Dagblaðið - 22.05.1978, Blaðsíða 40

Dagblaðið - 22.05.1978, Blaðsíða 40
Einokun í saltfisksölu: „SÍF TELUR ÞAÐ TRUFLUN Á SINNISÖIU ÞEGAR AÐRIR AÐILAR SEUA” — segir viðskiptaráðuneytið, 400-500 tonn af saltfiski lágu undir skemmdum á Patreksf irði þar til lá tið var undan þrýstingi til að selja í gegnum SÍF Vegna einokunaraðstöðu Sambands íslenzkra fiskframleiðenda (SÍF) í sölu á saltfiski frá íslandi hefur fiskverkun- arfyrirtæki á Petreksfirði neyðzt til þess, eftir margra mánaða þóf, aðselja 400—500 tonn af saltfiski í gegnum SÍF. Bendir þó flest til þess, að hærra verð hefði fengizt fyrir saltfiskinn hefðu Patreksfirðingarnir fengið leyfi til að selja sinn fisk gegnum tslenzku umboðssöluna. Verðmæti þessa fisks era.m.k. 200milljónir. Þar til fyrir nokkrum dögum lá fisk- urinn undir skemmdum á Patreksfirði. Verkendur fisksins, Fiskverkunarstöð- in Oddi hf., höfðu komizt að sam- komulagi við tslenzku umboðssöluna um að selja fiskinn til Ítalíu og hafði fengizt vilyrði fyrir útflutningsleyfum. En vilyrðið varð aldrei að raunveru- leyka. „Þetta er eitthvað furðulegt,” sögðu tveir af stjórnarmönnum Odda, Sigurgeir Magnússon og Jón Magnús- son, í samtali við fréttamann blaðsins á Patreksfirði fyrir nokkru. „Allir hafa sagt já við okkur, ráðherrar hvað þá aðrir, en samt strandar leyfisveitingin einhvers staðar í kerfinu. Það hljóta að vera einhver óþekkt öfl sem stöðva leyfisveitinguna.” Þeir Jón og Sigurgeir sögðu að Is- lenzku umboðssölunni hefði frá ára- .mótum aðeins tekizt að fá útflutnings- leyfi fyrir um 90 tonnum af saltfiski frá Odda h.f. „Samt sem áður hafa þeir sizt fengið verra verð en fengizt hefur í gegnum SÍF,” sögðu þeir, „og heilu markaðssvæðin bíða eftir salt- fiski. Það vilja nefnilega fleiri fá salt- fisk en bara stóru einokunarhringarn- ir." Dagblaðið sneri sér til Stefáns Gunnlaugssonar, deildarstjóra í við- skiptaráðuneytinu, og spurði hann hvað valdið hefði tregðunni til að veita íslenzku umboðssölunni tilskilin leyfi. „Ég skal ekki segja um það," svar- aði Stefán. „SÍF hefur i gegnum áarin verið eini aðilinn, sem hefur flutt út saltfisk, enda er þar um að ræða sam- tök framleiðenda.” „Nú er það varla i lögum, að aðrir en SÍF fái ekki að flytja út saltfisk. Er þetta ekki augljós einokun?” „Það má segja það,” svaraði Stefán Gunnlaugsson. „Þetta er ríkisstjórnar- ákvörðun, á sama háttog það var ríkis- stjórnarákvörðun þegar Patreksfirð- ingarnir fengu að selja þessi 90 tonn. Ég hélt þó, satt bezt að segja, að þeir hefðu fengið leyfi fyrir meira magni.” „En hver kom þá í veg fyrir að ís- lenzka umboðssalan fengi leyfi til að selja allan saltfiskinn frá Odda? Var þaðSÍF?” „Ja, SÍF hefur ævinlega verið mjög mikið á móti þvi að aðrir aðilar fengju að selja saltfisk til ítaliu. Þeir telja það ákaflega óheppilegt og líta á það sem trufiun á sölunni.” -ÓV. ——i3 MILLIÓNIR manna K0MA TIL MEÐ AÐ NOTA MÐ Á ÁRI Þá er búið að rifa utan af nýju áning- arstöð strætisvagnanna við Hlemm, gárungarnir segja til þess að hægt sé að birta myntl af henni i Bláu bókinni. Þá bók éd'ur Sjálfstæðisfiokkurinn i Reykjavík út fyrir hverjar kosningar og greinir frá framkvæmdum á síðasta kjörtimabili. En auðvitað hlýtur tilgangurinn með þvi að Ijúka við skýlið að vera fyrst og fremst þjónusta við almenning. Nokkuð er þó í land áður en því takmarki verður náð. þvi ennþá er engin þjónusta í skýlinu. Til stendur að 9 fyrirtæki sem verzla með vöru og þjónustu fái aðstöðu þar og er nú verið að athuga þau tilboð sem borizt hafa. SVR mun síðan reka farmiðasölu og upplýsingadeild. Hlemmur