Dagblaðið - 07.11.1977, Síða 21
DAGBLAÐIÐ. MANUDAGUR 7. NOVEMBER 1977.
21
Nýtt morð í
Austurianda-
hraðlestinni
Við munum eflaust öll eftir
því að í vetur eða vor fór
Austurlandahraðlestin fræga
sína síðustu ferð að því er talið
var. En nú stendur mönnum til
boða að fara eina ferð ennþá
með henni og það sem meira er,
taka þátt i að leysa morðmál
sem upp kemur innan hennar.
Þann 29. desember leggur
lestin upp í ellefu daga ferð frá
London (nánar til tekið
Viktóríujárnbrautarstöðinni)
til Istanbul. Far með lestinni
.kostar 1540 dollara (310
þúsund) og er mönnum uppá-
lagt að klæðast fötum líkum
þeim sem í tízku voru árið 1920.
í förinni verður heill hópur
leikara sem setur á svið morð.
Þátttakendum gefst siðan
kostur á að leysa morðmálið og
fær sá er það getur farmiðann
endurgreiddan.
Ferðaskrifstofan sem fyrir
þessari óvenjulegu ferð gengst
hefur lofað því að menn sjái
Evrópu á annan hátt en áður
og þeir muni aldrei framar sjá
hann þannig.
DS-þýddi.
(Jr morðinu í Austurlandahraðlestinni eftir Agötu Christie.
Brooks hæðir Hitchcock
— fyrir verk hans íþágu kvikmyndanna
Háðfuglinn frægi, Mel
Brooks, sem hér á landi er
þekktur fyrir jafn frábærar
myndir og Logandi söðlar
(Blazing Saddles) og Þögla
mynd (Silent Movie), sem
reyndar hefur ekki komið
hingað ennþá, aðeins orðspor
hennar er þekkt, er nú að gera
mynd þar sem hanp hæðist að
myndum Alfreðs Hitchcocks á
svipaðan hátt og hann hæddi
kúrekamyndirnar I Logandi
söðlum.
Hitchocks segist vera hrifinn
af hugmyndinni og hlakki til að
sjá myndina sem heitir High
Anxiety. Brooks segir líka að
þrátt fyrir háðið sé Hitchcock
hafinn til skýjanna og framlag
hans til sögu kvikmyndanna
lofað.
DS-þýddi.
Mel Brooks og Alfreð Hitchcock.
Jodie
Foster
i franskri
mynd
Þegar þessi 14 ára krakki hljóp
um götur Parísarborgar og dró á
eftir sér flugdreka hafa vegfar-
endur eflaust hugsað sem svo að
hún væri ein af þessum venjulegu
geggjuðu ameríkönum, en það er
ekki rétt.
Þetta er Jodie Foster sem
hleypur til þess að fá útrás á milli
þess sem hún leikur í myndinni
Bláa blóminu mínu (My Blue
Flower) sem Eric Le Hung
stjórnar. Myndin er tekin upp í
París þar sem Le Hung býr og
Jodie segist bókstaflega vera ást-
fangin af þeirri borg. Þar sé svo
ákaflega skemmtilegt að vera.
Bezti vinur hennar um þessar
mundir er líka meðleikari hennar
í Bláa blóminu Bernard Giraudot.
Hann leikur kærastann hennar í
myndinni og er sagður vilja skipa
það hlutverk í veruleikanum.
DS-þýddi.
Smurbrauðstofan
BJORNINN
Njálsgötu 49 - Simi 15105
Borgartún 29
samastadur
fyrir bilaeigendur
Þar veitum við (innandyra, sem utan) alhliða
hjólbarðaþjónustu. Seljum allar tegundir af
hjólbörðum frá ATLAS og YOKOHAMA
Framkvæmu'm allskonar hjólbarðaviðgerðir.
Höfum tekið í notkun mjög nákvæma
rafeindastýrða hjólastillingavél (,,ballansering“)
Veriö velkomin og reynið þjónustuna.
Véladeild HJÓLBARDAR
Sambandsins y?..........
Bílmotta
semheldur
þurru og hreinu
Hvernig er það nú hægt? Jú — í vætu og snjó
lætur þú hliðina með kantinum snúa upp. Vatnið
safnast í botninn á mottunni en skórnir hvíla
þurrir á upphleyptu munstrinu. Hellt úr eftir
þörfum. í þurrkatíð lætur þú hina hliðina snúa
upp og sandur og aur, sem berst inn í bílinn
safnast í vöfflumunstraðan botn mottunnar.
Stærðir: 40x51 cm. og 46x57 cm. Margir litir.
Fást á bensínstöðvum Shell.
Olíufélagiö Skeljungur hf
ii