Dagblaðið - 05.05.1978, Side 17

Dagblaðið - 05.05.1978, Side 17
Gefðu til min Ayyy.' Leikurinn verður strax harður. adidas =. best þekktar — mest seldar Knattspyrnuskór: World Champion — World Cup Winner Argentina — Laplata — Chile. Æfingarskór: Reykjavík — Universal — Brussel Stockholm — Madrid. Útlendingar Ander- lecht óstöðvandi! Frá rádstefnunni. Fulltrúar íslands efst á myndinni. Frá vinstri Sigurður Magnússon, Bragi Kristjánsson, Gísli Halldórsson, Sveinn Björnsson, Hermann Guömunds- son og Örn Eiðsson. Samræmdur undirbúningur Norður- landanna fyrir Olympíuleikana „Það var itarlega fjallað um það hvernig Norðurlöndin gætu samræmt undirbúning fyrir þátttöku á Ólympíu- leikunum 1980 — en sem kunnugt er verða sumarleikarnir i Moskvu og víðar i Sovétríkjunum en vetrarleikarnir í Lake Placid í Bandaríkjunum,” sagði Gisli Halldórsson, forseti íþróttasam- bands íslands eftir fund framkvæmda- nefnda norrænu olympiunefndanna. Sá ROCKWOOL Sparnaður á komandi árum. HITAKOSTNAÐINN Einangmn gegn hitar eldi, kulda og hljóði, auðveh í upp- setningu Algengustu stærðir ávallt fyrirliggjandi. & Lakjargötu 34, HafnarfMi sími 50975 fundur var haldinn i Reykjavík og sátu fundinn fulltrúar allra Norðurlandanna. Þar kom fram, að hugsanlega gæti átt sér stað samstarf í sambandi við Ölympiuleikana bæði íþróttalega og tæknilega, svo og á sviði ferðamála. Eftir að hafa greint frá helztu yfir- standandi viðfangsefnum Ólympiunefnda hvers lands voru tekin til umræðu ýmis sameiginleg hagsmunamál. Rætt var m.a. um starfsemi ólympísku samhjálparinnar, en starfsemi hennar fer ört vaxandi frá ári til árs. Miðast eink- um að þvi að gefa þjálfurum tækifæri til að afla sér aukinnar þekkingar og tækni undir stjórn hæfustu manna, sem hinar reyndari þjóðir hafa upp á að bjóða. Sömuleiðis miðar ölympiusamhjálpin að því að styðja einstakar þjóðir fjárhags- lega við undirbúning aö þátttöku í sjálf- um ólympíuleikunum. Fjallað var um skipun fulltrúa i TommySmith ekkií úrslitum gegn Brugge Tommy Smith, enski landsliðsmaður- inn hjá Liverpool hér áður fyrr, getur ekki tekiö þátt í úrslitaleik Liverpool og belgiska liðsins FC Brugge i Evrópu- bikarnum í næstu viku vegna meiðsla. Hann missti öxi, þegar hann var að brjóta bein, og slasaðist illa á hægra fæti. Hann er nú í gipsi upp að hné. Tomm.v Smith er 33ja ára og skoraði eitt af mörkum Liverpool i úrslitaleikn- um í Evrópubikarnum í fyrra, þegar Liverpool sigraði Borussia Mönchen- gladbach, Vestur-Þýzkalandi, í Róma- borg 3—1. Hann lék hér á Laugardals- veili nokkru síðar í úrvalsliði Bobby Charlton. Úrsiitaieikur Brugge og Liverpool verður á Wembley-leikvanginum í Lundúnum — en Alan Hansen, sem lcikiö hefur i stað Smith að undanförnu, verðuri vörn Liverpool á Wembley. Alþjóða-olympíunefndina. Margar þjóðir voru óánægðar með