Dagblaðið - 07.11.1977, Síða 8

Dagblaðið - 07.11.1977, Síða 8
8 DAGBLAÐIÐ. MÁNUDAGUR 7. NOVEMBER 1977. Skoðanakönnun sjalfstæðismanna KLIPPIÐ Undirritaður flokksbundinn í Sjólfstœðisflokknum í Reykjavík, styður að sú neðangreinda spurninga, sem krossað er framan við, verði meðal fimm spurninga í' skoðanakönnun Sjálfstæðisflokksins samfara prófkjöri í Reykjavík. □ Eruð þér hlynntur því að varnarliðið taki þátt í kostnaði vegna þjóðvegagerðar hérlendis? □ Eruð þér hlynntur því að leyfðverði bruggun og sala áfengs öls á íslandi? □ Eruð þér hlynntur því að rekstur útvarps verði gefinn frjáls? □ Eruð þér hlynntur því að aðsetur stjórnarráðsdeilda verði í gamla miðbænum svonefnda? Nafn Heimili _________________________________________ öskast lagt strax inn á auglýsingadeild blaðsins merkt: Skoðanakönnun um þjóðmál. Aríðandi er að seðillinn berist fyrir nk. mánudagskvöid 7. nóvem- ber. KLIPPIÐ Sjálfstæðisflokkurinn hefur ákveðið að efna til skoðana- könnunar um þjóðmál samfara prófkjöri í Reykjavík dagana 19., 20. og 21. nóvember nk. Undirritaðir telja þetta ákveðin tímamót í sögu flokksins og hvetja því allt sjálfstæðisfólk til þátttöku. Vegna mjög naumra timatakmarkana bjóðum við hér- með ÖLLU FLOKKSBUNDNU SJALFSTÆÐISFÖLKI að gerast á auðveldan hátt stuðningsmenn þeirra fimm spurninga sem vitað er um að hafin er söfnun meðmæl- enda fyrir. Alls þurfa 300 manns að styðja hverja spurn- ingu. Hver maður getur aðeins stutt eina spurningu. Þér krossið við þá spurningu sem þér viljið að verði með í skoðanakönnuninni, skrifið nafn yðar og heimilisfang undir og sendið strax á auglýsingaafgreiðslu blaðsins. Ef þér viljið safna fleiri meðmælendum á eigin spýtur þá skriflð texta á blað í samræmi við þá spurningu sem þér viljið styðja og sendið nöfnin á sama stað. Nánari upplýsingar í síma 74575 um helgina. Ahugamenn um nýjar leiðir innan Sjálfstæðisflokksins. NILFISK sterka rvksusan... V Afborgunarskilmálar Styrkur og dæmalaus ending hins þýðgenga. stillanlega og sparneytna mótors, staðsetning hans oghámarks orkunýting. vegna lágmarks loft- mótstöðu í stóru ryksíunni, stóra. ódýra pappírspokanum og nýju kónísku slöngunni, afbragðs sog- stykki og varan- legt efni, ál og stál. Svona er NILFISK: Vönduð og tæknilega ósvik- in. gerð til að vinna sitt verk fljótt og vel. ár eftir ár. með lág- marks truflunum og tilkostnaði Varanleg: til lengdar ódvrust. Nýr hljóð- deyfir: Hljóðlótasta ryksugan. Traust þjonusta Ný keilu-slanga: 20% meira sogafl, stíflast síður. ETnMIY HÁTÚN 6A rUIIIA SÍMI24420 Raftækjaúrval — Næg bflastæði Moskva: HÁMARK BYLTING- ARHÁTÍÐARINNAR Á RAUÐA TORGINU Hámark hátíðarinnar vegna sextíu ára afmælis sovézku byltingarinnar er í dag og klukkan tlu að staðartíma er hersýning í Moskvu og hátíðar- ganga á Rauðatorginu. Að þessu sinni verður sýn- ingin á hergögnum mikilfeng- legri en venjulega og gangan einnig lengri. Moskvuborg er fánum skreytt og yfir snjónum, sem þekur þar allar götur, rísa spjöld og veifur sem fagna af- mælinu og hylla forustumenn sovézka kommúnistaflokksins. Á hersýningunni í dag er nýjasta skriðdrekategund sovézka hersins í heiðurssæti. Fjörutfu og sex T-72 