Dagblaðið - 17.03.1978, Blaðsíða 7
DAGBLAÐIÐ. FÖSTUDAGUR 17. MARZ 1978.
7
þúsund króna viröi.
Eg vil stöðu minnar vegna
undirstrika að allar færslur í
hinni dönsku sparisjóðsbók
minni hafa borizt íslenzkum
gjaldevrisyfirvöldum svo og
ljósrit af sömu skilríkjum.
Bert Hanson stórkaupmaður
Ég er bandarískur ríkis-
borgari sem kom til íslands árið
1963.
I stuttu máli sagt þá hafði ég
lagt fvrir töluvert af peningum
þann tíma sem ég starfaði á
heimaslóðum áður en ég kom
hingað til tslands.
Nokkuð af þessum peningum
kom ég með um leið og atvinnu-
rekstur minn hófst hér á landi.
Annað ge.vmdi ég áfram heima
á bankareikningum i Banda-
ríkjunum.
Síðan var það að ég frétti af
góðum vaxtakjörum Finans-
bankans í Kaupmannahöfn —
mun betri en í Bandaríkjunum
— þá flutti ég peninga mína
þangað.
Aðalsteinn Jónsson fram-
kvæmdastjóri Efnagerðarinnar
Sjafnar á Akurevri
Ég get ekki látið hafa eftir
mér annað en það sem ég skýrði
viðkomandi yfirvöldum frá á
sínum tímá.
Það er að eiginkona mín er
brezkur ríkisborgari og við-
komandi fjármunir eru arfur
hennar.
Vegna nánari tengsla við
Danmörku heldur en Skotland
og ráðlegginga um vfirfærslu
vegna veikrar stöðu brezkra
sterlingspundsins fluttum við
þessa fjármuni i danskan
banka.
Benedikt Bjarnason fram-
kvæmdastjóri Bolungavík.
Mín inneign er óveruleg upp-
hæð sem þegar hefur verið
gefin skýring á til viðkomandi
yfirvalda.
Böðvar Valgeirsson fram-
kvæmdastjóri ferðaskrifstof-
urnnar Atlantik:
Ég bjó erlendis í um það bil
44 ár og þetta er einungis
sparifé sem mvndaðist á þeim
tíma hjá mér og fjölskyldu
minni.
Andrés Pétursson fram-
kvæmdasijóri.
Synir mínir voru sjómenn í
Norðursjónum og ég keypti af
þeim gjaldeyri.
Ása Maria Kristinsdóttir
Sonur okkar þurfti læknis-
hjálpar við og þessir peningar
eru leifar síðan þá.
Egill Jónsson læknir. Revkja-
vík:
Ég starfaði í Svíþjóð í tólf ár.
1969 fór ég að leggja inn á
reikning í Finansbanken, spari-
fé sem ég var búinn að borga
skatta af í Sviþjóð. Eg taldi
þetta skattfrjálst sparifé og hef
gefið fulla skýringu á þessu.
r
Friðrik Matthíasson verzlunar-
maður, Garðabæ:
Þetta er eðlilegt. Konan mín
er dönsk — þetta eru erfðir og
svoleiðis.
Guðný Amundadóttir
verziunarmaður, Re.vkjavik:
DB tókst ekki að ná tali af
Guðný Amundadóttur þar sem
hún er erlendis í verzlunarferð
fyrir verzlun sína.
Haraldur J. Hamar ritstjóri og
útgefandi:
Ég hef ekkert um~-þetta að
segja.
Einar Sæmundsson kaup-
maður. Revkjavík.
Ég vil ekkert um þetta ségja. ^
Gunnar Olafsson forstjóri
Andra hf:
Eftir lát föður míns árið 1975
frétti ég að hann ætti spari-
sjóðsbók i þessum umtalaða
banka. Bók þessi hefur ekki
verið i okkar höndum og vegna
þessa er ógildingarmál i gangi í
Danmörku. Þar til úrslit fást í
því, get ég ekkert sagt um
málið.
Olafur Indriðason flugstjóri,
Revkjavík:
Ég hef gert grein fyrir þessu
við rétta aðila og sé ekki ástæðu
til að ræða málið frekar.
Haukur Björnsson heildsali,
Reykjavik:
Hevrðu. viltu ekki bara tala
við manninn sem hefur með
þetta að gera, skattstjórann?
— Viltu þá ekkert frekara
svar gefa?
Nei. þakka jiér fyrir.
Ingvar Kjartansson kaup-
maður, Revkjavík:
Hvaðan hafið þið þessar
upplýsingar?
— Eg get því miður ekkert
gefið upp um heimildarmenn
blaðsins, en hefurðu nokkuð
um málið að segja?