hvernig staöið er að tilnefningu í nefndina. Fulltrúar Svía gerðu itarlega grein fyrir aðgerðum sinum, sem miða að því að Vetrarolympíuleikarnir 1984 fari fram í Sviþjóð. Meðan á fundinum stóð þáðu fundar- menn m.a. boð forseta íslands dr. Kristjáns Eldjárns og borgarstjórans í Reykjavík Birgis tsl. Gunnarssonar. Næsti fundur Ólympíunefndanna verður i Sviþjóð á næsta ári. Fundinum hér í Reykjavik stýrði Gísli Halldórsson formaður Ólympiunefndar Íslands en ritarar voru Sig. Magnússon og Bragi Kristjánsson. Belgíska liðið Anderlecht frá Brussel hafði algjöra yfirburði gegn Austria, Vinarborg, í úrslitaleik Evrópukcppni bikarhafa í knattspyrnu í Paris á miðvikudag. Að viðstöddum 50 þúsund áhorfendum sigraði Anderlecht með 4— 0 og vann þar með bikarinn i annað sinn á þremur árum. í fyrra var liðið einnig í úrslitum en tapaði fyrir vestur-þýzka liðinu Hamburger SV. Hinn mikli styrk- leiki bclgiskra félagsliða kom vel fram í úrsli'aleiknum í París og hinir erlendu leikmenn Anderlecht báru af á vellinum. Það var hollenzki Iandsliðskappinn Robby Rensenbrink fremstur í flokki. Á 14. min. skoraði hann fyrsta mark leiksins. Fékk sendingu frá Dananum Benny Nielsen við markstöngina fjær — og renndi knettinum i markið. Ander- lecht hafði mikla yfirburði eftir markið og einkum voru þeir Rensenbrink og Nielsen erfiðir austurrísku leikmönnun- um — vel studdir af hollenzku leik- mönnunum Arne Haan og Karel Dusbaba. Á lokaminútu fyrri hálf- leiksins skoraði Anderlecht tvivegis. Fyrst Rensenbrink beint úr aukaspyrnu af 25 metra færi — en rétt á eftir renndi Bilbert van Binst sér í gegnum austurrisku vömina og skoraði auðveld- lega. Staðan í hálfleik 3—0. í siðari hálfleiknum sótti Anderlecht Denver Nuggets er komið i úrslit i körfuknattleikskeppninni i Bandarikjun- um. Sigraði Milwaukee Bucks á mið- vikudag með 116 gegn 110 — og sigraði 4—3 í innbyrðisleikjum liðanna. Þá vann Philadelphia 76-ers Washington Bullets með 110—104. Þar er staðan jöfn eftir tvo leiki, 1—1. M\ ROB RENSENBRINK ANDERLECHT S.C. Rensenbrink — skoraði tvívegis miklu meir en skoraði þó ekki nema eitt mark. Þar var van Binst að verki á 78. min. Öruggur sigur 4—0 Anderlecht er þar með fyrsta liðið, sem sigrar tvívegis í Evrópukeppni bikarhafa. Liðið hefur leikið þrjá úrslitaleiki i röð. Sigraði fyrst 1976, en tapaði í fyrra fyrir Hamburger SV. í keppninni í ár sló Anderlecht þýzka liðiðút. Austurríska liðið komst lítið áleiðis í leiknum í Paris en eitt sinn komst þó Daxbacher frir í gegn. Nicholas de Bree, markvörður Anderlecht, varði frá honum. Benny Nielsen átti snilldarleik hjá Anderlecht og var óheppinn að skora ekki. Á 63. mín. tók hann knöttinn niður með brjóstinu — sneri baki í markið og spyrnti knettinum aftur fyrir sig af 30 metra færi. Markvörður Austria, Hubert Baumgartner hafði