Dagblaðið - 05.05.1978, Síða 1
4. ÁRG. — FÖSTUDAGUR 5. MAÍ 1978 — 93. TBL. RITSTJÓRN SÍÐUMÚLa 12. AUGLÝSINGAR OG AFGREIÐSLA ÞVERHOLTI11. — AÐALSÍMÍ 27022.
Lögreglurannsókn vegna brunans í Slippstöðinni á lokastigi:
Trassaskapur var orsökin
ólíklegt að skaðabótamál verði höfðað á starfsmenn
Nú er komiö í Ijós að orsök brunans
í skuttogaranum Breka VE i Slipp-
stöðinni á Akureyri, stafaði af
aðgæzluleysi starfsmanna við log-
skurð um borð, að því er DB hefur
eftir áreiðanlegum
morgun.
heimildum í
Lögreglurannsókn inun hafa leitt
þetta i Ijós en i morgun vildi Ásgeir
Pétur Asgeirsson, fulltrúi bæjarfógeta
á Akureyri, ekki tjá sig um rannsókn-
ina þar sem ekki væri lokið skýrslu-
gerð. Hins vegar væri rannsókn lokið
eða á lokastigi.
Er hann var spurður hvort hugsan-
lega yrðu höfðuð skaðabótamál á
hendur starfsmönnum taldi hann það
mjög ólíklegt. Lögreglurannsókn hefði
fyrst og fremst farið fram til að fá
endanlegan botn í málið fyrir viðkom-
andi hagsmunaaðila, eigendur, Slipp-
stöðina og tryggingafélög.
G.S.
Hættulegur elt-
ingaleikur við
ölvaðan ökuníðing
Hættulegur og allsvakalegur eltinga
leikur átti sér stað i fyrrinótt milli lög-
reglunnar og ölvaðs ökumanns. Var sá
sem eltur var staðinn að ölvunarakstri
tvivegis þessa sömu nótt.
Sagan hófst er maðurinn var tekinn
á mótum Borgartúns og Sundlauga-
vegar um klukkan 3. Hlaut hann þá
venjulega afgreiðslu og var ekið að
tilteknu húsi eftir blóðsýnitöku eins og
venja er.
Um kl. 5 sjá lögreglumenn til ferða
grunsamlegs ökumanns á mótum
Hafnarfjarðarvegar og Litluhlíðar. Er
áhuga átti málið gaf ökumaður i og
vildi ekki við lögreglu ræða. Leikurinn
barst kringum Öskjuhlið eftir malar-
vegum og komu fleiri lögreglubílar i
leikinn. Einn þeirra lenti út af til að
forðast árekstur við hinn drukkna, á
mikilli ferð.
Loks tókst að stöðva ökumanninn
á gamla Laufásveginum nálægt
Umferðarmiðstöðinni en þar ók hann
af afli aftan á lögreglubil. Maðurinn
var i geymslu það sem eftir lifði nætur
og er nú að sjálfsögðu ökuleyfislaus.
-ASt.
LIFEYRISSJOÐURINN
KÆRIR FJÁRDRÁTT
Stjórn Lifeyrissjóðs verzlunar-
manna hefur nú kært fjárdrátt til
Rannsóknarlögreglu ríkisins. Sam-
kvæmt bókhaldsrannsókn sem gerð
var hjá löggiltum endurskoðendum
nemur fjárdrátturinn um átta og hálfri
milljón króna.
Eins og fram hefur komið var fyrr-
um framkvæmdastjóra lífeyris-
sjóðsins vikið frá störfum um
óákveðinn tima hinn 24. febrúar sl.
Var þá bókhald sjóðsins fengið
endurskoðunarfyrirtæki til rann-
sóknap; Framhaldsrannsókn i málinu
fer nú fram hjá Rannsóknarlögreglu
rikisins. -ÓV.
Skipsstrand á Hornafinði:
Báturinn nær kom-
inn á „græn grös”
— engin hætta á ferðum og Sunna ætti að
nást útá stórstraumi
„Ég man ekki eftir því, að hafa séð
bát stranda svona innarlega,” sagði
Sigfinnur Gunnarsson, form. hafnar-
nefndar á Höfn i Hornafírði þegar vél-
báturinn Sunna SU-222, frá Reyðar-
firði, strandaði við innsiglinguna á
Höfn aðfaranótt miðvikudags sl. Vb
Sunna er 45 tonna bátur.
„Hann er hér um bil kominn upp á
græn grös,” sagði Eymundur Sigurðs-
son hafnsögumaður í viðtali við frétta-
mann DB. Hann kvað á mörkunum að
hægt væri að komast með vira frá
hafnsögubátnum að Sunnu.
Báturinn var kominn vel inn fyrir
Hornafjarðarós og var búinn að taka
stefnu á innsiglinguna til Hafnar
þegar hann tók niðrt. Var hann þá
kominn inn fyrir Faxeyri, sem svo er
nefnd. Hún er sandrif sem kemur upp
úr sjó á fjöru.
Sigfinnur taldi ekki vafa á þvi að
hægt myndi að ná Sunnu út á stór-
straumsflóði, sem nú styttist óðum i.
Þarna er mjúkur sandbotn og ekki
talin nein hætta á þvi að báturinn
skemmist þótt hann liggi þarna nokkra
daga. Skipshöfnin er um borð í bát-
num og henni erengin hætta búin.
BS
Hvað vilja þeir?
Húsvíkingaríkosningaham
bls. 22-23
Reykjavíkurmótið:
Nú hafa fjögur lið möguleika
— sjá íþróttir bls. 16 og21
Dagurinnídag:
Dagur
Evrópu
— baksíða
Liprarogelsku
legarstúlkur
— sjá raddir
lesenda bls. 2-3
VeiðurPeron
nunnaáSpáni?
Lundúnahöfn
stefnirí
gjaldþrot
Dekkið sprakk
á bifreið
Bresnevs
— sjá erlendar
fréttir bls. 8-9