Dagblaðið - 21.06.1978, Blaðsíða 28
DAGBLAÐIÐ. MIÐVIKUDAGUR 21. JÚNÍ 1978.
r
Spurning
dagsins
Hvernig teljið þér að
úrslitin verði í Suður-
landskjördæmi?
(Fólk i kjördæminu spurt).
Daniel Hafliðason, Búð 11. Þykkvabæ.
Alþýðuflokkurinn vinnur mann af Sjálf-
stæðisflokknum.
Erlingur Ólafsson, Hvolsvelli. Ég held,
að skipting þingsæta í kjördæminu verði
óbreytt. Trúlega reytir Magnús (A) eitt-
hvað af Sjálfstæðisflokknum.
Bjarni Helgason, Hvolsvelli. Ég spái
ekki neinum breytingum á þingsætum.
Vinstri flokkarnir bæta einhverju við
sig. Erfitt er að spá um fylgi óháðra.
Margrét Bjórgvinsdóttir, Hvolsvelli. Ég
geri ekki ráð fyrir breytingum á þing-;
sætum.
Helgi Valmundsson, Hellu. Ég trúi ekki
á að Alþýðuflokkurinn vinni hér þing
sæti. Alþýðubandalagið gæti bætt við
sig fylgi.
Kristófer Þorvarðarson, Hveragerði.
Alþýðubandalagið vinnur sæti af Sjálf
stæðisflokknum og fær tvo þingmenn.
-
DB á framboðsfundi á Suðurlandi:
„Suðurland hefur
engan þingmann
átt nema
Ingólf á Hellu”
Hefur Magnús H. Magnússon (A)
misst geislabauginn niður um sig. eða
gæti hann farið í föt Ingólfs á Hellu?
Hversu rökrétt er sú landbúnaðar-
stefna Alþýðubandalagsins að menn
eti sig frá vandanum i landbúnaði með
því að „éta meira két"? Þessar
spurningar voru efst á baugi á fram-
boðsfundi allra lista í Suðurlandskjör-
dæmi. sem DB vitjaði á Hvolsvelli
siðastliðinn fimmtudag.
Nú er sagt að frambjóðendur flytji
mest sömu ræðuna á öllum framboðs-
fundum i sérhverju kjördæmi svo að
nóg ætti að vera að lita á einn slíkan.
Þessi fundur var í hjarta sveita-
menningarinnar og bar þess merki.
Frambjóðendur óháða L-listans fengu
manna mest klapp fyrir hatrammar
árásir á Alþýðuflokkjnn og aðra
„óvini bænda". Krötum var ekki sama
um þessi læti. Þeir óttast að óháði
listinn hirði það fylgi sem yfirgefur
stjórnarflokkana, það fari þvi ekki til
Alþýðuflokksins.
Illafarið
með Steinþór?
Ingólfur Jónsson fyrrum ráðherra
sveif yfir vötnunum á fundinum. Því
var skotið fram að Suðurland hefði i
raun engan annan þingmann átt um
áratuga skeið. Eggert Haukdal, efsti
maður D-listans, hóf talið um Ingólf
og sagði að Ingólfur hefði verið búinn
að tryggja fjármagnið til varanlegs
vegar að Selfossi áður en viðreisnar-
stjórnin fór frá. Því þýddi ekki fyrir
Framsóknarþingmanninn Jón Helga-
son að þakka vinstri stjórninni þennan
veg. Gunnar Guðmundsson, efsti
maður Óháðra, lét þess lika getið að
þetta væri allt Ingólfi að þakka. Einn
andstæðingur sjálfstæðismanna sagði
að víst væri það skaði að Ingólfur væri
ekki lengur i framboði.
En vandræði eru með arf Ingólfs.
Andrés Sigmundsson, efsti maður
Samtakanna, sagði að toppmennirnir
á D-listanum, Eggert Haukdal og
Guðmundur Karlsson hefðu bolað
„gömlum manni”, þingmanninum
Steinþóri Gestssyni, niður í 3. sætið á
listanum þvi að þeir þyrðu ekki að sitja
i þvi sæti af ótta við að detta. Gunnar
Guðmundsson sagði að þeir félagar
færu svo illa meðSteinþór. Þeir töluðu
á undan honum á framboðsfundunum
og væru svo langorðir að hann fengi
nánast engan tíma. Steinþór náði á
fundinum á Hvolsvelli sjö og hálfri
minútu.
Enginn krati á
Rangárvöllum?