enga möguleika að verja en knötturinn straukst yfir þverslána. Eftir leikinn sagði þjálfari Ander- lecht, hinn kunni kappi Raymond Goethals, að hann væri ánægður með frammistöðu sinna manna. Bætti því þó við, að Rensenbrink hefði slasast á fæti á 31. mín., en samt leikið stórt hlutverk Anderlecht-liðinu, „og ég hef alltaf sagt. að Rensenbrink gæti vel leikið — betur en flestir aðrir — á einum fæti”. Þjálfari austurriska liðsins, Hermann Stessel, bætti þá við, að jafnvel á einum fæti væri Rensenbrink í heimsklassa. Hann var ekki eins hrifinn af leikmönnum sín- um. „Við áttum ekki góðan leik — venjulega leikum við miklu betur". í liði Anderlecht léku þessir lejkmenn. de Bree, van Binst, Hugo Broos, Karel Dusbaba, Jean Thissen, Frartk Vercaut- eren, Lodo Coeck, Arne Haan, Benny Nielsen, Francois van der Elst og Rensenbrink. íþróttir Hörkukeppni í Bláfjöllum — þegar Ármenningar renndu sér niður brekkurnar í stórsvigi og svigi Það var mikil og skemmtileg keppni á innanfélagsmóti Ármanns i Bláfjöllum um síðustu helgi. Veður gott báða dagana en keppt var í stórsvigi á laugar- dag og svigi á sunnudag. Þorri. Helztu úrslit urðu þessi: Karlaflokkur: I3keppendur sek 1. KristinnSigurðsson 51,72 52,06=103,78 2. Helgi Geirharðsson 52,34 52,36=104,70 3. Tómas Jónsson 53,08 54,33=107,41 4. Jónas ólafsson 54,45 53,28=107.73 Kvennaflokkur: 2. keppendur 1. Þóra Úlfarsdóttir 2. Hrafnhildur Helgadóttir sek 70,90 77,75= 148,65 73,93 76.64=150,57 Stúlkur 13— 15 ára 13 keppendur 1. Ásdis Alfreðsdóttir 64,13 63,12=127,25 2. Ása HrönnSæmundsdóttir 65,13 65,20=130,33 3. Bryndis Pétursdóttir 69,04 68,52= 137.56 4. Marta Óskarsdóttir 69.90 69.33 = 139.23 Piltar 15— 16 ára 8 keppendur 1. Árni Þór Árnason 2. Einar Úlfsson 3. Trausti Sigurðsson 4. Rikharð Sigurðsson sek 58,05 56,27=114,32 57,79 56,58=114.37 58.00 58,56=116,56 59,04 57,78=116.82 Piltar 13— 14 ára 14keppendur sek 1. Hafliði B. Harðarson 60,31 60,39 = 120,70 2. ÁrniGuðlaugsson 61,49 60,50=121,99 3. Kristinn Guðmundsson 62,07 60,64 = 122,71 4. Rúnar Rúnarsson 62,36 60,83=123,19 Stúlkur 11 — 12 ára 3 keppendur sek 1. Dýrleif ArnaGuðmundsd. 73,01 73,40= 146,41 2. TinnaTraustadóttir 74,39 74,05=148.44 3. AnnaTh. Pálmad. 83,93 95,16=179,09 Drengir 11 — 12 ára II keppendur sek 1. Baldvin B. Valdimarss. 74,25 72,38=146,63 2. Haukur Þorsteinss. 73,49 75,68=149,17 3. HilmarSkúlason 74,90 76,40=151,30 Skotarvelja HM-liðið Skozki landsliðseinvaldurinn i knatt- spyrnu hefur valið 22 leikmenn í heims- meistarakeppnina. 