Dagblaðið - 14.08.1978, Síða 21
DAGBLAÐIÐ. MÁNUDAGUR 14. ÁGÚST 1978.
Myndlist
AÐALSTEINN
INGÓLFSSON
—1978
— Um sýningu 9 sænskra grafíklistamanna í Norræna húsinu
Listamannagrúppur koma og fara,
en sennilega hafa fáar slíkar verið eins
lífsseigar og IX hópurinn frá Svíþjóð,
eða Niumenningarnir. Þeir hafa nú
sýnt verk sin frá 1964 á nær 40 sýning-
um og eru nú með verk sín í Norræna
húsinu til 20. ágúst. Svo ég leyfi mér
örlitinn orðaleik, þá á heitið „Níu-
menningar” vel við þennan hóp í
tvennum skilningi. Fyrst og fremst eru
þeir 9 talsins, en einnig hafa þeir flestir
verið mjög ötulir 1 menningarmálum í
Sviþjóð um langt skeið.Tveir sýnenda,
þeir Göran Nilsson og Philip von
Schantz, eru tildæmis forstöðumenn
listasafna og annar, Nils G. Stenquvist
er prófessor I grafik við Listaháskól-
ann í Stokkhólmi. Þetta eru sem sagt
mætir menn og ágætir grafiklistamenn.
Per Gunnar Thelander er líklegast
þekktastur þeirra félaga og kunnur er
hann hérlendis af samsýningum. Nor-
ræna húsið á m.a. nokkur verka hans.
Thelander er frjór myndsmiður, tækni
hans er ótrúleg og hugarflugið bæði
jarðbundið og hástemmt. Inntak
mynda hans er oftast margslungið, en
framarlega er erótík og sérstök kímni.
Úr verkum hans má lesa a.m.k. tví-
þætta túlkun á manninum, annars
vegar tengsl hans við náttúruvöxt,
uppskeru o.s.frv. og hins vegar sam-
band hans við vélmenningu. Maður-
inn stendur einhvers staðar mitt á
milli og getur kannski reitt sig á hvor-
ugt, aðeins eigin lífsorku, erótík,
sköpunargáfu o.s.frv.
Má maður allranáðarsamlegast fara
fram á það að Listasafnið kaupi sér
eitthvað af þessu ágæta úrtaki
sænskrar grafíklistar áður en allt er
uppselt?
öll afbrigði
grafíkur
Ekki byggist samstaða þeirra á
keimlíkri tækni eða afstöðu, þvi á sýn-
ingunni má sjá öll afbrigði grafikur og
mismunandi túlkun og freistast maður
til að leiða getum að því að vinátta
ráði mestu um samheldnina. Þóer það
eitt sem sameinar þá, þ.e. tæknileg
snilld og ávallt getur maður haft
ánægju af henni þótt inntak mynd-
anna sé manni ekki alltaf að skapi.
Flestir vinna þeir að staöaldri í stein-
prent, þ.á m. Gösta Gierow sem á
litlar og nettar fantasíur af súrrealisk-
um toga. Helst er að maður sakni
átaka í verkum hans, auk þess sem
a.m.k. tvær myndir hans virðast ansi
ómengaður Dali-ismi. í verk Karls
Erik Hággblad vantar ekki átökin, en
sá beitir logsuðutæki á koparplötur og
fær út úr þvi gróf þrykk, auk þess sem
hann virðist nota „intagio” prentun og
sterka liti. Árangurinn er allrar athygli
verður en þó finnst manni sem fín-
legar hefði mátt vinna sum þrykkin —
sqm þeirra kalla beinlínis á slíkt. Þó
fúlsar maður ekki við verkum eins og
Strönd (10) og Steymi um tening III
(14).
Bengt Landin — Meistaramót (nr. 21)
í skógarrjóðri og helst i hendur. Olsson
fer fallega með liti. Steinprent Phlips
von Schantz eru hreint afbragð.
Myndefni hans gætu vart verið ein-
faldari, fötur með berjum, skálar, föt
með eplum.
Út úr þessu fær hann komposisjónir
sem eru bæði voldugar og innilegar og
fyrir þá sem lesa vilja víðari merkingar
úr myndunum, er eflaust hægt að líta
á myndir hans sem einhvers konar lik-
ingar.
Frjór myndsmiður
Nils G. Stenquvist er einn um tré-
ristu á sýningunni. Hann gerir stærri
myndir en ég hef áður séð i þeirri
aðferð og myndefni hans hæfir tækn-
inni einkennilega vel. Það er allt af
lífrænum toga, tilbrigði um steingerv-
inga, um trjágróður, sjávarbotn og
skordýr.
Útúrsnúningar
og stílbrögð
Bengt Landin er heillandi listmaður.
Verk hans eru figúratíf, en þó með alls
kyns tilbrigðum og skemmtilegheitum.
