Dagblaðið - 07.11.1977, Síða 18
18
f
DAGBLAÐIÐ. MANUDAGUR 7. NÖVEMBER 1977.
Iþróttir
Iþróttir
íþróttir
Iþróttir
D
Fyrsti tapleikur Liverpool
á Anf ield í átján mánuði
Þá kom að því, að Evrópu-
meistarar Liverpool töpuðu á
heimavelii. Aston Vilia kom f
heimsókn á iaugardag og tókst
að sigra meistarana 2-1. Það var
fyrsti tapleikur Liverpool á An-
field frá því í marz 1976 eða í
18 mánuði. Eitt og hálft ár!! Á
þeim tíma hafði Liverpool leik-
ið 38 leiki án taps — giæsilegt
met, sem skozka landsliðsmið-
herjanum Andy Gray hjá Villa
tókst að stöðva. Hann skoraði
bæði mörk liðs sins. Hið fyrra á
41. mín. með skalla eftir að
knötturinn hafði áður tvívegis
lent í slám marks Liverpool.
Hið síðara á 67. mín. þegar
hann fékk knöttinn eftir auka-
spyrnu. Lék á bakvörðinn Joey
Jones og sá smágat milli Ray
Ciemence, markvarðar og
stangarinnar. Renndi knettin-
um þar í markið af miklu
öryggi. i millitíðinni hafði
Frank Carrodus sent knöttinn i
eigið mark, svo það voru leik-
menn Birmingham-liðsins, sem
skoruðu öll mörkin í leiknum.
Lið Aston Villa verðskuldaði
mjög sigurinn. Var betra liðið í
leiknum, þar sem bakverðirnir
Gidman og Smith gerðu oft
mikinn usla í vörn Liverpooi
méð skyndisóknum upp kant-
ana. Þó hefðu úrslit sennilega
getað orðið önnur ef David
Fairclough hefði ekki farið illa
með opið færi í upphafi leiksins
— en eins og leikurinn þróaðist
gátu ekki einu sinni hörðustu
aðdáendur Liverpool, The Kop,
mótmælt því, að Villa verð-
skuldaði sigurinn. í síðustu
þremur leikjum sínum hefur
Liverpool aðeins hlotið eitt stig
af sex mögulegum og virðist í
einhverjum öldudal.
Lið Brian Clough gerir ekki
frægðarferðir til heimsborg-
arinnar, Lundúna. Tapaði þar
fyrir Chelsea á laugardag og
það er ánnar tapleikur liðsins í
1. deild á leiktlmabilinu. Hinn
fyrri einnig í Lundúnum, gegn
Arsenal. Tap Forest gegn Chel-
sea var þó ekki stórt, 1-0, en það
var aðeins snilldarmarkvarzla
Peter Shilton, sem kom í veg
fyrir hrun. Hann réð þó ekki
við skot Trevor Aylott á 55.
mín. og það var sigurmark leik-
sins. Tvívegis áður — á fimmtu
og 75. mín. — hafði Shilton
varið á frábæran hátt frá hin-
um 19 ára Aylott. Þar virðist
geysimikið efni á ferðinni hjá
Lundúnaliðinu. Ilann lék nú
sinn annan leik í aðalliði Chel-
sea — og í hinum fyrri skoraði
hann einnig sigurmarkið. Gegn
Bristol City. Chelsea hefur náð
sér vel á strik að undanförnu og
„gömlu mennirnir“ Charlie
Cooke og Peter Bonetti hafa átt
mikinn þátt í því með ungu
strákunum. Þrátt fyrir tap For-
est hefur liðið enn þriggja stiga
forustu í 1. deiíd — og verður
áreiðanlega meðal efstu liða,
þegar upp verður staðið 1 vor.
En áður en lengra er haldið,
skulum við lita á úrslitin á laug-
ardag. Flestir leikirnir byrjuðu
miklu fyrr en venjulega vegna
rafmagnsdeilunnar á Englandi,
þar sem starfsmenn raforku-
veranna fara sér hægt. Flóðljós-
in voru því notuð i fáum leikj-
um.
