Dagblaðið - 14.08.1978, Qupperneq 16
16
DAGBLAÐIÐ. MÁNUDAGUR 14. ÁGÚST 1978.
Iþróttir
Iþróttir
Iþróttir
Iþróttir
Iþrót
Schmidt vann
Mac Wilkins
Nýi heimsmethafinn 1 kringlukastinu,
Wolfgang Schmidt, A-Þýzkalandi,
sigraöi Mac Wilkins á móti i Varsjá í
Póliandi. Sjöundi sigur Schmidt á
Wilkins á niu mótum, þar sem þeir hafa
keppt. Schmidt kastaði 69.54 m. sem er
næst bezti árangur, sem hann hefur náð.
Aðeins heimsmet hans 71.16 m betra.
Wilkins kastaði 68.32 m eða nákvæm-
lega sama kastlcngd og hjá honum á
síðari degi Reykjavikurleikanna.
Af öðrum árangri á mótinu má ncfna,
að Edwin Moses, USA, hljóp 400 m
grindahlaup á 48.85 sek. Qucntin
Wheeler, USA, á 49.05 sek.
Kozakiewicz, Póllandi, stökk 5.50 m í
stangarstökki. Willie Smith, USA, hljóp
400 m A 45.63 sek. og Al Fcucrbach,
USA, varpaði kúlu 20.33 m. Þá hljóp
Malinowski, Póllandi, 1500 m á 3:37.4
mín. og Graham Williamson, Bretlandi,
varð annar á 3:37.7 mín. Marceli, Alsír,
þriðji á 3:37.8, Gonzales, Frakklandi,
fjórði á 3:38.5 mín. og Mike Monkee,
USA 3:39.12.
Wilkins kast-
aði 67míHöfn
Mac Wilkins, USA, kastaði kringlu
67 metra á frjálsíþróttamóti í Kaup-
mannahöfn á föstudag. Adrian Rodgers,
USA, sigraði í 400 m hlaupi á 46.3 sek.
Kocn Gijsberg, llollandi, varð annar á
47.1 sek. og Niels Hansen þriðji á 47.2
sek. Það er nýtt, danskt met á vega-
lengdinni. Gerald Barrtett, Ástralíu,
sigraði í 10000 m hlaupi á 28:06.6 mín.
en Craig Virgin, USA, varð annar á
28:57.8 mín.
Liverpool vann
Evrópumeistarar l.iverpool i knatt-
sp.vrnunni sigruðu Austria, Vínarborg,
á föstudag í Vínarborg. Steve Heighwav
skoraði eina mark leiksins á 51. mín.
Áhorfendur voru 27 þúsund og Liverpool
hafði umtalsverða yfirburöi. Kenny
Dalglish, Gracmc Souness og Phil Neal
voru nálægt því að skora.
Köln tapaði
Urslit í vestur-þýzku 1. deildinni í
knattspyrnu á laugardag urðu þcssi.
Schalke-Frankfurt 4—0
Dortmund-Bavcrn M. 1—0
Hamborg-Gladbach 3—0
Dússeldorf-Bremen 3—1
Bochum-Nuremberg 2—0
Kaisersl.- Stuttgart 5—1
Darmstadt-Hertha 0—0
Brunschweig-Köln I—0
Þýzkt met
Harald Scmidt setti nýtt vestur-þýzkt
met í 400 m grindahlaupi i Köln 12
ágúst. Hljóp vcgalcngdina á 48.43 sek.
en eldra met hans var 48.85 sek. Þetta
var á meistaramóti V-Þýzkalands.
Franz-Peter Hofmeister náði bezta tíma
i Evrópu í ár i 400 m hlaupi. Hljóp á
45.45 sek. Karl-Heinz Riehm kastaði
slcggju 78.52 m og Ulrika Meyfahrt,
olympiumeistarinn í hástökki kvenna
1972, stökk 1.95 m i hástökki.
Dinamo Kiev
bikarmeistari
Dinamo Kiev varð sovézkur bikar-
meistari á laugardag. Sigraði Shakhtyor
Donetsk 2—1 eftir framlengingu í
úrslitalciknum í Moskvu. Dinamo Kiev
leikur því 1 Evrópukeppni bikarhafa í
haust. Oleg Blohkin skoraði bæði mörk
liðsins i úrslitaleiknum.
