Dagblaðið - 28.11.1977, Blaðsíða 19
i' v;m..\ím>: mAxri>.\<ji'H 2s. novkmi?i-:k it)77.
Þetta eru skórnir sem pær lágu
eiga að ganga í til spari.
Þeir kvenskór sem nú eru í
tízku og verða munu eru margs
konar. Hægt er að velja bæði
um marga Iiti og hælastærðir.
Þannig geta háar konur keypt
sér lághælaða skó og þær litlu
keypt sér skó með háum hælum
til þess að allar verði þær jafn-
ar á hæð þegar þær eru komnar
í skóna.
Þegar um er að ræða spari-
skó virðist tvennt aðallega vera
í tízku. Annars vegar eru skór
með nokkuð háum hælum, mjó-'
um reimum yfir ökkla og mjó-
um tám. Hins vegar er svo skó-
tau sem er svipað því sem smá-
SKOR FYRIR
HÁAR OG LÁGAR
stelpur hafa fram að þessu
verið kiæddar i. Skórnir eru
með mjög lágum hælum og
mjög einfaldir að aliri gerð.
Þessir skór þykja henta
hávöxnum konum sérlega vel.
Þessir síðarnefndu skór
þykja sérlcga snotrir og kven-
legir. Þeir eru oftast úr svörtu
lakkskinni og með ól sem
spennt er yfir ristina. Svart er
tízkuliturinn á þessnm skóm en
auk þess eru brúnir litir og
jafnvel gráir algengir.
Fyrir litlar konur eru samt
ennþá í tízku hæiaháir skór
með ristarböndum. Þessir skór
eru oftast Ijósir á litinn þrátt
fyrir svörtu tízkuna. Einnig er
notað lakkskinn í þessa skógerð
en líka öll möguleg gerviefni
og jafnvel rúskinn.
©PIB
Skórnir fyrir þær hávöxnu eru
lághæla og einfaldir.
Blaðburðarbörn óskast strax í
Innri-Njarðvík
Umboðsmaður, sími2249
MMADin
-SKARTGRIPIR-------------------
Sérstakir og mjög vandaðir skartgrip-
ir frá KUPITTAAN KULTA, Finnlandi ný-
komnir.
(imiDDiiniM
Laugavegi 55. Sími 11066.
r—ESKFIRÐINGAR!----------------
Nýkomið: Ódýrar mittisiílpur,
herraskyrturo.rn.fi.
HLÍÐARSKÁLI
Þfústuf Wagnýíson