Dagblaðið - 25.11.1977, Qupperneq 24
r*.. .... ............."■"""....^ '.""....
Barnamúsíkskólinn verður Tónmenntaskóli
Stéttamismunur á þeim
börnum sem koma í skólann
—verkamenn senda ekki böm sín ítónlistamám nema ílitlum mæli
Barnamúsíkskóli Reykja-
víkur hefur nú í tilefni 25 ára
afmælis síns breytt um nafn og
heitir nú Tónmenntaskóli
Reykjavíkur. Er nafnbreyting-
in gerð með það í huga að fólk
sjái fremur en áður að um al-
vörutónlist er að ræða og al-
vörukennslu.
Skólinn er nú loksins búinn
að fá viðunandi húsnæði eftir
að hafa í 20 ár kúldrazt uppi á
5. hæð í Iðnskólanum. Það er
Lindargötuskólinn gamli sem
lagður hefur verið undir tón-
menntakennsluna. Þykir að
skólahúsnæði þessu mikil bót
og sjá forráðamenn skólans
þann einan ókost að flest börn-
in þurfa að fara yfir Hverfis-
götuna til þess að komast í skól-
ann. Farið var fram á það við
borgaryfirvöld að komið yrði
upp gangbrautarljósum við
Hverfisgötuna. Þessu var þó
neitað á einhverjum forsend-
um.
Tekin hefur verið upp til-
raunakennsla í tónménnt sem
er einstaklingsbundin eftir
kennurum. Þetta er gert sem
eftirleikur af bók sem nefnist
Tónmennt — handbók í náms-
efnisgerð og var samin af tveim
íslendingum, þeim Stefáni
Edelstein og Njáli Sigurðssyni í
samvinnu við þrjá bandaríska
kennara. Fordstofnunin í New
York veitti styrk til að semja
bókina og kennslunnar í 4
ár. Nýjungin felst einkum i því
að hver kennari hefur að
nokkru leyti frjálsar hendur
um það hvað hann kennir og
hvernig. Það fer til dæmis eftir
nemendunum hverju sinni
hvernig kennslu er háttað.
Ekki þarf að binda Lennsluna
við ákveðinn bekk heldur má
kenna í smáhópum eftir þörf-
Sú nýjung hefur veriö tekin upp í Tónmenntaskólanum kenna mjög ungum börnum á fiðlu. Það er
Gígja Jóhannsdóttir sem hér segir til einni lítiili.
Stefán Edelstein, skólastjóri
Tónmenntaskólans sagði er
hann var spurður um það hvort
efnaminna fólk veigraði sér
ekki við að senda börn sín í
tónlistarnám, að það væri ekki
efnahagur fólks nema að veru-
lega litlu leyti sem stjórnaði því
hverjir lærðu tónlist. Hitt væri
víst algengara að fólk, til dæmis
úr verkamannastétt, vissi ekki
hvað upp á væri boðið og notaði
sér það þar af leiðandi ekki.
Það væri líka þannig, hvort sem
menn vildu viðurkenna það eða
ekki, að miðstéttar- og há-
stéttarfólk vildi meira gera
fyrir börnin sín en þeir sem
væru lægra settir.
í þorpum úti á landi eru börn
úr öllum stéttum viö tónlistar-
nám.
- DS
'&>*■ Þegar ein þjóð vinnur
*** þorskastríð tapar önnur
„Ég segi kannski ekki svo
margt fallegt um Island í bók
minni en fremur um hina mörgu
vini mína hér á landi,“ sagði Sir
Andrew Gilchrist í viðtali við DB í
morgun. Hann sagði að útgefandi
bókar sinnar hér hefði verið svo
vingjarnlegur að bjóða sér til Is-
lands í tilefni af útkomu bókar-
innar í dag.
Sir Andrew var sendiherra
Breta á tímum fyrsta þorska-
stríðsins, sem varð út af útfærslu
fiskveiðilandhelginnar í 12 mílur.
Er Sir Andrew, sem reyndar var
ekki Sir á þeim tíma. sagður hafa
leikið tónverk eftir Chopin þegar
grjótið buldi á veggjum og rúðum
sendiherrabústaðarins við Lauf-
ásveg. Sir Andrew sagði að hann
Tvöfalt
höfuðkúpu-
brot íbílslysi
Sextíu og áta ára gömul kona
liggur lífshættulega slösuð í gjör-
gæzludeild Borgarspítalans eftir
alvarlegt umferðarslys í Álfheim-
um í gær.
Konan, varð fyrir ,,pickup“-
bifreið, sem 16 ára piltur,
réttindalaus, hafði tekið ófrjálsri
hendi. Varð honum svo um að
hann ók af slysstað og tilkynnti
’eiganda bílsins hvað skeð hafði.
Hafði hann samstundis samband
við lögr'egluna.
