Dagblaðið - 21.03.1978, Blaðsíða 10

Dagblaðið - 21.03.1978, Blaðsíða 10
10 DAGBLAÐIÐ. ÞRIÐJUDAGUR 21. MARZ 1978 EMEBUBW fijálst, úháð dagblað Útgefandi Dagbiaöifl hf. Framkvœmdastjórí: Sveinn R. EyjóHsson. Ritstjóri: Jónas Krístjónsson. Fróttastjórí: Jön Birgir Pótursson. Ritstjómarfulltrúi: Haukur Helgason. Skrífstofustjóri rítstjómar Jóhannes Reykdal. íþróttir Hallur Sfmonarson. Aflstoflarfróttastjóri: Atli Steinarsson. Handrít: Ásgrímur Pólsson. Blaflamenn: Anna Bjamason, Ásgeir Tómasson, Bragi Sigurflsson, Dóra Stofónsdóttir, Gissur Sigurfls- son, Hallur Hallsson, Helgi Pótursson, Jónas Haraldsson, ólafur Goirsson, Ólafur Jónsson, Ómar Valdimarsson, Ragnar Lár. Ljósmyndir: Ámi Páll Jóhannsson, Bjamleifur Bjamleifsson, Hörflur Vilhjálmsson, Ragnar Th. Sigurfls- son, Sveinn Þormóflsson. Skrifstofustjóri: Ólafur EyjóKsson. Gjakfkerí: Þráinn Þorie'rfsson. Dreífingarstjórí: Már E:M: Halldórs- son. Ritstjóm Siflumúla 12. Afgreiflsla Þverholti 2. Áskriftir, auglýsingar og skrrfstofur Þverholti 11. Aöal- sfmi blaflsins 27022 (10 linur). Áskrift 1700 kr. á mánufli innanlands. í lausasölu 90 kr. eintakifl. Setning og umbrot Dagblaflifl hf. Siflumúla 12. Mynda- og plötugerfl: Hilmir hf. Siflumúla 12. Prentun: Árvakur hf. Skeifunni 19. Lærdómsríkur listi Birting listans yfir 49 íslenzka umráða- menn gjaldeyris í Finansbanken í Dan- mörku er gott dæmi um, hvernig leyndar- dómsfullir hlutir verða hversdagslegir, þegar kastljósi fjölmiðla er beint að þeim. Ævintýralegar sögusagnir verða þá að víkja fyrir tiltölu lega lítið spennandi staðreyndum. Athyglisverðast við listann, sem Dagblaðið birti, og viðtölin við reikningshafana er, hversu mikið þar er af venjulegu fólki með venjulegt fé. Peningarnir hafa til dæmis orðið til við langdvalir erlendis, arfskipti og önnur fjölskyldumál. Þeir eru eðlilega fengnir, þótt ekki hafi verið farið að gjaldeyrisreglum í mörgum tilvikum við meðferð þeirra. Eins og venjulega eru yfirvöld harmþrungin út af upp- ljóstrunum af þessu tagi. Þau telja, að almenningi komi ekki við, hvað þau hafa fyrir stafni. Ef þau fengju að ráða, mundi fólk lítið vita um atburði líðandi stundar. Það mundi vera óraunsætt og næmt fyrir leyndardóms- fullum sögusögnum. Sem betur fer er þagnarmúr yfirvalda oft rofinn eins og gerðist í þessu tilviki. Slíkar upplýsingar stuðla að raunsærri hugsun fólksins í landinu. Þær tempra ímyndunaraflið, sem ella gengi lausbeizlað. í þessu felst einn helzti kostur frjálsra og óháðra fjölmiðla, sem kné- krjúpa ekki fyrir yfirvöldunum. Að sjálfsögðu eru ekki öll kurl komin til grafar, þótt þessi listi hafi verið birtur. Á hann vantar um það bil 27 nöfn umráðamanna reikninga í Finansbanken og svo auðvitað nöfn þeirra, sem áttu inni í öðrum dönskum bönkum. Þó er athyglisvert, að listinn í Dagblaðinu er nákvæm- lega hinn sami og Seðlabankinn sendi Rannsóknarlög- reglu ríkisins hinn 6. marz síðastliðinn. Seðlabankinn hefur því sjálfur dregið frá nöfnin 27, hugsanlega vegna þess að þau hafi verið send skattrannsóknarstjóra. r V-Þýzkaland: Hörð átök á vinnumarkaði — Ástand sem V-Þjóðverjar hafa ekki átt