Dagblaðið - 19.11.1977, Side 23
DAGBLAÐIÐ. LAUGARDAGUR 19. NOVEMBER 1977.
23
Sjónvarp
D
fl
Útvarp
RÓMANTÍK AÐ HREINSA FISK-
STYKKIHVORT FYRIR ANNAÐ
— Teboð, anzi er það eitthvað
brezkt.
„Já, maður er orðinn svo
brezkur af öllum þessum
brezku framhaldsflokkum sem
sjónvarpið sýnir. Maður er
meira að segjafarinnað kalla á
Hudson svona alveg óvart,“
sagði Sigmar B. Haukssson. Sig-
mar sér í kvöld um útvarpsþátt
sem hann nefnir Teboö og hefst
hann klukkan tíu mfnútur yfir
níu.
„Ég bauð nokkrum vinum
mínum í te í útvarpssal. Til
þess lágu ýmsar ástæður. Þá má
nefna að kaffi er orðið svo dýrt
og útvarpið er alltaf að spara
núna. Það er svo lítið til af
peningum síðan þeir fóru að
senda út í litum hjá
sjónvarpinu.“ — Og þið ætlið
að tala um rómantfk. Hvað er
nú um það fyrirbæri að segja?
„Ja, sko rómantfk hefur verið
skilgreind á margan hátt. Fræg
er skilgreining Halldórs
Laxness í Brekkukotsannáli.
Það var þannig að þeir
Gúðmúndsen kaupmaður og
Garðar Hólm alheimssöngvari
komu f Brekkukot til afa. Og
Gúðmúndsen segir sem svo að
alltaf sé hún söm rómantfkin f
Brekkukoti. „Hvaða tík er nú
það“ spyr afi. Og þá segir
Garðar Hólm, „nú það er sú tfk
sem lætur rjóma.“
Eg er satt að segja ekkert
viss um hvernig skilgreina á
rómantfk og hef oft lent fvandí
vegna þess. Svo ég ákvað að fá
til liðs við mig einhverja sem
gætu orðið til hjálpar. Eg fékk
þau Jóhann G. fjöllistamann og
Jóhönnu Sveinsdóttur til þess
að koma og ræða um þetta.
Jóhanna er nemi í bókmennt-
um við Háskóla Islands. Þau
ræða um þetta frá ýmsum
hliðum, en sem betur fer
komast þau ekki að neinni
niðurstöðu svo fólk getur
haldið áfram að leita að
blessaðri rómantíkinni.
Svo ræði ég við Snjólaugu
Bragadóttur sem sögð er vera
rómantískur höfundur þó að
Jóhanna orði það svo að hún
skrifi afþreyingarbókmenntir
sem er neíkvætt orð.
Svo fór ég niður í bæ og
talaði við vegfarendur eins og
þeir eru kallaðir hér á út-
varpinu. Einn sagði til dæmis
við mig og ég held að það hafi
verið f fullri alvöru að
rómantfk væri þegar hann og
konan hans eða kærasta
hreinsuðu fiskstykki hvort
fyrir annað og gæfu hvort öðru
í strætó. Ein gömul kona sagði
að rómantfk væri að hugsa um
gamla sénsa. Það er vfst svo að
fjarlægðin gerir fjölfin blá og
mennina mikla."
— Hvernig er það með þig,
Sigmar, ég hélt að þú hefðir
ætlað til útlanda?
„Ég er alltaf á leiðinni. Ég er
á eilífu flakki út og inn úr
landinu þvf að þó ég sé ekki að
leita að rómantíkinni lengur
leita ég að ýmsu öðru,“ sagði
Sigmar B. Hauksson. -DS.
Útvarp annað kvöld kl. 19.25:
Dagskrárstjóri íeina klukkustund
Kynning á landinu
„Ég ætla nú bara að kynna
landið okkar lítils háttar," sagði
Guðmundur Sæmundsson
bólstrari er hann var spurður um
það hvað hann ætlaði að flytja af
efni í þættinum Dagskrárstjóri í
eina klukkustund sem er á dag-
skrá undir hans umsjá annað
kvöld eftir sjö fréttir.
„Ég gerði mikið af því að ferð-
ast'sjálfur og segi frá því. Svo les
ég úr bók Hjálmars Bárðarsonar
um ferðalög hans norður í land.