Konan hlaut mjög alvarleg
höfuðmeiðsli, m.a. tvöfalt höfuð-
kúpubrot. Var mikil aðgerð gerð á
henni i gær og í morgun var líðan
hennarslæm. -ASt.
reyndi að segja frá því á sann-
gjarnan hátt hvernig ein þjóð
tapar þorskastríði og þá jafn-
framt hvernig önnur sigrar í slíku
stríði.
„Og við vitum ósköp vel hverjir
sigruðu í þorskastríðinu," sagði
Sir Andrew.
„Því miður stendur laxveiði-
tíminn ekki yfir núna svo til veiða
gefst ekki tækifæri að þessu
sinni.
Síðast, þegar ég kom til Islands
veiddi ég i hinni fallegu Laxá í
Aðaldal með góðum vini mínum,
Jóni Axel Péturssyni, fyrrum
bankastjóra og togaramanni,"
sagði Sir Andrew.
„Ég mun einmitt hitta Jón Axel
-í kvöld en mun því miður ekki
verða lengur en fram á mánudag
hér á landi að þessu sinni," sagði
Sir Andrew að lokum.
- ÓG
íslandsmet
íblindskák
Helgi Ölafsson skákmaður
sétti óvenjulegt Islandsmet í
skák á dögunum. Hann hélt
austur á land og tefldi við 10
andstæöinga — blindandi.
Þetta gerðist á Eiðum. Helgi
vann 9 skákir en tapaði
einni fyrir Jóni Þráinssyni.
Á Egilsstöðum lék Helgi
blindandi gegn 9 skákmönn-
um, vann 7 en tapaði tveim,
gegn Helga Jóelssyni og
Mána Sigfússyni.
- JBP-
frjálst, óháð daghlnð
FÖSTUDAGUR 25. NÓV. 1977.
Heilsuhring-
urinn—ný
samtök
stofnuð
Ný samtök eru að sjá dagsins
ljós þessa dagana — Heilsuhring-
urinn heita þau. Það eru áhuga-
menn um nútíma heilsurækt, sem
hófu undirbúning að stofnun- ’
samtakanna og héldu svo stofn-
fund 6. nóvember sl.
Markmið samtakanna er alhliða
heilsurækt og hyggjast félags-
menn ná markmiði sínu með því
að stuðla að aukinni útivist og
heilsusamlegri þjálfun og vinna
að þvl að íslendingar notfæri sér
sem bezt þær heilsulindir, sem
íslenzkur jarðvegur, loftslag og
landslag býr yfir. Þá mun félagið
vinna að því að notuð verði fæðu-
bótaefni sem viðurkennd eru I
nágrannalöndum okkar.
Aðalstjórn Heilsuhringsins
skipa: Marteinn Skaftfells kenn-.
ari, Helgi Tryggvason yfir-
kennari, Kristinn Sigurjónsson
prentsmiðjustjóri, Elsa Vil-
mundardóttir jarðfræðingur og
Loftur Guðmundsson rithöfund-
ur.
- JBP -
Ætluðu í
verkfall kl. 10:
Greiðslan
kom
klukkan níu
Um 50 starfsmenn í
eldhúsi Landspítalans hættu
á síðustu stundu við
verkfall, sem boðað hafði
verið kl. 10 í morgun. Ekki
hafði verið greitt yfir-
vinnuálag fyrir október-
mánuð sl. Greiðslunni hafði
verið lofað hinn 18. nóv. Þá
fengu BSRB-menn þetta
yfirvinnuálag greitt.
Starfsmenn I eldhúsi
Landspítalans, sem eru í
Starfsstúlknafélaginu Sókn,
sættu sig ekki við að vera
settar hjá um þessa greiðslu.
Boðuðu þær setuverkfall frá
kl. 10 í morgun. Rétt upp úr
kl. 9 I morgun var þeim færð
greiðslan og - samstundis
horfið frá verk-
fallsaðgerðum.
-BS.
Óvenjuleg
„veiði” Barfta
Nokkrir íbúar Neskaup-
staðar ganga um þessa
dagana með hatta á höfði, sem
legið hafa á hafsbotni frá þvi
Jyrir aldamótin. Barði NK 120
fékk undarlegt kast fyrir
nokkrum dögum 55 sjómílur
120 gráður út af Langanesi. I
trollinu reyndist ógrynni af
leifum tréskips og varnings úr
því. Tók þrjá tíma að ná úr
trollinu og þurfti að skera það
talsvert.
I því reyndust vera ógrynnin
öll af flókahöttum, klæðis-
ströngum, sem virtust nokkuð
brunnir, blakkir með
tréhjólum, nautshúð, mikið af
nautshornum, tómum kútum
15-20 lítra og virtist gerjunar-
þefur úr þeim. Þá var einn
pípuhattur heldur laslegur í
trollinu.
Þjóðminjavörður hefur beðið
um að fá dótið sent til sín, en
ungir Norðfirðingar ganga
keikir um snævi þaktar götur
með þessa fornu hatta, er þeir
hafa þvegið og reynast þeir vel
I snjókomunni. Skipstjóri á
Barða í þessari veiðiferð var
Jón Aðalsteinsson, 1.
stýrimaður.
-Skúli/JBP