KR-ingarfá
svertinga
Sex crlcndir lcikmenn munu leika í
körfuknattleiknum hér i vetur. KR-ingar
hafa nú tryggt sér Bandaríkjamann.
Mikinn risa 2.05 metra á hæð —
svertingja.
Þeir tókust i hendur, kapparnir, eftir leikinn. Sigurður Haraldsson, markvörður Vals, til vinstri og Jóhann Hreiðarsson, sem skoraði hjá honum. DB-mynd Bjarnleifur.
Skómir frá Hólasport
fóru í fyrstu tilraun!
Jóhann Hreiðarsson skoraði hjá Sigurði Haraldssyni á laugardag,
þegar Valurvann Þrótt 3-1 á Laugardalsvelli.
Sigurður lék 1094 mín. án þess að fá á sig mark
„Það var ánægjulcgt að sjá á cftir
kncttinum í Valsmarkið — færið var svo
gott að það var ckki hægt annað en
skora,” sagði miðvörðurinn sterki í
Þrótti, Jóliann Hreiðarsson, eftir leik
Vals og Þróttar á Laugardalsvelli í 1.
deild á laugardag. Valur sigraöi 3-1 —
og Jóhann skoraði mark sitt á 78. mín.
Iciksins. Hann fær því Mitre-knatt-
sp.vrnuskóna frá sportvöruverzluninni
Hólasport í Breiöholti. Sl. föstudag
ákváðu forráðamenn verzlunarinnar i
samvinnu við DB að hciðra þann knatt-
spyrnumann. sem fyrstur yrði til að
skora hjá Val. „Það hlaut aö koma aö
því að skoraö yrði mark hjá nkkur — og
að það var mark, sem engin áhrif
hafði á úrslit leiksins,” sagði Sigurður
Haraldsson, hinn snjalli markvöröur
Vals. Hann lék 1094 mín. án þess að fá á
sig mark, sem er fágætt afrek ef ekki
cinsdæmi. Ekki hefur vcrið skorað hjá
Sigurði siðan 19. júni þar til á laugardag.
F.kki mark i 11 lcikjum — átta í I. dcild,
þremur i hikarlcikjum. Sigurður lék 824
min. í 1. deild án þess að fá á sig mark —
íslandsmct, sem erfitt vcrður að bæta.
Sigurður gat litið gert við marki Þrótt-
. Það var vel að þvi unnið. Páll Ólafs-
son tók aukaspyrnu rétt utan vitateigs.
Hörkuskot yfir varnarvegg Vals — og
knötturinn lenti í þverslánni. svo hún
nötraði lengi. Knötturinn hrökk út í teig-
inn. Þar var Jóhann langfyrstur að átta
sig. Hljóp alveg frir að knettinum og
sendi hann í opið Valsmarkið. Sigurður
hafði fallið. þegar hann reyndi að ná til
knattarins eftir skotið í þverslána.
Hins vegar var aldrei vafi um úrslit
leiksins. Valsntenn léku mjög vel —
mcst vegna frábærs leiks Harðar
Hilntarssonar. Ég hef varla í annan tima
séð hann leika betur og sigur liðsins var í
ntinnsta lagi. Valsmenn höfðu nú ntiklu
meiri yfirburði en i fyrri leikjum við
Þrótt i suntar.
Þó valur léki gegn sterkri suðaustan
golu í f.h. náðu þeir strax fruntkvæðinu i
leiknum. Þeir voru ntun fljótari á knött-
inn en leikntenn Þróttar, sent þó hefur
verið aðall Þróttara oftast i suntar. Dýri
Guðntundsson og Magnús Bcrgs fcngu
góð tækifæri til að ná forustu fyrir Val
áður en Atli Eðvaldsson skoraði fyrsta
ntark leiksins á 16. ntin. Hann fékk frá-
bæra sendingu frá Albert Guðntunds-
syni frá hægri kantinum. Frir i vítateign-
um og skoraði af öryggi. Markið kont
eflir skyndisókn Vals. þar sent Sigurður
Haraldsson Itafði varið alveg úl við
stöng — og varð siðan upphafsntaður að
skyndisókn Vals. Rétt á eftir var Atli
svo aðeins of seinn i opnu færi.