,,Nei, ekkert.“
Ingibjörg Guðjónsdóttir, Vega-
mótum II, Seltjarnarnesi:
Bíddu nú við, hvað ætlið þið
nú að fara að skrifa um hjá
Dagblaðinu?
— Við leitum eftir öllum
þeim sem eru á lista Finans-
banken og þitt nafn er eitt af
þeim.
Ég svara þessu hvorki ját-
andi né neitandi.
En á þessum innistæðum
kunna að vera fyililega eðli-
legar ástæður?
Ég svara þessari spurningu
hvorki neitandi né játandi.
Högni Björnsson iæknir,
Hveragerði:
Ekki revndist unnt að ná sím-
sambandi við Högna Björnsson.
Samkvæmt upplýsingum, sem
DB hefur aflað sér, starfaði
Högni í Danmörku um 30 ára
skeið. Hann hóf störf við
Náttúrulækningahælið í Hvera-
gerði um áramótin 1959-60 og
hætti störfum nokkrum árum
síðar. Síðan hefur hann ýmist
verið í Danmörku eða á Islandi.
Högni er kominn á áttræðis-
aldur.
Heimir Hannesson héraðs-
dómslögmaður, Revkjavík:
Eg segi ekkert.annað en að ég
furða mi'g á að þið skulið tala
við mig.
Þið megið mín vegna birta
alla þá lista sem ykkur sýnist
en ég bið ykkur að átta vkkur á
þeirri ábyrgð sem fvlgir því að
vega að æru saklausra manna.
Johan Ellerup apótekari,
Keflavík:
Ekki tókst að ná tali af Johan
Ellerup. Hann er veikur og
hefur verið það um nokkurt
skeið.
Konráð 0. Sævaldsson vísaði á
Jón Oddsson hrl. til þess að
svara spurningum DB. Ekki
náðist í lögmanninn til svara.
hvorki f.vrir Konráð né konu
hans. Aliee Sævaldsson.
Talsmaður Lýsis hf.:
A þessum reikningi var
skaðabótadeponering sem ekki
var hægt að ganga frá fyrr en
útséð vrði um afdrif greiðanda
vegna hugsanlega vfirvofandi
gjaldþrots. Hér var ekki um að
ræða neins konar geymslu á
leyndu fé.
Pétur Pétursson forstjóri,
Revkjavík:
‘ Ég er búinn að gefa fullnægj-
andi skýringar til réttra aðila.
Eg hef engu að íeyna.
Sigmundur Andrésson bakara-
meistari, Vestmannaevjum:
Mér finnst þetta allt í lagi. Ég
er búinn að reka hér-bakari í 20
ár og hingað koma skip og út-
lendingar og ég verð að segja að
mér þ.vkir það ólíkt gáfulegra
áð eiga þessa peninga á vöxtum
í erlendum banka en að verða
að skila þeim hér og láta ein-
hverja vitleysinga e.vða þessu í
tóma vitleysu. — Nei. ég skilaði
þessu, þetta var ekki það mikið!
Sigurður B. Jónsson bakari,
Garðabæ:
Ætli það séu ekki svipaðar
skýringar og hjá öðrum. Eg er
búinn að skila þessu og gera
grein fyrir minum málum.
Eigið þið svona greiðan aðgang
að skattinum?
Sigurjón Þorsteinsson bif-
reiðarstj. Re.vkjavík:
Þetta er bara mitt mál — ég
svara engum spurningúm um
þetta.
Ulfar Þórðarson læknir,
Revkjavík:
Á þessu eru ósköp eðlilegar
jkýringar. Þetta eru peningar
móður minnar sem nú er látin.
Hún hafði tekjur úti í Dan-
mörku og ég tók að mér að sjá
um þessar fjárreiður. Hvað fjöl-
skylda okkar gerir við. þetta fé
veit ég ekki ennþá en ég hef
fullkomlega hreina samvizku
og hef aldrei flut.t peninga úr
landi í þessu skvni.
Siggeir Vilhjálmsson forstjóri,
Revkjavík: Ég vil ekki úttala
mig um þetta mál.
JAKKAFÖT, rifflað flauel
SKYRTUR, einlitar, mislitar
SLAUFUR OG BINDI
DRAGTIR fínflauel/rifflað flauel
BLUSSUR, einlitar — margir litir
STAKAR BUXUR, tervlene & ull og
rifflað flauel.
LEÐURSTUTTJAKKAR
LEÐURSTÍGVÉL á dömur og herra.
TlZKUVERZLUN UNGA FÓLKSINS
Wkarnabær
-ö ,, vt.j 20 Laugaveg 66 Austurstraeti 22 Glæsihæ Simi 28155
V