Dagblaðið - 28.11.1977, Page 3
I) \CHI. \l)m M W'l'DAGI'H L'K. MÓVKMBKR 1977.
STRINDBERG ER EIN-
UM OF ÓSIÐLEGUR
Garðar Karlsson hringd:
„Mig langar til þess að bera
fram kvörtun vegna Strind-
berg-myndarinnar i sjónvarp-
inu. Mér þykir myndin einum
of gróf til þess að vera sýnd í
sjónvarpi. Ég á nefnilega börn
sem eru að komast á kynþroska-
aldurinn og er alls ekki viss um
að þetta sé hollt fyrir þau.
Það mætti líka varpa fram
þeirri spurningu til sjónvarps-
ins hvort allt sé gott oe eilt ef
það er bara sænskt. Það virðist
svo sannarlega vera staðreynd.
Nú er ég ekki að segja að
Strindbergi gamli sé ekki góður
Raddir
lesenda
og gildur en mér líkar ekki
framsetningin á þessari mynd
eftir verki hans, Varnarræðu
vitfirrings."
N
EKKIER ALLT SEM SYNIST
Spurning
dagsins
Tipparðu?
Helgi Helgason stýrimaður á
Náttfara, 24 ára: Nei, ég geri það
ekki núna, ég hef gert það. Jú, ég
hef heilmikinn áhuga á fótbolt*
—Raunasaga hötelgests f rá London
Bréfritari segir frá reynslu sinni af lélegu hóteli í heimsborginni
— en getur einnig um góða þjónustu sem hann fékk á því góða
hóteli Regent Palace. Sjálfsagt er svipaða sögu að segja úr öllum
borgum heims, þar eru bæði góð og einnig léleg hótel, og litmynda-
listarnir sem ferðaskrifstofurnar fá eru kannski ekki alltaf sann-
leikanum samkvæmir.
Sigurður Eliasson, vegabréfs-
hafi nr. 65338, skrifar:
Um 20 ára skeið hef ég heim-
sótt England og í hvívetna notið
gestrisni, greiðvikni og hjálp-
fýsi brezku þjóðarinnar. Ég
varð þó fyrir mínum fyrstu von-
brigðum er ég gisti nýtt hótel í
London fyrir skömmu sem
ferðaskrifstofa hér heima hafði
útvegað mér. Hótel þetta heitir
Y og er staðsett við endann á
Tottenham Court Road. Þegar
pöntun hafði verið staðfest
fékk ég afhentan glansmynda-
lista af hótelinu að ferðaskrif-
stofusið, þar sem meðal annars
er sýnd sundlaug og sauna-
gufubaðstofa. Ég hafði átt her-
bergið pantað í viku og greiddi
það við komuna þangað. Ég
fékk þegar afhentan lykil að
herbergi á 3. hæð, án þess að
vera vísað til herbergis fann ég
það eftir nokkra leit: eftir löng-
um og þröngum krókóttum
göngum kom ég loksins að því í
öðrum enda.
Mörg hótel hef ég gist um
dagana en aldrei séð minna
gistirými. Einn stóll var við
enda rúmsins við gluggann,
ekki var pláss fyrir hann við
borðið, útsýni úr glugga var í
múrvegg á móti og skítugt port
fyrir neðan. Ég gat helzt
ímyndað mér fangaklefa. Mér
varð litið í glansmyndalista
þann er ég meðtók hér heima
og virkaði hann sem naprasta
háð (lítil tilvitnun: Every room
has an outward facing window.
Your room with a view. Rooms
all comfortably furnished to
high standard etc.). Ég hef að
vísu aldrei séð inside facing
windows en marga kosti hafði
hótel þetta upp á að bjóða sam-
kv. auglýsingu þessari.
Kuldinn í herberginu var
slíkur að annaðhvort hefði ég
þurft að klæðast lopapeysu og
yfirhöfn eða skríða undir teppi.
Ég gekk því fljótlega út og þar
eð veðrátta var fremur hlý
virtist mér hlýrra úti en inni.
Seinna um kvöldið gerði ég þó
kvörtun í gestamóttökunni og
var mér tjáð að framkvæmda-
stjóri væri ekki við. Seint um
kvöldið birtist þó valkyrja ein
og spurði hverjum hita ég væri
vanur. Eg kvaðst vera vanur
20°C. Hún kvað það venju þar
að hafa lágan hita að nóttu en
hærri á daginn, þetta væri vin-
sælasta hótel í London og ef ég
væri ekki ánægður gæti ég
farið, mér yrði þá endurgreitt.
Þá. varð ég óneitanlega
skapbráður og svaraði: ,,Það er
aðeins yðar staðhæfing frú, eru
fangaklefar vinsælir hér í Lon-
don? Ég held ekki, frú. Það er
nú komin nótt og ég hef ekki
pantað annað hótel, enda ekki
sími hér á herbergi mínu, ég
kýs því frekar að dvelja hér en
á götum Lundúna." Valkyrjan
gekk á braut án frekari orða-
skipta.
