Dagblaðið - 07.11.1977, Qupperneq 9
DAGBLAÐIÐ. MANUDAGUR 7. NÖVEMBER 1977.
9
Bandaríkin:
Flóðin sópuðu
heilu fjölskyld-
unum burtu
Björgunarsveitir leituöu í
aurskriðum og grjóti að fólki
sem Ienti í flóði sem varð við
borgina Toccoa í Georgíufylki í
Bandaríkjunum, þegar stífla
brast.
Fyrstu fregnir hermdu að í
það minnsta tuttugu og átta
manns hefðu farizt og margir
slasazt en nú er vitað með vissu
að tala látinna er í það minnsta
þrjátíu og sjö og ekki færri en
fjörutíu og fimm hafa meiðzt á
einhvern hátt.
Stiflan sem brast mun ekki
hafa þolað þrýstinginn sem
varð vegna mikilla rigninga að
undanförnu en fólkið sem lenti
í flóðinu var flest sofandi í
heimavist lítils biblíuskóla eða
I húsvögnum á stæði rétt við
húsnæði skólans.
Vitni segja að flóðið hafi
þrifið með sér bæði bifreiðir,
stóra hnullunga og húsvagna án
þess að þeir sem í þeim voru
gætu nokkra björg sér veitt.
Hurfu þannig heilu fjölskyld-
urnar í villtan strauminn.
FÁ FRAKKAR AÐ
FISKA SÍLDINA
Landbúnaðarráðherrar Efna-
hagsbandalagslandanna munu
hittast á tveggja daga fundi, sem
hefst í Briissel í dag. Munu þeir
ræða þar ýmis mál en ekki er gert
ráð fyrir að neinar stórákvarðanir
verði teknar.
Meðal þess sem rætt verður á
fundinum er hvort leyfa eigi
frönskum fiskimönnum að veiða
allt að 600 tonnum af síld i
Norðursjónum fram að næstu ára-
mótum.
Væri það þá undantekning frá
veiðibanni sem öll Efnahags-
bandalagsríkin höfðu gengizt
undir innan lögsögu sinnar en
í tillögunni um veiðar Frakk-
anna er gert ráð fyrir að þeir
megi veiða í allt að þriggja
mílna fjarlægð frá ströndum.
Carillo formaður spænska kommúnistaflokksins sneri heim til
Spánar í fússi þegar honum var hannað að flytja hátiðarræðu sína i
Moskvu. Sovézkir valdamenn iétu ekki þar við sitja heldur sáu þeir
einnig svo um aö Carillo var vísað til sætis á óæðri bekkjunum á
hátíðarfundi. Með þessu vilja þeir líkiega lýsa andúð sinni á
sjálfstæðri stefnu Carillos.
Egyptaland:
SADATBORG—hálf
milljón um aldamót
Egyptar hafa gert samninga við
bandarísk verkfræðifyrirtæki um
að hanna og gera áætlanir um
nýja borg sem kennd verður við
Sadat forseta landsins.
Fyrstu áætlanir eiga að .vera
tilbúnar innan tólf mánaða og er
áætlaður kostnaður við þann
hluta verksins nærri þrjár millj-
ónir dollara eða jafnvirði rúmlega
600 milljóna íslenzkra króna.
Sadatborg á að vera á milli
Alexandriu og Cairo og er ætlun-
in að hún verði höfuðborg nýs
héraðs sem verði með sjö milljón- Nýja borgin á að hýsa hálfa
ir íbúa, þegar það verður full- milljón íbúa um næstu aldamót ef
byggt. áætlanir standast.
ITALSKUR
KVIKMYNDA-
IÐNAÐUR í
VANDA
Italskur kvikmyndaiðnaður
sem ekki hefur gengið vel á
undanförnum árum fékk enn eitt
verkfallið til að glíma við í gær.
Starfsmenn nær allra þeirra
3500 kvikmyndahúsa sem á Italíu
eru fóru í sólarhrings verkfall til
að knýja fram launahækkanir og
endurbætur á dreifingarkerfinu.
Verkfallið var annað af því tagi
á minna en mánuði en aðsókn að
kvikrriyndahúsum á Italíu hefur
dregizt mikið saman og einnig
framleiðsla kvikmynda.
OLAFUR
GEIRSSON
Póstsendum
Bræóraborgarstíg 16, Sími 12923-19156
|Hr édm * . 1 jl wfStr, * irck^H
Fyj . j lo irj
\