Dagblaðið - 21.06.1978, Side 13
DAGBLAÐIÐ. MIÐVIKUDAGUR 21. JÚNÍ 1978.
baráttusinna, fékk R-listinn 180 at-
kvæði i tveimur kjördæmum.
Alþýða manna hafnar Fylkingunni
og verða atkvæðin vart fleiri nú.
Vegna fámennis i eigin herbúðum
náði svokallaður Kommúnistaflokkur
varla saman fólki á einn lista í Reykja-
vík. Svipuð einangrun hrjáir hann og
Fylkinguna, enda voru stefnumið
hans um árabil þau sömu og Fylking-
arinnar nú, — en allt það kallar flokk-
urinn „kommúníska stefnu”.
Kommúnistaflokkurinn og Fylking-
in unnu saman 1. maí og víða annars
staðar. Það eitt skilur milli samtak-
anna i kosningabaráttunni að Komm-
únistaflokkurinn nefnir stundum
Sovétríkin sem andstæðing, en af-
mörkunin frá Alþýðubandalaginu er
ekki til fremur en hjá Fylkingunni.
Dómur fjöldans um Kommúnista-
flokkinn verður trúlega svipaður og
síðast. Þá fékk hann, undir öðru nafni,
120 atkvæði — eða fjórum færri en
meðmælendur og frambjóðendur
voru.
Skilum auðu!
í þjóðmálabaráttu verður að leggja
aðaláherslu á beina baráttu fjöldans.
Með upplýsingastarfi, baráttufylking-
um, verkfalls- og baráttuaðgerðum er
málum komi fram og þjóðfélaginu
breytt. Samhæfandi og stýrandi afl er
eiginn stjórnmálaflokkur verkalýðs og
annarraralþýðu.
Helstu stefnuatriði baráttunnar nú
eru:
1. Að berjast- i orði og starfi gegn
báðum risaveldunum og allri er-
lendri ásælni.
2. Að verja sjálfræði Islands og auð-
lindir.
áratugina átt sér stað svo stórfelld
breyting á framleiðsluháttum land-
búnaðarins að ekki verður líkt við
annað en hreina ffamleiðslubyltingu.
Fjármagnsaukning hefur orðið gifur-
leg og framleiðniaukningin einnig.
Þetta hefur orsakað umframfram-
leiðslu og vandinn er sá að ekki hefur
tekizt að fmna markað fyrir þessa
framleiðslu. hvorki innanlands né
utan. nema með stórfelldum styrkjum
og niðurgreiðslum, svo nemur hálfri
þriðju milljón á hvern bónda í landinu.
Þetta er vandamálið og á þetta hefur
Alþýðuflokkurinn bent. Al-
þýðuflokkurinn hefur meira að
segja stutt þá stefnu, að fjár til niður-
greiðslanna yrði alls ekki aflað með
skattlagningu afurðanna innanlands,
sem þýddi bæði það að framfærsla
alþýðuheimilanna í landinu myndi
stórhækka og að innanlandssala á
landbúnaðarafurðum myndi stór-
minnka og þannig tekjur bænda
ennfrekar. Er þetta einhver óvinátta
við bændur? Þeir sem þannig álykta
hljóta að hafa eitthvað brenglað mat á
viðmiðun sinni. Sérstaklega ef þeir svo
á hinn bóginn hvetja bændur til
gegndarlausrar framleiðslu algjörlega
óháð því, hvort bændur fái nokkuð
fyrir alla þrældóminn. Nema þá það
helzt að greiða úr eigin vasa fyrir
umframframleiðsluna, svo að takist að
hálf- eða algefa hana úr landi.
Erfiði án launa
Alþýðuflokkurinn veit vel af því, að
margar landbúnaðarafurðir eru
mikilvægt hráefni fyrir islenzkan
iðnað og tryggja þannig fjölda manns
atvinnu. Hann veit einnig vel af þvi að
það er út i hött að telja sig hafa ábyrga
afstöðu i varnarmálum, en leggja svo
mögulegum andstæðingi vopnin í
hendurnar með þvi að leyfa honum að
svelta Islendinga til hlýðni, þegar
honum dytti i hug. Væri það að sjálf-
sögðu auðvelt ef ekki væri næg
innlend matvælaframleiðsla i landinu.
Alþýðuflokkurinn veit lika mjög vel af
þvi, að aukin áherzla á réttri
sölumennsku landbúnaðarafurða á er-
lendum mörkuðum hefur skilað
árangri og á eftir að skila enn betri
árangri. Þannig væri hægt að tiltaka
fjölda atriða. sem hvert um sig rétt-
lætti algjörlega nokkra umframfram-
leiðslu landbúnaðarafurða.
