Dagblaðið - 28.11.1977, Page 9
1' \i ;!1I \!'rn M \\l'l)\i;i'i!2S XOX'KMHKK !!!7T
9
m
Ljósmyndastofa AMATÖR
LAUGAVEGI 55 ® * 27 18
Bretland:
HERMENNIRNIR
RÁÐAVIÐ ELDINN
Engar horfyr virðast á sam-
komulagi í deilu slökkviliðs-
manna við brezka ríkið en í
morgun hófst þriðja vika
verkfallsins.
Hermennirnir, sem látnir voru
taka við störfum slökkviliðs-
mannanna, hafa stöðugt náð betri
tökum á störfum sínum og hingað
til hefur tekizt að koma í veg fyrir
stórbruna. Þykir það styrkja
stöðu ríkisstjórnarinnar, sem
ekki hefur viljað láta undan
kröfum slökkviliðsmanna um
30% kauphækkun.
Hefur þeim verið boðið 10%
launahækkun, sem er hámark
þess sem ríkisstjórnin vill leyfa.
Ef hærra verður farið í samning-
um við slökkviliðsmenn óttast
stjórnvöld, að aðrar stéttir komi á
eftir með kröfur sínar.
1 síðustu viku voru úrslit
skoðanakönnunar birt en þar kom
í ljós, að 63% Breta vildi leyfa
meira en 10% hækkun launa
slökkviliðsmanna.
Japan:
FUKUDA REKUR RAÐ-
HERRA - AÐEINS ÞRÍR
ÚR FYRRISTJÓRN
Takeo Fukuda lét aðeins
þrjá af ráðherrum í hinni
ellefu mánaða gömlu ríkis-
stjórn sinni sitja áfram er hann
í morgun endurskipulagði
stjórn sína. Fukuda forsætis-
ráðherra var búinn að boða
þessar aðgerðir en flestum kom
á óvart hve stórfelld manna-
skipti urðu í ríkisstjórninni.
Að sögn miða aðgerðirnar að
því að sem styrkust stjórn geti
tekizt á við slæmt efnahags-
ástand Japans, sumir segja að
mestu efnahagserfiðleikar
síðustu tuttugu ára ríði nú yfir
ríkið..
Skipaðir voru nýir ráðherrar
í öll helztu embættin, svo sem
fjármálaráðherra, utanríkis-
ráðherra, ráðherra útflutnings
og einnig var skipaður sér-
stakur ráðherra sem á að hafa
yfirumsjón með efnahags-
endurbótum.
Talsmaður stjórnarinnar
sagði, þegar ráðherralistinn
var tilkynntur, að þeirra biðu
alls kyns erfiðleikar á efna-
hagssviðinu, bæði heima og á
alþjóðasviði.
Viðskipti Japans við Banda-
ríkin og Efnahagsbandalag
Evrópu hafa verið erfið að und-
anförnu. Mikið af þeim við-
skiptum fer fram i dollurum,
sem hefur fallið töluvert gagn-
vart japanska jeninu. Hafa jap-
anskar útflutningsvörur jafn-
hliða orðið síður samkeppnis-
færar.
Fáir mættu
ígrafhýsi
Presleys
Aðeins fimmtán hundruð
manns munu hafa komið til graf-
hýsis hins látna rokksöngvara,
Elvis Presley, sem var opnað fyrir
almenning í gær.
Búizt hafði verið við meira en
tíu þúsund manns en vont veður
og rigning kom í veg fyrir það.
Margir gestanna, sem aðallega
voru miðaldra konur og unglings-
stúlkur, táruðust þegar þeir
gengu fram hjá gröf hins látna
rokksöngvara, sem hvílir við hlið
móður sinnar.
Elvis lézt 16. ágúst síðastliðinn
og var lík hans flutt úr kirkju-
garðinum í Memphis að heimili
fjölskyldu hans, þegar nokkrir
menn voru handteknir grunaðir
um að hafa ætlað að ræna líki
hans.
Hinn bráðskemmtilegi
EMIL í KATTHOLTI
er kominn á hljómplötu í íslenzkri þýðingu
Böðvars
EMIL í Kattholti
Guðmundssonar
ÞETTA ER JÓLAPLATA
BARNANNA ÍÁR
Á.Á.-hljómplötur
300-400ferm. óskast
Óskað or eftir 300—400 fm húsnæði til
leigu á innra Reykjavíkursvæðinu.
. Hreinlegt umhverfi og næg bílastæði
nauðsyn.
Tilboð sendist blaðinu merkt
„LÓKAL“.
TILBUNAR
A 3 MÍN.!
F»5SA/ViYND(R
■c ÖkMsskú/iteisii ~ rui/'n>s/ki/táeÍJii
oeýaÁr&f ~ skóö&skitáai/d
OPiæ> i
Tveir af
fimmburunum
dánir
Tveir af fimmburunum sem
fæddust í borginni Cordoba í
Argentínu á föstudaginn var eru
látnir.
Líðan þeirra þriggja, sem eftir
lifa er ekki góð en hefur ekki
versnað um nokkurn tíma.
Tvíburarnir sem eru látnir
voru báðir drengir en eftir lifa
tveir drengir og stúlka.
Móðir barnanna sem er þrjátíu
og þriggja ára er að ná sér og
hefur henni verið skýrt frá dauða
tveggja sona sinna.
REUTER