Dagblaðið - 22.05.1978, Side 7
DAGBLADIÐ. MÁNUDAGUR 22. MAÍ 1978.
7
24. skoðanakönnun DB:
Almennt vantraust áberandi í
athugasemdum þátttakenda
Svör og athugasemdir þeirra, sem
spurðir voru í 24. skoðanakönnun Dag-
blaðsins, voru að vonum afar mismun-
andi. Var þó nokkuð áberandi aimenn
þreyta og vantraust á stjórnmálamenn
landsins. Hér á eftir fylgja nokkrar þess-
ara athugasemda, valdar nokkuð af
handahóf.
Um landsmálin:
★ Ég kýs D-listann í von um að traust-
asti aðilinn sé íhaldið.
★ Þeir eru allir jafn vitlausir — eins og
smákrakkar, sem eru að rifast. Ég kýs
Sjálfstæðisflokkinn á meðan ekkert
betra býðst.
★ Ég kýs trélistann. Það er listi óháðra.
Hann hallast bæði að minnihluta og
meirihluta, annars gæti hann ekki lifað.
★ Verst er þegar nýir flokkar spretta
upp og koma enn meiri ringulreið á —
ég var reyndar i Félagi ungra jafnaðar-
manna á meðan Alþýðuflokkurinn var
flokkur.
★ Aðalmálið er að fækka prúðu leikur-
unum.
★ Ég vil óbreytt ástand. Ég er hjólfars-
manneskja. hef það gott og vil hafa það
áfram eins og ég hef það núna.
★ Það er sama hvað maður kýs, það
kemurallt þaðsama fráöllum flokkum.
★ Hér er upplausn og- rotnun i öllunt
málurn. Þessir menn sem við stjórnvöld-
in sitja hafa brugðizt okkur illa og þvi
verðum við að svipast um eftir nýjum
mönnum. Ekki skiptir máli i hvaða
flokki þeir eru. aðeins ef þeir eru heiðar
legir.
★ Nei. ég get ekki i fljótu bragði nel'nt
neinn málallokk sem gæti verið verri en
hann er. Semsagt. þetta er allt vitleysa.
cina ntálið er að ég þekki enga sem gætu
bætt úr þessu og liklegast eru þetta allt
ágætismenn sem eru að reyna að
stjórna.
★ Maður cr óákveðinn al'þvi að maður
er leiksoppur og lætur allt viðgangast.
óafvitandi hvað er að ske.
★ Ég kýs mistök frjálslyndra og allra
handa.
★ Af trúarlegum ástæðum tek ég ekki
þátt i kosningunum.
★ Éger hneyksluðá þvi hvernig íslend-
ingar hegöa sér, þeir kjósa bara eftir
tradisjón. hafa engar heilbrigðar skoð-
anir. Sjálf er ég aronisti ogætla aðógilda
atkvæði ntitt. (Erlend koma með islenzk-
an ríkisborgararétt og kosningaréttl.
★ Það er mál. sem enginn flokkur
virðist hreyfa við. það eru efnahagsmál-
in.
★ Það er búið að skemnia fyrir manni
allar gömlu hugsjónirnar og það er
ómögulegt þjóðfélag þar sem hús-
móðirin hefur ekki nokkra möguleika á
að fylgjast með hvað verðlagið er frá
degi til dags.
★ Þvi miður hef ég ekki trú á að nýir
strákar á Alþingi breyti neinu. þeim
verður strax spillt nteð launuðum auka
störfum og öðrunt bitlingum. Stjórn
málamenn hér nota sömu aðferðir og
mafiuforingjarnir i Bandarikjununt.
gera menn samseka svo þeir þegi. hlýði
ogeigi ekki sómasamlega útleið.
★ Það þarf aö skipa siðareglunefnd Al-
þingis myndaða af óháðum fulltrúum
lögfræðinga, viðskiptafræðinga. lækna.
blaðamanna. bænda. útvegsntanna. iðn-
rekenda og félagsfulltrúa. svo eitthvað
sé nefnt. Það gengur ekki lengur að þess-
um mönnum sé sjálfum falið að fylgjast
með og gagnrýna eigin störl'.
★ Yfirbygging rikisins verður að
minnka — og þaðstrax!
★ Ekkert nema gott einræði getur
bjargað okkur úr þessu. Við erum lik
legast of fámennir til að hal'a lýðræði.
hér þekkja allir alla og allir eru skyldir
öllum og þvi fer sem fer, dekur við þessa
einstaklinga verður þjóðarhag ofar.
★ Þessi verkföll duga ekki. Stjórnin
verður að gera skyldu sina og leysa þann
hnút. sent hún hefur 'sett kjarantálin i.
