Dagblaðið - 22.05.1978, Side 5
i
DAGBLAÐIÐ. MÁNUDAGUR 22. MAÍ 1978.
' ------------
5
B0R6ARSTJÓRN SAMÞYKKIR
„TÍVÓLÍ-TILLÖGUNA”
Mikið og gott samkomulag var á
síðasta fundi borgarstjórnar jx;ssa
kjörtímabils á fimmtudagskvöld. Var
á fundinum samþykkt með 15 sam-
hljóða atkvæðum tillaga Björgvins
Guðmundssonar um að borgin beitti
sér fyrir stofnun og rekstri skemmti-
garðs i Reykjavik.
Var ákveðið að skipa nefnd. sem
kannaði með hvaða hætti væri heppi-
legast að stofna til slíkrar starfsemi og
grundvöllinn fyrir henni. I hinni
samþykktu tillögu var einnig vikið að
þvi, að samráð bæri að hafa við áhuga-
sama unga menn, sem hafa beitt sér
fyrir undirskriftasöfnun til hvatningar
stofnunar skemmtigarðs — tivolís —
af þessu tagi. Lágu fyrir borgar-
stjórnarfundinum í gær undirskriftir
650 manna, sem þessir ungu menn
höfðu safnað. Sagt var frá undir
skriftasöfnun þeirra i siðustu viku.
í umræðum um tillögu Björgvins
Guðmundssonar benti flutningsmaður
á nokkra staði, þar sem hugsanlega
væri hægt að setja upp skemmtigarð.
Til dæmis nefnid hann auða svæðið á
milli Suðurlandsbrautar og Miklu-
brautar, uppfyllinguna i Elliðaárós,
Öskjuhlið og'Miklatún.
„Ég tel æskilegt að borgin komi
sjálf upp garðinum, en hafi svo sam-
starf við einkaaðila um rekstur hans
og tækjanna i honum," sagði Björgvin
í samtali við fréttamann DBeftir fund-
inn. „Ég lagði i ræðu minni einnig
áherzlu á að þar væri hægt að hafa
ýmiss konar menningarstarfsemi, svo
sem leiksýningar og kvikmyndasýn-
ingar úti og inni, málverkasýningar og
fleira. Mini-golf er einnig möguleiki.
Ég vék einnig að þvi. að hugsanlega
væri rétt að byggja garðinn upp i
áföngum eftir efnum og ástæöum
borgarinnar hverju sinni.".
Undirskriftasöfnun áhugamann-
anna ungu verður haldið áfram næstu
dagaogvikur.
I
ALLAR LAGNIR í HÖFÐINU
Jón L. Árnason i fjöltefli.
„Pólitikin, jú, ætli verði ekki einhverj-
ar breytingar. Menn kjósa varla ríkis-
stjórnarflokkana aftur. Það get ég ekki
meint," sagði þessi aldni skörungur sem
við hittum við að grafa hitaveituskurð
norður á Siglufirði. Jón heitir hann og er
Sigurbjörnsson, „titlaðu mig bara verka-
mann".
Siglfirðingar segja að Jón hafi hita-
lögnina og allar aðrar lagnir kortlagðar i
höfðinu. Ef eitthvað bilar er ekki annað
en kalla á Jón og hann bendir niður og
segir ákveðið „hérna er þetta." Þó að
verkfræðingar að sunnan komi með kort
sem sýni annað bregzt samt ekki að það
er Jón sem rétt hefur fyrir sér.
• DS
DB-mynd Bjarni Árnason
JÓNLÁRNASONFERÁ $KÁK-
SKOLA BOTVINNIKSIMOSKW
Heimsmeistarapeningurinn með Jóni
L. Árnasyni er nú kominn á markaðinn.
Skáksamband íslands gefur peninginn út
í bronsi, silfri og gulli. Er hann sem fyrr
segir tileinkaður fyrsta íslenzka heims-
meistaranum, Jóni L. Árnasyni, heims-
meistara unglinga i skák.