að venjast fyrr — Jafnvægið á vinnumarkaðinum liðin tíð? iönaður er ákaflega mikilvægur út- flutningsiðnaöur í V-Þýzkalandi. Efnahagsráðherra landsins, Otto Lambdsdorff, varaði við áhrifum sem verkfall málmiðnaðarmanna gæti haft á efnahag landsins og Helmut Schmidt kanslari kom fram i sjónvarpi og hvatti menn til þess að láta skyn- semina ráða og hefja vinnu á nýjan leik. Tæknivæðing gerir fjölda Deilur þessar eru raunar báðar nokkuð sérstaks eðlis. Tækniþróun hefur orðið það ör, að fjöldi starfs- manna í báðum fyrrnefndum greinum er orðinn óþarfur. Samtök prent- iðnaðarins, sem ná 500 ár aftur í tímann, eða allt til þess tíma er Johannes Gutenberg fann upp prent- tæknina. En prenttækni hans er nú orðin úrelt og leiðtogar samtakanna vilja að félagsmenn njóti þeirra starfa, sem tengd eru nýrri tölvusetningu í prentsmiðjum. t málmiðnaðinum er ástandið svipað. Þar segjast atvinnurekendur verða aö fækka starfsmönnum, eða að missa samkeppnisaðstöðu stna á er- lendum- mörkuðum ella. En megin- hvati aögerða verkamanna nú síðast var krafa um 5% launahækkun, sem verkalýðsfélagið hafði sett fram. „Hér er rætt um grundvallaratriðiT sagði formaður verkalýðsfélags málm- f " ........ Hver á að moka flórinn? verkamanna óþarfa Fram að þessu hefur verið litið á V- Þýzkaland sem eins konar vin í eyði- mörkinni — land, þar sem friður ríkti á vinnumarkaði og hagvöxtur ykist jafnt og þétt. En siðustu daga hefur dæmið snúizt nokkuð við. Verstu vinnudeilur þarlendis í langan tíma standa nú yfir, með hörðum átökum á milli launþega og vinnuveitenda, sem fram til þessa hafa frekar talizt samherjar en and- stæðingar. Reiðir atvinnurekendur beittu verkbanni sem vopni gegn svæðis- bundnum verkföllum prentara, þannig að nær öll dagblöð i V-Þýzkalandi hættu að koma út. I Baden-Wurtem- burg hægðu um 100 þúsund verka- menn í málmiðnaði svo á störfum sín- um að til vandræða horfði. Málm- V-Þjóðverjar hafa fram að þessu ekki haft mikið af verkfðilum aö segja, en nú virðist breyting að verða á. Verkföllin hafa þegar haft áhríf f bilaiðnaðinum. Þannig má leiða getum að því, að litið sé mun alvar- legri augum á mál hinna 27 manna, sem ekki eru á listanum í Dagblaðinu og hjá rannsóknarlögreglunni. En því er líka haldið fram, að þar sé um að ræða þá, sem betur mega sín. Sú tilgáta er sennilega röng. Úr öllu því fengist skorið, ef sá listi læki einnig til fjölmiðla. Því miður eru ekki miklar likur á, að yfirvöld slaki á járnaganum gegn hugsanlegum leka af því tagi. ímyndunarafl þjóðarinnar mun því áfram eiga sitt Heiðnaberg í Finansbankamálinu, þar sem sögusagnir geta gengið hring eftir hring án aðhalds staðreynda, birtra á prenti. Inn í þá hringiðu dragast tugir nafna manna, sem ímyndunaraflið telur, að hugsanlega hafi aðstöðu til að safna erlendum gjaldeyri. Það er slík fréttamennska sjöunda dagblaðsins, — slúðursins, sem yfirvöld landsins eru svo natin við að rækta. Birting nafnanna 49 og leynd nafnanna 27 er ágætt skóladæmi um muninn á opinskárri fjölmiðlun í prent- uðu máli annars vegar og þjóðsöguburði hins talaða máls hins vegar. Hún sýnir, hversu nauðsynlegt er, að