Dagblaðið - 14.02.1978, Blaðsíða 5

Dagblaðið - 14.02.1978, Blaðsíða 5
DAGBLAÐIÐ. ÞRIÐJUDAGUR 14. FEBRUAR 1978. 5 Ráðstefna á Sögu um Alþjóðabankann Ótti við þrýsting f rá Bandaríkjaþingi „Alþjóðabankinn verður frekar að hafna peningum frá Banda- ríkjunum en láta undan þeim pólitíska þrýstingi, sem Banda- ríkjaþing vill beita.“ Þetta hafði danska blaðið Information fyrir skömmu eftir Einari Magnússen, sem er fulltrúi Norðurlanda í stjórn Alþjóðabankans. Einar flutti í gær ræðu á ráðstefnu um Alþjóðabankann, sem Félag Sameinuðu þjóðanna efndi til á Hótel Sögu. Einar var hógvær í ræðu sinni og fór lofsamlegum orðum um starf Alþjóðabankans einkum undir forystu Bandaríkja- mannsins McNamara, fyrrum ráðherra. Bankinn hefði verið framsækinn. Hann sagði, að Alþjóðabankinn ætti eftir föng- um að beina starfi sínu að því að bæta kjör hinQa fátækustu í stað þess að gera hina rfku rikari. Bankinn hefði lagt talsvert af mörkum til að efla fátækari löndin og halda yrði því áfram. Hins vegar hefur Einar lýst áhyggjum vegna tilrauna Banda- ríkjaþings til að knýja fram breytta stefnu. Bankinn gegnir mikilvægu hlutverki í aðstoð vest- rænna ríkja við þróunaríkin, en Bandaríkjaþing hefur borið fram margvíslegar kröfur um skilyrði fyrir þátttöku Bandaríkjanna í fjármögnun bankans. Hlutur Bandaríkjanna í fjármögnuninni er mikill, hefur verið um fimmtungur. Bandaríkjaþing hefur krafizt, að bankinn megi ekki veita frekari lán til Víetnam, FASTUR í KLISJUNNI Eitthvað er jassáhugi að glæðast hér í landinu. I það minnsta eru útlendir jass- leikarar farnir að sækja hingað, og virðast eftir öllu að dæma, fá sæmilega fyrir snúð sinn. Nú um helgina var hér enn ein sending frá Danmörku, inn- flytjandi ,,Jassvakning“, og heyrði undirritaður til hennar í menntaskólanum við Hamra- hlíð á laugardagskvöldið. Var þetta trfó, samansett af pfanó- leikaranum Horace Parlan, gítarleikaranum Doug Kaney óg bassistanum Wilbur Little. Auðvitað er alltaf gaman að heyra f góðum jassistum, og meira að segja bara meðal- góðum jassistum, ef svo stendur á. En það stóð eiginlega ekki alltof vel á þarna f Hamra- hlíðinni, bæði var hálf kalt í salnum, og fírarnir voru þaraðauki greinilega hálf- dasaðir eftir flugið. Annars held ég að þeir geti varla verið mjög vanir að leika saman. Þetta eru prýðis hljóðfæra- leikarar, hver á sinn hátt, en sem „grúppa" tókst þeim, f þ.m. ekki þarna, að ná neinu verulegu lífi í tuskurnar. Parlan er athyglisverður pfan- isti, einhverstaðar á milli Pow- ells og Monks í stilnum, og er þar vissulega ekki leiðum að likjast. En ekki virðist hann hafa neinu sérstöku við að bæta það sem gert var f jassinum fyrir 20-30 árum. Það hefur sá kornungi Doug Raney heldur ekki núna. hvað sem svo síðar verður. Það er annars makalaust hvað jassinn stendur fastur í klisjunum. A maður virkilega að trúa að Charlie Parker hafi lokað öllum leiðum á eftir sér, þegar hann kvaddi þennan heim, u.þ.b. að Doug Raney var að fæðast, á miðjum áratugnum sjötta. Dough spilaði svosem margar fallegar sólóar, og manni duttu í hug margir, gamlir og góðir gítaristar, Cristian, Raney (Jimmy), Montgomery og jafn- vel Jim Hall, en þegar kom að þvf að músisera, spila með hin- um, skeði akkúrat ekki neitt. Ljósasti punkturinn fannst mér bassistinn, Wilbur Little, þvf hann spilaði bæði góðar sólóar og fylgdi vel eftir því sem hinir voru að gera, en samspil er það sem allt veltur á i jassmúsfk. Þetta var trommulaus grúppa, og þykir mörgum það eflaust undarlegt uppátæki f jass. En trfóið var samtsemáður ríg- bundið „bítinu", sem oft verður svo tilbreytingarlaust, jafnvel með bestu trommuleikurum, og náði aldrei þvf hljóðfallsfrelsi sem maður hafði kannski búist við. Svoleiðis heyrði maður ein- stöku sinnum í gamla daga. T.d. man ég eftir Konitz og Jimmy Raney, leika i hátt í þrjá tíma, f klúbb niður í Village í New York. Þeir höfðu