Dagblaðið - 17.03.1978, Blaðsíða 9
DAGBLAÐIÐ. FÖSTUDAGUR 17. MARZITO.
9
Of beldinu á Ítalíu linnir ekki:
ÞÚSUNDR LÖGREGLUMANNA
LBTA RÆNINGJA MOROS
— Blóöugasta mannrán á Ítalíu kom sem reiðarslag yf ir þjóðina
Yfir 2000 ítalskir lögreglu-
menn leita nú mannræning.ja
Aldo Moro fv. forsætisráðherra
Ítalíu sem rænt var í Róm i'
gær. Leitin fer aðallega fram í
útjaðri borgarinnar og í húsum
lil sveita og umhverfis þau.
Mannránið i gær er hið blóð-
ugasta í sögu pólitískra mann-
rána. sem gengi hafa yfir
Ílalíu undanfarið. Fimm líf-
verðir Moros voru skotnir til
hana. þegar þeir revndu að
hindra ramingjana. en Moro
var á leið frá kirkju til vinnu er
mannránið var framið.
Rauðu herdeildirnar. öfga-
sinnaðir hópar hrvðjuverka-
inanna. hafa lýst áhyrgð á
mannráninu á hendur sér. l.eið-
togar herdeildarinnar eru nú
fvrir rétti i Turin á Italíu
ákærðir fvrir að koma á fót
vopnuðum hryðjuverkahópi til
þess að kollvarpa ítalska þjóð-
félaginu.
Lögreglan leitar nú 12
skæruliða. þ.á.m. konu, sem
klædd var eins og flugfreyja.
Fjöldi símhringinga harst til.
ítalskra fréttastofa og daghlaða
frá rauðu herdeiTdunum. en
þær erti illraundar fvrir marg-
háttað ofbeldi. nú síðast morð á
lögreglumanni og dómara.
Finu upplýsingarnar sem
fengust voru þa*r að herdeild-
irnar hefðu Moro í haldi og að
hann þyrfti heknishjálpar við,
Aðrar upphringingar greindu
frá því að hann hefði þegar
verið liflátinn. eða að hann
hefði verið fluttur út f.vri'r
Róm. þar sem hann yrði mynd-
aður til þess að sýna að hann
væri á lifi. Lögreglan telur hins
vegar að mannræningjarnir séu
enn í Róm og leitinni er aðal-
lega heint að úthverfum Rómar
og nærliggjandi sveitahéruð-
um. Lögreglan er i brynvörðum
bílum og menn í skotheldum
vestum.
Innanrikisráðune.vtið hefur
dreift myndum af tuttugu
manns. sem tengdir eru rauðu
herdeildunum og óskað er eftir
að þetta fólk komi til vfir-
hevrslu. Lögreglan fékk um 300
simtöl tvær fyrstu klst. eftir að
mvndirnar af fólkinu voru
sýndar i sjónvarpi.
Giulio Andreotti forsaMisráð-
herra fékk stuðning hinnar
nýju minnihlutastjórnar kristi-
legra demókrata á þingi í gær
og var því máli flýtt vegna
mannránsins. Andreotti verður
nú að bregðast við erfiðasta
vandamáli sínu á þrjátiu ára
stjórnmálaferli. Hann beiðeftir
að he.vra frá mannræningjun-
um. Yfirvöld óttast að þeir
krefjist þess að réttarhöldun-
um í Turin verði hætt. en
tvisvar hefur þurft að fresta
þeim vegna ofbeldisaðgerða og
hótana herdeildanna. Þá er
mikill þrýstingur á Andreotti
frá stjórnmálamönnum. verka-
lýðsforystu og nánast öllum á
Italíu að bregðast harkalega við
aðgerðum skæruliðanna.
Hundruð þúsunda Itala
gengu um stræti margra borga
til þess að sýna andúð sina á
mannráninu. Meðal göngu-
manna voru verkamennogstúd-
entar og hægri menn jafiit sem
vinstri menn. Mannránið kom
sem reiðarslag vfir ítölsku þjóð-
ina. Rauðu herdeildirnar liafa
fiam að þessu ráðizt á ýmsa
miðstéttarmenn á Ítalíu, en
þetta er í fyrsta skipti. sem
þeir ráðast gegn valdamiklum
stjörnmálaforingja. Það setur
óhug að öðrum stjórnmála-
mönnum. sem telja sig í hættu.
þrátt fvrir stranga vörzlu líf-
varða.
Aldo Moro hefur fimm sinn-
um verið forsætisráðherra
Italiu og almennt var talið að
hann yrði næsti forseti lands-
ins. ('n hann nýtur mikillar
virðingar heima fyrir. .
Erlendar
fréttir
REUTER
SPASSKY
0G
KARP0V
JAFNIR
Biðskákir úr 14. og mestsiðustu
umferð skákmótsins i Bugojno i
Júgóslavíu voru tefldar í gær.
Spassky og Tal gerðu jafn-
tefli. þannig að Spassky er
jafn Karpnv fvrir siðustu umferð-
ina. báðir með 9 vinninga i efsta
sæti. (Jrslit annarra biðskáka
urðu sem hér segir: Hubner vann
Ljubojevic. Bukic vann Ivkov og
Milés og Larsen gerðu jafntefli.
Staða efstu manna fvrir síðustu
umferðina er þessi: 1.-2
Karpov og Spassky með 9 vinn-
inga. 3. Timman 8'a. 4.-5. Ljubo-
jevic og Tal með átta vinninga.
Spánn:
T0LLVÖRÐUR
DREPINN
Tollvörður í tollhliði á hrað-
brautinni frá Bilbao á Spáni við
frönsku landamærin var skotinn
til bana í gær. Morðinginn skaut á
tollvörðinn með vélbyssu úr bfl.
er hann fór fram hjá hliðinu. Lög-
reglan telur að morðinginn hafi
verið félagi í aðskilnaðarhreyf-
ingu Baska, ETA, en tollvörður-
inn hafði fengið margar hótanir
frá ETA undanfarið.
Löngu eftir viðtöku gjafarinnar, þá mun yðar minnst af ánægðum eiganda.
Frábær að gerð og lögun, PARKER er sá penni, sem verður notaður og
glaðst yfir um árabil og er hugljúf minning um úrvals gjöf um leið og hann er notaður.
PARKER pennar eru lofaðir af fagmönnum fyrir hið stílhreina útlit,
þekktir heimshornanna á milli fyrir bestu skrifhæfni.
Veljið PARKER penna til gjafa (eða eignar). PARKER penni er lífstíðareign.
PARKER pennar kosta frá kr. 1.065.-
PARKER eftirsóttasti penni heims.
O