dag- blöð komist óhikað að kjarna málsins. Eftir átök launþega og ríkisvalds í marsbyrjun gerðist það að atvinnurek- andi nokkur rak fyrirvaralaust úr vinnu einn af starfsmönnum sínum. Þessi starfsmaður virðist, eftir blaða- fregnum að dæma, vera úr þeim hópi, sem eiga undir högg að sækja i lifs- baráttunni — ung kona með tvö börn áframfæri. Viðbrögð verkalýðshreyfingarinnar við þessum atburði eru nokkuð gott dæmi um stöðu og réttindi meðlima hennar á vinnumarkaðinum. Einn þeirra hlýðir kalli um aðgerðir sem kosta bæði félagslegan þroska og fjárhagslega áhættu. Þegar afleiðingar þessarar þátttöku koma í ljós, skýrist einkar vel réttur fólksins og þær skyldur sem samtök launafólks hafa gagnvart meðlimum sínum. Þegar að því kemur að styðja þá sem órétti eru beittir er að sjálfsögðu farið að lögum og þeim leikreglum sem gilda í viðskiptum launþega og at- vinnurekenda. Unga konan byrjar á því að bera sig upp við forustuna og ýmsir aðilar taka máli hennar vel. Stéttarfélagið bendir henni á vinnustaði þar sem hægt er að sækja um vinnu og gengið er í að gera kröfu um að atvinnurekandinn greiði henni laun á uppsagnarfresti. Þetta er í stórum dráttum réttur hins almenna launþega og sá stuðningur sem hann má vænta. Friðhelgi atvinnurekenda Atvinnurekandinn, sem eftir fréttum að dæma, rekur fólk úr vinnu oft á tiðum fyrirvaralaust og án tilgreindra ástæðna, er ekki inni í þeirri mynd sem verkalýðshreyfingin hefur um' samskipti aðila vinnu- markaðarins. Eftir áratuga starf og baráttu verka- lýðshreyfingarinnar hafa meðlimir hennar enn í dag ekki öllu meiri réttindi og vernd á vinnustöðum en í upphafi. Árið 1978 getur verkamaður ekki hlýtt kalli heildarsamtakanna án þess að verða fyrir atvinnuofsóknum og niðurlægingu af hálfu at- vinnurekenda. Atvinnurekandinn stendur hins vegar enn á árinu 1978 með pálmann i höndunum. Hann virðist njóta algjörrar friðhelgi i kerfinu. Hann getur komið fram við starfsfólk sitt eftir eigin duttlungum án þess að eiga neitt á hættu. Atvinnurekandinn hefur öll mannréttindi og stundum meira en það. Hann gengur ennþá í sparifé al- mennings í bönkunum og í sjóðina. Hann dregur enn ómælda einka- neyslu út úr rekstrinum. Hann sleppur enn við að borga nema óverulega skatta þrátt fyrir óhófslif. Hann hleður enn upp óðaverðbólgugróða, þegar sverfur að almenningi. Tímaskekkja Þetta atvik sem átti sér stað núna i vetur er lítil spegilmynd af stærra vandamáli. Þetta er dæmi um þær ógöngur og þá stöðnun sem verkalýðshreyfingin er komin í. Þetta er dæmi um þá tíma- skekkju að hægt sé að reka árangurs- ríka kjarabaráttu sem eingöngu er háð þeim grundvelli sem kallaður hefur verið fagleg barátta. Það er alveg augljóst að árangri með slíkri baráttu verður ekki lengur náð. Um það bera síðustu ár Ijóst vitni. Ef einhver árangur á að nást verður verkalýðshreyfingin að skilja þá staðreynd að bein afskipti af stjórn- málum er eina leiðin sem möguleg er DAGBLAÐIÐ. ÞRIÐJUDAGUR 21. MARZ 1978 ,, .. Verkföll alvanaleg annars staðar — en vekja athygli f V-Þýzkalandi Deilurnar hafa verið nálægt suðu- punkti siðan i upphafi mánaðar, en upp