Dagblaðið - 14.08.1978, Qupperneq 3
DAGBLAÐIÐ. MÁNUDAGUR 14. ÁGÚST 1978.
3
Mönnum blöskrar Grundartangaævintýrið:
MA FARA FRAM A AÐ
ÓHÆFAN SÉ ÚTSKÝRD?
Stefán Sigurðsson lögfræðingur á
Akranesi hafði simasamband við
biaðið og sagði m.a.:
„Hingað til Akraness hafa að
undanförnu komið skip eftir skip sem
öll hafa verið undarlega létt á sjó. í
ljós hefur komið að farmur þeirra eru
einhvers konar málmgrindur, mjög
gisnar og líkjast einna mest einhvers
konar húsgrindum.
Kæmi þessi varningur ósamsettur
hefði eitt skip nægt fyrir alla skips-
farmana. Hefur það og flogið fyrir að
skipstjórar kvarti yfir þessum létta
flutningi jafnvel þó ballest sé í lestum
skipanna.
Þessir flutningar milli landa á sam-
settum grindum kosta Íslendinga tugi
ef ekki hundruð milljóna. Mér er því
spurn. Hvar er framkvæmdastjórn
Grundartangaverksmiðjunnar?
Hér á landi eru fyrir hendi fagmenn
á öllum sviðum, hvort sem skrúfa á
þessar grindur saman eða sjóða þær
Langirtveir
kflómetrar á
Vesturlands-
saman. Ofan á þessa einstæðu skipa-
flutninga koma svo hingað til Akra-
ness stórir og rándýrir flutninga-
vagnar með langa vagna i eftirdragi.
Fisléttum grindunum er staflað á
vagnana og ekið er inn að verksmiðju-
byggingunum til staðarins þar sem
samsetning grindanna ætti að fara
fram.
Framkvæmd þessara hluta er
nánast óhæfa og milljónatugum er
kastaðáglæ.
Mætti fara fram á svo litið að
forráðamenn Grundartangaverk-
smiðjunnar útskýrðu óhæfuna?”
Raddir
lesenda
^ Jámblendiverksmiðjan á Grundartanga.
Vegl _
| Borgames
13/
j Akureyri •— Egilsstaðir ~442 718
Selfoss 50
— Vík 185
Hófn 470
K Eqilsstaðir 698
1 Árbæjarbrekku.
í □ Borgarnes 135 isafjöróur 547
í [I Akureyri 439 Egilsstadir 715
Rétt fyrir ofan Úlfarsárbríi.
0317—3852 skrifar
Þær eru stundum dálítið undarlegar
km-merkingar Vegagerðarinnar, eða
þeirra sem setja upp skilti meðfram
þjóðvegunum um vegalengd til hinna
ýmsu staða.
í Árbæjarbrekkunni er stórt skilti
þar sem stendur skýrum stöfum að
þaðan séu 137 km í Borgarnes (þann
mikla stað sem getið er um á öllum
aðalvegaskiltum Suðvestanlands) Rétt
fyrir ofan brúna á Úlfarsá er annað
skilti þar sem stendur að nú séu 135
km í Borgarnes!
Ég reyndi að mæla þessa vegalengd
einn daginn og taldist að þetta væru
a.m.k. 4 km, ef ekki meira. í það
minnsta eru þetta ekki neinir tveir
km! Þetta kemur svo sem ekkert að
sök en manni finnst þetta alveg óþarfa
ónákvæmni i mælingu á
vegalengdum.
Borgnesingar eru liklega þeir, sem
sízt af öllu gætu villzt á leiðinni heim
til sín! —
MARGIR MALDA AÐ
LIÁTALARAR
SELJ AÐCINS LYRIR
ATVINNUMENN
• ••
en auðvitað geta allir þeir sem vilja vandaða og nákvæma hátalara,
notið þess að hlusta á AR hátalara í stofunni heima hjá sér.
Það eru góð meðmæli að atvinnumenn eins og Judi Collins, Miles
Davis og Herbert von Karajan skuli velja sér AR til einkanota, því þeir
vilja aðeins það besta, hin þjálfaða heyrn þeirra krefst þess.
AR hátalarar eru á góðu verði - gæðin getur þú verið viss um -
VELJIÐ AR HÁTALARA. tekking
feynsla
fyonust
FALKIN N
SUÐURLANDSBRAUT 8, SÍMI 84670
SENDUM
BÆKLINGA
Spurning
dagsins
Hvort finnst þér
betra að verzla í
stórmörkuðum eða
hjá kaupmanninum
á horninu?
(Spurt i stórmarkaði i Rvik).
Gunnar Kristinsson vinnur hjá hitaveit-
unni: Ég er nú ekki vanur að kaupa inn
til heimilisins, ég var bara sendur í dag.
Það er mjög gott að kaupa hreinlætis- og
nýlenduvörur hérna en kaupa svo kjöt í
búðinni á horninu.
Árni Sigurðsson húsasmiður: Það er
mjög þægilegt að verzla í stórmarkaði
eins og þessum og það geri ég oft. En
kaupmaðurinn á horninu stendur alltaf
fyrir sínu.
Hera Hjálmarsdóttir lyfjafrxðingur:
Betra í stórmörkuðum. Þá getur maður
keypt allt í einu.
Kristln Haraldsdóttir húsmóðir: 1 stór-
mörkuðunum. Það er þægilegra að
verzla þar og meira úrval.
Málfriður Jónsdóttir húsmóðir: Mér
finnst mjög gott að verzla í stórmörkuð-
um. Ætli kaupmaðurinn á hominu sé
nokkuð betri.
Hilmar Björnsson kennari: Það fer eftir
ýmsu. Það er miklu félagslegra og
huggulegra að verzla hjá kaupmannin-
um á horninu en ódýrara að verzla i
stórmörkuðunum.