Dagblaðið - 08.11.1977, Blaðsíða 8
„Heilbrigdis-
málin eru stórmál
— þeim vil ég leggja allt lið — en fer ekki út í
neinar agitasjónir/’ sagði
dr. Gunnlaugur Snædal
„Til mín var höfðað með þeirri
röksemd að æskilegt væri að fá
fólk úr atvinnulífinu eða með fag-
þekkingu til þátttöku í stjórnmál-
um. Ég gat fallizt á hana. Þetta er
ástæðan fyrir því að ég lét til
leiðast að fara í prófkjörið," sagði
dr. Gunnlaugur Snædal læknir í
viðtali við DB. ,,Með þessu er ekki
varpað neinni rýrð á menn sem
starfa á stjórnmálasviðinu og
komnir eru á það svið eftir öðrum
leiðum,“ sagði Gunnlaugur.
„Heilbrigðismálin eru vitan-
lega stórmál. Til þeirra þekki ég
af reynslu minni í störfum. Þeim
vil ég leggja allt lið,“ sagði Gunn-
laugur Snædal. „Annars fer ég
ekki út í neinar agitasjónir og
geng ekki með neitt í maganum
um eigið ágæti," bætti hann við.
Dr. Gunnlaugur Snædal er nú
yfirlæknir kvensjúkdómadeildar
Landspítalans. Hann hefur um
Gunnlaugur Snædal læknir.
langt árabil starfað fyrir Krabba-
meinsfélag Reykjavíkur. Hann
hefur tekið virkan þátt í ýmsum
málum stéttarfélags lækna,
meðal annars sem formaður
Læknafélags Reykjavíkur og
gegnt fjölda trúnaðarstarfa.
- BS
Styrkur til sérþjálfunar í Bretlandi
Breska sendiráðið i Reykjavik hefur tjáð islenskum
stjórnvöldum að samtök breskra iðnrekanda, Con-
federalion of British Industry, muni gefa íslenskum
verkfræðingi eða tæknifræðingi kost á styrk til sérnáms
og þjálfunar á vegum iðnfyrirtækja í Bretlandi. Umsækj-
endur skulu hafa lokið fullnaðarprófi í verkfræði eða
tæknifræði og hafa næga kunnáttu í enskri tungu. Þeir
skulu að jafnaði ekki vera eldri en 35 ára. Um er að ræða
tvenns konar styrki: Annars vegar fyrir menn sem
starfað hafa 1—4 ár að loknu prófi en hafa hug á að afla
sér hagnýtrar starfsreynslu í Bretlandi. Eru þeir styrkir
veittir til 1—1 'A árs og nema 2124 sterlingspundum á ári
(177 sterlingspundum á mánuði), auk þess sem að öðru
jöfnu er greiddur ferðakostnaður til og frá Bretlandi.
Hins vegar eru styrkir ætlaðir mönnum, sem hafa ekki
minna cn 5 ára starfsreynslu að loknu prófi og hafa hug á
að afla sér þjálfunar á sérgreindu tæknisviði. Þeir styrk-
ir eru veittir til 4—12 mánaða og nema 2652 sterlings-
pundum á ári (221 sterlingspundum á mánuði), en
ferðakostnaður er ekki greiddur.
Umsóknir á tilskildum eyðublöðum skulu hafa borist
menntamálaráðuneytinu, Hverfisgötu 6, Reykjavík, fyrir
31. desember nk. Umsóknareyðublöð, ásamt nánari upp-
lýsingum um styrkina, fást í ráðuneytinu.
Me>vitamálaráðu'ieytið
4. nóvember 1977.
GULL-
HÖLUN
Verzlanahöllin
Laugavegi 26
101 Reykjavlk
Sími 17742
Fljót, góð og örugg þjónusta
Eyrnalokkar
Hringir
Armbönd
Hálsmen
Skírnargjafír
Víravirki, handunnið
Allt ímiklu úrvali
Gull-og silfurviðgerðir.
Þræðum perlufestar. Gyllum — Hreinsum
Gefíð góðar gjafír, verzlið hjágullsmið
____________________DAGBLAÐIÐ. ÞRIÐJUDAGUR 8, NOVEMBER 1977.
Bergmann „ÉG SKAL SEGJA
Kan”b*: MÍNA MEININGU...”
„Þetta er miklu frekar
stuöningsyfirlýsing mín við
flokkinn," sagði Guðlaugur Berg-
mann forstjóri Karnabæjar í
viðtali við DB en hann er einn
þeirra sem gefið hafa kost á sér til
prófkjörs fyrir Sjálfstæðis-
flokkinn í Reykjavík. „Það var
farið fram á þetta við mig og ég
spurði hvort það myndi verða
flokknum til framdráttar. Það
héldu menn og því sló ég til.“
Guðlaugur sagðist ekki hafa
undirbúið neina kosningabaráttu
sem slíka, en kvaðst þó myndu
vinna að sfnum málum.
„Ef svo kynni að fara að ein-
hver vildi veita mér stuðning sinn
skal ekki standa á mér að segja
mína meiningu," sagði Guðlaugur
ennfremur. „Ég er mikill and-
stæðingur kerfisins, ég vil ekki að
einstaklingurinn verði aðeins
nafnnúmer, algjörlega áhrifa-
laus“.
-HP.
Guðlaugur Bergmann forstjóri
Karnabæjar.
Karl Þorðarson verkamaður:
„GEIR SPURÐIHVORT
EG VÆRIREIÐUR...”
„Eg vil ekki að flokkur, sem
kallar sig flokk allra stétta, sé
verkamannslaus. Þess vegna er ég
að þessu,“ sagði Karl Þórðarson
verkamaður í Aburðarverk-
smiðjunni í viðtali við Dagblaðið.