úr sauð i síðustu viku. Meðal fyrirtækja, sem urðu að stöðva fram- leiðslu sína, voru bilaverksmiðjurnar Daimler Benzog Porche. Enda þótt útlit sé fyrir að verkfall i málmiðnaðinum hefði mun alvarlegri áhrif en verkfall opinb. starfsmanna hafði 1974, sem þó var alvarlegasta vinnudeila i sögu V-Þýzkalands, þá er ekki gert ráð fyrir því að ríkisstjórn jafnaðarmanna gripi i taumana. Hún vill ekki skipta sér af samninga- viðræðum um kaup og kjör á milli frjálsra samningsaðila. Ef þetta væri ekki að gerast í V- Þýzkalandi vekti það e.t.v. litla sem enga athygli. En V-Þýzkaland hefur getið sér gott orð fyrir örugg viðskiptatengsl og öryggi á vinnu- markaði, sem V-Þjóðverjar eru stoltir af. Á árunum 1974-1976 töpuðust að meðaltali 25 dagar á ári í vinnudeilum á hverja 1000 starfandi menn í V- Þýzkalandi. Til samanburðar má geta þess að samsvarandi tölur frá Frakklandi eru 243 á hverja 1000 menn, 245 í Japan, 353 í Bretlandi og 1754 á Ítalíu. Mönnum utan V-Þýzkalands finnst það skrítið, að verkföll skuli yfir höfuð vera vandamál í V-Þýzkalandi, þessu háþróaða iðnaðar- og velferðarríki, þar sem verðbólga er um 4% á ári og laun með því hæsta, sem þekkist i heiminum. En atvinnurekendur segja að ein- mitt þessi háu laun hafi það i för með sér að lítið sé hægt að hækka þau, ef hagvöxtur á að haldast og V-Þýzka- land að halda stöðu sinni sem ein af mestu útflutningsþjóðum veraldar. Jafnvel áður en il verkfulla iprent- og málmiðnaðinum kom, höfðu sézt merki þess að jafnvægið á vinnu- markaðnum væri að riðlast. Það verður því fróðlegt að fylgjast með framvindu mála á næstunni, hvort verulega kreppir að efnahags- veldi V-Þjóðverja vegna innbyrðis deilna, verkfalla og verkbanna. Willy Brandt fv. kanslari V-Þýzka- lands hefur áreiðanlega talað fyrir munn margra, er hann sagði að verkbönn atvinnurekenda gerðu ástandiðaðeins verra. iðnaðarins, Eugen Loderer. „Það er um að ræða ævistarf þessara manna. Kaupgreiðslur eru ekki eina ágreiningsefnið. Þetta mál verður ekki leyst með fjöldauppsögnum og engum aðgerðum öðrum.” Samningaviðræður í málmiðnaðin- um hafa verið þær mikilvægustu hvað varðar kaupákvarðanir á hverju vori. Þær eru yfirleitt fyrirmynd og for- dæmi annarra ákvarðana I kaup- gjaldsmálum, sem á eftir fara. Verkamenn innan járniðnaðarins eru 3.6 milljónir talsins. U.þ.b. helmingur þeirra starfar í fylkjunum Baden-Wurtenberg og Westfalen. Mikill meiri hluti þeirra hefur greitt því atkvæði að farið verði í verkfall ef með þarf, til þess að fylgja kröfunum eftir. „Við eigum í erfiðri baráttu,” segir Loderer, „e.t.v. þeirri erfiðustu frá lok- um seinni heimsstyrjaldarinnar. Það ber mikið á milli viðsemjendanna.” Þótt verkföll verði er óliklegt að stjórn jafnaðarmanna grípi inn i. Myndin sýnir v- þýzka þinghúsið, Reichtag. til þess að komast út úr þeim vítahring sem hún sveimar nú inni i. En þetta er ekki eins auðvelt og virðist i fljótu bragði. Orsakir fyrir þeim erfiðleikum sem þessu eru samfara er að finna i þróun stjórn- mála og stjórnmálaflokka undanfarna áratugi. Það eru tveir möguleikar á pólitískri stjórn í landinu. Það eru ríkisstjórnir