Dagblaðið - 17.03.1978, Blaðsíða 2
DAGBLAÐIÐ. FÖSTIJDAGUR 17. MARZ 1978.
Endurskoðendur
minnihlutans skorti
tíma eða áhuga að
Ijúkaverkinu
Magnús Magnússon fyrrv.
bæjarstjóri skrifar:
I Dagblaðinu 4. marz sl. er
nokkuð rætt um bókhald bæjar-
sjóðs Vestmannaeyja og gefið i
skyn, að þar hafi ekki allt verið
með felldu um nokkurt árabil.
Vegna þessara ummæla (sem
byggð eru á grein í Fréttum) og
ýmissa annarra, sem sett hafa
verið fram á undanförnum
árum og ganga í sömu átt og eru
til þess ætluð að sverta mig og
samstarfsmenn mina, langar
mig til að koma eftirtöldum
athugasemdum og skýringum á
framfæri.
1. Allt fram að gosi var bók-
hald bæjarsjóðs og stofnana
hans fært og sett upp með
algerlega eðlilegum hætti,
endurskoðað af löggiltum
endurskoðanda, tekið fyrir í
bæjarstjórn til fyrri umræðu
og visað til kjörinna endur-
skoðenda. Jafnframt voru
reikningarnir gefnir út fjöl-
ritaðir.
2. Aftur á móti dróst vinna
kjörinna endurskoðenda
mjög á langinn og það svo, að
í gosbyrjun var ekki búið að
ganga endanlega frá reikn-
ingum allt frá árinu 1968.
Éðlilegt er að spurt sé, hvort
þessi dráttur sé alfarið
bæjarstjóra að kenna, eins og
reynt er að halda fram.
Kjörnir endurskoðendur eru
ekki ráðnir af bæjarstjóra,
heldur kosnir af bæjarstjórn
(annar af meirihluta, hinn af
minnihluta bæjarstjórnar)
og bæjarstjóri hefur ekkert
húsbóndavald yfir þeim.
Hann getur einungis óskað
þess, að þeir flýti störfum, og
það var ótæpilega gert. í
reynd getur minnihluti
bæjarstjórnar kosið í þetta
starf mann eða menn, sem
engan áhuga hafa fyrir því,
eða engan tíma til að sinna
því, og getur þannig dregið
endanlega og formlega af-
greiðslu reikninga von úr
viti, og það var einmitt þetta,
sem gerðist i Vestmanna-
eyjum. Það sýnir svo dreng-
skap þessa sama minnihluta
að vera sýknt og heilagt að
ásaka mig og samstarfsmenn
mína fyrir störf, eða réttara
sagt starfsleysi, þeirra eigin
— aldrei verið nein
óreiðaábókhaldi
Vestmannaeyja-
kaupstaðar
fulltrúa.
3. Meðan gosið stóð yfir var
lítið unnið við bókhald, nema
hvað reikningar ársins 1972
voru gerðir upp. Tilfallandi
fylgiskjöl ársins 1973 voru
ekki færð jafnóðum, en vand-
lega geymd. Strax og unnt
var að flytja bókhaldsgögnin
aftur til Eyja, seint á árinu
1973. var tekið til við bók-
haldið. Erfiðleikar voru
miklir. Fylgiskjöl ársins 1973
að mestu ófærð og umsvif
bókhaldsins höfðu margfald-
ast frá því sem var fyrir gos,
fyrst og fremst vegna upp-
byggingarinnar. Samtímis
var tekin upp tölvuvinnsla
bókhalds.
4. Það sem á mig má með réttu
deila í þessum efnum er að
hafa ekki, þegar hér var
komið, séð bókhaldinu fyrir
nægilegum starfskröftum.
Ég (og aðalbókari bæjar-
sjóðs) ofmat hagræðinguna
af tölvubókhaldinu og
vanmat byrjunarörðugleika,
sem því fylgdu, og ekki var
tekið nægilegt tillit til
þeirrar gífurlegu aukningar í
bókhaldi, sem uppbygging-
unni fylgdi.
Ég vil taka það skýrt fram, og
undirstrika það, að þótt dráttur
yrði á fullnaðarfrágangi bók-
halds fyrstu árin eftir gos, þá
var þar aldrei um neins konar
óreiðu að ræða.
I tilvitnaðri grein í DB segir,
að kjörnir endurskoðendur
bæjarsjóðs hafi gert fjölda at-
hugasemda við reikninga ársins
1976. Það er ekki rétt. Þeir
settu fram hugleiðingar um
bókhaldið almennt og tillögur
til endurbóta. Um beinar
athugasemdir var ekki að
ræða.
Magnús H. Magnússon
f.vrrv. bæjarstjóri
Vestmannaevjum. >
Fermingarskór,
margirlitir
Opið á laugardag fyrirpáska
kl.9-12
Póstsendum
Kr. 10.980.