En það sem flokkurinn hlýtur að
frábiðja sér er, að þegar vandamálið er
kontið á það stig. að bændur eru ofur-
þrælkaðir án þess að hljóta nokkuð
3. Að snúa stéttarfélögunum til bar-
áttu með því að hreinsa þau smám
saman af áhrifum „vérkalýðs-
flokkanna” og stéttasamvinnunn-
ar, án nokkurra málamiðlana við
forystuna.
4. Að hafna samflotum i kjarasamn-
ingum, berjast nú fyrir nýjum
kjarasamningum og lágmarkslaun-
um sem samsvara a.m.k. 100 þús.
kr. kröfunni frá 1. febr. sl. auk
fullra verðbóta.
5. Að varðveita og bæta samnings- og
verkfallsréttinn.
6. Að mynda baráttuhreyfingu
kvenna sem hafnar stuðningi
Rauðsokkahreyfingarinnar við
falska „verkalýðsforingja” Al-
þýðubandalagsins, við sovéska
auðvaldið og rangri afstöðu Rsh.
til karla.
7. Að smiða fjöldahreyfingu náms-
manna gegn rikisvaldinu í kjara-
og hagsmunabaráttu þeirra.
I starfi — og þessum kosningum —
er þessi stefna borin fram af Einingar-
samtökum kommúnista (m-1) og
Verkalýðsblaðinu. Þeir sem leggja
vilja áherslu á utanþingsbaráttu, á
gagnsleysi flokkanna fimm og smá-
framboðanna taka mið af þessari
stefnu. Eina leiðin til að láta stuðning-
inn i ljós að þessu sinni er sá að fylgja
hvatningu EIK (m-1) og Verkalýðs-
blaðsins: SKILUM AUÐU AÐ
ÞESSU SINNI.
Þetta er réttmæt og h^iðarleg
hvatning.
Með eflingu EIK (m-l), fjöldabar-
áttunnar og stofnun nýs verkalýðs-
flokks munu baráttusinnar eignast
sinn valkost í kosningum.
Ari Trausti Guómundsson
Langholtsvegi 122.
Kjallarinn
GuðlaugurT. Karlsson
fyrir það, og einnig þegar Alþýðu-
flokkurinn bendir á það, að eiginlega
sé á þennan hátt verið að brjóta á þeim
grundvallarmannréttindi, — þá sé
hann á sama tíma kallaður and-
stæðingur bænda. Þeir angurgapar,
sem leyfa sér slíkan málflutning fara
með staðlausa stafi og ættu reyndar að
fá nokkra frumtamningu hjá
bændum.
Iðnaðurinn veitir
f lestum vinnu
Iðnaðurinn er sú atvinnugrein sem
veitir flestum íslendingum atvinnu.
Stefna Alþýðuflokksins hefur alltaf
verið sú að styðja íslenzkan iðnað.
Eigi iðnaðurinn að blómstra verður
hann þó að taka mið af því í verkefna-
vali sinu hvað sé hagkvæmt til fram-
leiðslu hér á landi og hvað sé hag-
kvæmt að flytja inn erlendis frá.
Takist iðnaðinum að styðjast við
verzlunina að þessu leyti og fram-
lciðslu sjávarútvegs og landbúnaðar
að hinu leytinu til fullvinnslu, mun
honum takast að veita öllum þeim
fjölda vinnufúsra handa, sem þurfa á
atvinnu að halda, þá atvinnu sem
iðnaðurinn einn getur veitt þeim. 1
raun er það þannig að vöxtur
þjóðarinnar byggist á iðnaði ogeflingu
hans. Iðnaðúrinn er nefnilega sú at-
vinnugrein. sem flestir hafa aðgang
að, tilútrásarfyrir starfsorku sína og
hæfileika. og staða hans í franrtiðinni
sker úr um það hvort hér verði næg at-
vinna og blómlegt þjóðlif eða at-
vinnuleysi og landflótti.
13
S-listinn og réttlætið
Stjórnmálaflokkurinn er ungur
flokkur, en við sem að honum stönd-
um erum fólk á öllum aldri, úr öllum
stéttum og af báðum kynjum. Við
stofnuðum nýjan flokk vegna mál-
efna, sem við viljum kynna og berjast
fyrir, — vegna málefna, sem gömlu
flokkarnir hafa ekki tekið inn á stefnu-
skrá sina, ekki viljað sinna, eða ekki
sinnt, þrátt fyrir hugsanlegan 'vilja til
þess. Barátta okkar er heiðarleg og
málstaður okkar er sannur.
