Dagblaðið - 25.11.1977, Side 5
DACiBLAÐIÐ. FÖSTUDACUH 25. NÖVEMBER 1977.
T ' 1
Læknar hafa fjór-fimmföld
---*--------*---— þegar meðaltal tekna
wemamannataun ístéttunum er tekið
5
Mikill munur er á tekjum
manna eftir stéttum og
kynjum. Þetta kemur meóal
annars fram í skýrslum
Hagstofunnar um brúttótekjur
ársins 1976.
Læknar og tannlæknar höfðu
þá að meðaltali 4,6 milljónir og
voru efstir en síðan komu sér-
fræðingar hjá varnarliði og
verktökum þess með 4,4
milljónir að meðaltali.
Ófaglært verkafólk í búskap
hafði á sama tíma aðeins 610
þúsund að meðaltali. Ófaglært
verkafólk í fiskvinnslu hafði
rétt um milljón að meðaltali og
ófaglært verkafólk í iðnaði
tæplega 1,2 milljónir. Af ófag-
lærðu verkafólki komust menn
hæst hjá varnarliðinu í 1,6
milljónir að meðaltali árið 1976.
Lífeyrisþegar og fólk, sem
lifir af eignum sínum, hafði
aðeins 695 þúsund að meðaltali.
Meðaltekjur á öllu landinu
voru þá um 1,5 milljónir króna.
Sem dæmi um aðrar stéttir
má nefna að yfirmenn á togur-
um höfðu 3,4 milljónir að
meðaltali „Vinnuveitendur,
forstjórar og forstöðumenn“ i
búskap höfðu aðeins tæplega
1,3 milljónir. Topparnir í iðnaði
komu út með 2,7 milljónir að
meðaltali en í verzlun með 2,9
milljónir.
Mikill munur var á tekjum
kvenna og karla, bæði innan
allra atvinnuflokka og starfs-
stétta, miðað við þessar tölur
Hagstofunnar um tekjur yfir
árið 1976.
HH
»
Það er sárt að taka við bólu-
setningu læknisins — og erfitt
að lifa af iaunum sem eru 3-4
sinnum lægri en þau sem
iæknirinn fær fyrir sitt starf.
Myndin af lækninum og verka-
manninum var tekin í
Kaliforníu.
✓
HÁHEILAGT FÓLK
Eins og sagt var frá í biaðinu i gær héldu menntaskólanemar við
Hamrahlíð dimmisjón í gærdag og stóð hún langt fram á nótt. Það var
mikil törn, því byrjað var strax kl. 6 í gærmorgun. Við gerðumst dálítið
hlutdrægir í myndavali, kvenfólkið eitt sást á myndinni, nunnurnar.
Hér er önnur mynd, líka af kvenfólkinu, en munkarnir fá þó alténd að
fljóta með að þessu sinni. — DB-mynd Sv. Þorm.
Hvað verður
um okkur?
Landsf undur Samtakanna haldinn á
Höfum opnað
okkar vinsæla
Jóla-
markað
íkjallaranum Bankastræti 11
Allt efni iaðventukransinn ogjólaskreytinguna.
0 Kerti og jólaskraut ímiklu úrvali
0 Ekkier ráðnema ítímaséðtekið
0 Aðeins tæpur mánuður til jóla
Blóm & Ávextir
BANKASTRÆTI
HAFNARSTRÆTI
Loftleiðum íkvöld
Samtök frjálslyndra og vinstri
manna munu hugsa sér til hreif-
ings í kvöld en þá efna þau til
landsfundar á Hótel Loftleiðum
þar sem ný stefnuskrá verður til
umræðu, auk annarra mála.
Fundurinn hefst kl. hálfníu og
að lokinni kosningu kjörbréfa-
nefndar mun Magnús Torfi Ölafs--
son, formaður Samtakanna, flytja
yfirlitsræðu um stjórnmálavið-,
horfið og stöðu Samtakanna.
Aðei is fy i * fI íkksme 11
Sú regla hefur verið viðhöfð í
starfi Samtakanna að landsfund-
irnir hafa verið opnir öllum
flokksmönnum, auk kjörinna
landsfundafulltrúa, en fundurinn
í kvöld mun taka ákvörðun um
frekari réttindi þeirra, þ.e. mál-
frelsi og tillögurétt.
Þegar því og fleiri forms-
atriðum er Iokið mun verða gerð
grein fyrir áliti stefnuskrár-
nefndar. Hefur nefndin unnið að
samningu nýrrar stefnuskrár en
sú, sem nú er unnið eftir, er frá
stofnfundinum árið 1969.
Hh'dð v'e ðu - uin ikku ?
Fyrir utan stefnuskrármálið
verður starfið framundan eitt
helzta umræðuefnið, auk fjár-
mála og blaðaútgáfu Samtakanna,
en þau gefa út blaðið Ný þjóðmál.
Er búizt við að þær umræður
verði fjörugar.
Á laugardagsmorgun verða
nefndakosningar og haldið áfram
við framsöguflutning og
umræður.
Kl. tíu á sunnudagsmorguninn.
er stefnt að því að koma saman á
ný og munu nefndir þá skila áliti
um fundarmálin og verða þau
rædd og afgreidd. Þá skilar kjör-
nefnd áliti og síðan fara fram
kosningar. HP
Leikritasamkeppni
Listahátíöar:
Núer það
baraaðskila
Listahátíð 1978 bauð fyrr
á þessu ári til leikritasam-
keppni, gerð einþáttunga
sem sýna á næsta vor þegar
listahátíð verður næst
haldin.
Einþáttungar eiga nökkuð
erfitt uppdráttar hér á landi
og leikritaskáld hafa
kvartað yfir að fá ekki tæki-
færi til að koma á framfæri
tilraunaleikritun. Listahátíð
ætlar sér að greiða fyrir
þeim sem vilja reyna sig á
þessari braut.
Skilafresturinn er lil 1.
descmber — og það er því
betra að fara að skila af sér.
Leikritin eiga að sendast í
pósthólf 88 í Heykjavík.
Yrkiséfni samkeppninnar er
Ijósmynd sem sýnir bruna-
hana og stunguskóflu.