skrið- drekar munu taka þátt f her- sýningunni en á þeim eru meðal annars 122 millimetra byssur. Búizt er við að sýningin taki meira en hálfa klukkustund sem er helmingi lengra en her- sýningin í fyrra. Einnig eru sagðir verða mun fleiri vagnar og hertæki en þá. Varnarmálaráðherra Sovét-' ríkjanna, Dmitri Ustinov, mun flytja aðalræðu dagsins en við- staddir verða allir helztu leið- togar landsins. Einnig verða á annað hundr- að erlendir gestir frá komm- únistaflokkum erlendis eða flokkum hlynntum Sovétríkj- unum. Allri athöfninni verður sjón- varpað beint um öll Sovétríkin og Austur-Evrópu. Mikla athygli hefur vakið deila fulltrúa spænskra komm- únista við yfirvöld í Sovétrikj- unum og varð hún öllum ljós þegar Santiago Carrillo, for- maður flokksins, sneri aftur til Spánar eftir að komið hafði verið í veg fyrir að hann flytti ræðu við hátíðlega athöfn í Kreml, eins og ráðgert hafði verið. Er talið að Sovétstjórnin vilji með þessu sýna afstöðu sina til Evrópukommúnismans og undirstrika það að hún viður- kenni engan veginn þá skoðun ýmissa vestur-evrópskra komm- únistaleiðtoga að flokkar þeirra megi fara sínar eigin leiðir hvað sem Sovétstjórninni líður. Fangar, sem hlotið hafa skemmra en fimm ára fangelsi og ekki eru dæmdir vegna póli- tískra afbrota hafa fengið náð- un eða styttingu á refsingu. AFTUR VINSTRI VIÐRÆÐUR í FRAKKLANDI Franskir sósialistar vilja nú taka aftur upp viðræður við kommúnistaflokkinn til að reyna að tryggja samstöðu vinstri aflanna I Frakklandi i kosningunum sem verða I marz næstkomandi. Viðræður kommúnista, sósialista og vinstri radikala fóru út um þúfur i sept. og virtust horfur á að ekkert yrði úr kosningabandalagi þessara flokka. A landsþingi sósíalista sagði ritari flokksins að stefnt yrði að því að viðræður milli flokkanna gætu hafizt innan tíu daga. Talið er að foringjar sósíal- ista með Mitterand formann í fararbroddi hafi með þessu látið nokkuð undan síga fyrir vinstri armi flokksins, sem mjög hefur hvatt til samvinnu við kommúnista. Fyrr á þessu ári var talið líklegt, samkvæmt skoðana- könnunum, að bandalag vinstri flokkanna hefði góða mögu- leika á að sigra f kosningunum í marz næstkomandi en eftir að viðræður hættu í september virtist hin sameiginlega stefnu- skrá þeirra frá 1972 með endur- bótum vera gleymd og grafin. Stjórnarflokkarnir til hægri og mióflokkarmr í Frakklandi hafa komizt að sameiginlegri kosningasteí'nuskrá. Mitterrand foringi sósíalista í Frakklandi væri líklegastur til að taka við völdum ef vinstri flokkarnir ynnu sigur í kosningunum í marz. Övíst er þó talið að þeir geti komið sér saman um sameigin- lega kosningastefnuskrá. Ekki er víst að samstarfi vinstri fl. verði svo auð- veldlega komið á, því síðan við- ræðum var hætt í september Erlendar fréttir síðastliðnum hafa risið úfar með mönnum innan flokkanna og hefur til dæmis formaður vinstri radikala lýst þvi yfir að hann muni ekki ganga lengra til móts við kröfur kommúnista en hann hafi þegar gert. REUTER

x

Dagblaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Dagblaðið
https://timarit.is/publication/260

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.