Einnig verður lesið úr bókinni
Landið þitt eftir Pálma Hannes-
son og úr bókinni Odáðahraun
eftir Ólaf Jónsson á Akureyri.
Smávegis verður lesið af
ljóðum og söngvar leiknir," sagði
Guðmundur.
Þess má geta að Guðmundur
hefur áður komið fram í út-
varpinu. Það var í þætti Guðjóns
Friðrikssonar: í ævinnarrás.
-DS.
Ifr
íslenzk náttúra er vissulega fögur
og óhætt að ræða um hana.
JWyndin er úr Minolta-keppninni
og er hún tekin af Svíanum Lars
Björk.
Sjón varp annað kvöld
kl. 21.45: Guð gaf mér eyra
ÁUTIÐ AÐ ALUR
HEYRIEITTHVAÐ
„Þessar kennsluaðferðir eru uppgötvast oft ekki fyrr en of
nýjar að því leyti að álitið er að seint og þá er um seinan að nota
allir heyri eitthvað, með öðrum þessa aðferð.
orðum að enginn sé alveg heyrnar- En ef byrjað er nógu fljótt er
laus, og því er reynt að uppgötva vfst hægt að fá börnin til þess að
heyrnardeyfðina nógu snemma tala. Reynt er að einangra þessi
helzt að börnin séu ekki eldri en börn ekki frá öðrum með þvf að
3ja mánaða og þá eru sett í þau haf^ þau f sérstökum heimavistar-
heyrnartæki og þeim kennt aðtala skólum heldur eru þau f skólum
venjulegt mál f stað fingramáls," með venjulegum börnin.
sagði Dóra Hafsteinsdóttir
þýðandi og þulur kanadískrar Það undarlegasta við þessa
fræðslumyndar sem er á dagskrá „nýju“ kenningu er það að hún er
sjónvarpsins í kvöld klukkan alls ekkert ný. Það munu alltaf
stundarfjórðungfyrirtíu. hafa verið uppi menn sem hafa
„Það er fylgzt með nokkrum haldið henni fram. En með nýtfzku
börnum sem fá svona kennslu. Það heyrnartækjum er f fyrsta sinn
er einhver skóli þarna f Kanada mögulegt að sannreyna hana,“
er beitir þessum aferðum. En sagði Dóra Hafsteinsdóttir.
gallinn er sá að heyrnardeyfðin -DS.
I
Sjónvarp
i
Sunnudagur
20. nóvember
16i)0- Húsbœndur og hjú (L) Breskur
myndaflokkur Heimilisorjur Þýðandi
Kristmann Eiðsson.
17.00 Þriflja testamentiö Bandarískur
fræðslumyndaflokkur í sex þáttum
um trúarheimspekinga, sem hafa haft
djúpstæð áhrif á kristna siðmenningu.
2. þáttur. Blaise Pascal Þýðandi og
þulur Gylfi Pálsson.
18.00 Stundin okkar (L að hluta)
Þátturinn birtist nú f fyrsta skipti á
þessum vetri í nýjum búningi. Ruth
Reginalds syngur, litið er inn f dans-
skóla Eddu Scheving og Eva María
Jónsdóttir, 6 ára, les sögu eftir sjálfa
sig. Sýnd er teiknimynd um stelpu,
sem heitir Doppulína og fyrsti hluti
kvikmyndar Óskars Gíslasonar,
Reykjavfkurævintýris Bakkabræðra,
sem verður framhaldsmynd i Stund-
inni okkar. Umsjón Asdfs Emilsdóttir.
Kynnir ásamt henni Jóhanna Kristín
Jónsdóttir. Stjórn upptöku Andrés
Indriðason.
19.00 Skákfræflsla (L) Þáttur f umsjá
Friðriks Olafssonar stórmeistara.
Rifjuð verða upp undirstöðuatriði og
meginreglur skáklistarinnar.
Hlé.
20.00 Fróttir og veflur.
20.25 Auglýeingar og dagskrá.
20.30 Samkór Vestmannaeyja Kórinn
syngur undir stjórn Sigurðar Rúnars
Jónssonar. Stjórn upptöku Egill
Eðvarðsson.