Hann teiknar á steininn fólk, skip,
bíla, — en ekki er allt sem sýnist í
myndum hans. Þegar rýnt er í þær má
finna hugvitsamlegar myndgátur,
útúrsnúninga og ýmiss stílbrögð sam-
ofin. Vitnar hann gjaman í gamla
meistara, DUrer, Munch og Píkassó.
Myndin af Héranum hans Albrechts
er gott dæmi um fingrafimi og hugvits-
semi Landins. í henni er að finna
mynd af héra eftir teikningu DUrers, I
baksýn er bygging sem í spegilskrift er
nefnd Hótel DUrer og annars staðar í
myndinni er komið fyrir tilvitnunum I
hinn þýska meistara og glettnislegum
tilbrigðum höfundar. Helst er að
maður setji út á litaval Landins, sem
stundum jaðrar við sætabrauð.
Lars Lindeberg er sá eini hér sem
sýnir dúkristur. Sú aðferð, eins og tré-
ristan, er I eðli sínu boðberi sterkra til-
finninga og expressjónisma, en
hræddur er ég um að hún geti líka
verið þvingandi fyrir þá sem vilja tjá
ýmiss finlegri blæbrigði mannlegra
kennda, — en í þvi tilliti stendur stein-
prentið kannski einna best að vigi.
Upphrópanir
Helst er það að menn eins og dan-
inn Palle Nielsen hafi fundið sér leið
út úr þeim ógöngum. Það held ég að
Lindeberg hafi varla gert og þó allt
gott sé um tækni hans að segja, þá eru
upphrópanirnar i myndum hans lýj-
andi til lengdar. Göran Nilsson er
okkur að góðu kunnur, en mig minnir
að hann hafi tvisvar sýnt verk sín hér
á landi. Hann heldur sig við steinprent
og myndefni hans er hið sama, skóg-
lendi, læknir, tjarnir, — allt í svart-
hvítu. Nilsson er afbragðs teiknari, en
efnið verður helst til einhæft. Alf
Olsson hef ég ekki séð áður að ég held.
Hann notar einnig steinprent, auk
ætingar og í verkum hans gætir nátt-
úrurómantíkur sem maður sér helst
hjá norðmönnum. Nakið fólk stendur
P.G. Thelander — Vagn (nr. 66).
Faste/gnir
á
Suðumesjum:
Keflavík
60 fm einbýlishús
60 fermetra einbýllshús á Bergi. Vel útlitandi.
Verö 5 millj., útb. 2 1/2 millj.
2ja herb.
2ja herb. ibúö i fjórbýlishúsi. Nýir gluggar, nýtt
glcr. Verö 6,5 millj., útb. 3,5 til 3,7 millj.
Elnbýlishús
Eldra einbýlishús á tveimur hæðum. Bílskúr.
Verð 8,5 millj.
3ja herfo. íbúðíþríbýli
82 fermetrar. íbúöin er öll nýmáluð. Nýir dúkar,
ný tcppi, ný lögn f>rir heitt og kalt vatn. Stór bll-
skúr. Verð 9,5—10 m. útb. 5,5—6 m.
Glœsileg sórhœð f tvíbýlishúsi
á góðum stað, 114 ferm, bilskúrsréttur, nýtt vcrk-
smiðjugler, nýir gluggar. Íbúðinni fylgir kjallarí
sem í eru 3 svefnherbergi sem mögulegt væri að
fá keypt. Verð 13,5 millj., útb. 7,5—8 mUlj.
150 fm sórhœð f þribýlishúsi
með bílskúr, mjög gott útsýni, þarfnast lag-
færíngar. Nú er tækifæríð að skapa sér
framtiðareign. Verð 10—11 mUlj., útb. 5,5 millj.
100 fm sórhæð,
3ja herb. BUskúr, nýtt gler, rafmagn endurnýjað.
Verð 12 mUlj., útb. 6,5 millj.
Einbýlishús
á tveimur hæðum. 150 ferm, innbyggður bilskúr
35 ferm. Rólcgt hverfi. Verð 23—24 millj., útb.
12-13 millj.
160 fmsórhœð
i þríbýlishúsi með tvöföldum bilskúr 50 ferm.
Stórar svaUr, upplagt fyrir barnafólk, allt sér.
Verð 17 mUlj. útb.9 millj.
Eldra einbýlishús
á góðum stað i góðu ásigkomulagi. Verð 10,5
millj., útb.5,5 mUlj.
i
3 herb. íbúð
. þrlbýii. ný teppi, nVmilab. Verð 7,5—8 millj.
í smíðum
Vornm afl f 6 ibúfllr i smfflum,
bæði 2 herb. og 3 herb. Seljast tilbúnar undir
tréverk, fuUkláraðar að utan, mjög góður staöur.
Nú er tækifæríð fyrir þá sem vilja fjárfesta á
réttum tima.
Höfum einnig 4 herb. ibúfl i
smiflum,
100 ferm, sérinngangur, bílskúr. SkUað fuU-
kláruðu að utan, einangrun að innan með
miðstöðvarlögn.
