Dagblaðið - 07.11.1977, Qupperneq 13
DACBLAÐIÐ. MANUDAGUR 7. NÓVKMBER 1977.
13
„Samsetning einstakra tegunda
herafla í sameiginlegum herstyrk
og hraðvirkari boðun fyrstu við-
varana um árás á varnarkerfi
Nató eru nú mestu áhyggjuefni
æðstu embættismanna þess.
Bandaríkin leggja nú mikla
áherzlu á að NATO taki ákvörðun
um að nota Boeing E-3A frá
bandaríska hernum áður en ráð-
herrafundur bandalagsríkjanna
verður haldinn hér í Brussel í
desembermánuði.“ Þannig hefst,
athyglisverð grein í virtu og að
þvf er talið einu áreiðanlegasta
tímariti um flug og hernaðarmál-
efni, sem út er gefið, Aviation
Week & Space Technology, ekki
alls fyrir löngu. Greinin er rituð
af Clarence A. Robinson, jr. og er
hún hin fjórða í röð greina um
þau vandamál sem Atlantshafs-
bandalagið á nú við að etja.
Varnarmáladeild Bandaríkja-
hers hvetur til þess að NATO taki
í notkun 18 slíkar flugvélar, þ.e.
Boeing E. 3A. Embættismenn eru
hins vegar sannfærðir um að eng-
inn verulegur sparnaður sé í þvi
að fækka úr 27 þeim flugvélum
sem ætlað er nú að vera í hinu
háþróaða viðvörunarkerfi banda-
lagsins. Þær kosta um 2,5 millj-
arða dollara (530 milljarða ísl.
króna).
Áreiðanleiki og styrkur flug-
flotans í viðvörunarkerfinu er
geysilega þýðingarmikill í því
hlutverki að mæta lágfleygum
flugvélum Sovét-Var-
sjár-bandalagsins, sem geta
gert árás á NATO-flugvelli í
Evrópu með lágflugi sem radar-
kerfið merkir ekki. Með þeirri
aðferð væri hægt að gera skyndi-
árás sem að sjálfsögðu gerði að
engu þann viðbragðsflýti sem
nauðsynlegur væri varnaraðgerð-
um.
Bretar hœttu þátttöku
og sneru sér að
Nimrodþotum
Bretar drógu að sér höndina
um þátttöku í kerfinu, sem nefna
mætti „fyrstu viðvörun" til
NATO. Kusu þeir að treysta
heldur framleiðslu hinnar full-
komnu Nimrod-þotu Hawker
Siddeley. Síðan hefur æðsta
stjórn viðvörunarkerfisins glímt
við ýmsar hugmyndir til þess
að halda gangandi viðræðum um
hugsanleg kaup bandalagsins á
Boeing E-3A.
Bandaríkjamenn telja nú að
lykillinn að hugsanlegum
kaupum NATO-varnarkerfisins á
E-3A vélunum sé áhrif Benelux-
landanna og Vestur-Þýzkalands.
Hér kemur fram æðisgengið
kapphlaup á milli bandalagsríkj-
anna, einkum Bandaríkjanna og
iðnaðarríkjanna í Evrópu, í fram-
leiðslu, tækniþróun og sölu dýr-
ustu hernaðartækja Atlantshafs-
bandalagsins.
Fram kemur í greininni að
Evrópurikin leggja gífurlega
mikið upp úr því að efla tækni-
þróun sína i að minnsta kosti tvo
Hvert á Atlantshafsbandalagið að stefna í herfræðilegum efnum?
Æðisgengið kapphlaup um
hver á að selja og framleiða
hernaðartækin
Orrustuþotur varnarliðsins á Keflavíkurflugvelli hafa oftast þótt í eldra Iagi miðað við flugvélar á flestum öðrum herstöðvum Banda-
rikiamanna. Myndin er af orrustuþotu á vellinum tegund Madonnell Douglas F-4c. Verður sú tegund ekki leyst af hólmi á næstunni.
DB-myndir ÓV
næstu áratugina. Þau hafa ekki
yfir að ráða þeim hráefnum sem
Bandaríkin hafa. Þýðingarmesta
lið í því að halda samkeppnisað-
stöðu sinni telja þjóðir bandalags-
ins vera tækniþekkingu. Evrópa
verður að nýta framleiðslugetu
sína og vinnuafl til þess að halda
þeirri stöðu, sem hún hefur nú á
tæknisviðinu.