sem kenndar eru við hægri eða vinstri. Það væri freistandi að skilgreina slíkar ríkisstjórnir þannig að hægri stjórn sé vond fyrir verka- lýðinn en vinstri stjórn hins vegar góð. Svo einfalt er málið ekki. Breytt valdahlutföll í Sjálfstæðisf lokki Ef tekin eru dæmi um hægri stjórnir má nefna 2 þær siðustu. Viðreisnarstjórnina og núverandi rikisstjórn. Viðreisnarstjórnin sem sat að völdum í 12 ár var allan tímann fjand- samleg verkalýðnum. Hún stjórnaði i því efnahagsástandi þegar afar erfitt var að koma þjóðinni á hausinn með þeim aðferðum sem þá voru innan ramma islensks siðgæðis. Þrátt fyrir það að Viðreisnar- stjórnin var fjandsamleg verkalýðnum frá upphafi til enda, þá stjórnaði hún landinu. Þetta var vegna þess að á þeim tima voru þau öfl nokkurs ráðandi i Sjálfstæðisflokknum sem byggðu pólitík sina ennþá að nokkru leyti á islensku atvinnulífi og fram- leiðslu. Þrátt fyrir stóriðjufram- kvæmdir og undanhald íslenskra fram- leiðsluatvinnuvega var sú stjórn ekki einhliða ríkisstjórn verslunar- og verðbólgubraskara eins og sú sem nú situr. Kjallarinn Hrafn Sæmundsson Valdahlutföll i Sjálfstæðisflokknum hafa breyst á siðustu árum þannig að flokkurinn er nú nær einhliða valda- tæki þeirra peningamanna sem vilja heldur fá sitt á þurru landi í verslun og óarðbærri fjárfestingu en að taka áhættu i rekstri sjávarútvegs og iðnaðar og annarra framleiðsluat- vinnugreina. Vegna þessarar staðreyndar er sá möguleiki ekki fyrir hendi að ný Viðreisnarstjórn taki við landinu og fari að stjórna því. Enginn grund- völlur er til [ress Reynslan af jteirri ríkisstjórn sem núsitur eröllum Ijós. Hún er ekki rikisstjórn Islands i venjulegum skilningi. Hún er eins konar afgreiðslustofnun sem situr í stjórnarráðinu. Hún hefur ekki komið nálægt stjórn landsins þau fjögur ár sem liðin eru frá valdatöku hennar. Þetta er staðreynd sem hver einasti maður viðurkennir hvaða stjórnmála- skoðanir sem hann annars hefur. Vegna þeirra breytinga á valdahlut föllum sem orðið hafa i Sjálfstæðis- flokknum og einnig Framsóknar- flokknum, hefur þessari ríkisstjórn tekist að koma þjóðinni á hausinn og gera hana nálega gjaldþrota þrátt fyrir betra ástand efnahagsmála og ytri skilyrða en voru i tíð Viðreisnar- stjórnarinnar. Þetta hefur þó ekki eingöngu átt sér stað vegna stjórnleysis rikis- stjórnarinnar, heldur á breytt verðmæta- og siðgæðismat þjóðar- innan allrar og þingmanna, sem farið hafa hamförum að moka fé í óarðbæra fjárfestingu, hér einnig hlut að máli. Þessir aðilar hafa myndað þann jarðveg sem er forsenda þess að slikt þjóðargjaldþrot geti yfirleitt átt sér stað. En ábyrgðina ber engu að síður ríkisstjórnin sjálf. Ný vinstri stjórn? Þá kemur að þeim möguleika að ný vinstri stjórn taki við völdum eftir kosningar. Þessi möguleiki er fyrir hendi þó að ekki sé hann beinlínis einfaldur. Það sem kalla mætti vinstri stjórn er sam- stjórn Alþýðubandalags, Framsóknar- flokks og Alþýðuflokks. Það eru viss rök fyrir þvi að rikis- stjórn sem hefur minni ítök i verka- lýðshreyfingunni en samstjórn þessara flokka, geti ekki stjórnað landinu á næstu árum. Engin stjórn sem