Dagblaðið - 14.08.1978, Side 13
DAGBLAÐIÐ. MÁNUDAGUR 14. ÁGÚST 1978.
stæðinga sem beri að afhjúpa og berj-
ast ötullega gegn. Á tslandi gegnir
Fylkingin bandamannshlutverkinu,
en einnig eru hér nokkrir einstaklingar
svarnir Brésjnefs-vinir. Ég hirði ekki
um að nefna nöfn að þessu sinni, en
bið lesendur um að ihuga þessa stað-
hæfingu og líta í kringum sig. Þetta
fólk lætur minna yfir sér en Fylkingar-
liðið. Það hefur hreiðrað um sig í Al-
þýðubandalaginu, Samtökum her-
stöðvaandstæðinga, Kúbuvinafélag-
inu, „Menningar- og friðarsamtökum
ísl. kvenna”, Menningartengslum
tslands og Ráðstjórnarríkjanna og
víðar. Margir úr hópnum þekkja svo-
kallaða „vinstri-hreyfingu” út og inn
og eiga hægt með að láta rétt nöfn og
aðrar upplýsingar lenda á réttum
stöðum. Með vaxandi meðvitund um
eðli Sovétríkjanna á tslandi er Kreml-
verjum þörf á að fá sem gleggstar upp-
lýsingar um þá sem starfa ötult í and-
heimsvaldastarfi, marx-leníniskri
hreyfingu o.s.frv. „Þeirra fólk” í land-
inu okkar vinnur samviskusamlega.
Svo mikið veit ég.
Tilvitnanir
í tékkneska
útlaga
Nóg um „Heimsmótið” og banda-
mannasögu í bili, en stöldrum aðeins
við í Tékkóslóvakíu. 21. ágúst nálgast,
dagur innrásarinnar 1968. t ár eru
liðin 10 ár frá þessum atburði, sem
opnaði augu fjölmargra fyrir þvi hvert
Sovétríkin stefndu. Fyrst, örstutt til-
vitnun í viðtal i norska dagblaðinu
Klassekampen 8. júlí. Þar svarar
tékkneski útlaginn Josef Pausura
spurningunni um það hvernig and-
heimsvaldasinnar geti best nýtt 21.
ágúst til að tjá samstöðu sina með kúg-
aðri alþýðu Tékkóslóvakiu:
„Mikilvægast er að nota daginn til
að segja sannleikann um Sovétrikin og
Tékkóslóvakíu. Við viljum segja fólki í
Noregi og öðrum löndum þetta:
Tékkóslóvakia er i dag ekki sjálfstætt
ríki. Landið er fórn á altari nútíma ný-
lendustefnu, eins og Sovétrikin stunda
hana. Rússarnir ákveða allt; hvað við
framleiðum, hvað við kaupum og
seljum, utanríkisstefnu okkar, innan-
rikisstefnu okkar, hvað við eigum að
hugsa og segja. Sovétríkin hernámu
landið okkar til að ná fullum yfir-
ráðum þar. Þau arðræna okkur, og
hafa ekki efni á því að sleppa okkur,
hvorki efnahagslega né pólitískt. Þess
vegna er aðalatriði fyrir alþýðu Tékkó-
slóvakíu að losna við kverkatak Sovét-
rikjanna, siðan getur hún ákveðið
hvers konar stjórnkerfi hún vilji fá þar
áeftir.”
Fáir verja innrásina og hersetuna í
Tékkóslóvakiu, en vissulega eru þeir
til. Fleiri og fleiri fordæma hvoru
tveggja, en allmargir álíta Tékkó-
slóvakíu-málið „slys”, „yfirsjón” eða
„pínulitið glappaskot” sósíalísks rikis.
Allar eru þessar hugmyndir rangar.
Hér er á ferðum gráðug og stórtæk
heimsvaldastefna voldugs risaveldis
sem stjórnast af lögmálum auðmagns
og gróðasóknar. Sovétrikin, fyrsta
sósíaliska ríki veraldar, hefur skipt um
lit. Leiðtogar Alþýðulýðveldisins Kina
hafa ætíð fylgst með þróun Sovétríkj-
anna og greint hana. 23. ágúst 1968,
tveimur dögum eftir innrásina í
Tékkóslóvakíu, hélt Sjú En-læ, þáver-
andi forsætisráðherra Kina, ræðu í til-
efni af þjóðhátiðardegi Rúmeníu. Þar
fordæmdi hann innrásina harðlega og
lýsti yfir fullri samstöðu Kínverja með
þjóðum Tékkóslóvakíu. Vert er að
draga fram aðra tilvitnun úr norska
dagblaðinu Klassekampen i beinu
framhaldi af framansögðu. Hér er það
Jiri Pelikan, tékkneskur útlagi á ttaliu
sem talar. Pelikan var yfirmaður
tékkneska sjónvarpsins 1964—68.
