins og óskað bréflega
eftir skjölunum. Svar barst eft-
ir þrjá daga. Það hljóðaði svo:
„Svars við erindi þessu má
ekki vænta fyrr en erindið
Jhefur verið kannað nánar,
meðal annars leitað umsagn-
ar nefndar sem skipuð hefur
verið til að semja lagafrum-
varp um upplýsingaskyldu
stjórnvalda."
Þessu mótmælti Dagblaðið í
bréfi 24. júni, þar sem sagði
m.a.: ,,Ekki verður séð að
nefnd, sem skipuð var til að
semja lagafrumvarp um upp-
lýsingaskyldu stjórnvalda ....
geti verið aðili að málinu, enda
var sú nefnd ekki skipuð til að
vera ráðuneytinu til ráðgjafar
um óskir af þessu tagi. — Dag-
blaðið telur því eðlilegt að það
fái aðgang að umræddum skjöl-
um nú þegar, enda er um opin-
bert mál að ræða.“
Daginn eftir barst blaðinu
bréf ráðuneytisins, sem skrifað
var áður en mótmælabréf DB
var sent. Ráðuneytið sagðist nú
ekki hafa ,,á móti að þér fáið
þessi gögn til athugunar, enda
samþykki ríkissaksóknari að
láta skjölin í té og kærendur
veiti samþykki sitt. Þá telur
ráðuneytið rétt, að gætt sé
nafnleyndar gagnvart kærend-
um.“
28. júní skrifaði DB ríkissak-
sóknara og óskaði eftir að fá
skjöl dómsrannsóknarinnar í
hendur. Fylgdi bréfinu afrit af
bréfi dómsmálaráðuneytisins
frá 23. júní. Var tekið fram, að
,,af hálfu Dagblaðsins er ekkert
því til fyrirstöðu að nafnleynd-
KÆRT ÚT AF MEÐFERÐ
Á FANGA í 16 7/10 76
, SÍÐUMÚLAF ANGELSINU
_ UIUI hdo «■» «»"' 1 l*"1
ar sé gætt í mögulegri umfjöll-
un um kærurnar og rannsókn á
þeim í blaðinu."
Ríkissaksóknari brást fljótt
og vel við. í bréfi hans til blaðs-
ins 8. júlí rakti hann gang máls-
ins og afskipti sín af því. Sagði
ríkissaksóknari sér vera það
„ljúft að senda yður með bréfi
þessu ljósrit af öllum bréf-
um embættis ríkissaksóknara
út af máli þessu...
...Hitt þykir mér miður að
þurfa að skýra yður frá því, að
ég get ekki látið yður í té ljósrit
eða afrit af öðrum skjölum máls
ins en þeim, sem frá embætti
ríkissaksóknara hafa farið. Ef
gengið væri lengra í þessu efni
af ákæruvaldsins hálfu væri
farið inn á svið annarra sjálf-
stæðra aðila í stjórnskipan
ríkisins.
Þannig er það hlutverk dóm-
stóla en ekki ákæruvalds að
láta öðrum í té endurrit af dóm-
prófum og dómskjölum, svo og
að taka ákvörðun um þau efni.“
Þar með var orðinn fil hring-
ur, þar sem hver vísaði á ann-
an. Enn skrifaði Dagblaðið
bréf, i þetta sinn til Steingríms
Gauts Kristjánssonar dómara.
Var óskað eftir því að fá aðgang
að skjölum málsins. Þetta bréf
var skrifað 4. ágúst í sumar.
Vegna sumarleyfis dómarans
barst svar hans ekki fyrr en
með bréfi dags. 21. september.
Þar tilkynnti hann að endurrit
rannsóknarinnar væri tilbúið
til afhendingar á sýsluskrifstof-
unni í Hafnarfirði. „Endurrit
rannsóknarinnar er látið í té í
trausti þess, að nafnleyndar
verði gætt og fyllstu óhlut-
drægni í frásögnum af rann-
sókninni og efni hennar," sagði
dómarinn ennfremur í bréfi
slnu.
Dagblaðið taldi sig nú aðeins
skorta eitt: umsögn dómsmála-
ráðuneytisins til ríkissaksókn-
ara um rannsóknina. Blaðið
óskaði bréflega eftir afriti af
því bréfi 29. september. Eftir
tæpan mánuð kom þaö bréf.
Töfin stafaði m.a. af verkfalli
opinberra starfsmanna.
Frásögn Dagblaðsins af rann-
sókninni um meinta ótilhlýði-
lega beitingu agaviðurlaga í
Síðumúlafangelsinu hefur
þannig átt sér óvenju lang-
an aðdraganda — en það
sannar kannski að kerfið er
ekki ósigrandi.
•OV