Dagblaðið - 19.11.1977, Síða 1
ItjálSÍy
nháð
dagMað
3. ARG. LAUGARDAGTJR 19. NÓVEMBER 1977 — 258. TBL. RITSTJÓRN SÍÐUMULA 12. AUGLÝSINGAR ÞVERHOLTI 11. AFGREIÐSLA ÞVERHOLTI 2. — AÐALSÍMI 27022.
70 ára sparisjóður .
Fyrsti gúmmítékk- E I Seljum við kinda-
urinn kom eftir 25 ár kjötið of ódýrt
— bls.6 —bls.4
Ráðherravill ekki
karpa við
fiskifræðinga -bis.7
VEL KLÆDD FYR-
IR ÞOTUSPRETT
Bretar mjög klofnir
uiff löndunarbannið
f
Hafnar-
verkamenn
aflétta í
raun
banninu:
Mikill klofningur er kominn
upp hjá Bretunum i afstöðu til
löndunarbannsins á íslenzkan
fisk. Samtök brezku hafnar-
verkamannanna hafa í raun
aflétt banninu fyrir sitt leyti,
að sögn Ágústs Einarssonar,
fulltrúa hjá Landssambandi
íslenzkra útvegsmanna í gær.
Yfirmenn og útvegsmenn
brezkir standa enn með bann-
inu og stundum tekst að æsa
hafnarverkamennina upp á
fundum.
Fiskkaupendur vilja ólmir
aflétta banninu.
„Þessi markaður skiptir
miklu minna máli en áður,“
sagði Agúst. „Við höfum aðra
markaði, seljum í Þýzkalandi
fyrir gott verð og möguleikar
opnast á írlandi. Þetta leysist
þegar tímar líða.“
Verkalýðssambandið, sem
hafnarverkamenn eru í, sam-
þykkti nýlega að mæla með
niðurfellingu hins óopinbera
löndunarbanns, „ef íslendingar
samþykktu að skipta löndunum
jafnt milli Hull, Grimsby,
Fleetwood og Aberdeen," eins
og komizt var að orði. Ágúst
sagði að engin afstaða hefði
verið tekin til slíkra hugmynda
hérheima. HH
Já, það er jafngott að vera vel klæddur þegar maður ætlar út að renna
sér á snjóþótu. Hún Jenný litla Sigurgeirsdóttir var á leiðinni upp á
Rauðavatn þár sem hundurinn Snati hugðist draga hana á snjóþotu.
Jenný, sem er sex ára, smeygði sér því í úlpu af honum pabba sínum og
setti upp húfu og gleraugu svona til vonar og vara. Auðvitað gat Snati
ekki horft upp á það án þess að fá einhver föt á kroppinn líka. Myndina
tók Sigurgeir.Sigurjónsson. DS.
Islendingar útvíkka
flug„netið”:
Ráðgert að
fljúga milli London
og Bahamaeyja
Það er á döfinni að Air
Bahama hefji flug á milli
London og Bahamaeyja næsta
sumar en samkvæmt upplýsing-
um Helgu Ingólfsdóttur blaða-
fulltrúa Flugleiða hafa enn
ekki fengizt tilskilin leyfi til
flugsins. Að sögn Helgu er
þetta einn þáttur í stefnu Loft-
leiða, Flugfélags íslands og Air
Bahama, að bæta við nýjum
lendingastöðum og má nefna
flug til Parísar og Dusseldorf í
því sambandi.
Air Bahama hefur verið í
miklu leiguflugi á milli
Bahamaeyja og meginlands
Evrópu og á tímabilinu frá
nóvember til maí eru
fyrirhuguð 30 flug, aðaliega á
rnilli Bahamaeyja og Zúrich í
Sviss, og einnig til Frankfurt i
Þýzkalandi. Það er því augljóst
að félagið er að hasla sér völl á
þessum flugleiðum.
Þá standa yfir athuganir á
flugi Flugleiða til staða við
Arabaflóa og er það einnig
liður í viðleitni félagsins að
leita að nýjum leiðum. Leyfi
sem félagið fékk á sínum tíma
til flugs til Bahrein var aftur-
kallað en þetta mál er í
athugun og er alls ekki dautt
mál. Félagið hefur góð
markaðssambönd á þessum
slóðum, þar sem Cargolux
flýgur reglulega til landa við
Arabaflóann. Ef af þessu flugi
verður er gert ráð fyrir að
flogið verði samkvæmt áætlun
einu sinni í viku til Araba-
flóans og gist eina nótt og flogið
í gegnum Luxemborg og síðan
til íslands.
Þess má geta að lokum að
Flugleiðir hafa gert samniþg
við hollenzka flugfélagið KLM
á Heathrowflugvelli við
London um afgreiðslu á vörum
til flutnings með vélum Flug-
leiða. -JH.
J