Ætla Bandaríkin
að veita tœkni- og
einkaleyfaupplýsingar?
Bandalagsríkin telja nú að
Bandarikin séu ekki, eins og er,
reiðubúin til samvinnu á þeim
skilmálum sem Evrópuríkin sætta
sig við. Embættismenn hafa tjáð
sig um þetta vandamál. Þeir
segja, að Bandaríkin hafi nú um
það bil tvö ár til þess að sýna
Evrópu það svart á hvítu, að þau
telji gagnkvæmt samskipti í
tækniþekkingu, framleiðslusam-
vinnu og einkaleyfaskiptum öll-
um aðilum til hagsbóta. Eftir
þann tíma verður Evrópa ekki til
viðtals. „Sú staða er ekki tilhlökk-
unarefni," sagði háttsettur emb-
ættismaður í Brtlssel.
NADGE radarstöðvar
eru mikilvœgastar
Helzta viðvörunarkerfið gegn
hættu af sovézkri árás úr lofti er
varnarstöðvakerfi NATO
(NADGE) — samtengt kerfi 84
radarstöðva í níu NATO-löndum.
NADGE er beitt með öllum þess
tölvustýrðu hæfileikum til að
fylgjast með ferðum allra að-
skotaflugvéla og óvinaskeytum
sem á ferð eru yfir sjávarborði.
Radarstöðvar NADGE eru mis-
munandi í hinum ýmsu löndum.
Sumar eru búnar þrívíddartækj-
um en aðrar tvívíddar. Aðeins 34
af stöðvunum 84 eru búnar tölv-
um til úrvinnslu upplýsinga.
Allar stöðvarnar geta fylgzt með
flugvélum upp í 100.000 feta hæð
en eiga í erfiðleikum með að
fylgjast með vélum í lágflugi
vegna sjónlínu ratsjánna. Margar
stöðvanna eru á lykilstöðum,
hæðar- og fjallatoppum og því í
skotmarki flugvéla og yfirborðs-
flugskeyta.
Linesman radarkerfið brezka
er helzta viðvörunarkerfið í þrí-
víddarradarkerfinu með sam-
tengdan útbúnað til tölvuúr-
vinnslu. Það er tengt sex stöðvum
NADGE-kerfisins. Tölvuútbún-
aðurinn sér brezkum eftirlitsflug-
vélum fyrir upplýsingum um
sovézkar flugvélar er radarstöðv-
ar í Noregi og Danmörku eygja.
Bæði Bandaríkin og Bretar láta
í té „fljúgandi viðvörunarstöðv-
ar“ á N-Atlantshafi. Brezki flug-
herinn notar Hawker Siddeley
Shackleton flugvélar sem breytt
hefur verið f „fljúgandi viðvör-
unarstöðvar“. Áætlað er að Nim-
rod vélar taki við hlutverki
þeirra.
Lockheed þotur
ó íslandi
of gamlar og fáar
Bandaríski flugherinn notar
Lockheed FC-121 vélar sem hafa
bækistöðvar á íslandi. Þessar
gömlu vélar geta ekki annað sínu
margbreytilega hlutverki og þær
eru heldur ekki nógu margar til
að geta tryggt „fljúgandi viðvör-
unarkerfi“ á öllu hafsvæðinu.
Bandaríkjamenn ætla því að láta
E-3A vélar sem nú eru i smíðum
taka við hlutverki þeirra.
Bandaríski flughe'rinn hefur
einnig uppi áform um að staðsetja
eigin E-3A vélar f Bretlandi sem
fyrst, burtséð frá aðgerðum
NATO f þá átt að fá þangað
AWACS vélar. E-3A vélar f Bret-
landi yrðu notaðar af Bandaríkja-
mönnum á miðsvæðinu og til
eftirlits á sjó.
HMV
Sjónvarpstæki
HIS MASTER’S VOICE sjónvarpstæki eru heimsþekkt gæðavara
með áratugs reynslu á íslenskum markaði.
ýtbo«9un
FÁLKIN N
SUÐURLANDSBRAUT 8, SÍMI 84670
®