Dagblaðið - 25.11.1977, Page 9
DAGBLAÐIÐ. FÖSTUDAGUR 25. NÖVEMBER 1977.
9
Sjómaðurinn
íSamtökin?
„Hef ekki skoðað skips-
höfnina” segir Magnús Torfi
í viðtali við Morgunblaðið nú í
vikunni lét Pétur Sigurðsson al-
þingismaður, sem varð í áttund?
sæti á listanum samkvæmt skoð-
anakönnuninni, að því liggja að
hann myndi ganga til samstarfs
við Magnús Torfa Ólafsson og
Samtökin. enda taldi hann átt-
unda sæti á lista sjálfstæðis-
manna ekki vera sigurstrangiega
stöðu.
Segir Pétur í viðtalinu að hann
eigi ekki arf í vændum, né fyrir-
tæki til þess að ganga að, hvað þá
heldur lögfræðiskrifstofu. Hann
verði því að fara að leita sér að
atvinnu. Segir hann svo: „Það er
að segja, ef ég hætti í pólitík, —
en hver veit nema Magnús Torfa
vanti stýrimann?“
„Ég hef nú ekki ennþá skoðað
skipshöfnina," sagði Magnús
Torfi, er DB bar þessi ummæli
Péturs undir hann. „Ég tek þetta
eins og það er talað, þetta er orða-
leikur.“
- HP
Frumvarp Jóns Skaftasonar: Spólur sjónvarpsins með
„Watergate-skemmdum”
sagði Karvel Pálmason
áAlþingiígær
Frumvarp Jóns Skaftasonar, al-
þingismanns, um breytingar á
kosningalögum var til umræðu í
neðri deild Alþingis í gær. Er
málið þar enn til 1. umræðu en í
gær var málið í þriðja sinn á
dagskrá og lauk umræðum ekki.
Sem kunnugt er, leggur Jón
Skaftason til í frumvarpi sínu að
nöfn á framboðslista séu höfð í
stafrófsröð en ekki raðað eins og
til þessa hefur tíðkazt. Er þá gert
ráð fyrir að kjósendur setji
númer við nöfn á lista í þeirri röð,
sem þeir vilja hafa fram-
bjóðendur.
Magnús Torfi Olafsson kvað nú
liðnar 6 vikur frá því að forsætis-
ráðherra lofaði að beita sér fyrir
viðræðum þingflokkanna um
breytingar á kosningalögum.
Þessar viðræður létu ekki enn á
sér kræla. Skoraði Magnús Torfi á
forsætisráðherra að bregða skjótt
við svo að tími gæfist til að kanna
þingvilja um þetta mál fyrir
kosningarnar á vori komanda.
í ræðu Magnúsar Torfa kom
fram, að segulbandsupptaka af
sjónvarpsþætti með viðræðum
flokksformanna hefði á ein-
hvern hát.t farið forgörðum. Væri
hún því ekki tiltæk sem heimild
um afstöðu flokkanna. Skoraði
hann á menntamálaráðherra að
kanna, hvernig slíkt gæti gerzt og
gera Alþingi grein fyrir niður-
stöðum könnunarinnar. Taldi
Magnús Torfi nauðsynlegt að fá
um þetta vitneskju, m.a. til þess
að fyrirbyggj'a hliðstæð mistök
framvegis.
í sjónvarpsþættinum lýstu allir
þátttakendur vilja sínum til þess
að réttur kjósenda yrði aukinn,
enda þótt ekki kæmi það jafn-
skýrt fram með hverjum hætti
það mætti verða.
Karvel Pálmason, sem er
fylgjandi frumvarpi Jóns Skafta-
sonar, vék í sínu máli að hinum
skemmdu spólurn. Taldi hann, að
nú þegar stjórnmálamenn væru
að hlaupast brott frá afstöðu
þeirri, sem fram hefði komið í
sjónvarpsþættinum, væru spólur
Sjónvarpsins með „Watergate-
skemmdum", þegar til þeirra ætti
„BILUNITÆKNI-
BÚNAÐI”
— segir framkvæmdastjöri Sjónvarpsins
„Við upptöku þessa þáttar
hefur orðið bilun í tæknibúnaði,"
sagði Pétur Guðfinnsson, fram-
kvæmdastjóri Sjónvarpsins í við-
tali við Db.
„Við höfum haft það fyrir reglu
að taka upp hljóðspólur af sjón-
varpsþáttum og geyma þær síðan
í vissan tíma. Mér er ekki kunn-
ugt um neina lagaskyldu í þessu
efni,“ sagði Pétur Guðfinnsson.
„Þegar þessar hljóðupptökur
eru gerðar, gengur spólan allt
kvöldið. Tæknimenn hafa ekki
hlustun inn á upptökuna og eng-
inn, sem hefur þann starfa, nema
þegar sérstaklega er beðið um
slíka upptöku. Þannig er ekki
hægt að fylgjast með því, hvort
eitthvað gengur úrskeiðis í tækni-
búnaði," sagði Pétur Guðfinnsson
að lokum. - BS
Ung grein á meiði
viðskiptalífsins
Auglýsingastofur eru tiltölu-
lega nýtt fyrirbæri í islenzku við-
skiptalífi. Þannig er ein elzta og
að taka. Taldi hann það alvarlegt
mál, sem þyrfti að rannsaka.
Jón Ármann Héðinsson hafði
tekið sjónvarpsumræðurnar upp
á stálþráð og látið vélrita þær.
Hafði Jón Skaftason fengið þær
hjá nafna sínum og las hann upp
ummæli þátttakenda. Taldi hann
þau stangast á við þau sjónarmið,
sem nú kæmu fram í umræðum.
Fyrstu umræðu í Nd„ var ekki
lokið og nokkrir á mælendaskrá,
þegar fundartíma deildarinnar
lauk í fyrradag.
-BS.
Cegn samábyrgð
flokkanna
Pétur — vantar Magnús Torfa
stýrimann?
Magnús Torfi — hef ekki ennþá
skoðað skipshöfnina.
Þjálfari
UME Skallagrímur Borgarnesi óskar
eftir knattspyrnuþjálfara fyrir næsta
keppnistímabil. Upplýsingar gefur
Garðar Halldórsson í síma 93-7222 og
vinnusíminn er 93-7200.
stærsta auglýsingastofan, Argus,
aðeins nýlega 10 ára gömul.
Argus var stofnað af þeim félög-
um Þresti Magnússyni og Hilmari
Sigurðssyni, en báðir höfðu lært
erlendis.
Síðar kom Ölafur Stephensen
til fyrirtækisins, þegar Þröstur
stofnaði sína eigin stofu. Argus
hefur sett á flot fjöldann allan af
„áróðurs“-setningum, sem fleygar
hafa orðið með þjóðinni.
Hjá fyrirtækinu vinna 12
manns að auglýsingagerð, um-
búðahiinnun, myndskre.vtingum,
áællanagerð, almannatengslum
Og upplýsingadreifingu.