Dagblaðið - 05.05.1978, Side 32

Dagblaðið - 05.05.1978, Side 32
r Eftir áratuga þjónustu: Ölafur Kctilsson, bifreidarstjóri í hálfa öld, skömmu eftir að hann missti sérleyfid. Atli Steinarsson frá Dagblaðinu reynir að fá hinn aldraða bílstjóra til að tjá sig um málið en hann benti á ráðuneytið. DB-myndJBP- Olafur Ketilsson missir sérleyfiö — tvær hreppsnefndir mótmæla Hinn 1. maí tóku Sérleyfisbilar Selfoss við sérleyfi á fólksflutningum milli Reykjavikur og Laugarvatns. Rann þá út sérleyfi til þessara flut- ninga sem Ólafur Ketilsson á Laugar- vatni hefur haft um áratugaskeið en á sérleyfistima sínum hefur Ólafur flutt tugþúsundir farþega á leiðinni og er landskunnurfyrir. Menn eru ekki á eitt sáttir um þessi skipti og hefur þeim m.a. verið mót- mælt til samgönguráðuneytisins sem æðsta aðila varðandi ákvarðanatöku um þessi mál. Ólafur Steinar Valdimarsson skrif- stofustjóri í ráðuneytinu sagði i viðtali við DB að ákvörðunin um skiptin milli áðurnefndra aðila um sérleyfið til Laugarvatns hefðu verið tekin fyrir ári. Þá hefði enginn hreyft mótmæl- um. Hins vegar hefðu nú borizt mót- mæli frá tveimur hreppsnefndum þar eystra og einnig frá forstöðumanni Skálholtsskóla. Ólafur Steinar sagði að sérleyfi væru veitt til fimm ára í senn. Um nokkurt árabil hefði Ólafi Ketilssyni hins vegar verið veitt leyfið til eins árs í senn. 1 fyrra er veiting fór fram til nýs 5 ára timabils lagði skipulags- nefnd sérleyfa til að annar áðili fengi sérleyfið til Laugarvatns. Millileið var hins vegar farin og Ólafi veitt leyfið til 1. maí 1978 en frá sama tíma tækju Sérleyfisbilar Selfoss við sérleyfinu á Laugarvatnsleið. Ólafur Steinar kvað mál Ölafs Ketilssonar enn til athugunar hjá ráðuneytinu en vildi ekki skýra frá i hverju sú athugun væri fólgin. Hann kvað Ólaf hafa fengið rúmlega árs frest til að aðlaga sig breyttum aðstæðum. Ekki yrði um að ræða breytingu á þvi að Sérleyfisbílar Selfoss tækju nú við sérleyfinu á Laugarvatnsleið. Þórir Þorgeirsson hreppstjóri og oddviti Laugardalshrepps sagði að hreppsnefndin hefði mótmælt breytingu á sérleyfisveitingunni fyrst og fremst af því hvemig að málum væri staðið. Ef sérleyfisnefnd væri að gera breytingar á rótgrónu sérleyfi væri eðlilegt að leitað yrði álits hreppsnefnda á því hvernig sérleyfis- málin stæðu og hvort ástæða væri til breytinga með þeim hætti sem beitt hefði verið nú. ískjóli nætun ROLLUR í G GRÓDRARS Ekki er ósennilegt að jafna megi því saman er kindur komast í gróðrarstöðog sælkerar fara inn í konfektgarð. 1 nótt > voru kindur komnar inn í gróðrarstöð Alaska i Breiðholti og það kom i hlut lögreglumanna að stugga þeim burt úr stöðinni. Eins og hverjir aðrir afbrota- menn voru rolluskjáturnar settar inn og eigandi þeirra var væntanlegur i morgun að vitja þeirra og koma þeim i skilning um að í Alaska megi þær ekki vera. -ASt DB-mynd Sveinn Þorm. Þinglausnirvæntan- lega á morgun — umræður um Kröf luskýrsluna í dag Stefnt er að þvi að þinglausnir fari fram á morgun, laugardag. Vera kann þó að það takist ekki að ljúka þing- störfum fyrir þann tima, en eins og venjulega hleðst upp mikið af óaf- greiddum málum i þinglok. Eins og kunnugt er er þingið sem nú situr hið siðasta fyrir kosningar og þvi enn meiri pressa en endranær. 