Dagblaðið - 08.05.1978, Blaðsíða 6
6
DAGBLAÐIÐ. MÁNUDAGUR 8. MAÍ 1978.
Troðfullt út úr húsi hjá borgarstjóra
á Breiðholtsfundi:
Framkvæmdir
hafa aukizt en
verðbólgan veldur
erfiðleikum
Borgarstjóri þurfti ekki að kvarta yfir
lélegri fundarsókn Breiðholtsbúa á fundi
sínum í gærdag. Fullt var út úr dyrum i
salnum að Seljabraut 54 og margir létu
sig hafa það að standa allan tímann til
að hlýða á Birgi Ísleif. Alls voru taldir
þarna310gestir.
4 klukkutímalangri ræðu rakti borgar-
stjóri þróun siðustu ára í málefnum
þeim sem borgin fæst við og hvað á
stéfnuskrá væri næsta kjörtimabil. Ljóst
mátti vera af ræðunni að framkvæmdir
hafa aukizt jafnt og þétt en þó ekki alltaf
nóg að sumra mati og spillir þá verðbólg-
an helzt fyrir.
19% allra útgjalda borgarinnar fara í
dagvistarmál barna. Byggð hafa verið ný
dagheimili og leikskólar þrátt fyrir að
börnum á forskólaaldri hafi fækkað í
Reykjavik. Rými verður því sífellt
meira. En mikið vantar enn á að þörf-
inni sé fullnægt, meira að segja fá ein-
stæðir foreldrar og aðrir forgangshópar
ekki alltaf næg pláss á dagheimilum fyrir
börn sín. Borgarstjóri gat þess að hlut-
deild foreldra i kostnaði við rekstur dag-
vistunarstofnana hefði farið minnkandi
með árunum og þætti sér það ekki æski-
leg þróun., sérlega hvað varðar leik-
skóla, foreldrar mættu þar bera meira,
en á þeð féllust verðlagsyfirvöld ekki.
Aldraðir eru hlutfallslega fleiri í
Reykjavík en annars staðar og því fer
talsverður hluti útgjalda í að þjóna þeim.
Núna á árinu verða teknar í notkun all-
margar ibúðir fyrir aldraða þannig að
þær verða alls orðnar 331 um árslok.
Næst á dagskrá sagöi hann að byggja
hjúkrunarheimili fyrir aldraða.
Skólabyggingar stækka sífellt þótt
börnum fækki en útþensla bæjarins kall-
ar sifellt á nýjar skólabyggingar. Þessari
þróun vill borgarstjóri snúa við með því
meðal annars að gera mönnum betur
kleift að kaupa sér íbúðir I gömlum
hverfum. Jafnframt eru þóskipulögö ný
hverfi og á þessu ári á að hefja fram-
kvæmdir i Gufunesi ogá Keldnaholti.
Græna byltingin, sem boðuð var fyrir
síðustu kosningar, var einnig rædd.
Sagði borgarstjóri hana hafa staðizt í
öllum meginatriðum þó sumu hefði
verið frestað vegna fjárskorts en aftur
annað verið gert i staðinn. Það sem helzt
vantar á núna eru gangstígar milli
hverfa.
Eftir ræðuna var orðið gefið laust og
fundarmenn báru upp spurningar. Var
þá auðvitað aðallega spurt um hin ýmsu
mál í Breiðholtshverfinu sem slíku en
það hverfi er ennþá ófullgert. Hét
borgarstjóri því að málum þar yrði
komið í lag innan skamms.
- DS
Svipmyndir
á svipstundu
Svipmyndir í hvert skírteini
Svipmyndir sf.
Hverfisgötu 18 • Gegnt Þjódleikhúsinu
BREIÐHOLT
KÓPAVOGUR
Látiö kunnáttumennina smyrja bílinn á smur-
stöðinni ykkar i—-——
SMURSTÖÐ ESSO
Stórahjalla 2, Kópavogi
Snjólfur Fanndal ■-
SÍMI
43430
Rakarastofa
Klapparstíg
KLAPPARSTÍG 29
SÍMI 12725
HUNDGÁ í HÖLLINNI
— Fjöldi sótti dýrasýningu í Laugardalshöllinni ígær
Fyrir utan Laugardalshöllina var
Höskuldur Skagfjörð leikari á gangi
með ferfætling sinn, sem hann kvað
xttaðan vestan af fjörðum og vera tófa i
fjórða xttlið. Það hefur áður verið smellt
mynd af ómerkari kynblendingi. DB-
myndir: RagnarTh.
Sýningardýrin I Laugardalshöllinni voru sum hver litt komin til ára sinna. Þessi litli
kettlingur hefur enn litið séð af heiminum, en reynir þó að þefa af honum sem bezt
hann getur.