Valinn í miðstjórn „Kommúnista-
flokksins” eftir innrásina, en rekinn úr
flokknum skömmu síðar og flúði
heimaland sitt. Hann segir m.a.:
„Ég tel Kína vera eina landið sem
hefur degið fullkomlega réttar álykt-
anir af sovésku innrásinni. Þeir (þ.e.
Kínverjar) hafa lika átt i hugmynda-
fræðideilum við Sovétleiðtogana, og
þeir hafa skilið að slik átök geta leitt til
vopnaðrar árásar á Kina. í ljósi þess
hafa þeir gripið til allra hugsanlegra
ráða til varnar landi slnu. Og kenning
Maós Tsetungs um þrjá heima er rétt,
af þvi þar er útfærð samfylking allra
landa sem berjast gegn sovéskri og
bandarískri yfirráðastefnu.”
„Afrekaskráin"
„Afrekaskrá” bandarísku heims-
valdastefnunnar síðustu áratugi er
löng og ljót. „Afrekaskrá” sovésku
heimsvaldastefnunnar á alþjóðavett-
vangi er Uka orðin skrautleg. Hún
lengist nær daglega, enda risaveldið
ferskt, þróttmikið og risandi. Látum
okkur líta á örfá dæmi:
— Sovétríkin stuðluðu að blóðugri
borgarastyrjöld í Angóla með hjálp
Kúbumanna. Hundruð þúsunda
13
Angólabúa létu lífið. t dag er skæru-
hernaður í fullum gangi gegn
MPLA-leppstjórn Brésjnefs og hún
mun fyrr en síðar falla og angólskt al-
þýðulýðveldi rísa.
— Sovétrikin gerðust stoð og stytta
Mengistu-klikunnar i Eþíópiu, Sovét-
rikin og Kúba ráku Sómaliu burt úr
Ogaden-héraðinu og búa sig nú undir
að drekkja í blóði hetjulegri frelsisbar-
áttu þjóðar Eritreu í bandalagi við
Eþiópiu, Kúbu og Suður-Jemen.
— Sovétríkin hafa náð undirtökum
í Víetnam og stefna að því að gera
þetta land með stoltar baráttuhefðir
að nýrri „Kúbu” í Asiu. Vletnam
hefur enda hafið grimma útþenslu-
stefnu í Indókína og m.a. ráðist inn i
grannrikið Kampútseu (Kambódiu).
— Sovétríkin studdu valdarán i
Afganistan á dögunum.
— Sovétríkin eru með linnulausa
yfirgangsstefnu og ögranir gagnvart
Noregi, í Barentshafi, á Svalbarða og i
fiskveiðilögsögunni. Gagnvart Noregi,
Svíþjóð, Finnlandi og fleiri rikjum
reyna Sovétrikin að neyta aflsmunar
við að ná undir sig sem mestu haf-
svæði og brjóta gróflega gegn Genfar-
sáttmálanum frá 1958, sem þau skrif-
uðu undir (sáttmálinn kveður á um að
landgrunni skuli skipt milli rikja eftir
einfaldri miðlínureglu).
— Heima fyrir i Sovétríkjunum
ríkir ógnaröld, fasisk undirokun,
skerðing mannréttinda og hervæðing.
Dómar og réttarhöld yfir þeim
Aleksandr Ginsburg, Viktorias Petkus
og Anatolij Sjtsjaranskij bera vitni um
hinar skipulögðu ofsóknir gegn öllum
þeim sem opna munninn gegn brjál-
æði fasismans.
Kjallarinn
Atli Rúnar
Halldórsson
— Á Hafréttarráðstefnunni í Cara-
cas 1974 héldust risaveldin tvö,
Bandarikin og Sovétríkin, í hendur og
vildu neita smáum og meðalstórum
ríkjum um rétt til að nýta náttúruauð-
lindir við strendur sínar, án erlendrar
ihlutunar.
— Sovétrikin greiddu auk þess at-
kvæði með fordæmingu á útfærslu
fiskveiðilögsögu Islands við svokall-
aðan „alþjóðadómstól” í Haag.
Hér skal látið staðar numið að sinni.