Það er ekki vist að hér gildi santa for
múla og hjá Alþjóðabankanum eða i
Bilderberg-klúbbnunt.
★ Hér er allt i kaldakoli. Það þarf að
hrólla viðembæltisntannabákninu. Þeir.
sem ekki beinlinis á að henda úr stólun-
unt. verða að minnsta kosti að vakna.
★ Mikilvægasta ntálið i alþingiskosn-
ingununt er að kosnir verði ntenn. sent
geta stjórnað landinu. Þeir. sent nú sitja
á þingi. hafa sýnt að þeir gera það ekki.
Það skiptir cngu ntáli hvcrnig þingið er
samansett í flokkslegu tilliti.
★ Þessir gæjar ættu að gefa yfirlýsingu
um að ef þeir ráði ekki við verðbólguna.
þá fari þeir frá. Að stoppa hana hlýtur
að vera númereitt.
★ Herinn burt. þaðeraðalatriðið.
Um borgarmálin:
★ Málið cr að halda meirihlutanunt.
Birgir er svo traustur ntaður. Minni-
hlutanokkamir eiga ekki santbærilegan
borgarstjóra.
★ Félagsntálin skipta vist ntestu. en ég
er þóá móti allri þcssari aðstoð við félög.
Þau eiga að sjá um sig sjálf.
★ Reyna að stöðva að unga fólkið
flytjist úr borginni.
★ Að bærinn verði ekki að elliheimili
og tæmist ekki algjörlega.
★ Það er allra mikilvægast að koma
ihaldinu frá í Reykjavik. Sjálfur ætla ég
að kjósa Alþýðubandalagið.
★ Við vitum hvað við höfum. ekki
hvað við fáum.
★ Þetta eru örugglega allt ágætismenn
en stefnuntunurinn er hreint kjaftæði og
þess vegna kýs ég meirihlutann til að
forðast ringulreið.
★ Þori ekki annað en að kjósa Sjálf-
stæðisflokkinn af ótta við stjórn sem sjá
má i nágrannabyggðunum. svo sem
Kópavogi.
★ Málið er að sameina öll byggðarlög á
Stór-Reykjavikursvæðinu undir einn
hatt og skipa svo borgarráð fulltrúum
hinna ýmsu hverfa svo sent Breiðholts.
Hafnarfjarðar. Vesturbæjar o.s.lrv.
Þjóðhagslega kæmi þetta vel út. hvað þá
fyrir þá sem búa á þcssu svæði.
★ Kýs Sjálfstæðisllokkinn af ótta við
að of naumur meirihluti hans verði til að
of miklum tima vcrði eytt i póíitiskt þras
i stað þarira athafna.
★ í alþingiskosningununt gildir annað
en i bæjarstjórnarkosningum. Hjá ntér
cr það A i alþingiskosningum. en D i
bæjarstjórn. Ég veit unt marga slika.
Tjáningap'frelsi
. erein meginforsenda þe
áö frdsi getí vidha':di7(
í samtélagi.
TRC 8600:
— Fyrir skrifstofur.Fyrir venjulegar kassettur, bein
upptaka frá síma. Hægt að flýta og hægja á afspii-
un. Þurrkar út af spólu með upptöku. Hægt að
stjórna með hljóðnema. — Eyrnatæki og fóthemill.
SKRIFSTOFUTÆKI
GARÐASTRÆT117. - SÍM113730.
lot0 tCHECS 0[S
BlllMiMM
SKAKSERIA II
Upplag takmarkað við aðeins 500 bronspeninga
200 silfur ------
25 gull --------
Pöntunarseðill: □ grelðsla fylgirkr.
SÖLUUMBOÐ:
SAMVINNUBANKINN
BANKASTRÆTI TlIJIimilll
□ óskast sent í póstkröfu
Nafn___
Heimili
Staður
sími
□ brons kr. 7500
□ silfur - 14500
□ gull — breytli.
Skáksamband íslands, Pósthólf 674, Reykjavík
Teg. 610
Litur: Bleikt
rúskinn.
Teg. 613
Litur Svart rúskinn.
Stærðir 36—41.
Verð 7.985.-
ATHUGIÐ!
AÐEINS
KR. 7.985.-
Teg. 606
Litir: Svart eða
beige rúskinn.
Stærðir 36—41.
Verð 7.985.-
V Teg.602 V Litur: Beige rúskinn. Stærðir 36-41. ' ^ Verð7.985.-
NÝ SENDING
NÝ SENDING
Skóverzlun Þóröar Péturssonar
Kirkjustræti 8 v/Austurvöll
Sími 14181 — Póstsendum