Dagblaðið - 21.06.1978, Side 7

Dagblaðið - 21.06.1978, Side 7
DAGBLAÐIÐ. MIÐVIKUDAGUR 21. JÚNÍ 1978. Endurbóta þörf við Vesturbæjarskólann — steinveggur við skólann hættulegur börnum Gamla húsið, sem nú hýsir Vestur- bæjarskóiann við Öldugötu á sér langa pg merka sögu í fræðslumálum Reykja- víkur. Húsið var byggt árið 1898 og var Stýrimannaskólinn þar til húsa, allt þar til hann flutti í núverandi húsnæði Sjómannaskólans árið 1945, Þá flutti Gagnfræðaskóli Reykvíkinga, sem síðar nefndist Gagnfræðaskóli Vesturbæjar, i húsið og var þar í þrettán ár og undan- farin tuttugu ár hefur húsið verið notað til barnakennslu. Þar er nú grunnskóli, þar sem sex til tólf ára börn stunda nám. Þetta gamla hús þarf umhirðu við og sýna þarf þvi þá sæmd sem þvi ber. Skipta þarf um járn á þeirri hlið hússins sem snýr að Öldugötu og mála húsið en það hefur ekki verið gert undanfarin ár vegna væntanlegrar viðgerðar á þessari hlið hússins. Vonir standa til þess að viðgerð þessi verði framkvæmd í sumar. Þá er ekki síður þörf á því að vinda bráðan bug að því að rífa steinvegg sem Þjóðhátíðin á Costa del Sol Einn þúsundasti hluti íslenzku þjóðar- innar fagnaði 17. júní á laugardaginn á Costa del Sol á Spáni. Fólkið er þar á vegum Ferðaskrifstofunnar Sunnu. Á Mallorka var sami háttur hafðu á og þar voru engu færri landar samankomnir. í þessu umhverfi þar sem nóg var af veigunum, léttum og sterkum, fór allt mjög prúðmannlega fram. Fólk skemmti sér vel, fólk á bókstaflega öllum aldri sameinaðist í að gera þennan dag eftir- minnilegan. Þessi hópmynd er af Sunnufarþegunum á Costa del Sol á laugardaginn. FIB í alþ jóðasamvinnu: ALÞJÓÐLEGT HEILSUFARS- SKÍRTEINI í BÍLNUM Félag islenzkra bifreiðaeigenda hefur i samvinnu við alþjóðasamtökin AIT (Alliance Internationale de Tourisme) og önnur bifreiðaeigendafélög hafið útgáfu á skírteinum um heilsufar þeirra sem i bifreið ferðast. í skirteininu er að finna mynd af viðkomandi, upplýsingar læknis um sjúkdóm, blóðflokk, ofnæmi, hvaða lyf séu notuð, eða ofnæmi fyrir ákveðnum lyfjum. í slysatilfelli gætu slíkar upplýsingar komið að miklu gagni og sparað dýrmætan tima sem ella yrði eytt til rannsókna. Skírtcinið er alþjóðlegt og fylgir limmiði á bílrúðu viðkomandi ökumanns. er meðfram lóð hússins, en hann er farinn að hallast mjög. Þarna eru börn að leik allan ársins hring og allir sjá þá hættu sem þarna leynist. Loforð mun hafa fengizt fyrir niðurrifi veggsins og uppbyggingu nýs veggjar fyrir I. september i haust, þ.e. áður en skólar hefjast á ný. Er það vel þvi hér er ekki um mjög kostnaðarsama framkvæmd að ræða, heldur öllu fremur framtaks- semi. JH Steinveggurinn við skólann hallast orðið það mikið að börnum getur stafað hætta af að leika sér undir honum. Vesturbæjarskólinn sem áður hýsti gamla Stýrimannaskólann á sér merka sögu og nauðsynlegt er að sýna húsinu. þá sæmd að halda þvl vel við. DB myndir Ari. ZENIT KIEV Nú geta allir eignast alvöru myndavélfyrirlítiö verð. ZENITEM Reflex myndavé/, hraöi 1/30 til 1/500 ásamt standard linsu og tösku kr. 48.600.- ZORKI KIEV4 Rangefinder myndavél, hraöi 1/2 til 1/250 ásamt standard linsu og tösku kr. 31.500.- ZORKI4K Rangefinder myndavél, hraöi 1 sek. til 1/1000 ásamt standard linsu og tösku kr. 20.750.- Útsölustaðir: Reykjavík: Filmur og Vélar s/f. Skólavörðustíg 41. Fótóhúsið, Bankastræti. Ljósmyndaþjónusta Matz Laugavegi 178. Sjónvarpsvirkinn, Arnarbakka 2. Hafnarfjörður: Ljósmynda og gjafavörur Reykjavíkurvegi 64. Vestmannaeyjar: Kjarni s/f. Akureyri: Filmuhúsið Heildsölubirgðir: TH. GARÐARSSON H/F. Heildv. Vatnagörðum 6. R. Sími 86511. Auglýsing

x

Dagblaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Dagblaðið
https://timarit.is/publication/260

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.