Þannig lítur út flagðið sem sveipar um
sig fögru skinni „friðar og slökunar
spennu” í heiminum. Þannig hljóðar
sannleikurinn um Sovétriki nútímans.
Atli Rúnar Halldórsson
Jarðbrú, Svarfaðardal.
FORINGIAUD ALÞYÐUBANDA-
LAGSINS - SAMHERJAR BRÉSNEFFS
Sigurður E. Guðmundsson fram-
kvæmdastjóri ritar kjallaragrein i Dag-
blaðið 26.7 um Lúðvik Jósepsson og
réttarhöldin austantjalds. Ég er
Sigurði sammála um að fordæma
verður og berjast gegn aðförum nýju
keisaranna i Kreml að pólitískum
andófsmönnum. Sigurður gerir að
umtalsefni þögn forystu Alþýðu-
bandalagsins um þessi mál og einkum
nú siðast þegar Ginsburg og
Scharansky voru dæmdir. Ekki ætla
ég að svara fyrir þetta auma lið
forystu Alþýðubandalagsins, en hins
vegar benda á nokkur atriði sem e.t.v.
gætu skýrt málið nokkuð.
Iðja Morgun-
blaðsins
Það er orðið æði langt síðan Lúðvik
Jósepsson og foringjahjörðin hans
gerðu tilraunir til aðstanda undirnafn-
bótinni „kommúnisti”. Sú nafnbót
hangir við þetta lið fyrst og fremst
vegna duglegrar iðju Morgunblaðsins
og viðlika málgagna og gengur
Sigurður sömu erinda. Hann færi
vissulega í geitarhús að leita ullar ef
hann ætlaði í liðið hans Lúðvíks að
leita sósíalisma. Þetta hafa margir
sovézkir andófsmenn séð, en hjá þeim
heitir foringinn ekki Lúðvík heldur
Brésneff. Það er sagt og sannreynt að
kúgun aflar andstöðu. Þjóðir Sovét-
rlkjanna eru kúgaðar af fasisku rlkis-
valdi, sem bælir alla andstöðu óvægt
niður. En eins og við þekkjum úr
sögunni þá brýst andstaðan gegn
fasismanum ekki fyrst út í fjöldahreyf-
ingu heldur einstaklingum eða litlum
hópum andstöðufólks. Svo er einnig I
Sovétrikjunum. Til eru þó allmörg
dæmi um að tugir og jafnvel
hundruð þúsunda manna hafi tekið
þátt i mótmælagöngum á götum úti,
m.a. i Kief og á nokkrum stöðum í
Georgíu. Frá þessum mótmælum er
litið sagt i Islenzkum fjölmiðlum, þó
svo að þær beinist gegn sama óvini og
andstaða þeirra Ginsburg og
Scharansky. Borgarablöð eru sífellt
hrædd við fjöldann þegar hann fer á
hreyfingu og er þá bezt að þegja.
Lúðvik Jósefsson mótmælir ekki
fasismanum í Sovétríkjunum vegna
þess að hann er samherji Brésneffs.
Kjallarinn
Albert Einarsson
Lúðvík og hans foringjalið segir Sovét-
rikin vera X „sósfaUsk.”
Það er enginn
sósíalismi í
Sovétrikjunum
Sósíalisminn er hugmyndafræði og
samfélagsskipulag undirokaðra stétta,
verkalýðsstéttarinnar og vinnandi
alþýðu. Það fylgir að undirokaðar
stéttir nota ekki sósíalismann til að
undiroka alþýðuna, né heldur til að
senda hermenn og stríðstól út um
allan heim. Við skulum líka veita þvi
athygli að Sovétríkin hófu fyrst að
senda hermenn, flota og flugher til
annarra heimsálfa, eftir að Krúsjeff og
klíka hans rændi völdunum I Sovét-
ríkjunum. Með þessu valdaráni var
skipulaginu breytt og auðvaldsskipu-
lagi komið á fót á nýjan leik i Sovét-
ríkjunum. Það er að senda herlið til
annarra landa til að kúga og arðræna i
nafni sósíalisma, kallaði einn af frum-
kvöðlum marxismans, sósíalheims-
valdastefnu, þ.e. sósíalisma í orði en
heimsvaldastefnu í verki. Þessi maður
var Lenin, sá sem stofnaði
Kommúnistaflokk Sovétríkjanna og
leiddi fyrstu sósíalisku byltinguna í
heiminum. Það er sósialismi í orði en
heimsvaldastefna í verki sem Lúðvík
og hans menn styðja, enda I samhengi
við almenna stefnu þess liðs, sem er
sósíalismi i orði en auðvaldsþjónkarar
í verki.
