Dagblaðið

Ulloq

Dagblaðið - 22.05.1978, Qupperneq 19

Dagblaðið - 22.05.1978, Qupperneq 19
DAGBLAÐIÐ. MÁNUDAGUR 22. MAt 1978. d Iþróttir Iþróttir '19 íþróttir Iþróttir I) Q PATRICK KEVIN KEEGAN ■ Lauf/éttír notar ^ eingöngu 4. og Hprir Þrenna Matthíasar skaut í Kaplakrika Heimsmeistararnir unnu Danina létt! — í landsleik í Hamborg í handkna ttleik Hcimsmeistarar Vcstur-Þýzkalands í handknattleiknum sigruöu Dani í lands- leik í Hamborg á föstudag. Lokatölur 20-15 eftir aö Þjööverjar höfóu yfirspilaö Dani í fyrri hálfleik. í hálfleik var staóan 13-6. Danir uróu sem kunnugt er i fjórða sæti í HM í vetur. Mörk V-Þýzkalands skoruðu Kliih- spiess sjö, Freisler fimm, Ehret fjögur, Brand tvö, og Fey og Spengler. Fyrir Danmörku skoruðu Erik Bue Petersen, fjögur, Morten Stig Christiansen, þrjú, Michacl Berg, Anders Dahl-Nielsen og Kikael Kold, tvö hver, Thor Munkager og Carsten Haurum. Áhorfendur voru 4050. — FH gerði jafntef li við nýliða KA, 0-0, í Hafnarfirði á laugardag Nýliðar KA hrepptu sitt annað stig í 1. deild íslandsmótsins í knattspyrnu í Hafnarfirði gegn FH á laugardag. Jafn- tefii varð, 0-0, og byrjun KA er miklum mun betri en norðanmenn gátu átt von á, tvö stig úr tveimur fyrstu leikjum KA hér fyrir sunnan. Fyrst jafht gegn Breiða- blik, 2-2, ogsíðan FH,0-0. Hitt eri að leikur FH og KA bar ekki merki góðrar knattspymu. Raunar hafði maður á tilfinningunni, að þarna færu tvð lið er í sumar mundu eiga í vök að verjast i neðri helmingi deildarinnar. Sér i lagi olii leikur FH vonbrigðum. FH- ingar náðu ekki að sýna þá skemmtilegu takta er þeir sýndu iðulega síðastliðið sumar. Nú er aðeins Janus Guðlaugs- son, sem leikur eins og hann á að sér — kraftur hans setti vörn KA i vandræði. En Viðar Halldórsson er ekki sami maður og siöastliðið sumar er hann vann sér sæti í landsliðinu. Ólafur Dani- valsson hefur átt við meiðsli að stríða i vor, kom aðeins inná i síðari hálfleik og Þórir Jónsson lék ekki með. Þessir fjórir voru máttarstólpar síðastliðið sumar — en vonandi ná þeir sér á strik — og þá þarf FH ekki að kviða erfiðu sumri. Eins og er á FH erfitt uppdráttar. Það kom berlega i Ijós á laugardag. Leik- menn náðu aldrei tökum á miðjunni né var sóknarleikurinn beittur. Vörnin stóð fyrir sinu — en þá var lika sókn KA ekki beitt. Tækifæri í leiknum voru fá, talin á fingrum annarrar handar. Þau féllu FH flest í skaut. Þannig náðu varnarmenn KA að bjarga á linu á 15. minútu, í horn. Upp úr hornspyrnunni fékk Logi Ólafsson knöttinn einn fyrir framan mark KA en skot hans fór framhjá, úr þröngri aðstöðu. Á 37. minútu komst Janus Guðlaugsson í gott færi, en skot hans af 15 metra færi fór framhjá. FH hafði undirtökin í fyrri hálfleik en í þeim siðari náðu leikmenn KA betri tökum á miðjunni án þess þó að ógna veruiega. Hins vegar tókst FH að koma knettinum í netmöskvana að baki Þor- bergs Atlasonar, en ágætur dómari leiks- ins, Róbert Jónsson, dæmdi hindrun á Þorbergi. Jafntefli voru réttlátust úrslit i daufum leik. KA getur vel við unað, markmiðið i sumar hlýtur fyrst og fremst að vera að tryggja stöðu félagsins i 1. deild — aðeins þremur árum eftir að félagið hóf að leika i 3. deild. Vörn K A var traustari en gegn Breiðablik og Þorbergur Atlason öruggur í markinu. Á miðjunni börðust þeir Guðjón Harðarson og Jóhann Jakobsson vel en sóknin var máttlitil. Helzt að Gunnar Blöndal skapaði hættu — tvívegis átti hann góð skot og föst en framhjá. FH, rétt eins og KA, hefur nú hreppt tvö stig i 1. deild, úr tveimur leikjum. Hins vegar hefur leikur liðsins valdið vonbrigðum , fyrst og fremst vegna þess að máttarstólpar liðsins eru ekki komnir í toppform enn. Ágætur dómari í Hafnarfirði var Róbert Jónsson. - H Halls Verð frá kr. 6200.