„Um kosningabaráttu verður
kannski ekki mikið að ræða, ég
hef hvorki tíma né stöðu til þess,
þar eð vinnan kallar.“
Karl sem verið hefur verka-
maður í 18 ár og þar áður
sjómaður í 19 og hálft ár, sagðist
alltaf hafa verið sjálfstæðismaður
og viljað flokknum allt hið bezta:
„Þess vegna stóð ég upp á
fulltrúaráðsfundi þegar ljóst varð
að þeir ætluðu ekki að hafa neinn
verkamann á listanum og mót-
mælti því harðlega," sagði Karl.
„Á eftir kom Geir Hallgrímsson
til mín og spurði hvort ég væri
nokkuð reiður."
„Það tel ég líka réttara að
Karl Þórðarson verkamaður.
berjast innan flokksins en að yfir-
gefa hann,“ sagði Karl ennfrem-
ur. „Ég hef eins og ég sagði enga
aðstöðu til þess að vera að halda
ræður, — vinnan gengur fyrir —
það eitt sýnir hvernig málunum
er komið, jafnvel þótt við sjálf-
stæðismenn séum með meirihluta
bæði í borgarstjórn og ríkisstjórn.
Fólk hefur ekki tíma til neins,
verður að vinna mikið til þess að
geta haldið lífi.
Ef svo færi að ég væri kjörinn á
þing myndi ég tvímælalaust
berjast fyrir kjörum láglauna-
mannsins,“ sagði Karl. „Það er
enginn fulltrúi þeirra á þingi
núna og á irieðan talar enginn
þeirra máli. Það eru jú verka-
mennirnir og sjómennirnir sem
skapa auðinn hér á landi.“
-HP.
Hinrik
Bjarnason:
„MUN VINNA AÐ MÍN-
UM MÁLAFLOKKUM...”
„Ég er auðvitað að þessu í fullri
alvöru," sagði Hinrik Bjarnason,
framkvæmdastjóri Æskulýðsráðs
í viðtali við Dagblaðið. Hinrik
hefur gefið kost á sér til framboðs
í prófkjöri Sjálfstæðisflokksins i
Reykjavík. . „Nei, ég hef enn
ekki ákveóið nein fundarhöld,
enda bar þetta brátt að með mig,
þetta var ekki ákveðið fyrr en á
sfðasta fundi kjörnefndar. Enda
held ég að maðurverði að sjá til
með slíkt.
Hvað ég muni gera ef ég næ
kjöri á þing? Það er nokkuð
augljóst, að ég flyt frá miðju
Tjarnarinnar inn að Tjarnarenda!"
sagði Hinrik einnig. „Nei, ég
mun auðvitað vinna að þeim
málaflokkum, sem ég hef unnið
að núna í rúm tuttugu ár, skóla-,
uppeldis- og æskulýðsmálum.
Eins hef ég haft afskipti af
menningarmálum og ég sem
venjulegur borgari hef auðvitað
mínar skoðanir á efnahagsmálum.
Einnig má nefna að Reykjavik
verður að halda sterkri efnahags-
legri stöðu sem grundvallast
sennilega á breytingum á kjör-
dæmaskipuninni, m.a.“
-HP.
Hinrik Bjarnason, framkvæmda-
stjóri Æskulýðsráðs.
„Ég Ift á þingmennsku sem málflutn-
ing og ber hag íslenzks iðnaðar fyrir
brjósti,” segir Páll S. Pálsson, hrl.
„Eg hugsa málið fyrst ogfremst
þannig að ég befi um langt skeið
stundað málflutning. Ég lít á
þingmennsku sem málflutning,
þar sem menn fleyta sem bezt
fram því sem mestu varðar til
góðs að eigin dómi ogbægjahinu
frá,“ sagði Páll S. Pálsson hrl. í
viðtali við DB. Páll hefur nú gefið
kost á sér til alþingisprófkjörs
fyrir Sjálfstæðisflokkinn.
„í 11 ár, ef til vill mín beztu ár,
starfaði ég fyrir Félag íslenzkra
iðnrekenda. Þar hóf ég störf eftir
að ég lauk lögfræðiprófi 1945,"
sagði Páll.
„Það kom í minn hlut að vera
eins konar málsvari þessara sam-
taka í fjölmiðlum. Þannig átti ég
einnig að gæta þess að fólk hefði
opin augu fyrir framtíðarþýðingu
iðnaðarins. Þegar mér var boðið
að taka sæti í þessu prófkjöri
kannaði ég hvort forystumenn í
iðnaði væru í framboði. Þegar það
reyndist ekki vera, þótti mér ekki
óeðlilegt að ég tæki boði um sæti í
prófkjörinu,“ sagði Páll S. Páls-
son.
Það kom í hlut Páls að vinna að
stofnun Iðnaðarbanka íslands.
Var hann formaður bankaráðsins.
Hann átti sæti í nefnd til að
endurskoða lög um iðiu og iðnað,
m.a. bætt vinnusknyrði og hag-
kvæmari vinnubrögö. Hann var í
nefnd, sfem gerði tillögur um
frámtíðarskipun iðnaðarmála.
Hann var i nefnd sem samdi lög
og reglur um Iðnaðarmálastofnun
lslands auk fjölda annarra
nefnda, sem fjölluðu um ýmis
svið íslenzks iðnaðar. Hann var
um tíma meðritstjóri að Iðnaðar-
Hafnarfjörður
Verzlunarstjóri og afgreiðslufólk ósk-
ast í matvörUverzlun sem er að hefja
rekstur. Uppl. um menntun og fyrri
störf sendist DB fyrir 15. nóv. merkt:
„Hafnarfjörður 1406“.
v