Dagblaðið - 05.05.1978, Side 8

Dagblaðið - 05.05.1978, Side 8
8 DAGBLAÐIÐ. FÖSTUDAGUR 5. MAÍ 1978. Framkvæmdasljóri Staða framkvæmdastjóra við Prjónastofuna Kötlu hf., Vík í Mýrdal, er hér með auglýst laus til umsóknar. Nánari upplýsingar veitir framkvæmdastjóri, Vigfús Guðmundsson, í síma 99—7225 eða 99—7232. Umsóknir ásamt upplýsingum um aldur, menntun og fyrri störf ber að senda til Prjóna- stofunnar Kötlu hf., Vík í Mýrdal. ÚTBOÐ Rafmagnsveitur ríkisins óska eftir tilboði í rafbúnað fyrir aðveitustöðvar Vesturlínu — Hrútatungu, Glerárskóga og Mjólká. Útboðsgagna má vitja á skrifstofu Rafmagnsveitna ríkisins, Laugavegi 116, gegn greiðslu á kr. 5000.- 111 Vinnuskóli 1' Reykjavíkur Vinnuskóli Reykjavíkur tekur til starfa um mánaðamótin maí—júní nk. í skólann verða teknir unglingar fæddir 1963 og 1964 og/eða nemendur í 7. eða 8. bekk grunnskóla Reykjavíkur skóla- árið 1977—1978. Umsóknareyðublöð fást í Ráðningar- stofu Reykjavíkurborgar, Borgartúni 1, og skal umsóknum skilað þangað eigi síðaren 19. maí nk. Nemendum, sem síðar sækja um, er ekki hægt að tryggja skólavist. Ráðningarstofa Reykjavíkurborgar. Argentína: Veiður Pemn nunnaáSpáni? Maria Estella Peron fyrrum forseti Argentinu er haldin minni háttar sjúk dómi sem stafar af blóðrásarerfiðleik- um, að sögn heryfirvalda þar i landi. Frú Peron gekkst undir læknisrann- sókn á sunnudaginn var í Buenos Aires og kom þá frá herstöðinni, þar sem hún hefur verið í haldi hersins siðan henni var steypt af stóli fyrir um það bil tveim árum. Orðrómur hefur verið á kreiki i Argentinu um að forsetinn fyrrver- andi fengi að hverfa á brott til Spánar. en talsmaður hersins taldi slikt af og frá. María Estella Peron hefði verið á- kærð bæði fyrir svik, falsanir og spillingu á meðan hún var Argentínuforseti. Að sögn dagblaða í Argentínu, sem rætt hafa möguleika á því að hún fengi að fara til Spánar, ætlar hinn fyrrverandi forseti, sem er fjörutíu og sex ára að gerast þar nunna. Albrecht Berblinger hét Þjóðverji einn sem reyndi að fljúga sams konar flugtæki og sést á myndinni. Það mistókst og þar með lauk afskiptum Albrechts af fluglistinni. Þetta var reyndar árið 1811 en nýlega voru hugmyndir hans dregnar aftur fram i dagsljósið og viti menn, hxgt er að fljúga tækinu. Það var þekktur vestur-þýzkur áhugamaður um flugdrekaflug sem það gerði og sjáum við hann og flugvélina hans Aibrechts á myndinni hér að ofan. Bandankin: Stúdentaóeirdir við Ohioháskóla Til óeirða kom í gær við ríkishá- skólann í Kent í Ohio í Bandaríkjunum, er minningarathöfn var haldin um fjóra baráttumenn gegn styrjöldum, sem skotnir voru af þjóðvarðliðum. Var þess minnzt að átta ár eru liðin frá þeim atburði. Minningarathöfnin fór að mestu friðsamlega fram en í henni tóku þátt rúmlega eitt þúsund stúdent- ar, kennarar og aðrir. Atburðurinn sem minnzt var gerðist 4. maí ’70, rétt eftir að Nixon þáverandi Bandarikjaforseti hafði tilkynnt ákvörðun sína um að senda bandarískt herlið inn í Kam- bódiu og þar með að færa út Víetnam styrjöldina. Þá féllu fjórir stúdentar og níu særðust er þjóðvarðliðar skutu á mót- mælagöngu af þessu tilefni. 1 gær reyndu að sögn, um það bil þrjátiu manns að ryðjast fram hjá hindrunum lögreglunnar nærri þeim stað sem fjórmenningarnir féllu fyrir átta árum. Var hópnum þá dreift með táragasi. Ekki var vitað um nein slys á mönnum. Lögreglan handtók tvo mót- mælendur, var hvorugur þeirra nemandi við Ríkisháskólann í Kent. Þó að opinber afstaða Kristilega demókrataflokksins á Ítaliu, sé sú að enga samninga eigi að gera við ræningja Aldo Moros fyrrverandi forsætisráðherra, þá eru alls ekki allir flokksmenn þeirri stefnu sammála. Á myndinni sést formaður flokksins, Benigno Zaccagnini koma til höfuðstöðva flokksins í Róm á einn af fjölmörgum fundum sem haldnir hafa verið um leiðir til að frelsa Aldo Moro, sem um árabil hefur verið cinn helzti forustumaður kristilegra demókrata á Ítalíu.

x

Dagblaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Dagblaðið
https://timarit.is/publication/260

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.