1. deild
Birmingham-Wolves 2-1
Chelsea-Nott. For. 1-0
Coventry-West Ham 1-0
Derby-Everton 0-1
Ipswich-Man. City 1-0
Leeds-Norwich 2-2
Liverpool-A. Villa 1-2
Man. Utd.-Arsenal 1-2
Middlesbro-QPR 1-1
Newcastle-Bristol C. 1-1
WBA-Leicester 2-0
2. deild
Blackburn-Southampton 2-1
Blackpool-Sheff. Utd. 1-1
Bristol Ro.-Millwall 2-0
Cardiff-Stoke 2-0
Bakvörður
iaugardag.
horfir á.
Birmingham, Macolm Pages, spyrnir knettinum frá á marklínu i leiknum við Arsenal fyrra
Jafntefli varð 1-1. Jim Montogomery, markvörður, sem varði víti Ken Hibbitt á laugardag,
— þegar Aston Villa kom í heimsókn á laugardag.
Liverpool haf ði leikið þar 38 leiki án taps. Nottingham
Forest tapaði í Lundúnum fyrir Chelsea en hefur
samt þriggja stiga forskot
Charlton-Mansfield 2-2
Fulham-Sunderland 3-3
Luton-Hull City 1-1
Nott. Co.-Brighton 1-0
Oldham-C. Palace 1-1
Orient-Bolton 1-1
Tottenham-Burnley 3-0
3. deild
Bury-Rotherham 1-1
Chesterfield — Bradford 2-0
Exeter-Oxford 2-1
Lincoln-Chester 2-1
Peterbro-Cambridge 2-0
Portsmouth-Tranmere 2-5
Port Vale-Preston 0-0
Sheff. Wed.-Carlisle 3-1
Shrewsbury-Hereford 3-0
Swindon-Gillingham 3-2
Walsall-Colchester 4-2
Wrexham-Plymouth 2-0
4. deild
Bournemouth-Stockport 1-0
Brentford-York 1-0
Crewe-Rochdale 2-1
Halifax-Doncaster 0-1
Hartlepool-Watford 1-2
Northampton-Newport 2-4
Reading-Darlington 2-1
Scunthorpe-Huddersfield 1-1
Southport-Aldershot 1-1
Southend-Barnsley 0-0
Torquay-Grimsby 3-1
Wimbledon-Swansea 1-1
West Bromwich skauzt upp f
annað sæti með sigri gegn Lei-
cester og er langt síðan svo ó-
jafn leikur hefur sézt í 1. deild.
WBA hefur gifurlega yfirburði
og hefði frekar átt að sigra með
10-0 en 2-0 eins og úrslitin i
leiknum urðu. Tony Brown
skoraði fyrra markið á 14. mín.
með þrumufleyg frá vítateigs-
línunni eftir hornspyrnu. Á 37.
min. tók hann vítaspyrnu eftir
að Willie Johnstone hafði verið
felldur innan vítateigs. Spyrnti
þá himinhátt yfir mark Leicest-
er. A 70. mín. skoraði David
Cross siðara mark WBA — en
leikmenn liðsins, einkum svert-
inginn Lurie Cunningham, fóru
mjög illa með góð tækifæri.
Frank McLintock á í miklum
erfiðleikum hjá Leicester
vegna meiðsía lcikmanna. Þeir
Eddie Kelly og George Arm-
strong, báðir áður með Arsenal
eins og McLintock, gátu a :;íð-
ustu ■*■:->du ekki tekið þátt
f leiknum i WBA.
Everton hefur sama stiga-
fjölda og WBA og hefur nú
ekki tapað f 12 leikjum. Tapaði
hins vegar tveimur fyrstu
leikjunum. Liðið vann heppnis-
sigur í Derby á laugardag, þar
sem heimaliðið var betra liðið á
vellinum þó svo Todd, McFar-
land og George vantaði í lið
Derby vegna meiðsla. En
George Woods, sem lék hér í
sumar með stjörnuliði Bobby
Charlton, var stórkostlegur í
marki Everton. Varði allt sem á
markið kom — einkum var
glæsilegt, þegar hann kastaði
sér fyrir fætur Don Masson og
bjargaði. Þegar 15 mín. voru til
leiksloka brugðust flóðljósin í
Derby — en leikurinn þar var
einn þriggja leikja í 1. deild
sem byrjuðu á tilsettum tíma.