1 dag verður væntanlega fjallað um Kröfiuskýrsluna frægu i sameinuðu Alþingi. A miðvikudag spurði Sig- hvatur Björgvinsson forsætisráðherra að því hvort orkuráðherra Gunnar Thoroddsen kæmi heim til þess að taka þátt í umræðunum, en hann hefur verið erlendis og gerði ráð fyrir því að vera þar fram yfir þinglokin. Forsætisráðherra greindi frá því að iðnaðarráðherra kæmi heim og tæki þátt í umræðunum og mun hann hafa komið til landsins i gær. -JH. Tveggja ára barn illa leikið í vesturborginni Tveggja ára gamalt barn fékk heila- ólum. Strákarnir gerðu aðför að hristing og er blátt og bólgið í framan telpunni og er hún ætlaði að komast eftir aðför er tveir piltar, 12 og 13 ára, áfram settu þeir fót fyrir kerruna, svo gerðu að telpu.er var með barnið i hún steyptist og barnið skall i kerru á Bræðraborgarstig á götuna. Síðar réðust strákarnir, að miðvikudagskvöldið. sögn telpunnar, á vinkonu hennar. Telpan var að koma úr apóteki og Rannsóknarlögreglan hefur mál ók tveggja ára gamalli systur sinni i þetta nú til meðferðarog verður unn- kerru og var barnið spennt niður með ið að þvi i dag. -ASt. frfálst, úháð dagblað FÖSTUDAGUR 5. MAÍ 1978. Umferðar- slysá Selfossi Tíu ára gamall drengur, sem var á reiðhjóli sínu i gærkvöldi á Eyrarvegi á Selfossi, varð fyrir bifreið og liggur nú i sjúkrahúsi. Slysið varð rétt neðan við Selfossbió. Drengurinn fótbrotnaði. fékk heilahristing og skrámaðist nokkuð. _____________ ASt. Um helgina Þarftu mold í garðinn? Enda þótt kalt hafi blásið i morgun, á veðrið þó áreiðanlega eftir að verða skikkanlegra. Og þessa dagana eru margir að vinna í görðum sínum og vantar mold. Lionsklúbburinn Muninn bað blaðið að koma þvi á framfæri við fólk á Reykjavíkursvæðinu að klúbburinn mundi eins og siðustu ár gangast fyrir moldarsölu og heim- fiutningi fyrir 8000 krónur á bílinn. Þeir félagar verða til viðtals inni á Kleppsvegi um helgina frá kl. 8 að morgni til kl. 8 að kvöldi, skammt frá bensínstöðinni. Hægt er að panta í símum 40465,53421 og 42058. JBP Evrópudagurinn í dag: „Evrópa vardar okkur „Óðurinn til gleðinnar" úr niundu sinfóniu Beethovens heyrist víðsvegar um Evrópu í dag — á Evrópudaginn, en sá óður er stef Evrópu. Byggðir, borgir og bæir um gjörvalla Evrópu minnast Evrópudagsins í dag. Minnzt er stofnunar Evrópuráðsins og alls þess samstarfs, sem þjóðir Evrópu hafa með sér. Það er nefnilega ekki aðeins „söngvakeppni” Eurovision, heldur á sviði mannréttinda, félagsmála, ferða- og umhverfismála, æskulýðs- og iþróttamála, viðskipta, verzlunar, skóla- mála og hvers konar mennta- og heil- brigðismála. Evrópudagurinn er haldinn hátiðlegur í aðildarríkjum Evrópuráðsins m.a. með heimsóknum milli vinabæja, íþrótta- kappleikjum milli borga og fleiru. Kjörorð dagsins er: „Evrópa varðar okkuröll.” ÓV. i i i i i i i i i i i i i i i í i i i i i i i i i i 4

x

Dagblaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Dagblaðið
https://timarit.is/publication/260

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.