Dagblaðið - 08.05.1978, Blaðsíða 12

Dagblaðið - 08.05.1978, Blaðsíða 12
12 DAGBLAÐIÐ. MÁNUDAGUR 8. MAÍ 1978. VIIJA ÞEIR? Guðmundur H. Ingólfsson: „Tel mig hafa verk að vinna.” Guðmundur H. Ingólfsson bæjar- gjaldkeri skipar fyrsta sæti lista Sjálf- stæðisflokksins við bæjarstjórnar- kosningarnar á Isafirði. Guðmundur er forseti bæjarstjórnar og formaður stjórnar Orkubús Vestfjarða. Hann hefur verið í hreppsnefnd Eyrarhrepps Isafjörður Isafjardarkaupstaöur á Eyrinni. Húsnæöisskortur stendur eölilegri framþróun og fólksfjölgun fyrir þrifum, þrátt fyrir að talsvert hafi verið byggt á undanförnum árum. DB-myndir: Ómar Valdimarsson. Fyrr á árum stóðu pólitískir svipti- vindar á ísafirði. Þar muna eldri borgarar eftir Hannibal Valdimarssyni í böndum og þar var helzta vigi hans, þegar Samtök frjálslyndra og vinstri manna unnu sinn mikla kosningasigur, í alþingiskosningunum fyrir átta árum. Það kann því að koma nokkuð á óvart ókunnugum, að í að minnsta kosti hálfan annan áratug hafa Sjálf- stæðismenn farið með völdin i málefnum bæjarins og haft fjóra bæjarfulltrúa af níu. Fæstir þeirra, sem fréttamaður DB ræddi við þar vestra i síðustu viku, telja líkur á að hlutföllin breytist verulega i komandi bæjarstjórnarkosningum. Er þó ekki útséð um hvað atburðir á siðustu stundu geta haft að segja í því sambandi. Isafjörður er höfuðstaður fjórðungs- ins. Þar er menntaskóli, tónlistarskóli, stórt og mikið fjórðungssjúkrahús og heilsugæzlustöð í byggingu. Þar er skipasmíðastöð — sem þó er þvi miður harla lítilvirk sem stendur; þar er t.d. ekki verið að byggja eitt einasta skip og þar er ekki lengur hægt að taka upp togara — smærri bátar hafa einnig nýverið misst aðstöðu sína. Þessa þjónustu þurfa Vestfirðingar því að 5 listar íkjöri á ísafirði: „HÖFUÐVÍGI” ALÞÝÐ- UNNAR Á VESTFJÖRÐ- UM UNDIR STJÓRN SJÁLFSTÆÐISMANNA sækja til Akureyrar og jafnvel Reykjavikur, á meðan dráttarbrautin á tsafirði er biluð. Atvinnulif á tsafirði er því fremur fábreytt, eins og viðast hvar úti um land, þar sem afkoman byggist á útgerð. Það er þvi ekki að undra, að sveitarstjórnarmenn — núverandi og væntanlegir — leggi í málflutningi sínum mikla áherzlu á aukna fjöl- breytni atvinnulífsins og uppbyggingu þess. „Einhverskonar iðnað,” segja þeir. Fréttamaöur DB minnist þess þó ekki — hvorki frá ísafirði né öðrum stöðum — að menn hafi ákveðnar hugmyndir um hvers konar iðnaður þaðætti að vera. Það er fyrst og síðast vekur athygli aðkomumannsins á ísafirði er slæm umgengni um bæinn. Þeir frambjóð- endur, sem fréttamaður ræddi við — svo og ýmsir aðrir borgarar — tóku mjög undir þetta og töldu að mjög hefði snúizt til verri vegar á undan- förnum árum. Ef til vill kemur nú betri tíð með blóm í haga, því í fyrra- sumar gengu ýmsir þjónustuklúbbar á undan með góðu fordæmi og sópuðu götur. Það sem verst kemur sér þó fyrir ferðamenn á ísafírði er skortur á hótel- og veitingaþjónustu. Fyrir utan Hjálp- ræðisherinn er þar aðeins eitt hótel, sem ekki er hægt að tala um á hlut- lausan hátt án þess að eiga yfir höfði sér málsókn fyrir meiðyrði og atvinnu- róg. Fimm framboðslistar hafa komið fram fyrir bæjarstjórnarkosningarnar í lok þessa mánaðar. Fréttamaður Dag- blaðsins ræddi við efstu menn á listunum og fara þau viðtöl hér á éftir. Lofa ekki öðru en fullum drengskap og heiðarleika — segir efsti maðurá lista Sjálfstæðisflokksins og siðan bæjarstjórn lsafjarðar síðan 1962. Við spurðum Guðmund hvers vegna hann færi í framboð. „Þessi mál eru áhugaverð, þau varða daglegt líf manns, málefnin eru margvísleg og oft skemmti- leg, og á meðan maður hefur áhuga á aðstæðum sínum og umhverfi finnst mér að maður eigi að taka þátt í þessum málum. Hins vegar