3 herfo.
ibúð I fjölbýli, fuUkláruð, frystihólf, sameign i
gufubaði og þurrkherb. fylgir. Hitaveita. Verð
95 mUlj., útb.4,5 til 5 mUlj.
3ja herb.
ibúð i fjölbýli á góðum stað, neðsta hæð, sér
inngangur, bílastæði, frystihólf, og sameign i
gufubaði og þurrkherb. Hitaveita. Verð 10 mUlj.
útb. 5,5 til 6 millj.
2{a herfo.
ibúð i þríbýii, sér inng., hitaveita, nýtt gler,
mögulegt að innrétta 1 herb. i viðbót. Verð 6.5
til 7 mUlj., útb. 3,5 til 4 millj.
2ja herb.
ibúA i kjaUara. VerA 43 til 5 mUijn úlb. 23 tíl 2,7
mUlj.
Grindavík
Einbýlishús
130 ferm með bUskúr á tveim hæðum, Utið áhvfl-
andi, hitaveita. Verð 17—17,5 mUlj., útb. 10
mUlj.
Einbýlíshús
140 ferm á góðum stað, verð 17 mUlj. útb. 9—10
millj.
Einbýlishús
134 ferm með tvöföldum bUskúr, verð 18—20
mUlj. útb., lOmUlj.
Sérhæð 130 ferm
með bUskúr, verð 10,5—11 millj., útborgun 5,5
mUlj.
Innri-Njarðvík
Einbýlishús 140 fm
með 80 ferm bilskúr, verð 15,5 — 16 millj.
Útborgun 8—9 millj. Skipti á íbúð I Reykjavík
möguleg, einbýlishús í smiðum rúmlega fokhelt.
Ytri-Njarðvík
Tvíbýlishús
íbúðir í tvibýlishúsi, efri og neðri hæð, bilskúr,
verð 6.5 milljónir, útb. 3.5 millj.
Raflhús
í smfðum, 85 ferm., fullklárað að utan, fokhelt að
innan. Verð 8.5 millj. útb. 4.5 mUlj.
Einbýlishús
í smiðum, tæplega fokhelt. 5000 metrar af timbri
fylgja. bflskúr uppsteyptur.
íbúflir í smíflum
3ja herb. fbúðir, 2 stærðir, skilast fullkláraðar,
einnig á sama stað einstaklingsfbúðir.
Sandgerði
104 fm ibúfl
104 fermetra íbúð i fjölbýlishúsi. Bilskúrsréttur.
Verð 93 — 10 millj., útb. 5 — 5.5 millj.
4ra herb. íbúfl
4ra herb. fbúð f fjölbýiishúsi. Hugguleg ibúð.
Verð 10 millj., útb. 5 — 5,5 millj.
Gófl sórhæfl,
90 ferm, í tvíbýiishúsi, bílskúrsréttur. Verð 6—
6.5 millj. útb. 3—3,5 millj.
150fm sórhœð
'l tvlbýlishúsi, nýjar innihurðir, 6 svefnherbergi.
Húsið er 9 ára. Mjög gott verð, 13 millj., útb.,
7.5 millj.
2ja herb.
ibúð I tvibýli. ÖU innréttuð og tekin i gegn árið
1969 nýieg teppi, nýtt gler, góð eldhúsinnrétting.
Verð6 millj. útb. 3 til 33 millj.
3ja herfo.
fbúð í fjölbýli, bilskúrsréttur. Vcrð 8 til 8,5 millj.
útb.4 (il 4,5 mUlj.
3ja herfo.
ibúð i tvibýli, bUskúrsréttur, verð 6 til 6.5 millj.,
útb.3 til 33 millj.
150 fm sórhæfl
í tvibýii á góðum stað, 6 svefnherb., sjónvarps-
herb^ harðviðargluggar, eir hitalög. Verð 13
mUlj., útb. 75 mUlj.
VANTAR
Einbýlishús, raðhús og eidri einbýlishús.
Opiö 6 daga vikunnarfrú kl. 1—6. Myndir aföllum fasteignum ú
skrifstofunni Höfum Jjúrsterka kaupendur að einbýlishúsum og
raðhúsum.
Ýmisiegt
Höfum miklu fleiri ibúðir á söluskrá. Hjá okkur er vettvangur
fasteignaviðskiptanna á Suðurnesjunum.
Verzlunarhúsnœði tilsölu, góð bílastœði stœkkunarmöguleikar.
Veitingastaður til sölu, selt bœði sem verzlunarhúsnœði og
iðnaðarhúsn. 180 ferm.
Iðnaðarhúsn. lóOferm, stækkunarmöguleikar.
Iðnaðarhúsn., 750ferm, fullklárað.
Sumarbústaðir aföllum stœrðum og gerðum til sölu.
EIGNAMIÐLUN
SUÐURNESJA
HAFNARGÖTU 57 — KEFLAVfK — SfMI 3868