Þótt í sveit væri, ræddu fram-
bjóðendur gjarnan um, hvort efsti
maður A-listans, Magnús H.
Magnússon fyrrum bæjarstjóri í Eyj-
um, ætti einhverja von um þingsæti.
Það var Garðar Sigurðsson, Vest-
mannaeyingur og þingmaður
Alþýðubandalagsins sem sagði að
Magnús hefði nú „misst geislabauginn
niður um sig”. Hann hefði tapað
miklu I siðustu bæjarstjórnar
kosningum. DB ræddi litillega við
Guðmund Karlsson, þingmannsefni
sjálfstæðismanna, og spurði um
möguleika Magnúsar. „Hann yrði þá
að taka fylgið hér,” sagði Guðmundur
um Rangárvallasýslu, nokkuð
spotzkur að vonum. En Gunnar
Guðmundsson gat þess, að hann vissi
ekki um Alþýðuflokksmann i allri
Rangárvallasýslu ef undan væru skilin
nánustu skyldmenni Magnúsar. Hann
sagði Magnús enga möguleika hafa á
að komast inn og lýsti yfir að óháðir
væru að keppa við Alþýðuflokkinn
um fylgi. Eftir því yrði tekið um land
allt hvor listinn fengi meira á
Suðurlandi.
Þessu fögnuðu áheyrendur innilega.
Samtökin fengu einnig nokkuð
góðar undirtektir fundarmanna. Sig-
mundur Stefánsson fullyrti að Sam-
tökin fengju örugglega kjördæmis-
kjörinn mann i Reykjavik.
Magnús H. Magnússon sagði að
litið væri að marka, þótt
Alþýðuflokkurinn hefði tapað fylgi i
Eyjum i nýliðnum bæjarstjórnar-
kosningum. í kosningunum þar áður
Hefur Gunnar Guðmundsson áhuga á
afnámi þingræðis og kosningasigri
Gróu á Leiti?
Garðar hefur útbýtt bæklingnum Alþýðubandalagið og hagsmunamál bænda, en
ekki vitum við, hvort hann er að hvetja félaga sína til að borða meira.
hefði flokkurinn jafnvel fengið
stuðning forystumanna annarra
flokka sem hefðu talið sig vera að
þakka gott starf i gosinu. Fyrir utan
þær kosningar hefði
Alþýðuflokkurinn aldrei haft jafn-
mikið fylgi í Eyjum og nú. Magnús
varaði sérstaklega við Samtökunum.
Hann varð fyrir þungum skotum.
Skúli Ágústsson, frambjóðandi
óháðra, gerði lítið úr hinum „nýja”
Alþýðuflokki, „nýr flokkur á gömlum
grunni” og spurði hverjum mundi
detta í hug að byggja nýtt hús á
ónýtum grunni.
Gunnar Guðmundsson sagði
sömuleiðis um Alþýðuflokkinn að
svartur hrafn yrði ekki hvítur, þótt
hann væri þveginn.
Iðjuleysið að
drepa fólk
„Kyrrstaðan og iðjuleysið er að
drepa fólk en ekki hollar og næringar-
ríkar búvörur,” sagði skörungurinn
Gunnar Guðmundsson. „Allir stjóm-
málaflokkar hafa lýst yfir fylgi við
landbúnaðinn nema Alþýðuflokk-
urinn,” sagði hann ennfremur.
„Bændur eru kjarni allra þjóða."
Ágúst Einarsson (A) sagði að Alþýðu-
bandalagið vildi láta fólk borða meira
og þá væri vandi landbúnaðarins leyst-
ur. Baldur Óskarsson, Alþýðubanda-
Er geislabaugur yfir Magnúsi? Hér er hann við borð krata með meðframbjóðendum sinum á A-lista, Hreini Erlendssyni
. og Helga Hermannssyni.
Kosningaúrslit í 1963 1967 1971 1974
Suðurlandskjördæmi atkv. % atkv. % atkv. % atkv. %
Alþýðuflokkur 760( 9,4) 754( 8,9) 739( 8.0) 568( 6,0)
Framsóknarfl. 2999(36,9) 3057(35,9) 3052(32,9) 3213(33,8)
Sjálfstæðisfl. 3402(41,9) 3578(42,0) 3601(38,9) 4057(42.7)
Alþýðubandalag 955(11,8) 1123(13,2) 1392(15,0) 1369(14,4)
Samtökin 305( 3,3) 299( 3,1)