Dagblaðið - 14.08.1978, Qupperneq 6
6
DAGBLAÐIÐ. MÁNUDAGUR 14. ÁGÚST 1978.
Þúsundir sóttu landbúnaðar-
sýninguna um helgina
— stanslaus straumur bifreiða
milli Reykjavíkur og Selfoss
„Við erum mjög ánægðir með að-
sóknina,” sögðu formælendur Land-
búnaðarsýningarinnar á Selfossi, Kjart-
an Ólafsson framkvæmdastjóri og
Sigurður Jónsson blaðafulltrúi, i samtali
við blaðamenn DB á Selfossi í gærdag.
Utungarvélin vakti mikla athygli sýningargesta og ekki sizt barnanna.
m, r« 4
Geysilegt fjölmenni hefur sótt sýning-
una hvaðanæva að. Flestir hafa komið
frá Reykjavík og alla helgina hefur verið
stanzlaus straumur fólksbifreiða á milli
höfuðborgarinnar og Selfoss.
Meðal dagskráratriða um helgina má
nefna nautgripa- og hestasýningu. Þá
var sýnikennsla á vegum afurðadeildar
landbúnaðarins, tízkusýningar, kvik-
myndasýningar, sýning á landgræðslu-
vélinni o.fl.
í dag verður sérstök heimilisiðnaðar-
sýning, en auk þess verða fastir liðir eins
og tizkusýningar, sýnikennsla, kvik-
myndiro.fi.
Landbúnaðarsýningin er haldin í til-
efni af 70 ára afmæli Búnaðarsambands;
Suðurlands, en það var stofnað 6. júlí
1908. Fyrir tuttugu árum stóð búnaðar-
sambandið fyrir annarri landbúnaðar-
sýningu á starfssvæði og I húsakynnum
Sláturfélags Suðurlands á Selfossi. Þótti
hún heppnast mjög vel og var ágætlega
sótt. Kvikmynd í lit var tekin af þeirri
sýningu og er hún sýnd á sýningunni
núna.
Landbúnaðarsýningin er opin virka
daga frá kl. 14—23 og um helgar frá
10—23. Henni lýkur 20. ágúst.
Aðgangur fyrir fullorðna er 1500 kr„
fyrir börn á aldrinum 7—12 ára eru.það
800 kr. og ókeypis fyrir yngri aldurs-
flokka. GM/GAJ
Á vegum Laxeldisstöðvar rikisins i
Kollafirði eru sýnd laxaseiði á útisvæði
Landbúnaðarsýningarinnar.
Svinarækt hefur aukizt mjög hér á landi nokkur undanfarin ár, þar sem eftirspurn
cftir svinakjöti hefur farið mjög vaxandi. Talið er að I landinu séu nú um 1200 gyltur
en slikur stofnfjöldi á að geta gefið af sér allt að 19—20 þúsund grisi á ári. Þess má
geta til gamans að svín eru talin vera með tiu greindustu skepnum jarðarinnar og þeir
sem til þekkja segja að þau séu mjög þrifin, öfugt við það sem margir halda.
Þessa f yrirsögn er að f inna í DB á bls.... í dag:
Enginn kotbúskapur í Koti
Klippið miðann út og geymið þar til
allir tlu hafa birzt.
Það er ckki amalegt að koma heim í
sumarlokin sólbakaður úr griskri
sumarsól.
Dagblaðsins
/ dug hiildum við áfram Sumarget-
rauninni okkar. Galdurinn erfólninn I
þvi aó fínna fyrirsögn á einni af sióum
hlaðsins, skrifa blaósíóunámerið niöur
or safnd seöiunum. Þeim á aó skila
þenar 10 eru komnir i blaðinu.
Grikklandsferó fyrir tvo i septemher
nk. eru verölaunin. Fariö verður meö
feröaskrifstofunni Sunnu til Glyfada-
strandarinnar, þar sem Onassis fjöl-
skyldan á sér sumaraösetur og þaö
hlasir reyndar viö út um yiugyu hótels-
in s. ,
Þá veröur haldió I skemmtisiglingu
á skemmtiferöaskipinu La Perla.
Ferðalög Islendinga til Grikklands
hafa stóraukizt í sumar og I fyrra-
sumar, enda eru þeir margir sem eru
forvitnir aö þekkja meira til þessa
lands. Hafa menn komiö þaöan mjög
ánægöir, og ekki er aó efa að sigurveg-
arinn I Sumargetrauninni mun koma
með góðar minningar frá Grikklandi.