ekki aðeins losað sig við trommurnar af staðnum, heldur einnig úr öllu systeminu, og léku þó aldeilis frábæran jass. Kannski að jass sé alls ekki bara leikur að „off- bítinu" þó sumir vitrustu vitr- ingarnir segi það. Sk.vldu ekki vera fleiri múslkólsk „element“ f spilinu? -Leifur Þ. LEIFUR ÞÓRARINSSON Tónlist Trio Horace Parlan. Myndin er tekin á lokatónleikunum á mánudagskvöldið var. DB-mvnd RagnarTh. Sigurðsson. Laos, Mósambík, Angóla, Kúbu, Uganda eða Eþíópfu, þar sem stefna þessara ríkja sé ekki f sam- ræmi við stefnu Bandaríkjanna. Carter Bandaríkjaforseti sefaði þingið í fyrstu lotu með loforðum um, að fulltrúi Bandaríkjanna mundi beita sér gegn slíkum lán- um. Enn getor blossað upp f bank- anum. Tónninn á ráðstefnunni f gær var yfirleitt vinsamlegur bankan- um, að sögn fulltrúa, en Elfas Davíðsson kerfisfræðingur gagn- rýndi bankann, svo að þetta var engin ,,hallelújasamkoma“. -HH. Bílanaust gefur út vörulista: Biblaa bíleigandans Varahlutaverzlunin Bila- naust hf. fitjar þessa dagana upp á nýjung sem eflaust á eftir að koma bifreiðaeigendum mjög til góða. Nýkominn er út á , vegum verzlunarinnar vöru- listi, — það er skrá vfir velflest- ar þa r vörutegutui'f sem þar eru á boðstólum. í lormála að viirulistanum • segir að tilgangurinn með út- gáfunni sé að auðvelda viðskiptavinum Bilanausts leit að varahlutum og alls kyns aukahlutum. Þeir-eru vafalaust fáir bileigendurnir, sem kannast ekki við leit að nauðsynlegum varahlutum, sem léleg umboð hafa trassað flytja inn og síðan viðeigandi blótsyrði til áherzlu. Þeim mönnum hlýtur listinn að vera sem fagnaðarerindið sjálft. Til að auðvelda notkun á list- anum eru skýringamyndir af öllum hlutunum. Efnisyfirlit fremst í honum vísar á réttar blaðsíður, þegar leitað er að sérstökum hlutum, sem skráðir eru ákveðnu númeri. Jafnframt er bifreiðaskrá sem eínnig vísar á ákveðin númer fyrir hverja bifreiðategund. Með númerunum er síðan hægt að finna þá hluti, sem leitað er að, — ef til eru. Auk vöruskrárinnar sjálfrar er í Vörulista Bílanausts skrá sem hægt er að nota við athugun á bilun í bílnum. Þannig getur bifreiðareigandi elt uppi bilun sem hann leitar að. Einnig er að finna teikning- ar af alternator teningum. Þar eð um tilraunaútgáfu er að ræða á Vörulista Bilanausts er upplagið takmarkað. Eintak- ið kostar 600 krónur. -AT- LÍNA FÉLL NIÐUR Lína féll niður úr umsóknar- bréfi Helga Hóseassonar um prestsembætti, sem birt var í blaðinu á fimmtud. Sagði þar að Helgi sækti um prestsembættið í Reýnivalla-,,prófastsdæmi“. Það átti að sjálfsögðu að vera Reynivallaprestakall í Kjalarness- prófastsdæmi. Blaðið biðst vel- virðingar á þessum miðstökum og einnig þeinri að kalla unga manninn. sem sat á hné Helga á mvndinni barnabarn hans. Hið rétta er að hnokkinn er fræridi Helga. smauuuB frjálst, úháð daghlað ®nausth.( mÆi* SlÐUMÚLA 7—9 - SlMI 82722 í/ HEYKJAVlK 1. Veizt þú hvar vörurnar eru fáanlegar? 2. Hefur þú tekið saman hve mikið það kostar þig að leita unt allan bæ að því sem 'antar? 3. Veiztu hvernig greina á bilun á bilnum? EINFÖLD EN GÓÐ LAUSN: Vörulisti frá Bilanausti hf. er 154 síður, með skrá yfir gífurlegt vöruúrval, Asamt grei.nargóðum upplýsingum um hvernig greina má bilun á hílnum. ÞAÐ SEM GERA ÞARF: Panta lista. Útfyllið eyðublað þetta og sendið til Bílanausts hf„ Síðumúla 7-9, pósthólf 994, Revkjavík. Nafn___________________________________________________ Heimili _______________________________________________ Sveitarfélag __________________________________________ VERÐ AÐEINS KR. 600. Ég óska þess að Bilanaust sendi mér vörulisa 1978 sem kostar kr. 600. D Póstsendist hjálögð greiðsla kr. 850.- með burðargjaldi. n Póstkröfu með póstkröfukostnaði.

x

Dagblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Dagblaðið
https://timarit.is/publication/260

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.