Næsta dag lá ég svo með háls-
bólgu og hita en þá var her-
bergishitinn einna líkastur því
sem gerðist í hinu svokallaða
gufubaði hótelsins. Engin her-
bergisþjónusta er á þessu „vin-
sæla hóteli“, svo að ekki var um
annáð að ræða en reyna að
bjarga sér sjálfur og komast til
læknis, sem ég gerði þegar ég
varð rólfær. Þettatafði heimför
mína um nokkra daga þar eð
allt reyndist fullbókað á þriðju-
deginum hjá Flugfélagi ts-
lansd. Það er ekki að orðlengja
það að ég fluttist við fyrsta
tækifæri burt af hinu „vinsæia
hóteli“
en þar hef ég búið nokkrum
sinnum áður. Það er að vísu
gamalt hótel en mun í reynd
flokkast mörgum flokkum ofar
en fyrrgreint Y hótel. Þar fékk
ég herbergi fyrirvaralaust,
gagnstætt því sem mér var tjáð
hér heima, að öll hótel myndu
vera yfirbókuð í London á þess-
um tíma. Það kom heldur ekki
heim við mína fyrri reynslu, ég
hef oft komið til London áður
án þess að eiga bókað hótel og
aldrei lent í erfiðleikum.
Nú, það er ekki að orðlengja
þaó að allt starfslið er sérstak-
lega vingjarnlegt og kurteist og
sumt af því heilsaði sem gamlir
kunningjar.
Daginn áður en ég fór frá
London fór ég í sendiráð Is-
lands og minntist lítillega á
fyrrgreint Y hótel. Var mér þá
sagt þar að þangað hefðu borizt
margar kvartanir viðvíkjandi
þessu hóteli, m.a. um stuldi af
herbergjum. Var mér jafn-
framt sagt i sendiráðinu að
hótel þetta væri rekið af kristi-
legum trúarsamtökum. Sjálf-
sagt er þar stundaður biblíu-
lestur og trúarsamkomur að
hætti farísea.
Mér láðist að geta aðalskraut-
fjaðra i auglýsingu þessa
hótels, þ.e. sundlaugar og
sauna-gufubaðs. Gufubaðið var
með meðalbaðherbergishita og
tilkomulítið hefði þeim þótt að
setjast þangað inn sem að jafn-
aði stunda gufubaðstofuna í
Nauthólsvík. Þó svo að ég hafi
um árabi.l verið nær daglegur
gestur í sundlaugum Reykja-
víkur hafði ég ekki lyst á baði í
sundlauginni á hótel Y, hún
minnti mig óneitanlega á sauð-
fjárböðun í sveitinni í gamla
daga, nema sá var munurinn að
þar var sauðféð baðað úr sterk-
um sótthreinsandi lút. Það virt-
ist ekki vera til siðs að fólk
baðaði sig áður en það færi í
sundlaugina.
Að lokum þetta: Tilgangur
minn með þessu bréfi er að
vara fólk við glansmyndaaug-
lýsingastarfsemi ferðaskrif-
stofa. Ferðizt frekar á eigin
vegum og farið ekki troðnar
ferðamannaslóðir, þar sem tak-
markið eitt er að plokka ferða-
manninn. Með því að ferðast
sjálfstætt fáið þið oftast betri
þjónustu fyrir minni pening,
auk þess sem þið kynnizt betur
fólkinu sem landið byggir.
Ég fluttist á Regent Palace
Blaðburðarböm óskast
strax við:
Tjarnargötu
Laufásveg
Hátún
Suðurgötu
Hverfisgötu
Miðtún
MMBIAÐIÐ
Sími27022
tiki Pardusinn]
Þingho/tsstræti 1
NÍÝIrzluií
Glænýjar vörur:
jólakjólar, tweed kjólar, flauels smekkbuxur,
smekkpils og ódýrir drengja-leðurjakkar
Tízkuverzlun ísérflokki
fyrir böm og unglinga
Magnús Halldórsson smiðjujaxl,
23 ára: Nei, ekki núna. Eg hef
gert það en aldrei fengið meira en
fimm rétta.
Grétar Sigurbjörnsson háseti á
Náttfara: Jú,-ég geri það. Ég hef
nú samt aldrei fengið pottinn, hef
mest verið með tíu rétta.
Kristján Kristjánsson skipstjóri á
Skeiðfaxa, 50 ára: Nei, ekki núna
en það hefur samt komið fyrir að
ég hafi gert það.
Engilbert Sigurðsson, vinnur hjá
Pósti og síma, 59 ára: Nei, ég hef
aldrei gert það.
Friðþjófur Jóhannesson dyra-
vörður og fyrrverandi vélstjóri:
Nei, ég hef nú ekki gert það. Ég
var lengi tilsjós og sjómenn hafa
svona takmarkaðan áhuga á fót-
bolta.