- Póstsendum Bikorinn /f. Sportvóruverslun Hafnarstræti 16 sími 24520 1. Vekjaraklukka 2. Klukka 3. Fullkomin tölva 4. Raf hlöðumar endast í 3000 klst — íslandsmeistarar ÍA sigruðu Blikana 4-0 og Ma tthías lék þar sinn fyrsta leikí íslandsmótinu eftirSvíþjóðarreisuna Matthías Hallgrímsson — þrjú mörk á laugardag. íslandsmeistarar ÍA unnu sannfær- andi sigur gegn Breiðabliki I 1. deild íslandsmótsins I knattspyrnu á Skipa- skaga um helgina, 4-0. Matthias Hall- grímsson átti sannarlega gott „comc- back” með ÍAI sínum fyrsta leik á Skag- anum I I. deild eftir að hafa snúið heim frá Sviþjóð, skoraði þrjú mörk. Sannfærandi og stór sigur gegn Blik- unum en sannleikurinn er sá, að Blik- arnir eru nú hvorki fugl né fiskur. Það kemur alls ekki neitt út úr spili liðsins. Marktækifæri skapaði Breiðablik sér engin — nei, Breiðablik er vissulega fall- ■kandidat eins og liðið leikur nú. Fyrri háljleikur í leik meistaranna var Stigum deilt daufur á „sandgrasinu”. Völlurinn er nú gerónýtur og ekki er það vegna hörku vetrarins. AUt í kring eru iðjagrænir grasbalar en sandurinn og saltið hafa kæft grasrótina á vellinum. Slæm mistök þar. Nú, en Skagamenn náðu forustu á '12. minútu leiksins. Karl Þórðarson. er átti snjallan leik — átti hlut að öllum mörkum ÍA — tók hornspyrnu. Hann sendi út á vítateigslínuna á Jón Gunn- laugsson er skaut föstu skoti sem hafn- aði í þverslánni. Knötturinn féll fyrir fætur Matthíasar Hallgrímssonar, sem skoraði af öryggi af stuttu færi, I -0, — fyrsta mark Matta í I. deild eftir að hann sneri heim frá Sviþjóð. Heldur var lítið um marktækifæri í fyrri hálfleik. Þó komst Pétur Pétursson innfyrir á 38. minútu en skot hans fór framhjá. Breiðablik fékk eitt tækifæri allan leik- inn. Upp úr hornspyrnu missti Jón Þor- björnsson knöttinn í úthlaupi en var snöggur og kastaði sér vel á eftir honum og bægði hættunni frá. Hinir 600 áhorfendur á Akranesi fengu hins vegar að sjá iátlausa sókn meistara ÍA i siðari hálfleik i suðaustan kalda og rigningu. Knötturinn fór vart út úr vitateig Blikanna í hálfleiknum og fengu Skagamenn um 17 hornspyrnur. Þegar á 5. minútu leiksins skoruðu Skagamenn annað mark sitt. Enn var Karl á ferðinni. gaf fyrir mark Blikanna. Þar stökk Pétur Pétursson og skailaði að marki. Ægir Guðmundsson markvörðui' Blikanna hálfvarði skot Péturs. knöttur- inn féll fyrir fætur Matta sem skoraði af stuttu færi, 2-0. Þegar á næstu mínútu björguðu Blikarnir á linu eftir að Pétur Pétursson hafði komizt innfyrir vörnina. En næsta mark ÍA kom á 10. mínútu. Karl Þórðarson var enn á ferðinni upp hægri vænginn. renndi vel fyrir á Kristin Björnsson, sem fleygði sér fram og skallaði i netmöskvana. 3-0. Skagamenn fengu mörg og góð tæki- færi til að auka forustu sina. Á 30. minútu átti Jón Gun tlaugsson skot i stöng en gæfan var honum ekki hliðholl. En aðeins eitt mark bættist við á siðustu minútu leiksins. Karl Þórðarson gaf rétt einu sinni fyrir. Pétur Pétursson skallaði knöttinn fyrir fætur Matta sem skoraði sitt þriðja mark með skalla. 4-0. þrenna Matta staðreynd. Breiðablik var hvorki fugl né fiskur. Eftir leikinn gegn KA á dögunum voru gerðar fimm breytingar á liðinu en það gafsl ekki vel. Liðið var yfirspilað og Þór Hreiðarsson var eini maðurinn í liðinu ersýndi tilburði. ■ Framlina ÍA var hins vegar ntjög sannfærandi. þeir Karl Þórðarson. Pctur Pétursson og Matthias Hallgrimsson ávallt hættulegir. Vörnin var nokkuð óörugg í byrjun en óx sjálfstraust cr á leikinn leið. sannfærandi sigur. - KP

x

Dagblaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Dagblaðið
https://timarit.is/publication/260

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.