Dagblaðið - 18.01.1978, Síða 12
12
DAGBLAÐIÐ. MIÐVIKUDAGUR 18. JANÚAR 1978.
19 ára sigurvegari frá
minnsta ríki Evrópu
Andreas Wenzel sigraði Ingemar Stenmark í gær
„Mér tókst vel upp í báðum
umferðum og það er eina
aðferðin til að sigra Stenmark,*1
sagði Andreas Wenzel frá
minnsta ríki Evrópu, Lichten-
stein, eftir að hann hafði hiotið
sinn fyrsta sigur í keppni heims-
bikarsins í gær. Það var í stór-
svigi í Adelboden í Sviss og
Wenzei, sem er 19 ára, var háifri
sekúndu á undan Ingemar Sten-
mark. Svíinn náði beztum tíma í
síðari umferðinni en tókst ekki að
vinna upp 0.73 sek. mismun, sem
Wenzel hafði náð í fyrri um-
ferðinni. Við sigurinn skauzt
Andreas Wenzel úr tíunda sæti
Cindy Nelson, Bandaríkjunum,
náði beztum æfingatíma í bruni í
Bagdastein í Austurríki í gær,
þegar stúlkurnar í keppni heims-
bikarsins voru að undirbúa sig
fyrir brunkeppnina, sem verður
háð i dag. Hún er talin hafa góða
sigurmöguleika ásamt Berna-
dette Zurbriggen, Sviss, sem
einnig sýndi góða takta í braut-
inni í gær.
Mest verður þó fyigzt með
Önnu-Maríu Moser-Pröll, Austur-
ríki, og Hanni Wenzel, Lichten-i
stein, sem skipa tvö efstu sætin í
stigakeppninni. Anna-María
keppir þó hún geti ekki unnið tii
fleiri stiga í bruninu — en hún
getur með þátttöku sinni iækkað
stigatölu annarra. Hanni Wenzel
er níu stigum á eftir Önnu-Maríu
samanlagt og þó hún sé bezt i
sviggreinunum, hefur hún komið
á óvart í bruni í vetur.
upp í það fimmta í stigakeppni
heimsbikarsins. Systir hans,
Hanni Wenzel, sem er 21 árs,
sigraði í stórsvigi í Les Mosses
fyrir viku og er í öðru sæti í
stigakeppni kvenna í heims-
bikarnum.
Ingemar Stenmark, sem nú
hefur tvívegis tapað keppni eftir
12 sigra í röð, sagði eftir
keppnina. „Mér finnst ég vera
þreyttur núna auk þess, sem ég er
með hálsbólgu. Mér tókst ekki
nógu vel upp i fyrri umferðinni
en ég er ánægður með annað
sæti. Það er erfitt að renna sér
alltaf á nær fullkominn hátt i jafn
tæknilega erfiðyi grein og stór-
.svigið er. Ég held til Kitzbuehel í
lAusturríki innan skamms og
keppi þar í svigi heimsbikarsins á
sunnudag. Síðan fer ég heim til
Svíþjóðar til hvíldar og hressing-
ar fyrir heimsmeistarakeppnina.
Það er greinilegt, að hún verður
mjög erfið“, sagði Stenmark — en
|þess má geta að honum hefur
aldrei lekizt að sigra í keppni í
Adelboden.
Stenmark er enn langefstur í
stigakeppni heimsbikarsins með
150 stig og bætti ekki við-sig stig-
um þar í gær, þar sem hann hefur
þegar hlotið hámarksstigafjölda
bæði í svigi og stórsvigi eftir þeim
reglum, sem nú er keppt. í stór-
sviginu bætti hann hins vegar við
sig 20 stigum og þar er staða efstu
manna nú þannig.