Með þvi að stofna Stjórnmálaflokk-
inn berjumst við í verki fyrir málstað,
sem við viljum vinna brautargengi í ís-
lenzku þjóðlífi. Barátta okkar er hörð,
en málstaðurinn er nauðsynlegur fyrir
islenzka þjóð i dag, og þess vegna berj-
umst við.
Við þorum
Við þorðum að hefja máls á nauð-
synlegum sjónarmiðum fyrir íslenzka
þjóð. Við viljum stjórnarskrárbreyt-
ingu, en það er hugsjónarmál að vilja
aðskilja löggjafarvald og fram-
kvæmdavald.
Á íslandi vantar ekki dugmikið fólk
til starfa og þess vegna er rétt að opna
ráðherrastörf fyrir menn utan þingsog
velja hæfustu menn landsins, hvern á
sinu sviði, til að gegna störfum ráð-
herra. Sami maður á ekki að vera þing-
maður og ráðherra í senn.
Við viljum gjaldtöku af herstöðvum
Nato á Islandi. Það er réttlætismál, að
útlendingar á íslandi greiði íslending-
um gjald fyrir not af íslenzku landi og
þjónustu af hálfu isl. þjóðarinnar.
Íslendingar sjálfir fá ekkert ókeypis í
Kjallarinn
SteinunnÓlafsdóttir
eigin landi, og þvi skyldu þá útlending-
ar fá það? Við viljum afnema alla toll-
vernd og öll fríðindi til handa erlend-
um hermönnum á íslenzkri grund. All-
ar aðrar skoðanir í þessum málum eru
blekkingareintómar.
Við viljum gjörbreytingu á skatla-
fyrirkomulagi og auðvelda alla fram-
kvæmd í skattamálum þjóðarinnar.
Það er hagkvæmnismál, sem léttir
skattabyrði landsmanna. Við viljum
laun i samræmi við vinnu, reynslu og
þekkingu og afnám tekjuskatts af
launum. Við viljum að þegar fólk
hefur náð ellilifeyrisaldri, þá hætti það
að borga öll opinber gjöld nema eigna-
skatt af öðru en íbúðarhúsnæði, sem
það býrsjálft i.
Við, Stjórnmálaflokksmenn, erum
fólk, sem vill lifa sönnu og heiðarlegu
lifi og noturn þess vegna beztu úr-
ræðin. Allir, sem skilja sjónarmið okk-
ar og sem þora, kjósa S-listann í al-
þingiskosningunum. Við biðjum um
tækifæri til að vinna að baráttumálum
okkar.
Við berjumst
og sigrum
Við berjumst i verki fyrir framgangi
málefna okkar. Kaffihúsabarátta og
allt hjal um það, sem á að gera og það,
sem þarf að gera, eða það, sem aðrir
eiga að gera, — er ekki okkar still.
Við erum vinnusamt fólk og hug-
rakkt og leggjum út i baráttu fyrir
málefnum okkar og vinnum að fram-
gangi þeirra, þar setn uðrtr Iruia brugð-
izt. Barátta okkar er barátta þjóðar
fyrir hugsjónum og réttlæti.
Við sigrum, ef allir þeir. sem styðja
okkur i orði, styðja okkur einnig i
verki á kjördag. Við munum standa
við orðokkar.
Kjósandi, notaði atkvæði þitt og
mættu á kjörstað á kjördag þvi það er
þýðingarmikið. Ef þú er sammála
sjónarmiðum Stjórnmálaflokksins, þá
greiddu honum atkvæði þitt. Hvert
einasta atkvæði skiptir máli.
í kjörklefanum eru menn frjálsir,
þar á skoðun og sannfæring einstakl-
ingsins að ráða.
Steinunn Ólafsdóttir
félagsmálafulltrúi.
Frjálshyggja
í viðskiptum
Verzlunin verður að vera frjáls.
Ekkert er jafn andstætt hagsmunum
fjöldans eins og einokun. Frjáls
verzlun veitir einnig hagkvæmni fram-
leiðsluhátta til allra og stuðlar þannig
að velmegun og hagsæld. Jafnaðar-
menn hafa stundum verið gagnrýndir
fyrir það að vilja hafa eftirlit með
verzluninni. Þetta er byggt á mis-
skilningi. Það eftirlit sem jafnaðar-
menn vilja hafa er einungis
leiðréttandi, vegna þess að
markaðsupplýsingar eru oftast ófull-
komnar. Að það sé stefna.
jafnaðarmanna að segja einum eða
öðrum fyrir um það hvernig hann eigi
að haga kaupum sínum og
viðskiptum er hreinn misskilningur.
