Dagblaðið - 28.11.1977, Qupperneq 4
4
DACBI.AÐIÐ. MANUDACDR 28. NOVKMBKR 1977.
Getur íslenzka ríkið ekki eignazt
mannvirkin á Kef la víkurf I ugvel li?
N jarðvíkurkaupstaður vill fá fasteignagjöld af flugstöðvarbyggingunni
Njarðvíkurkaupstaöur hefur
átt i deilu við flugmálastjórnina á-
Keflavíkurflugvelli vegna
álagningar fasteignaskatts á flug-
stöðvarbygginguna.
Að tilvísan Hæstaréttar var
greiðsluskyldan borin undir Yfir-
fasteignamatsnefnd, sem kvað
upp úrskurð hinn 7. júni sl. í
meðferð málsins og niðurstöðum
til þessa kemur fram margt
nýstárlegt. Meðal annars í sam-
bandi við afstöðu íslenzka ríkisins
til eigna á Vellinum og gjald-
skyldu af fasteignum þar.
Flugmálastjórnin á Keflavíkur-
flugvelli telur ríkissjóði ekki
skylt að greiða fasteignaskatt af
flugstöðvarbyggingunni. Er þessi
afstaða fyrst og fremst studd
þeim rökum, að bandaríska ríkið
sé, eigandi byggingarinnar, en
ekki íslenzka ríkið.
Vekja má þá spurningu, hvort
íslenzka ríkið geti yfirleitt eignazt
mannvirkin á Keflavíkurflug-
velli. ÍJrskurður liggur fyrir um
það að afhending er ef til vill ekki
nægileg. Hann hefur ekki verið
borinn undir dómstóla enn.
Meginefni úrskurðar yfirfast-
eignamatsnefndar verður nú
rakið:
Fasteignaskattur ársins 1973
var greiddur af flugstöðvar-
byggingunni en aðeins hluti fast-
eignaskatts 1974.
Er flugmálastjórnin á Kefla-
víkurflugvelli var krafin um
eftirstöðvar fasteignaskatts
ársins 1974, andmælti hún skyldu
til greiðslu skattsins. Með úr-
skurði uppboðsréttar Keflavíkur-
flugvallar frá 7. júlí 1975 var
ákveðið að uppboð skyldi fara
fram á flugstöðvarbyggingunni til
lúkningar umræddum fasteigna-
skatti.
Úrskurði þessum áfrýjaði flug-
málastjórnin til Hæstaréttar.
Hæstiréttur ómerkti uppboðsúr-
skurðinn með dómi, uppkveðnum
15. marz 1977, þar sem málið
hefði ekki verið lagt fyrir Yfir-
fasteignamatsnefnd til úrskurðar
áður en það var lagt fyrir
dómstóla, sbr. lög nr. 8 frá 1972
um tekjustofna sveitarfélaga, 4.
gr. 3 mtgr.
Njarðvíkurkaupstaður telur
ríkissjóði skylt að svara fasteigna-
skatti af flugstöðvarbyggingunni
til bæjarsjóðs Njarðvíkur-
kaupstaðar. Fasteign þessi sé í
Njarðvíkurkaupstað og sé eign
rikissjóðs. Komi þetta meðal
annars fram í því, að byggingin sé
skráð eign ríkissjóðs í fasteigna-
mati og ríkissjóður hafi tryggt
hana brunatryggingu. Af hálfu
Njarðvíkurkaupstaðar hefur
verið lagður fram ítarlegur
rökstuðningur fyrir sjónarmið
kaupstaðarins í málinu.
Flugmálastjórnin á Keflavíkur-
flugvelli telur ríkissjóði óskylt að
svara fasteignaskatti af flugstöðv-
arbyggingunni. Er sú afstaða
fyrst og fremst studd þeim rökum
að bandaríska ríkið sé eigandi
byggingarinnar, en ekki íslenzka
ríkið. Þá sé réttarstaða Kefla-
víkurflugvallar mjög sérstæð og
með þeim hætti að sveitarfélög
geti ekki krafið greiðslu fast-
eignaskatts af fasteignum þar.
Einnig sé vafasamt að flug-
stöðvarbyggingin geti talizt fast-
eign, þar sem lóðarréttindi skorti.