15 þeirra leika í enskum 1. deildarliðum — sjö skozkum. Leikmennirnir eru Martin Buchan, Gordon McQueen, Lou Macari og Joe Jordon, Manch.,Utd., Willie Donachie og Asa Hartford, Manch.City, Kenny Dalglish og Graeme Souness, Liverpool, John Robertson, Archie Gemill og Kenny Burns, Nottingham Forest, Bruce Rioch og Don Masson, Derby, Öldungamótið á laugardag Öldungamótinu, sem halda átti á upp- stigningardag var frestað til laugardags | 6. maí vegna veðurs. Nafhakall kl. 13. Jim Blyth, Coventry og Willie John- stonc, WBA. Frá skozkum liðum eru Clarke, Joe Harper, og Kennedy, allir Aberdeen, Sandy Jardine, Forsyth og Derek John- stone, Rangers, og Alan Rough, Partick Thistle. Valið kom ekki á óvart — nema í sambandi við Joe Harper. Ian Callaghan, sem leikið hefur yfir 800 leiki fyrir Liverpool, mun sennilega . lcika með Preston í 2. deild næsta keppnistímabil. Hann hefur verið leystur frá samningi sínum við Liverpool og getur ráðið hvcrt hann fer án þess Liverpool krcfjist grciðslu fyrir hann. Stúlkur 10 ára og yngri 9 keppendur 1. Rúna Knútsd. 2. Kristin Stefánsdóttir 3. Harpa Þórðardóttir Drengir lOáraogyngri 11 keppendur 1. Guðmundur Pálmason 2. Sigurjón Sigurðsson 3. Þröstur Amórsson sek 44,22 44,91 53,08 sek 41,92 42,02 43,54 Karlaflokkur 1. KristinnSigurðss. 2. Guðjón Ingi Sverriss. 3. Geir Sigurðss. Amór Guðbjartsson Kvennaflokkur 1. Þóra Úlfarsd. 2. Halldóra Bjömsd. 3. Hrafnhildur Helgad. 4. Guðbjörg Ámadóttir Stúlkur 13— 14 og 15 ára 1. Ása Hrönn Sæmundsd. 2. Ásdís Alfreðsd. 3. Marta óskarsd. 4. Þórunn Egilsd. Piltar 15og 16ára 1. Ámi Þór Árnason sek 50.72 50.68 101.40 55.03 53.36 108.39 56.60 57.36 113.96 57.30 56.76 114.06 sek 65.39 61.82 127.21 71.24 61.91 133.15 73.31 69.38 142.69 71.44 72.36 143.80 sek 59.52 59.78 119.32 62.36 61.99 124.35 66.68 65.08 131.76 66.18 65.95 132.13 48.99 50.90 sek 99.89 2. Jónas Reyniss. 3. Guðmundur Bjömss. 4. Rikharð Sigurðss. Piltar 13— 14 ára 1. Ámi Guðlaugss. 2. Hafliði B. Harðarson 3. Tryggvi Þorsteinss. 4. Kristinn Guðmundss. Stúlkur 11 og 12 ára 1. Dýrleif A. Guðmundsd. 2. Bryndís H. Kristinsd. 3. Anna Th. Pálmad. Drengir 11 og 12 ára 1. Baldvin B. Valdimarss. 2. Haukur Þorsteinss 3. Hilmar Skúlason 4. Þórh. H. Reyniss. Stúlkur lOáraogyngri 1. Rúna Knútsd. 2.Svava Skúlad. 3. Halldóra Geirharðsd. 4. Harpa Þórðard. Drengir lOáraogyngri 1. Guðm; Pálmason 2. Sigurjón Sigurðss. 3. Þröstur Arnórsson 4. Einar J.óskarsson 54.65 52.63 107.28 54.61 58.82 113.43 49.71 66.65 116.36 sek 58.41 58.84 117.25 58.30 59.11 117.41 59.13 58.37 117.50 60.45 58.50 118.95 sek 69.8165.97 135.78 86.46 88.77 167.23 98.82 75.89 174.71 sek 62.90 63.69 126.59 66.04 66.43 132.47 73.09 68.96 142.05 72.29 71.23 143.52 sek 53.55 53.06 106.61 63.19 61.40 124.59 62.91 63.36 126.27 64.71 67.66 132.37 sek 52.43 51.58 104.01 51.04 54.01 105.05 52.76 53.15 105.91 63.30 64.08 127.38 Ingi Björn komst frír í gegn en Magnús varði snilldarlega. Við hlið Inga Bjarnar er Magnús Ingimundarson, sem skoraöi mark KR i leiknum. DB-mynd Bjarnleifur. NU HAFA FJÖGUR LIÐ MÖGULEIKA! — til sigurs á Reykjavíkurmótinu eftir að Valur vann KR f gær