ekki nær neinu samkomulagi við launþegasamtökin getur yfirleitt stjórnað landinu við núverandi aðstæður. Ótal ljón eru samt í veginum fyrir myndun slíkrar ríkisstjórnar og ekki síst ástand þeirra flokka sem að henni myndu standa. Um Alþýðuflokkinn veit enginn neitt. Þar hefur viss hreyfing átt sér stað. Þegar lýðskrumið og auglýsinga- herferðin er leyst upp veit samt enginn um markmið flokksins í stjórn- málum. Það umrót, sem verið hefur i flokknum, var fundið upp og hefur beinst að því að koma í veg fyrir að hann dæi út í kosningunum eins og margt benti til að yrði með þeirri þróun sem verið hefur undanfarin ár. Framsóknarflokkurinn hefur eins og áður, við svipuð skilyrði, breyst i glórulaust afturhald í samstarfinu við Sjálfstæðisflokkinn. Staða hans í stjórnmálunum er nú veik og hann væntir sér ekki glæsilegrar útkomu i kosningunum. 1 Framsóknarflokkn- um, eins og í Sjálfstæðisflokknum, hefur sá armur fengið aukin völd sem tengdur er þeirri efnahagsstefnu sem núverandi rikisstjórn hefur rekið. Alþýðubandalagið hefur sæmilega stöðu þrátt fyrir pólitískan sofanda- hátt í stjórnarandstöðu. Flokkurinn er lengst allra flokka frá valdakerfinu og búist er við að þess vegna bæti hann við sig einhverjum þingsætum. Þrátt fyrir það verður pólitískur styrk- ur Alþýðubandalagsins á þingi ekki nægur til að hafa afgerandi áhrif í stjórnmálum. Þessi möguleiki fyrir stjórn armyndun er þrátt fyrir allt fyrir hendi. Líkurnar ykjust þó ef verulegur þrýstingur kæmi frá kjósendum og tilfærsla atkvæða yrði afgerandi mikil. - Flórmokstur Slik stjórn yrði ef til vill kölluð vinstri stjórn. Raunverulega yrði það ekki réttnefni. Pólitisk staða hennar færi samt að verulegu leyti eftir þeim valdahlutföllum sem að henni stæðu Slík ríkisstjórn ætti samt ekki að hljóta nafnið vinstri stjórn. Slik stjórn yrði að vera vinnuhópur sem mokaði þann pólitíska flór sem nu flýtur alls staðar útúr. Ekkert slíkt gerðist þó ef farið væri eftir hefðbundnum leiðum. Til þess eru fyrrnefndir flokkar alltof sundur- lausirogósamstæðir. Þarna þyrfti verkalýðshreyfingin að koma inn i myndina. Hún yrði að stokka upp öll sín faglegu sjónarmið og ganga út i fjósið í moksturinn. Meirihluti slikrar ríkisstjórnar byggðist eðlilega fyrst og fremst á at- kvæðamagni launafólks. Verkalýðs- hreyfingin ætti í samræmi við það að setja slíkri rikisstjórn ákveðið vinnu- plan, sem hún ætti að vinna eftir. Og verkalýðshreyfingin ætti að hafa pólitískt hugrekki til að beita öllu afli sínu til þess að eftir þessu plani yrði unnið. Þessi flórmokstur yrði heldur óþrifaleg vinna. Það myndi slettast á ýmsa, jafnvei innan verkalýðs- hreyfingarinnar. Á eftir yrði fjósið hins vegar hreint og vistlegt og búpeningurinn myndi aftur fara að þrífast og gefa af sér arðbæra fram- leiðslu. Ef þetta tækist, myndi renna upp nýtt þróunartimabil í verkalýös- hreyfingunni sem væri i beinum tengslum við þann veruleika sem við lifum Hrafn Sæmundsson, prentari.

x

Dagblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Dagblaðið
https://timarit.is/publication/260

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.