20.55 Gæfa efla gjörvileiki Bandarfskur
framhaldsmyndaflokkur, byggður á
sögu eftir Irwin Shaw. 6. þáttur. Efni
fimmta þáttar: Rudy hittir Julie að
nýju, ogþaufara að sjá Tom f hnefa-
leikakeppm. Það slær í brýnu með
bræðrunum eftir keppnina, þegar
Rudy hýður Tom atvinnu. Teresa,
kona Toms, reiðist manni sínum þegar
hann hafnar tilboðinu, fer frá honum
og tekur son þeirra með sér. Tom á nú
tveggja kosta völ: Að hefja leit að
konu sinni og barni eða halda áfram
hnefaleikum. Þýðandi Jón O. Edwald.
21.45 „GuA gaf mér eyra" Kanadísk
fræðslumynd. Lýst er nýrri aðferð við
talkennslu hcyrnarskertra barna og
bent á nauðsyn þess, að skert heyrn sé
uppgöiv'uð m iii allra fyrst. Þýðandi og
þulur Dóra Hafsteinsdóttir.
22.15 AA kvöldi dags (L) Vilhjálmur Þ.
Gíslason, fyrrverandi útvarpsstjóri,
flytur hugvekju.
22.25 Dagakráriok.
Eins og sjónvarpsáhorfendur
á öllum aldri hafa tekið eftir,
hefur barnatími sjónvarpsins
verið byggður upp á endur-
teknu efni að undanförnu og
hefur það mælzt misjafnlega
fyrir. Flostir hafa þó haft
gaman af efninu sem sýnt hef-
ur verið, enda berlega tekið
til sýningar það bezta, sem
tekið hefur verið upp fyrir
barnatímann undanfarin ár.
Annað kvöld verður Stundin
okkar þó með „venjulegu" sniði
og hefur Andrés Indriðason
tekið að sér upptökustjórn.
Hann hafði stjórn þessa þáttar
á höndum á blómaskeiði
þáttarins, er Hinrik Bjarnason
og Rannveig og Krummi voru
aðalpersónurnar og er ástæða
til þess að fagna þessari þróun,
að öllum öðrum ólöstuðum.
Umsjón með þættinum hefur
Ásdfs Emilsdóttir og Jóhanna
Kristín Jónsdóttir.
Röndóttir þœttir
„Það er ákaflega gaman að
fást við barnatímann að nýju,“
sagði Andrés í viðtali við DB.
„Ég hef verið með Vöku í ein
fimm ár, svo að tilbreytingin
er kærkomin."
Andrés sagði að nú væri
verið að vinna efni í þættina
fram að áramótum og þeir yrðu
að líkindum byggðir upp á
hefðbundinn hátt.
„Töluvert af efninu verður’
Jóhanna Kristín, 11 ára. — „Ég bara kem og segi hvað kemur næst.“
kvikmyndað og kannski rétt að
geta þess fyrir þá, sem hafa
litsjónvarp, að þeir verða
svnlítið röndóttir, þar eð efnið
sem við tökum upp í sjónvarps-
sal er i litum."
11 óra kynnir
„Ég bara kem og segi hvað
kemur næst,“ sagði Jóhanna
Kristin Jónsdóttir (Sigurðs-
sonar bassaleikara) í viðtali
við DB. Hún verður kynnir
ásamt Asdisi Emilsdóttur og
athygli vekur að Hanna Stína
er ekki nema ellefu ára.
„Það sem við sýnum annað
kvöld er m.a. viðtal við Rut
Reginaids sem ég tók suður í
Hljóðrita og Rut sýnir okkur
hvernig það er að taka upp
plötu og svoleiðis. Svo kemur
ein sex ára stelpa sem les sögu
eftir sjálfa sig. Sagan heitir
Tommi feiti.
Nei, ég er ekkert taugaóstyrk .
núna, ég var það fyrst þegar ég
þekkti engan. Jú, ég hef komið
áður fram í sjónvarpi bæði með
Didda bróðuroj svo lék ég einu
sinni í leikriti."
-HP.
Sjdnvarp á sunnudag kl. 18.00:
STUNDIN 0KKAR í NÝJUM
BÚNINGI - KYNNIRINN
AÐEINS ELLEFU ÁRA