1.1. Stenmark, Svíþjóð 95
2. A. Wenzel, Lichtenst. 55
3. Heini Hemmi, Sviss 51
4. Phil Mahre, USA
5. J. Fournier, Frakklandi
6. K. Heidegger, Austurr.
7. Piero Gros, Ítalíu
8. L. Stock, Austurríki
9. B. Krizaj, Júgóslavíu
10. G.Thoeni, Italíu
j Sigurvegarinn í gær, Andreas
Wenzel, hefur tvívegis orðið I
þriðja sæti í keppni heims-
bikarsins í vetur — og er nú að
komast í hóp beztu skíðamanna
heims í alpagreinum. Hann náði
beztum tíma í fyrri umferðinni í
gær 1:17.72 mín. og þeim næst
bezta í þeirri síðari, 1:16.44 mín.,
en Stenmark var þá beztur á
1:16.22 mfn. Samanlagður tími
Wenzel var 2:34.26 mín. en Sten-
mark fékk 2:34.89 mín.
Italski Olympiumeistarinn í svigi
Piero Gros náði sínum bezta
árangri i vetur. Varð þriðji á
2:35.07 mín. eftir að hafa verið
með annan bezta tímann eftir
fyrri umferðina. Olympiumeist-
arinn í stórsviginu, Heini Hemmi,
Sviss, varð fimmti á 2:36.31 mín.
Hann keppti nú í fyrsta sinn síðan
hann meiddist í baki um miðjan
desember. t fimmta sæti varð
Phil Mahre á 2:36.40 mín. — en
Klaus Heidegger tókst ekki að
vinna stig á Stenmark í keppninni
samanlagt þar sem hann varð
aðeins í niunda sæti. Hann er í
öðru sæti með 90 stig. Phil Mahre
er þriðji með 76 stig og í fjórða
sæti er brunmeistarinn italski,
Herbert Plank, með 70 stig.
„Þetta er bara gott“, segir Skúli Nielsen, rakarameistari og fyrrum
landsliðsmaður í knattspyrnu, þegar hann athugar pinnana i hári Jóns
H. Karlssonar, fyrirliða landsliðsins. Björgvin, Kristján og Þorlákur
Kjartansson fylgjast með ásamt starfsstúlku á Rakarastofu Austur-
bæjar, sem setti pinnana í Jón
DB-mynd Bjarnleifur.
Miller Barber
Miller Barber, sem er 45 ára, sigraði á
opna golfmótinu í Phönix í Bandaríkjunum í
gær. Lék á 273 höggum hoiurnar 72. Var
höggi betri en Jay Pate og þriðji varð Lee
Trevino.
Gr.mli meistarinn Arnold Palmer var mjög
sigurstranglegur um tíma í siðustu umferð-
inni. Lék sex holur í röð á „birdie“ og náði
forustu i keppninni. Hins vegar tókst honum
ekki eins vel upp í lokin og varð þvi af sinum
fyrsta sigri á stórmóti um árabil. Palmer
varð f jórði á 276 höggum.
Tennisleikarar fá
miklar tekjur
Þeir Jimmy Connors og Guilemro Vilas,
Argentinu, urðu langtekjuhæstir tennisleik-
ara á siðasta ári — og eiginkona Jimmy
Connors, Chris Evert, varð langtekjuhæst
kvenna. Connors vann sér inn rúmlega 900
þúsund dollara — upphæð sem nemur um
180 milljónum króna. Annar Varð Guilermo
Vilas frá Argentínu með rétt rúmlega 800
þúsund dollara, um 160 milljónir króna.
Þriðji varð. Svíinn Björn Borg með tæplega
500 þúsund dollara — eða um 100 milljónir
króna.
Tekjur tennisleikara eru gífurlegar — og
hafa stöðugt vaxið undanfarin ár. Þær hafa
farið langt fram úr tekjum golfmanna. Chris
Evert varð langtekjuhæst kvenna með rúm-
lega 500 þúsund dollara — eða sem nemur
um 100 milljónum króna. Næst Evert varð
tékkneska stúlkan Martina Navratilova með
um 60 milljónir króna.
DAGBLAÐIÐ. MIÐVIKUDAGUR 18. JANUAR 1978.
M'íMíSt’ífsgáfigp|
Mæta krullaðir
íkveðjuleik-
inníkvöld
Þeir verða fínir um hárið í kvöld, lands-
liðskapparnir í handknattleiknum, þegar
þeir leika við pressulið á fjölum Laugardals-
hallarinnar kveðjuleikinn fyrir HM-
keppnina. í gær voru þeir hjá Skúla Nielsen,
landsliðskappa í knattspyrnunni hér áður
fyrr, á Rakarastofu Austurbæjar þar sem
þeim öllum var boðið upp á klippingu.