Það komst mikil spenna í Reykja- víkurmótið i knattspyrnu á ný, þegar Valur sigraði KR i gær 2—1 á Melavell- inum. KR þurfti aðeins jafntefli i leiknum til að tryggja sér meistaratitilinn — en nú hafa aiit í einu fjögur lið möguleika, KR, Valur, Fram og Víkingur. Þrátt fyrir tapið standa KR-ingar þó enn bezt að vígi með tíu stig — tveimur meira en Valur — en KR hefur lokið leikjum sínum og leikmenn liðsins verða að biða spenntir eftir úrslitum i þeim leikjum, sem eftir eru. Þaö fór ekki milli mála. að sigur Vals var verðskuldaður á Melavellinum í gær. Valsliðið virkaði og var sterkara nær allan leikinn — en KR-ingar börðust af krafti. Þeir skoruðu fyrsta mark leiksins eftir aðeins fjórar mín. Eftir hornspyrnu skallaði Magnús Ingimundarson laglega i mark. Ingi Björn Albertsson jafnaði fyrir Val um miðjan fyrri hálfleikinn, þegar Magnús Guðmundsson, markvörður KR, var of seinn að átta sig. Sigurmark Vals skoraði Atli Eðvaldsson á 77. min og Magnús sem var bezti maður KR í leiknum, var óheppinn að verja ekki. Vel var að marki Vals staðið. Magni Pétursson,. bakvörður, lék upp hægri kantinn og gaf ve' fyrir á Atla, sem skallaði knöttinn i stöng — og þaðan hrökk knötturinn i Magnús og í markið. Hörkufallegur og fastur skalli hjá Atla. Valsmenn fengu fleiri tækifæri til að skora og eitt sinn komst Ingi Björn frir í gegn en Magnús varði snilldarlega. Þrír leikir eru nú eftir á mótinu. Fram-Ármann leika á laugardag kl. 14.00 — Vikingur-Þróttur á sunnudag kl. 14.00 og siðasti leikurinn verður milli Fram og Vals á þriðjudag kl. 20.00. Staðanernúþannig: KR 6 3 Valur 5 Vikingur 5 Þróttur 5 Fram 4 Fylkir 6 Ármann - i '' t |§jg||||ppi ÍKristinn Sigurðsson sigraði i karlaflokki — bæði í stórsviei oe sviei. DB-mvnd Þorri. — þegar belgíska liðið vann stórsigur á Austria, Vínarborg, í úrslitaleik Evrópukeppni bikarhafa í París Gummersbach EM-meistari Gummersbach, Vestur-Þýzkalandi, sigraði i gær Zeleznicar Nis, Júgöslaviu, i úrslitaleiknum i Evrópukeppni bikarhafa í handknattlcik. Leikið var í Dortmund og lokatölur 15—13 fyrir þýzka liðið. Staðan i hálfleik var 6—4 fyrir Júgóslava en í siðari hálfleik skoraði Gummersbach 11 mörk gegn 7. Deckarm var markhæstur í leiknum með fimm mörk en hann og félagar hans i Gummersbach hafa unnið meistarakeppni Evrópu fjórum sinnum. Áhorfendur voru 12 þúsund. ífrétt Reuters af leiknum segir, að Júgóslavarhafi leikið einum færri — eða sex i allt — frá 12. mln. eftir að Dragoslav Pavlovic hafi verið rekinn af leikvelli fyrir brot. Eitthvað hlýtur þar málum að vera blandað. Venjan er að annar leikmaður fái að koma inn á þó svo leikmanni sé vísað af leikvelli, það sem eftir er leiktímans. Óvissa með Alan Hunter — úrslit FA-bikarsins á morgun Úrslitaleikurinn í ensku bikarkeppninni milli Arsenal og Ipswich verður háður á