er löngu orðin aðalstöð strætisvagnanna að sögn Eiríks Ásgeirs- sonar forstjóra. Um hann fara hvorKÍ meira né minna en 13 milljónir farþega á ári. Má af þessu sjá hvílíkt nauðst nja- mál er að koma skýli upp fyrir allt þetta Þessa mynd tók Höröur í morgun af skýlinugóda. fólk. Forráðamönnum SVR er tnikið kappsmál að auka nýtingu strætis- vagnanna. Vitnar Eirikur i útreikninga sem gerðir voru þar sem í hverjum einkabíl væru að jafnaði 1.2-1,4 farþeg- ar en aftur á móti 10—50 í hverjum strætisvagni. Ef ekki væru strætisvagnar þyrfti til dæmis að breikka Laugaveginn verulega þvi eins og er komast aðeifts 700 bilar niður hann í einu. -DS/BS HAMSTRK) FLÝTIR BENSÍNSKORTINUM — birgðir í Reykjavík fram undir helgi ef ekki veröur hamstrað í gærkvöldi tóku fjölmargir bileig- endur i Reykjavik eitthvert viðbragð og fóru að hamstra bensín á brúsa og í kirnur auk þess að fylla geyma bíla sinna. Var um tíma mikil örtröð á sum- um bensinstöðvunum likast sem stór- helgi væri í aðsigi. Skv. upplýsingum, sem DB fékk hjá Skeljungi í morgun. hefðu bensinbirgðir á borgarsvæðinu enzt framundir næstu helgi miðað við venjulegt ástand, en þær munu endast mun skemur ef hamstur verður mikið. Sumstaðar úti á landi eru til birgðir langt fram á sumar en óvist er hvort ráðizt verður i að fiytja eitthvað af því til Reykjavikur. Bensínafgreiðslu verður hætt áður en birgðir eru á þrotum til að tryggja öryggisþjónustu svo sem lögreglu og slökkviliðs. Olíufélögin munu þinga um stefnumótun í þessu máli i dag. Hér birgir einn sig upp heldur en ekki hressilega í gærkvöldi. -DB-mynd Sv. Þorm. • VT »1,1 i VI Mli ijft B '' 1 V-'' \ » 11 ’ Ekiðá gangandi manná Stokkseyri Ekið var á 26 ára mann á Stokkseyri í fyrrinótt og slasaðist hann talsvert á fót- um og jafnvel hálsi. Selfosslögreglan flutti hann þegar á slysadeild Borgarspit- alans þar sem hann liggur nú á batavegi. Grunur leikur á að ökumaðurinn hafi verið undir áhrifum áfengis. Hann hljópst þó ekki af slysstáð. — G.S. Bílrúðubrjót- uráSkaga Bilrúðubrjótur lék lausum hala á Akranesi um helgina og braut rúður i a.m.k. fjórum bílum, ýmist fram- eða afturrúður. Bæði er þetta umtalsvert tjón fyrir bíleigendurna auk þess sem óþægindi stafa af. Slíkt er mjög fátitt á staðnum, að sögn lögreglunnar, og er sökudólgurinn ófundinn. —G.S. Réðust á fyrr- verandi eiginkonur í fyrrinótt og fyrradag var lögreglan i Reykjavik þrisvar tilkvödd vegna árása manna á fyrrverandi eiginkonur sínar. I einu tilvikinu var um sambýliskonu að ræða. í engu tilvikinu þurfti þó að fiytja konurnar á slysadeildina, en af þessum uppgjörum mannanna hlutust vandræði ogeinhverspjöll á heimilum. _G.S.’ Alvarleg líkamsárás á Höfn: Árásar- maðurinn fundinn Ungi maðurinn sem réðsl á unglingspilt austur á Höfn á Hornafirði og veitti alvarlegan á- verka aðfaranótt laugardagsins hefur nú náðst og. játað verknaðinn. Eftir árásina skildi hann piltinn eftir liggjandi meðvit- undarlausan í götunni og var hann hætt kominn af kulda og vosbúð er honum var komið lil hjálpar. Fyrir einskæra tilviljun fannst hann nægilega snemma til að unnt væri að bjarga honum. Lítið barn i nálægu húsi vaknaði og vildi ábót á pelann. Er móðir þess var að bæta úr því varð henni Ittið út á götu ogsá piltinn. Varnarliðsþyrla flaug með piltinn til Reykjavíkur og liggur hann á Borgarspítalan- um. Hann er á batavegi. Blaðinu er ekki kunnugt um aðdraganda átakanna. -G.S.

x

Dagblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Dagblaðið
https://timarit.is/publication/260

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.