Slíkur var fjöldinn, sem sótti dýrasýn-
inguna í Laugardalshöll i gær, að endur-
taka varð sérstaka hundasýningu henni
viðkomandi. Þeir, sem komu í góða
veðrinu i Höllina, fengu að sjá sitt af
hverju fyrir aurana sína. Mest áberandi
voru þó hundar af öllum stærðum og
gerðum, sem spásseruðu um sýningar-
svæðið i fylgd eigenda sinna.
Guðrún Á. Símonar, söngkonan góð-
kunna, hafði sérstakan bás á dýrasýn-
ingunni. Hún kom sér fyrir i básnum
með merki í barminum, sem á var letrað:
„Ég elska ketti". Guðrún sýndi þarna
nokkra hreinræktaða siamsketti og aðra
blandaða.
Auk katta og hunda gaf að lita kanín-
ur, naggrisi, hvitar rottur, tilraunamýs
af ranpsóknarstofunni að Keldum og
fleira. Mestu athyglina vakti þó hunda-
sýningin, sem var bæði fróðleg og fjöl-
breytt. Kynnir á henni var Gunnar
Eyjólfsson leikari.
Ágóði af dýrasýningunni rennur til
styrktar Dýraspítala Watsons og bygg-
ingar sjúkraskýlis fyrir hesta við hlið
hans.
- ÁT
Sumir hundarnir gátu gert fleira en það eitt að ganga um og sýna sig. Það þurfti ekki miklar fortölur til að fá þennan „íslend-
ing” til að leika listir sfnar.
Sparisjóður Reykjavíkur og nágrennis— „banki heimilisins”
>1 fkoman aldrei betri
Afkoma Sparisjóðs Reykjavfkur og
nágrennis á siðasta ári var með eindæm-
um góð segir i fréttatilkynningu frá
sparisjóðnum. Sjóðurinn á einkum við-
skipti við almenning og lánar nær ein-
göngu gegn veðum í fasteignum. Oft
hefur Sparisjóðurinn verið kallaður
„banki heimilisins" og ber það nafn
e.t.v.meðrentu.
fnnistæður jukust á siðasta ári meira
en nokkru sinni, um 48.2%, sem er
5.2% meiriaukningenalmenntgerðist í
bankakerfinu. Jukust heildarinnistæð-
urnar úr 1426 milljónum í 2113 milljón-
ir, sem er helmingi meiri aukning en á
næsta ári á undan.
Heildarútlánin jukust um 37% á
árinu 1977 og voru i árslok 1461 milljón
króna. Ný lán á árinu voru um þúsund.
Einkum hafa verið veitt lán út á veð i
íbúðum i Reykjavik, á Seltjarnarnesi og i
Kópavogi. Nú hefur verið ákveðið að
stækka og útvíkka svæðið þannig að
Garðabær og Mosfellshreppur verða
einnig með i dæminu. Þeir sem reglu-
bundin viðskipti hafa við sparisjóðinn
sitja að öllu jöfnu fyrir um lán, sem
m ,
nema nú 2000 krónum á rúmmetra í
hinni veðsettu eign og eru lánin til allt
að 5 ára.
hafa vió sparisjóðinn sitja að öllu jöfnu
fyrir um lán, sem nema nú 2000 krónum
á rúmmetra í ninni veðsetiu eign og eru
lánin tiialltað5ára.
Innistæða sparisjóðsins í Seðlabank-
anum í árslok var mjög góð. Innistæðan
á viðskiptareikningi var 207.7 milljón-
ir. Lenti sparisjóðurinn aldrei á árinu í
yfirdrætti í Seðlabanka fremur en áður.
Bundið fé i Seðlabanka jókst i 441.6
milljónir, þannig að heildarinneignin
reyndist vera 649.4 milljónir i árslok.
Rekstrarhagnaður Sparisjóðs Reykja-
víkur og nágrennis varð 37.9 milljónir
króna eða meiri en nokkru sinni fyrr.
í varasjóði á Sparisjóðurinn 106.2
miljljónir og er talið að hrein eign Spari-
sjóðsins sé nú a.m.k. 375 milljónir
króna.
1 stjórn voru kjörnir til eins árs þeir
Jón G. Tómasson hrl., Sigursteinn
Árnason húsasmiður og Hjalti Geii
Kristjánsson forstjóri. Borgarstjórn
Reykjavíkur kýs tvo menn í stjórn og
eru þeir Ágúst Bjamason skrifstofustjóri
og Sigurjón Pétursson borgarfulltrúi.
Sparisjóðsstjóri er Baldvin Tryggvason.
- JBP