Manni bjargað úr
logandi
sængurfötum
Maður, búsettur I risibúð við Grettis-
götu. slapp naumlega lífs af er eldur
kviknaði i sængurföturh hans á föstu-
dagskvöldið. Sennilega hefur maðurinn
sofnað út frá logandi vindlingi með fyrr-
greindum afleiðingum. Fólk i húsinu
varð reykjar vart og kallaði á slökkvi-
liðið, sem kom á staðinn rétt i þann
mund er maðurinn var að reyna að
koma sér út. Reykkafarar hjálpuðu
honum og slökktu eldinn á skammri
stundu. Maðurinn var fluttur á Slysa-
deildina en mun ekki hafa orðið meint
af.
G5.
GRIPNIR
VIÐAÐ
„SKRÆLA”
BÍL
Eitthvað hafa piltarnir þrir, sem
Árbæjarlögreglan greip við Vagnhöfða í
fyrrakvöld, talið varahlutaverð úr hófi
gengið, því fremur völdu þeir þá leiðina
að stela hlutum úr sams konar bíl og
sinum en að kaupa hlutina í verzlun.
Lögreglumenn á eftirlitsferð gripu
einn þeirra er hann var að skrúfa hjól
undan bil, sem þar var geymdur. Hlupu
þeir annan uppi og visuðu hinir hand-
teknu á þann þriðja og gekk máliö upp.
• G.S.
Helmingur af söluhagnaði peningsins
verður til styrktar Jóni á skákbrautinni.
meðal annars til þess að kosta hann i
skákskóla Botvinniks i Moskvu nú í
haust.
Upplag peningsins er mjög takmark-
að: 25 gullpeningar.200 silfurpeningar
og 500 bronspeningar. Peningurinn er
stór, 5 sentimetrar í þvermál og öðrum
megin á honum upphleypt mynd af Jóni
L. en hinum megin taflstaða á skák
borði auk merkja FIDE — Alþjóðaskák-
sambandsins.
Aðalútsölustaður er Samvinnubank-
inn í Reykjavik.
• BS
»3
3
GRIKKLAND
AÞENUSTRENDUR
RHODOS
SKEMMTISIGLING
Dagflug á þriðjudögum. Nýr og heillandi sumarleyfis-
staður (slendinga. Yfir 1000 farþegar fóru þangaö ó
síðasta ári þegar Sunna hóf fyrsta íslenska farþegaflugið
til Grikklands og hafa margir þeirra pantað í ár. Þér
getið valið um dvöl í frægasta tískubaöstrandarbæjum
Gylfada í nágrenni Aþenu, þér gatið dvaliö þar á
íbúðarhótelinu Oasis, bestu íbúðum á öllum Aþenu-
svæðinu með hótelgaröi og tveimur sundlaugum, rétt við
lúxusvillu Onassis-fjölskyldunnar, góðum hótelum, eða
rólegu grísku umhverfi, Vouliagmeni, 26 km frá Aþenu.
Einnig glæsileg hótel og íbúðir á eyjunum fögru, Rhodos
og Korfu að ógleymdri ævintýrasiglingu með 17. þús.
lesta skemmtiferðaskipi til eyjanna Rhodos, Kritar og
Korfu, auk viðkomu í Júgóslavíu og Feneyjum.
Hægt er að skipta Grikklandsdvöl, og velja viku með
skemmtiferöaskipinu, og 1 eða 2 vikur á Aþenuströndum
eða eynni Rhodos. Reyndir íslenskir farastjórar Sunnu
og íslensk skrifstofa. Einnig Sunnuflug til:
MALLORCA dagflug á sunnudögum >
COSTA DEL SOL dagflug á föstudögum
COSTA BRAVA dagflug á sunnudögum
ÍTALÍA dagflug á þriöjudögum * s
KANARÍEYJAR dagflug á fimmtudögum Z'
PORTÚGAL dagflug á fimmtudögum
SVNNA
REYKJAVÍK: BANKASTRÆTI 10 - SÍMI 29322. AKUREYRI: HAFNARSTRÆTI 94 - SÍMI 21835
L