Markviss beiting
ríkisvaldsins
Opinber þjónusta skipar mikinn sess
hjá jafnaðarmönnum. Félagshyggja i
stjórnmálum þýðir nefnilega það, að
heildarsamtökum fólksins i landinu.
ríkisvaldinu. sé beitt markvisst i þágu
fólksins. en sé ekki eins og afdankað
fimmta hjól undir vagni. Þess vegna
vill Alþýðuflokkurinn að viss þjónusta
sé i höndum rikisins. Hugsið ykkur
jafn fámenna þjóð sem íslendinga
með einkarekstur á pósti og sima, raf-
magnsveitum eða vegagerðinni svo
eitthvað sé nefnt. Hugsið ykkur einnig
öryggið af almannatryggingakerfinu.
heilbrigðisþjónustunni og réttlæti hins
opinbera menntakerfis, þar sem reynt
er eins og framast er unnt að skapa
jafnrétti til náms og þroska án tillits til
efnahags eða persónutengsla. Á
engum staðeruhugsjónaspor jafnaðar-
stefnunnar stærri en einmitt í þessum
málaflokki og hvergi hægt með meiri
rétti að segja að nútíma þjóðfélag sé
þjóðfélag jafnaðarstefnunnar, hvort
sem menn vilja viðurkenna það eða
ekki.
Athyglinni beint
að Suðurlandi
Sunnlendingar eiga nú eins og aðrir
landsmenn að kjósa sér menn á þing.
1 upphafi þessara orða minnti ég á,
þegar Jónas Hallgrímsson spurot
Íslandsvininn Pál Gaimard hvort
honum hefði ekki þótt landið fríða
yfirbragðsmikið að sjá af Heklutindi.
Jónas valdi Suðurland til að sýna yfir-
bragðið, hvergi eru andstæðurnar
meiri, hvergi er blómi landsins meiri
og hvergi er hinn eyðandi máttur, eld-
urinn, nærblíðum reit.
Alþýðuflokkurinn býður nú fram
mann. sem gjörþekkir hina hörðu
baráttu Sunnlendinga við eldinn. Í
einu vetfangi varð byggðalag hans,
Vestmannaeyjar, vettvangur hinnar
ægilegustu eyðileggingar. En barátta
gegn eyðileggingunni var hafin og allir
viðurkenna nú að engum einum
manni var björgun Vestmannaeyja
eins mikið að þakka eins og Magnúsi
H. Magnússvni. Þetta eiga
Sunnlendingar að muna og veita
verðskuldaða viðurkenningu þann 25.
j’úní. Magnús hefur einnig starfað
lengi i Alþýðuflokknum og gjörþekkir
þvi flokkinn og þá stefnu, sem hann
berst fyrir, jafnaðarstefnuna.
--------------
Magnús á þing
Ég hef nú reynt að lýsa nokkuð helztu
viðhorfum jafnaðarmanna til þeirra
vandamála sem efst eru á baugi með
þjóð vorri. Ég vona að niðurstaða les-
andans sé sú. að jafnaðarstefnan sé
farsælust fyrir Suðurland sem og
landið allt. Litið nú viðsýnt á málin frá
Heklutindi hám. Þegar
Alþýðuflokkurinn býður á Suðurlandi
fram mann. sem ereinlægur jafnaðar-
maður. sem bæði gjörþekkir stjóm-
sýsluna gegnum störf sin sem bæjar-
stjóri i Vestmannaeyjum og sem
stöðvarstjóri viðamestu stöðvar Pósts
og sima og sem þar að auki hefur
tekizt á við.þá ægilegustu ógn sem yfir
landið getur dunið og sigrað. þá getur
val sunnlenzkra kjósenda ekki verið
erfitt. Valið er Alþýðullokkurinn, X-
A.
Guðlaugur Tryggvi Karlsson,
hagfræðingur.
KOSNINGAGETRAUN
RAUÐA KROSSINS
SvavarGests,
SG hljómplötur
Reykjavík.
ÉG SPÁI:
Fjöldi þingmanna er verður
Alþyöubandalag 11 (o
Alþýöuflokkur 5 ?
Framsóknarflokkur 17 /9
Samtök frjálsl. og vinstri manna 2
Sjálfstæðisflokkur 25 £3
Aörir flokkar og utanflokka 0 0
Samtals 60 <oO
Svona einfalt er að vera með. Klippið þessa
spá út og berið saman við aðrar sem birtast.
ALLIR MEÐ!
+
RAUÐIKROSS (SLANDS
HJÁLPARSJÓÐUR