Dagblaðið - 05.05.1978, Blaðsíða 20
DAGBLAÐIÐ. FÖSTUDAGUR 5. MAÍ 1978.
24
Píanóleikurí Kópavogi
Tónlistarfélag Kópavogs gekkst
fyrir pianótónleikum i samkomusal
Tónlistarskólans þar I bænum á
ÍV*
sunnudaginn var. Þar var komin
kempan Rögnvaldur Sigurjónsson, en
það var orðið býsna langt siðan maður
hafði heyrt í honum á einleikstónleik-
um. Tilefnið var vigsla nýs flygils, sem
Tónlistarfélagið hefur keypt til sín, og
stóð i blöðum að það væri Steinway
flygill, en fróðir segja hann eitthvað
annað. Rögnvaldur var með efnisskrá,
sem var upplögð til að reyna tóngæði
og styrk hljóðfæris, Beethoven-sónötu
af lýriskari sortinni (Pastoral), nokkrar
píanóperlur eftir Chopin, og loks hina
risavöxnu og hádramatisku h-mollsón-
ötu Liszts, sem er einn frægastur
fingurbrjótur í samanlagðri píanó-
músíkinni. Ekki verður sagt, að hljóð-
færið hafi staðist þá raun, i þ.m. er það
ekki hljóðfæri, sem stenst þær kröfur,
sem leikur Rögnvaldar gerir. Þurrir og
hljómlitlir bassatónar og glamurslegur
dískant eyðilögðu gjörsamlega Beet-
hoven fyrir undirrituðum. Rögnvaldur
er heldur ekki sú tegund af píanóleik-
ara, sem þolir misjafnar aðstæður,
hljóðfærið þarf að vera fullkomið og
skýrt i tóninum, og gott hljóð í saln-
um. Þá bregst hann ekki. En þrátt
fyrir þetta voru margir ótrúlega
fallegir sprettir í Chopin, ekki sist í
Ballöðunni i asdúr, sem var flutt með
hárnákvæmum frásagnaranda og inn-
lifun.
Hápunkturinn var hinsvegar í loka-
verkinu, sónötunni eftir Liszt. Þar var
Rögnvaldur i essinu sinu og lét ekkert
trufla sig. Þetta verk er talsvert flókið,
og leynir lengi á sér, en þarna var Iögð
áhersla á dramatiskar útlinur, og
heildarsvipurinn látinn sitja fyrir smá-
atriðum. Útkoman var magnaður
píanóleikur, sem sannaði að Rögn-
valdur er enn i alfremstu röð píanó-
leikara á íslandi. -L.Þ.
Dautt
hús
Söngsveitin Fílharmonia hefur oft
látið betur til sín heyra en á siðustu
sinfóniutónleikum. Söngur kórsins var
furðulega dempaður og óskýr, og er
varla einleikið hvað undirritaður
tapaði oft af þræðinum í þrem stór
verkum. sem þarna voru flutt. Húsið
var að vísu troðfullt, þúsund manns í
sal og hátt í ivö hundruð á sviðinu, og
þvi eins dautt og það getur orðið. En
eitthvað má þó liklega skrifa á reikn-
ing stjómandans, sem hefur misreikn-
að aðstæður. Marteinn Hungcr Frið-
riksson, sem stjórnaði annars af festu
og öryggi, og talsverðum tilþrifum á
köflum, er greinilega vaxandi maður á
sínu sviði, og er maður feginn að vita
annan helsta kór landsins i góðum
höndum. Tónleikarnir hófust annars
með frumflutningi á nýju tónverki
eftir Sigursvein D. Kristinsson, Greni-
skóginum við Ijóð Stefáns G. Þetta er
eitt mesta tónverk sem Sigursveinn
hefur látið frá sér fara, og liggur að
baki því mikil vinna og útsjónarsemi.
Það er í mörgu áheyrilegt, en alltof
langur hljómsveitarinngangur og til-
breytingarlaust hljóðfall virkaði
dálítið þreytandi Einsöngvari með
kórnum og hljómsveitinni var Halldór
Vilhelmsson. Hann tók á þessu af mik-
LEIFUR
ÞÖRARINSSON
Tónlist
honum eru annars dálítið óklárir,
stundum einsog þeir komi úr allt
öðrum barka en þeir djúpu. Hvað
veldur skal látið ósagt, en hann má
vara sig að pína sig ekki um of.
Það voru fjórir einsöngvarar i verki
nr. 2,Te deum eftir Kodaly.
Þar voru mætt hjónin Sieglinde
Kahmann og Sigurður Björnsson, Rut
Magnússon, og Halldór aftur, en hann
söng lika í lokaverkinu, svo þetta var
enginn smádagur hjá honum. öll
sungu þau vel og smekklega, en þó
verður að segjast, að texti var furðu
óskýr, bæði hjá einsöngvurum og kór,
og þó auðvelt væri að geta sér til um
að þetta væri á latínu, heyrðist það
ekki.