lofa ég því að hætta um leið og áhuginn minnkar,” svaraði Guðmundur. „Sveitarstjórnarmálin eru persónu- legri en landsmálapólitíkin. Sveitar- stjórnarmenn eru í náinni snertingu við íbúana og persónulega velferð hvers og eins,” sagði Guðmundur ennfremur. „Sambandið á smærri stöðum er traustara en þar sem fjölmennið er meira. N ú, ég fer einnig í framboð vegna þess að ég vil hlut míns bæjarfélags sem mestan og tel mig hafa verk að vinna hér i þessu sambandi.” Helztu verkefni væntanlegrar bæjar- stjórnar sagði Guðmundur hafa verið ráðin á þvi kjörtímabili sem er að Ijúka. „Við höfum gert miklar fjárhagslegar skudbindingar fram í framtíðina,” sagði hann. „Við erum að byggja sjúkrahús og heilsugæzlustöð fyrir allan fjórðunginn. Bygging elliheimiiis er á byrjunarstigi, gerðir hafa verið samningar um gatna- gerð og hafnarframkvæmdir hefjast hér fljótlega. Framkvæmdagetan er þannig nýtt til hins ýtrasta og svo bætast stöðugt við síaukin rekstrarverkefni.” Guðmundur sagðist engu lofa kjósendum sínum „öðru en þvi að starfa af fullum drengskap og heiðarleika. Ég er reiðubúinn að fórna tíma mínum og vinnu. Bæjarmálastarfið er fyrst og fremst vinna, og ef hún er innt af hendi þá náum við árangri sem erfiði.” ÓV. Þeirgera ekkertnema að fá samþykki flokksvélarinnar — rættvið efsta mannáJ-lista óháðra borgara „Við stefnum hiklaust að því að fá tvo menn kjörna og stuðningsmenn okkar eru bjartsýnir í þvi tilliti, þótt ég vilji engu spá sjálfur,” sagði Sturla Halldórs- son, efsti maður á J-lista óháðra kjósenda á ísafirði, þegar fréttamaður DB hitti hann að máli í vigtarskúrnum við ísafjarðarhöfn í siðustu viku. Sturla, sem er yfirhafnarvörður, sagðist hafa farið í framboð fyrir áeggjan fjölda fólks i bænum. „Þótt ég hafi verið áhangandi Samtakanna þá vil ég fyrir alla muni að bæjarmálapólitíkin sé óháð. Hitt hefur gefizt illa, enda þora pólitisku fulltrúarnir ekki að taka neinar ákvarðanir fyrr en samþykki hefur fengizt hjá flokksvélinni fyrir sunnan,” sagði Sturla. „Hjá okkur verður þessu öðru vísi farið. Við munum starfa með kjósend- um okkar og stuðningsmönnum lengur en fram yfir kosningar. Allir sem skipa framboðslistann hafa undirritað sam- komulag þess efnis, að láta kjósendur um að móta stefnuna, okkar sé aðeins að framkvæma hana. Þetta hyggjumst við gera með því að halda fund með öllum á listanum fyrir hvern bæjarstjómarfund og síðan opna fundi fyrir alla stuðnings- menn einu sinni i mánuði. Þar verður stefnan mótuð og ég lofa ekki öðru en því að fara að vilja kjósenda.” ÓV. Stórverkefni á sviði fegrunar bæjarins HÚSNÆÐISSKORTUR OG GEGNDARLAUS HITUNAR- KOSTNAÐUR — segir efsti maðurá lista Framsóknarflokksins Guðmundur Sveinsson netagerðar- meistari skipar fyrsta sætið á lista Framsóknarflokksins við bæjarstjórnar- kosningarnar á ísafirði. Guðmundur hefur verið í Framsóknarflokknum síðan hann var drengur, eins og hann sagði sjálfur í samtali við fréttamann DB. „Ég hef alla tið haft áhuga á félags- og samvinnumálum og þess vegna er ég í framboði,” sagði hann á skrifstofu sinni. „Ég tók fyrsta sætið þegar ágætir menn hér hurfu á braut — frammámenn, eins og Matthias Bjarnason var vanur að orða það. Það var áður svo. að embættismenn og kennarar voru leið- andi í félagsmálum bæði hér og annars staðar, en nú er það svo að þeir vilja margir hverjir ekki koma nálægt þessu.” Guðmundur sagði að þungamiðja bæjarmálanna væri að halda uppi góðri og öruggri atvinnu. „Hér eru sterk og þörf fyrirtæki, eins og tvö frystihús og fjórar rækjuvinnslustöðvar, enda byggist atvinnulif ísafjarðar fyrst og fremst uppásjávarútvegi. Þaðsem helzt hrjáir okkur er hins vegar mjög til- finnanlegur húsnæðisskortur og gegndarlaus