Fasteignamat byggingarinnar sé
heldur ekki löglegt, þar sem hún
hafi ekki verið metin í aðalmati
og verið metin af millimatsmönn-
um án samráðs við þá aðila, sem
um slík málefni eigi að fjalla, og
aðila, sem málið varðar.
Rækilegur rökstuðningur fyrir
sjónarmiðum ríkissjóðs er í skrif-
legum greinargerðum sem lagðar
hafa verið fram af hans hálfu.
1 úrskurði þessum verður
aðeins tekið til athugunar hvort
ríkissjóði sé skylt að svara fast-
eignaskatti af umræddri flug-
stöðvarbyggingu.
Af gögnum málsins kemur
fram að Bandaríkin létu reisa
flugstöðvarbygginguna. Hinn 29.
maí 1964 var hins vegar gert s'am-
komulag milli varnarliðsins og
ísienzku riki.sslórnarinnar „um
afhendingu hótel- og flugstöðvar-
Vetrar-
ferðir
Verzlunarmannafélag Reykjavíkur
hefur gert samkomulag við Samvinnu-
ferðir hf. um eftirtaldar ferðir til
Kanaríeyja:
11. febrúar 1978, 2ja eða 3 ja vikna ferðir.
29. apríl 1978. 3ja vikna feröir
Hópafsláttur verður fy.rir félagsmenn
Verzlunarmannafélags Reykjavíkur
og fjölskyldur þeirra. Upplýsingar um
þessarferðir gefa Samvinnuferðir hf.
Austurstræti 12. Sími 27077.
VERZLUNARMANNAFÉLAG REYKJAVÍKUR
KJÖRGARÐI
Gluggatjaldadeild
Blúndustórrisar
Velúrgardínur
Damaskgardínur
Dúkar
og fleira
Ath. Greiðsluskilmálar
Páll S. Pálsson hrl.
DB-mynd Sv. Þorm.
„Varnarmálasamninginn við
Bandaríkin þarf að endur-
skoða frá rótum, þar sem lagt
sé á metskálarnar heiður sjálf-
stæðrar þjóðar, öryggi á stríðs-
tímum, þar á meðal með
greiðari samgöngum, fullt
endurgjald lcigulands og
aðstöðu, eigi minna en gérist og
gengur hjá íslenzkum þegnum
og hvernig með skuli fara um
fullkomna eignarafhendingu
mannvirkja til íslenzka ríkisins
þegar herinn hverfur úr landi,
eða sleppir afnotum þeirra af
öðrum ástæðum," sagði Pál) S.
Pálsson, hrl. í viðtali við DB.
Páll S. gætir hagsmuna Njarð-
víkurkaupstaðar vegna inn-
heimtu fasteignagjalds á flug-
stöðvarbygginguna á Kefla-
víkur-flugvelli.
byggingar Varnarliðs íslands til
íslenzku ríkisstjórnarinnar, sbr.
og breytingu á þessu samkomu-
lagi frá 24. febrúar 1966.
Samkvæmt fyrrgreindu sam-
komulagi tekur íslenzka ríkis-
stjórnin aö sér rekstur og viðhald
flugstöðvarbyggingarinnar. I
samkomulaginu eru ríkisstjórn-
inni fengnar mjög víðtækar heim-
ildir til nýtingar og ráðstöfunar
þessa mannvirkis.
Ekki þykir þó hafa verið sýnt
nægilega fram á að með þessu
samkomulagi hafi ríkissjóður
orðið eigandi flugstöðvarbygging-
arinnar í skilningi 2. mgr. 4. gr.
laga nr. 8 frá 1972 um tekjustofna
sveitarfélaga.
Hafa heldur ekki verið færð
fram gögn fyrir því, að ríkis-
sjóður hafi orðið eigandi bygging-
arinnar með öðrum hætti. Þá
verður að telja varnarliðinu
óskylt að svara fasteignaskatti af
flugstöðvarbyggingunni, sbr. 3.
tölulið 7. gr. viðbætis um réttar-
stöðu liðs Bandaríkjanna og
eignir þeirra, sem var veitt
lagagildi hér á landi með lögum
nr. 110 frá 1951. Engin ályktun
verður af samningnum dregin í
þá átt, að slík skylda hvíli í þess
stað á ríkissjóði.