Þó í efnisskrá standi að lokaverkið,
Trimumphlied eftir Brahms, sé eitt
stærsta og glæsilegasta kórverk i róm-
antíkinni, verð ég að játa vanmátt
minn við að meta það hátt. Þetta er
fyrst og fremst tækifærisverk og hefur
alltof sterkan akademískan svip til að
geta talist hrifandi. Að bera það sam-
an við „Ein deutsches Requiem"er
það er mikið þrekvirki að komast i
gegnum þetta og skila því þokkalega
fram í salinn, og að þvi leyti var flutn-
ingur þess mikill viðburður.
Við skulum vona að Söngsveitin
Fílharmonia haldi áfram, ef ekki að
vaxa, þá að dafna, og eigi eftir að
reyna við mörg stórvirki. Hvernig
væri annars að athuga eitt af ófluttum
stórverkum Jóns Leifs? Eddu óratoriin
hafa aldrei verið flutt, en þau geyma
sumt hið fegursta sem sett hefur verið
saman á þessum miðum, og hefur þó
margt verið fallega gert og gagnlegt.
Það má alls ekki dragast mikið lengur
að reyna við þau, þó þau séu erfið og
óaðgengileg á köflum, því með þeim er
gefinn tónn
hreinn.
sem er dýrmætur og
* - - - ' .
c Verzlun Verzlun Verzlun
hyris
Spira
Phyris snyrtivörurnar verða
sífellt vinsælli.
Phyris er húðsnyrting og hör-
undsfegrun með hjálp blóma
og jurtaseyða.
Phyris fyrir viðkvæma og ofnæmishúð.
Phyris fyrir allar húðgerðir.
Fæst í helztu snyrtivöruverzlunum og apótekum.
Skrifstofu
SKRIFBORO
VönduÓ sterk
skrifstofu ikrif-
borð i þrem
stærðum.
A.GUÐMUNDSSON
Húsgagnavorksmiðja,
Skemmuvegi 4 Köpavogi.iSími 73100.
ÍBÚDARHÚS ■**
DAGHEIMILI SUMARHÚS
Verksmiöiutramleidd hus ur timbri
Islenzkir
fagmenn
byggja
húsin
Þaö
tryggir
þéttleika
tog gϚi,
i miöaö viö
iíslenzka
• veöráttu
i---
H
simar 26550 - 38298
Súfi og svefnbekkur í senn.
íslenzkt hugverk og hönnun.
JBb
Á.GUÐMUNDSSON
Húsgagnaverksmiflja
Skemmuvegi 4. Simi 73100.
Allt úrsmiðajárni
HANDRIÐ, HLIÐ,
LEIKTÆKI, ARNAR,
SKILRÚM, STIGAR.
Listsmiðjan HF.
Smiðjuvegi 56. Simi 71331.
Nú er limi sportbáta. Hjá okkur
fáið þið sportbáta úr trefjaplasti,
þrettán ogsextán feta.
Gerum einnig við alla liluti úr
trefjaplasti.
SE-plast hf.
Simi 31175 og 35556,
Súðarvogi 42.
SJmi SKIIHÚM
Islevltt Hngiit tgHninri
STUÐLA-SKILRÚM er léttur veggur, sem samanstendur af
stuðlum, hillum og skápum, allt eftir þörfum á hverjum stað.
SVERRIR HALLGRÍMSSON
Smiöastofa h/t .Trönuhrauni 5. Simi 51745.
öll viðgerðarvinna
Komum f Ijótt
Ljöstákn*1/
RAFLAGNAÞJÓNUSTA
Torfufelli 26. Sími 74196.
Neytenda*
þjönusta
Komið í veg fyrir
óþarfa rafmagnseyðslu
með LEKAROFANUM
Kvöldsímar:
Gestur 76888, Björn 74196, Reynir 40358.
DRATTARBEIZLI — KERRUR
Vorum afl taka upp 10" tommu hjólastell
fyrir Combi Camp og fleiri tjaldvagna.
Höfum á lager allar staarflir af hjólastallum
og alla hluti i karrur, sömulaiflis allar garflir
af kamim og vögnum.
ÞÓRARINN KRISTINSS0N
Klapparatíg 8. Simi 28616 (Haima 72087)
Ferguson litsjónvarps-
tækin. Amerískir inn-
línumyndlampar. Amer-
ískir transístorar og
díóður.
ORRI HJALTASON
Hagamel 8, simi 16139.
MOTOROLA
Alternatorar I blla og báta, 6/12/24/32 volta.
Platinulausar transistorkveikjur i flesta bila.
Haukur & Ólafur hf.
Ármúla 32. Slmi 37700.
ALTERNATORAR
6/12/24 volt í flesta bila og báta.
VERÐ FRÁ 13.500.
Amerísk úrvalsvara. i — Póstsendum.
Varahluta- og viðgerðaþjónusta.
Rafmagnsvörur í bila og báta.
BÍLARAFHF.