hitunarkostnaður. Ég var að skoða tölur um þetta nýlega og þar sést, að Reykvikingar borga fyrir sinn hita ekki nema um 26% af því sem við borgum. Það verður mikið verkefni væntanlegrar bæjarstjórnar að lækka þennan mikla kostnað.” Guðmundur hefur verið fulltrúi Framsóknarflokksins'í bæjarstjórninni undangengið kjörtimabii. „Ég lofa kjós- Guðmundur Sveinsson: „Vil ekki láta reka mig á stampinn með svikin loforð.” endunum engu,” svaraði hann þegar út- sendari DB leitaði eftir kosningalof- orðum hans. „Ég vil vinna að þessum málum en ekki láta reka mig á stampinn með loforð sem ég hef svikið. Þess vegna erbezt að lofaengu.” ÓV. Hallur Páll Jónsson: „Lofa engu — stefnuskráin talar.” HLUTIAFALMENNRI PÓLITÍSKRIBARÁTTU — segirannar maðurá lista Alþýðubandalagsins Hallur Páll Jónsson var við vinnu sína í frystihúsi íshússfélagsins á ísafirði þegar DB hitti hann að máli. Hallur hefur verið búsettur á ísafirði i þrjú ár og aðaliega fengizt við kennslu í Menntaskólanum og Gagnfræðaskól- arvum á ísafirði, auk þess sem hann kenndi um tima við kvöldskólann. „Þetta framboð mitt er eins og hjá öðrum sósialistum hluti af almennri, pólitískri baráttu," sagði Hallur í samtali við fréttamann DB. „Ég Ienti í öðru sæti í skoðanakönnun innan Alþýðubanda- lagsfélagsins á ísafirði og er því í þessu sæti.” Hallur sagðist eiga von á að i væntan- legri bæjarstjóm yrði helzt ágreiningur um félagsleg málefni. „Meirihlutinn hefur látið þann málaflokk sitja á hakanum og undir stjórn hans hafa koðnað niður hugmyndir um byggingu elliheimilis, barnaheimilis og fleira. Það má raunar segja að öll félagsmál hér séu í stakasta ólestri.” Hann neitaði því, að hann vildi skara eld að sinni eigin köku með framboði sínu til bæjarstjórnar. „Ég held að yfir- leitt sé þetta mjög óeigingjarnt starf hjá þeim mönnum, sem taka þátt í bæjar- málum," sagði Hallur. Hann reiknaði með að snúa aftur til kennslu með haustinu, þótt hann væri andstæðingur skólakerfisins eins og það væri i reynd. „Grunnskólalögin eru ágæt út af fyrir sig, en þeim er ekki fram- fylgt nema að mjög litlu leyti vegna fjár- skorts. Ég er hins vegar á móti miðstýr- ingu skólakerfisins og þeirri samkeppni sem ríkir í skólum” Hallur Páll Jónsson kvaðst engu vilja lofa kjósendum sínum — stefnuskrá flokksins í bæjarmálum á Isafirði talaði sinu máli. ÓV. — segirannar maðurá lista Alþýðuflokksins „Ég fer í framboð vegna þess að ég vil vinna að hagsmunamálum bæjarins eins og ég hef þrek til. Kannski má segja að ég hefði ekki átt að fara út i þetta, ég hef nýlega tekið við umfangsmiklu starfi hjá Orkubúi Vestfjarða, en gaf svo kost á mér í 2. sæti i prófkjörinu og lenti þar meðá listanum.” Sá sem talar er Jakob Ólafsson, deildarstjóri rekstrar- og framkvæmda- deildar Orkubús Vestfjárða, en hann skipar 2. sæti á framboðslista Alþýðu- flokksins. Hann hefur ekki áður tekið þátt i stjórnmálastarfseminni á ísafirði. „Það bíða ærin verkefni væntanlegrar bæjarstjórnar á sviði gatnagerðar, elli- heimilisbyggingar, sjúkrahússbyggingar og fleira,” sagði Jakob þegar DB hitti hann að máli á skrifstofu hans á Isafirði. „Þá eru umhverfismál hér i miklum ólestri, þótt nokkur bót hafi orðið á, einkum i fyrra þegar sorpbrennslustöðin í Hnífsdal leysti af hólmi opinn sorphaug. Ég held raunar að haugarnir hafi á vissan hátt eyðilagt tilfinningu fólks hér fyrir fallegu umhverfi. Sóða- skapurinn i bænum stingur óneitanlega í a.ugu aðkomufólks, þannig að á jiessu sviði bíður stórverkefni næstu bæjar- stjórnar,” sagði Jakob Ólafsson. ÓV.

x

Dagblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Dagblaðið
https://timarit.is/publication/260

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.