Wembleyieikvang- inum á morgun, laugardag. Lýsing í BBC hefst kl. 1.30 að íslenzkum tíma — eða hálftima áður en leikurinn hefst. Arsenal lék siðast i úrslitum bikarkeppninnar fyrir sex árum, 1972, en tapaði þá fyrir Leeds 1—0. Árið áður hafði Arsenal unnið Liverpool 2—1. Aðeins einn leikmaður Arsenal, sem leikur á morgun, tók þátt i þeim leikjum, fyrirUðinn Pat Rice. Hins vegar hafa tveir aðrir, Malcolm MacDonald og Pat Jennings leikið þar með Newcastle og Tottenham. Arsenal hefur fjórum sinnum sigrað — 1930, 1936, 1950 og 1971 — og tapað fjórum úrsUtaieikjum. Hins vegar er þctta i fyrsta sinn, er Ipswich leikur til úrslita. Ekki hefur enn verið tilkynnt hvernig Uðin verða skipuð á morgun. öruggt er þó að Kevin Beattie leikur með Ipswich en vafi með Alan Hunter, sem á við meiðsU i hné að stríða. Að öðru leyti eru ailir beztu menn Ipswich heilir. Sama gildir hjá Arsenal. Þar er aðeins vafi hvort Alan Sunderland leikur eða Graham Rix. Orient eða Blackpool? Nú er aðeins einni spurningu ósvarað i ensku deilda- keppninni. Hvort fellur Orient eða Blackpool niður í 3. deild? — Á miðvikudag tókst Cardiff og Charlton að tryggja stöðu sína i deildinni. Cardiff sigraði þá Notts County 2—1 á heimavelli eftir að Notts County hafði skorað fyrsta mark leiksins. í Lundún- um gerðu Orient og Charlton jafntefli 0—0. Við þessi úrsUt komust Charlton og Cardiff i 38 stig. Blackpool hefur 37 stig og hefur lokið leikjum sínum en Orient er með 36 stig. Á einn leik eftir. í Cardiff i næstu viku og verður aö sigra til að halda sæti sinu I deildinni þar sem Blackpool hefur betri markamun. í gær léku Evrópumeistarar Liverpool og Englands- meistarar Nottingham Forest á Anfield í Liverpool. Jafntefli varð. Ekkert mark skorað. Það var siðasti deildaleikur beggja liða á þessu keppnistiniabiii. For- est hlaut af þvi samtals 64 stig — þremur minna en deildamet Lecds — og Liverpool var í öðru sæti með 57 stig. Everton í þriðja sæti meö 55 stig. Liverpool hafði talsverða yfirburði i leiknum við Forest i gær en tókst ekki að nýta þá í mörk. Graeme Souness var aðalmaður Livcrpool 1 leiknum en vörn Forest stóð fyrir sinu með Larry Lloyd sem bezta mann. Hann lék áður um tíma með Liverpool. Á 30. min. tókst Lloyd að koma knettinumn i mark Liverpool en það var dæmtafvegna brots. Á miðvikudag voru þrir leikir i 3. deild. Sheff. Wed. gerði sér Utið fyrir og vann efsta liðið Wrcxham2—l.Undir stjórn Jackie Charlton hefur Sheff. Wed. gjörbreytzt til hinsbetra. Það vará botn- inum, þegar hann tók við stjórninni en endaöi um miðja deild með 46 stig. Þá vann Chesterfield Swindon 3—1 og Colchester og Rotherham gerðu jafntefli 0—0.

x

Dagblaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Dagblaðið
https://timarit.is/publication/260

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.