Kef lavíkur —
gönguliðið
1 grein sinni segir Sigurður E.
Guðmundsson: „Og þá var heldur
ekki von til að Keflavikur-gönguliðið
sæi ástæðu til að að „segja eitt einasta
orð um þetta”, þaðan heyrðist hvorki
hljóð né stuna.”
„Keflavíkur-gönguliðið” — með
þessu á Sigurður sennilega við Samtök
herstöðvaandstæðinga. 1 því liði er
sennilega margur mislitur sauðurinn
og örugglega nokkrir samlitir Lúðvík.
Hins vegar eru einnig í því liði
allmargir sem fordæma Sovétríkin
fyrir yfirgangsstefjiu og fasískar
aðgerðir heimafyrir. Hins vegar er leitt
til þess að vita að, þó svo að Samtök
herstöðvaandstæðinga hafi i stefnu-
grundvelli sínum orð sem kveða á um
Wfo-áttu gegn vígbúnaðarkapphlaupi
stórveldanna og samstöðu með smá-
þjóðum um allan heim, þá virðist eins
og þetta séu aðems orðin tóm. E.t.v.
standa þeir Lúðvíksmenn þar í vegi, af
ótta við að þessu verði beitt gegn
hinum „friðelskandi” Sovétríkjum,
Isem þó fremja smáglæpi hér og þar
og villist óvart inn á þá braut að stuðla
að þjóðarmorðum t.d. i Afríku, í
líkingu við herleiðangur og þjóðar-
morð USA i Indókína fyrir fáeinum
árum síðan.
Á landsfundum Samtaka herstöðva-
andstæðinga nú um nokkurt skeið
hefur verið hart barist fyrir því að
þessi samtök taki upp stefnuskrár-
bundna baráttu gegn báðum þeim'
hernaðarrisum, sem nú ógna öllum
heiminum með nýrri heimsstyrjöld,
þ.e. risaveldunum tveim Sovétrikjun-
um og Bandarikjunum. E.t.v. sjáum
við Sigurð E. Guðmundsson í því liði
sem berst gegn báðum hemaðarrisun-
um og vígbúnaði þeirra um allan
heim. Eða e.t.v. tekur hann sömu
afstöðu og Lúðvík, bara á hinum
pólnum, ver Bandaríkin og þegir þegar
eitthvað ljótt á sér stað. Sumir kasta
nefnilega steinum úr glerhúsi, en ekki
þurfa öll glerhús að vera eins.
Lúðvík
er liðfár
Látum okkur einu skipta hvað herra
Lúðvík meinar, snúum okkur heldur
að þeim fjölmörgu, sem lika eru i
Alþýðubandalaginu, sem vilja taka
þátt í að mótmæla yfirgangi risaveld-
anna beggja, virkjum þá í fjölda-
hreyfingu, þannig fæst pólitískur
þrýstingur og þannig vinnast sigrar.
Lúðvík er aðeins einn og hann er í
raun liðfár. Næsta tækifæri til að
sýna andstöðu sína við sovésku
keisarana og yfirgang þeirra er 21.
ágúst, n.k. en þá eru liðin 10 ár frá því
að þeir hertóku Tékkóslóvakiu.
perum 21. ágúst að baráttudegi til
stuðnings andstöðunni gegn Kreml-
fasismanum, hvar sem hann rekur
niðurjárnhælasína.
Albert Einarsson
kennari
Vegna þess aö þeir erw
1. stillanlefíir, sem býður upp á mjúka fjöðrun eða stífa
eftir aðstæðum og óskum bilstjórans.
2. tvívirkir, sem kemur i vegfyrir að billinn ..slái saman ”i
holum eða hvörfum.
3. viðgeranlegir, sem þýðir að KONI höggdeyfa þarf i
flestum tilfellum aðeins að kaupa einu sinni undir
hvern bil.
4. með ábyrgó, sem miðasl við I ár eða 30.000 km akstur.
5. ódýrastir miðað við ekinn kílómetra.
Ef þú metur öryggi og þægindi i akstri einhvor*, þá kynntu þér hvort
ekki borgar sig afl setja KONI höggdeyfa undir bHinn.
Varahluta- og viðgerflarþjónusta er hjá okkur.
SMYRILL H/F
Ármúla 7, sími 84450, Rvfk
HVERS VEGNA
HÖGGDEYFA?
J
\
/V