Derby hafði fengið rafmagns-
mótor að láni — og meðan gert
var við hann fóru leik-
mennirnir til búningsher-
bergjanna. Það tók stundar-
fjórðung og svo hófst leikurinn
á ný. A 82. mín. fékk Everton
aukaspyrnu. Trevor Ross , sem
keyptur var frá Arsenal í
vikunni fyrir 150 þúsund pund
og var settur I lið Everton á
síðustu stundu í stað Mike
Pejic, tók spyrnuna og gaf
beint á höfuð Mick Lyons, fyrir-
liða Everton, sem skallaði í
mark. Það var eina mark leik-
sins. Bruce Rioch lék á ný með
Derby gegn sínum gömlu fél-
ögum i Everton — seldur þaðan
í vikunni síðustu — og átti góð-
an leik. En George Woods, sem
Everton keypti frá Blackpool í
sumar, varði snilldarlega frá
honum sem öðrum leikmönnum
Derby i leiknum.
t!oventry er I fjórða sæti með
sötnu stigatölu og WBA og
Everton. Hefur virkilega komið
á óvart. Félagiö keypti sér raf-
magnsgræjur fyrir 5 milljónir
fyrir leikinn og þar kom ekkert
fyrir fljóðljósin. Coventry
sigraði West Ham með marki
Ian Wallace í s.h. Tíunda mark
hans á leiktímabilinu.
Manchesterliðin töpuðu
bæði. Man.City f Ipswich, þar
sem Paul Mariner skoraði strax
á 3ju min. og á næstu mín.
sendi hann knöttinn aftur f
mark City. Það var dæmt af.
Sóknarmenn Man. City komust
lítið áleiðis gegn sterkri vörn
Ipswich, þar sem irski lands-
liðsmaðurinn Alan Hunter var
aðalmaðurinn. Man. Ut. — án
Greenhoff-bræðranna og Lou
Macari — tapaði fjórða leikn-
um í röð f 1. deild. Nú á heima-
velli fyrir Arsenal. United
byrjaði með miklum látum en
tókst ekki að skora snemma
leiks eins og ætlunin greinilega
var. Siðan dalaði leikur liðsins.
Þó skoraði United fyrsta mark
leiksins, þegar talsvert var liðið
á síðari hálfleikinn. Gordon
Hill skoraði (Jimmy Nicholl
segir f fréttaskeyti Reuters),
eftir því sem fréttamaður BBC
á Old Trafford skýrði frá. Mal-
colm MacDonald jafnaði fyrir
Arsenal — en rétt I lokin urðu
Arthur Graham,sem komið
hafði inn sem varamaður hjá
United, á mikil mistök. Ætlaði
sér að gera eitthvað „ffnt“ við
knöttinn á eigin vítateig. Frank
Stapleton náði af honum knett-
inum og skoraði hjá Stepney —
sigurmark Arsenal. Pat Jen-
nings lék mjög vel f marki Ar-
senal.
Peter Lorimer skoraði bæði
mörk Leeds gegn Norwich í 2-2
jafntefli liðanna. Það var gott
stig hjá Norwich, sem alltaf
hefur gengið illa f Leeds. Roger
Gibbins náði forustu fyrir Nor-
wich á 29. mín, Lorimer jafn-
aði á 32. mfn. A 39. mfn. skor-
aði John Ryan fyrir Norwich
beint úr aukaspyrnu af 30
metra færi, þar sem Stewart,
markvörður Leeds, hjálpaði
knettinúm í mark. Áftur jafn-
aði Lorimer og það var 150.
deildamarkið, sem hann skorar
fyrir Leeds. Þarf nú aðeins
fjögur mörk til viðbótar til að
jafna markamet John Charles
hjá Leeds. Trevor Francis náði
forustu fyrir Birmingham á 32.
mín. og Terry Hibbitt kom
liðinu i 2-0 áður cn Martin
Patching skoraði eina mark
Ulfanna. Þeir fengu vítaspyrnu
f leiknum en markvörður
Birmingham, Montomery, gerði
sér lítið fyrir og varði frá Ken
Hibbitt. Martin Busby náði for-
ustu fyrir QPR en Graeme Hed-
ley jafnaði fyrir Middlesbro nfu
mfn. fyrir leikslok. Ekki tókst
Newcastle að sigra Bristol City.