Samkvæmt þvf sem nú hefúr
verið rakið, er ríkissjóði óskylt að
S-vara Njarðvíkurkaupstað fast-
eignaskatti af flugstöðvar-
byggingunni á Keflavíkur-
flugvelli.
Mörg sveitarfélög og bæir á
Suðurnesjum eiga land á Kefla-
víkurflugvelli, m.a. Njarðvíkur-
kaupstaður, Keflavíkurkaup-
staður, Gerðahreppur, Miðnes-
hreppur, Hafnahreppur, Grinda-
vík.
Keflavíkurflugvtiilur er í viss-
um tilvikum sérstakt lögsagnar-
umdæmi, en ekki sveitarfelag,
skattumdæmi eða kjördæmi út af
fyrir sig.
Mál það um álagningu fast-
eignaskatts sem nú hefur verið
rakið i stærstu dráttum, kann
þegar að varða einhver þessara
sveitarfélaga eða jafnvel þau öll
og getur hvenær sem er gert það í
meira mæli en nú er kannað.
Rétt er að vekja athygli á því,
að mál þetta hefur ennþá ekki
verið borið efnislega undir dóm-
stóla, utan hvað það var að lokn-
um munnlegum málflutningi
tekið til úrskurðar í uppboðsrétti
Keflavíkurflugvallar hinn 7. júli
1975.
Hæstiréttur taldi ekki unnt að
dæma í málinu nema það færi
fyrst til úrskurðar hjá Yfirfast-
eignamatsnefnd.
Þegar Njarðvíkurhreppur lagði
fasteignaskatt á flugstöðvarbygg-
inguna fyrir árið 1974 var skatt-
fjárhæðin kr. 1.377.420.--. Var
flugmálastjórn með gjaldseðli
krafin um greiðslu hennar.
Hinn 6. ágúst 1974 ritaði flug-
málastjórn Njarðvíkurhreppi
bréf. Færðist flugmálastjórn und-
an greiðslu hins álagðafasteigna-
skatts, nema að því leyti sem
skatturinn næmi hærri upphæð,
en útlagður kostnaður flugmála-
stjórnar vegna greiðslna til
varnarliðsins fyrir vatns-,
holræsa- og sorphreinsunargjald
og að á útlagður kostnaður kæmi
þar með til skuldajafnaðar við
fasteignaskattsálagninguna.
Þessari aðferð hafnaði Njarð-
víkurhreppur og tilkynnti flug-'
málastjórn, að samþykkt hefði
verið í hreppsnefnd að innheimta
fasteignaskattinn að fullu.
Ekki verða þessi bréfaskipti
skilin á annan veg en þann að
flugmálastjórn greiði varnarlið-
inu vatns-, holræsa- og sorp-
hreinsunargjald vegna flugstöðv-
arbyggingarinnar eftir reglum,
sem sveitarfélög á Suðurnesjum
hafa lítil eða engin áhrif á. Síðan
hafi, a.m.k. á sínum tíma, flug-
málastjórn, talið til greina koma
að borga venjulega álagðan fast-
eignaskatt af flugstöðvar-
byggingunni, með því að draga
frá honum greiðslur til varnar-
liðsins fyrir áðurnefnda
kostnaðarliði.
Sú staða gæti samkvæmt þess-
ari aðferð einfaldlega komið upp,
að greiðslur flugmálastjórn-
arinnar til varnarliðsins fyrir
holræsi eða sorphreinsun næmi
margföldum álögðum fasteigna-
gjöldum eftir íslenzkum lögum.
I fjöldamörgum tilvikum hafa
ýmsir aðilar haldið að sér höndum
í samskiptum við stofnanir, fyrir-
tæki og jafnvel einstaklinga á
Keflavíkurflugvelli vegna réttar-
óvissu sem ríkir um málefni
varnarliðsins. Úr þessum vafaat-
riðum þarf að fá skorið meðal
annars vegna sveitarfélaganna á
Suðurnesjum. -BS.
ÚRVflL/ KJÖTVÖftUR
OeÞJÓflU/Tfl
//qllteitthvaó
gott í matinn
STIGAHLÍÐ 45-47 SÍMI 35645