Hinu ntegin var Þorgeir Þorgeirsson
of seinn að átta sig. þegar knötturinn
rann við fætur hans rétt við ntarkteig
Vals — og siðan var Árni Valgeirsson
ekki nógu fljótur til að nýta sér snilldar-
sendingu Sverris Brynjólfssonar inn i
vítateig Vals. En það voru Valsmenn.
sem höfðu oftast fruntkvæðið — og
Árni varð fyrir hörkuskoti Guðntundar
Þorbjörnssonar. Bjargaði marki — en
steinlá. því knötturinn fór beint i höfuð
hans. Undir lok hálfleiksins var Magnús
Bergs bókaður — og Albert átti hörku-
skot rétt framhjá marki Þróttar.
Valsmenn náðu öllurn tökum á leikn-
um frampn af s.h. Léku mjög vel. Hall-
dóri Arasyni tókst að bjarga vel —
komst fyrir knöttinn — frá Herði
Hilntarssyni — en á 50. min. splundraði
Hörður vörn Þróttar með frábærri send-
ingu milli varnarmanna. Atli fékk knött-
inn frir og skoraði annað rnark Vals.
Rétt á eftir kom Hálfdán Örlygsson inn
á fyrir Guðmund Þorbjörnsson, sem
hafði meiðzt. Hörður gaf snilldarsend
ingu á hann. Hálfdán lék uppað hliðar-
línu. Gaf fyrir mark Þróttar. Albert
stökk yfir knöttinn og ruglaði vörn
Þróttar alveg. Hörður skoraði — gat
beinlinis gengið með knöttinn i Þróttar-
ntarkið. 3-0. Valsmenn fengu góð tæki-
færi til að auka við forustu sina en tókst
ekki. Það var óvænt þegar Þrótti tóksl
að skora á 78. mín. og hálfri mín. siðar
varð aftur hætta við Valsmarkið en
bjargað. Talsverður órói kont i Vals-
vörnina eftir niark Þróttar. Það kom þó
ekki að sök — og 15. sigurleikur Vals
var staðreynd. Ótrúlegt afrek.
Auk Harðar léku Atli og Guðmundur
Kjartansson nijög vel i Valsliðinu — og
allir voru sterkir. Með betri leikjum Vals
i suntar. Á Sigurð reyndi lítið i markinu
— en við marki Þróttar gat hann litið
gert. Hjá Þrótti báru tveir ntenn af —
Sverrir og Jóhann en Páll Ólafsson gæti
leikið svo núklu betur ef hann ætlaði sér
ekki oftast að gera allt sjálfur. Dóntari
Guðmundur Haraldsson. -hslm.
Enn von um sæti í
1. deild hjá Austra
eftir sigur á Haukum 2-1 á Eskif irði
Austri frá Eskifiröi heldur enn í
vonina að komast í 1. deildina i knatt-
spyrnu i fyrstu tilraun. Á laugardag
sigraði Austri Hauka 2—1 á Eskifirði og
hefur nú 15 stig efstir 14 leiki. Einu stigi
á eftir Þór og Reyni, sem hafa 16 stig.
Margt manna horfði á leikinn við Hauka
— og flestir voru á þvi, að nokkur
hcppnisstimpill hefði verið á sigri
Austra.
Eskifirðingar byrjuðu þó vel — en
smám saman náðu Hafnfirðingar betri
tökum á leiknum. Voru mun betra liðið
i fyrri hálfleik. Þá björguðir Austramenn
á marklínu. Ekkert mark var skorað í
hálfleiknum.
í byrjun síðari hálfleik fengu Haukar
opið færi, sem þeir misnotuðu. Það
reyndist þeim dýrt og þegar leið á leikinn
náði Austri góðum tökum — en liðið
hafði alltaf verið hættulegt i skyndi-
sóknum.
Á 70. min. tókst Ágústi I. Jónssyni að
skora fyrra mark Austra. Hann flaug frá
Reykjavik austur til að taka þátt í
leiknum — og fór síðan strax aftur
heim. En hans dýra ferð austur borgaði
sig fyrir Austra. Rétt á eftir skoraði
Halldór Árnason annað mark Austra —
og þar við sat fram á lokamínútu
leiksins, að Árni Hermannsson skoraði
fyrir Hauka. Það var of seint til að
breyta einhverju.
Bezti maður Austra i leiknum var
Sigurbjöm Marinósson en Guðmundur
Sigmarsson hjá Haukum. VS.
mmamaaammm