Margir fengu krullur í hárlð —þar á meðal
fyrirliðinn Jón H. Karlsson, nákvæmlega
éins og í B-keppninni i Austurríki í fyrra.
Kveðjuleikur landsliðsins hefst um níu-
leytið í kvöld eftir að ýmsir frægir kappar
hafa sýnt Iistir sínar i knattspyrnu á fjölum
hallarinnar. Sú skemmtun hefst kl. 20.30 og
þar verður Albert Guðmundsson i farar-
broddi. Vmsir yngri stjórnmálamenn lands-
ins honum til aðstoðar gegn Ómari, Bessa,
Halla og Ladda — að ógleymdum Rúnari
Júlíussyni, poppara úr Keflavík, sem eitt
sinn var í hópi snjöllustu knattspyrnumanna
landsins.
Evrópumeistarar Liverpool og
Nottm. Forest í undanúrslit
— enska deildabikarsins eftir sigra gegn liðum úr 3. deild í gærkvöld
Munurinn á beztu liðunum í 1.
deild, Evrópumeisturum Liver-
pool og Nottingham Forest, efsta
liðinu í Englandi, og liðum úr 3.
deild kom vel í ljós í gærkvöld,
þegar þessi tvö stórlið enskrar
knattspyrnu tryggðu sér rétt í
undanúrslit enska deildabikars-
ins. Liverpool sigraði Wrexham
3-1 í Wales og Nottingham Forest
sigraði Bury 3-0, einnig á útivelli.
Kenny Dalglish, dýrasti leik-
maðurinn í ensku knattspyrn-
unni, skoraði öll mörk Liverpool í
Wrexham. Hann kostaði félagið
440 þúsund sterlingspund sl.
sumar frá Celtic. Dalglish skoraði
fyrsta markið snemma leiks eftir
undirbúning Terry McDermott en
rétt fyrir lok fyrri hálfleiksins
jafnaði John Lyons fyrir 3ju
deildarliðið. I síðari hálfleiknum
skoraði Dalglish tvívegis og
tryggði öruggan sigur Evrópu-
meistaranna.
í Bury skoraði Ian Bowyer
fyrsta mark Forest en hann er
venjulega varamaður hjá liðinu. í
siðari hálfleik skoraði irski lands-
liðsmaðurinn Martin O’NeilI frá-
bært mark fljótlega og John
Robertson skoraði 3ja mark
Forest á 80. mín. I kvöld verða
tveir leikir í deildabikarnum.
Leeds-Everton og Manch.City-
Arsenal.
Tveir leikir voru í 3. deild á
Englandi. Sheffield Wednesday
sigraði Exeter 2-1 í Sheffield og
er nú aðeins að rétta við á botni
deildarinnar. Þá gerðu Walsall og
Tranmere jafntefli 0-0 í Walsall.
Tranmere náði þar með forustu í
deildinni — komst upp fyrir
Wrexham, en hefur leikið premur
leikjum meira.
Allur ágóðinn af skemmtikvöldinu rennur
til landsliðsins — og ekki veitir af, því
undirbúningurinn og HM-keppnin kosta HSl
15 milljónir króna. I kvöld er því tækifæri til
að styrkja landsliðið í verki með því að mæta
í LaugardalshöII — og enginn ætti að verða
svikinn af því, sem þar fer fram.
Benfica hefur
ekki tapað
I 13. umferðinni i 1. deild í Portúgal urðu
úrslit þessi.
Braga-Setubal 5-0
Benfica-Oporto 0-0
Boavista-Sporting 3-1
Academico-Estoril 1-0
Boavista-Sporting 3-1
Portimonense-Feirense 5-1
Espinho-Riopele . 2-1
Varzim-Belenenses 0-0
Varzim-Belenenses 0-0
Martimo-Guimaraes 1-1
Staða efstu liða er nú þannig:
Benfica 13 9 4 0 27-6 22
Oporto 13 8 4 1 28-10 20
Braga 13 8 2 3 24-12 18
Sporting 13 7 3 3 24-15 17
Belenenses 13 7 3 3 11-8 17
vann íPhönix