Sex breytingar voru gerðar á
liðinu, sem tapaði gegn Gastia í
UEFA-keppninni á miðviku-
dag. Dennis Martin skoraði
fyrir Newcastle á 74. mín. en
Don Gillies tókst að jafna fyrir
Bristol-liðið.
I 2. deild missti Bolton stig í
Lundúnum gegn Orient, held-
ur þó enn forustunni. Bill Rof-
fey skoraði fyrir Orient á 37.
mín. en Greaves jafnaði fyrir
Bolton úr vitaspyrnu. Peter
Taylor, McNab og Glen Hoddle
skoruðu mörk Tottenham í f.h.
gegn Burnley — en aðal-
hasarinn var f leik Blackburn
og Southampton í deildinni.
Leikmenn Southampton urðu
mjög æstir, þegar dæmd var á
þá vítaspyrna, sem Blackburn
skoraði sigurmark sitt úr. Peter
Osgood og Williams voru reknir
af velli og léku Dýrlingarnir
þvf níu það sem eftir var leik-
sins. Fjórir leikmenn liðsins
voru bókaðir í leiknum. John
Waddington skoraði úr vftinu
fyrir Blackburn, sem náðu for-1
ustu f leiknum á 8. mín. með
marki Noel Brotherstone, sem
valinn hefur verið í n-irska
landsliðshópinn gegn Belgfu.
David Peach jafnaði fyrir
Dýrlingana úr vfti. Hörkuleik-
ur var og í Lundúnum milli
Fulham og Sunderland. Mit-
chell náði forustu fyrir Ful-
ham, en Greenwood jafnaði
Þá skoraði George Best fyrir
Fulham en Sunderland svaraði
með tveimur mörkum. Rowles
og Arnott skoruðu. Rétt f lokin
jafnaði Maybank fyrir Fulham.
I 3. deild er Wrexham efst
með 21 stig. Shresbury hefur 20
stig og Preston Nobby Stiles og
Tranmere hafa 19 stig. í 4.
deild er Watford efst með 26
stig. Southend.og Aldershot
hafa 21 stig og Brentford 20.
Staðan er nú þannig:
1. deild
Nott. For. 14 10 2 2 28-9 22
WBA 14 8 3 3 27-13 19
Everton 14 7 5 2 27-14 19
Coventry 14 8 3 3 25-18 19
Liverp. 14 7 4 3 19-10 18
Man. City 14 7 3 4 24-14 17
Arsenal 14 7 3 4 17-9 17
A. Villa 14 7 3 4 20-16 17
Norwich 14 6 5 3 18-20 17
Ipswich 14 5 5 4 14-15 15
Birmingh. 14 6 2 6 19-21 14
Leeds 14 3 7 4 21-22 13
Middlesb. 14 4 5 5 16-20 13
Man. Utd. 13 5 2 6 17-19 12
Wolves 14 4 4 6 19-21 12
Chelsea 14 4 4 6 9-13 12
Derby 14 3 5 6 16-20 11
QPR 14 2 6 6 16-22 10
W. Ham 14 2 5 7 14-23 9
Bristol C. 13 > 4 6 12-19 8
Newcastle 14 2 2 10 17-31 6
Leicester 14 1 4 9 4-24 6
2. deild. Bolton 14 9 4 1 23-12 22
Tottenh. 14 9 3 2 33-12 21
Blackpool 14 7 4 3 23-16 18
Blackb. 14 7 4 3 18-14 18
Brighton 14 7 3 4 24-17 17
South’ton 14 7 3 4 21-17 17
Luton 14 7 2 5 23-14 16
C. Palace 14 5 5 4 20-17 15
Charlton 13 5 5 3 24-24 15
Sunderl. 14 4 6 4 20-21 14
Sheff. Utd . 14 5 4 5 21-23 14
Hull 14 4 5 5 12-11 13
Stoke 14 4 5 5 13-14 13
Orient 14 4 5 5 17-19 13
Fulhant 14 3 5 6 20-12 11
Notts. Co. 14 3 5 6 18-25 11
Oldham 14 3 5 6 14-22 11
Cardiff 13 3 5 5 12-21 11
Bristol Rov.14 3 5 6 17-27 11
Mansfield 14 3 4 7 17-22 10
Millwall 14 2 6 6 11-16 10
Burnley 14 1 3 10 9-28 5