Dagblaðið - 14.08.1978, Qupperneq 31
31
GBLAÐIÐ. MÁNUDAGUR 14. ÁGÚST 1978.
Utvarp
Sjónvarp
9
Sjónvarp kl. 21.00: Frúin á Serki
KVENLANDSTJÓRINN
OG ÞÝZKIHERINN
H HEH «..." i.v & * . S Æ
‘ w — r
Tony Brittan, Pcter Dyneley og Celia Johnson 1 hlutverkum sínum i myndinni Frúin á Serki.
Kl. 21.00 í kvöld verður sýnt leikrit er
nefnist Frúin á Serki. Myndin fjallar um
það er þýzki herinn kemur á eyna Sark á
Ermarsundi og hertekur hana. Þetta
gerist árið 1941 og er eyjan í haldi til
1945. Eyjan er i eigu brezku krúnunnar
og er frú ein á eynni umboðsmaður
drottningar. Frúin er óhrædd og kemur
fram fyrir þýzka hermenn eins og ekkert
sé, enda reynir hún að hughreysta eyja-
búa i hörmungum stríðsáranna ásamt
eiginmanni sínum á meðan hans nýtur
við. Myndin lýsir á skemmtilegan hátt
viðskiptum frúarinnar við hermenn, þó.
aðallega tvo. Annar er greifi sem er nú
atvinnuhermaður en hinn er nasisti.
Myndin fjallar ekki um stríð og má segja
að gaman sé að henni og mörg skemmti-
leg atvik sem fram koma. Myndin er
tæplega klukkustundar löng og send út i
lit. Þýðandier JónO. Edwald. — ELA
Útvarp kl. 17.20: Nornin
Áhrifarík saga um litla telpu
í dag kl. 17.20 hefur ný saga fyrir
börn og unglinga göngu sína og nefnist
hún „Nornin” efti brezku skáltjkonuna
Helen Griffitsh, í þýðingu Dagnýjar
Kristjánsdóttur. Hún les einnig söguna.
Brezka skáldkonan Helen Griffiths
hefur skrifað geysilega mikið, bæði fyrir
börn og fullorðna, og eru bækur hennar
bæði kunnar og vandaðar. Engin bók
hefur fyrr komið út i islenzkri þýðingu
eftir hana.
Sagan gerist kringum 1440 á Spáni og
eru galdrabrennur í hápunkti. Litið barn
finnst i skógarjaðri smáþorps. Barnið er
4 ára gamalt stúlkubarn, mállaust og að
þvi er virðist skilningsvana og óttaslegið.
Enginn veit hvaðan barnið er og þorps-
búar óttast það. 1 fáfræði sinni koma
þeir sögu á kreik um að telpan sé haldin
Sjónvarp
Mánudagur
14. ágúst
20.00 l'rc ttir og vedur.
20.25 Augtýsingar og dagskrá.
20.30 iþróttir. Umsjónarmaftur Bjami Felixson.
21.00 Frúin á Serki (U: Breskt leikrit eftir
William Douglas Home, búiö til sjónvarps-
fiutnings af David Butler. Leiksljóri Alvin
Rakoff. Aftalhlutverk Celia Johnson, Peter
Dyncley og Tony Britton. Vorið 1941 leggur
þýski herinn undir sig eyna Sark á Ermarsundi
og heldur henni til I945. Landstjórinn, Sybil
Hathaway, hughreystir eyjarskeggja í hörm-
■ ungum hernámsáranna ásamt eiginmanni sín-
um, meðan hans nýtur við. Þýöandi Jón O.
Edwald.
21.50 Brezk heimildarmynd er lýsir ferð
Brandans frá lrlandi og vestur um haf með
víðkomu á ISIandi. Þýðandi og þulur Ingi Karl
Johannesson. Áður á dagskrá 17. júní sl.
22.50 Dagskrárlok.
illum anda, að hún sé norn.
Að sögn Gunnvarar Braga er sagan
mjög svo áhrifarík og átti upphaflega að
flytja hana á barnaárinu 1979, en það
var ákveðið að flytja hana núna. „Bókin
er greinilegt dæmi um hversu illa er
hægt að fara með barn sálarlega vegna
misskilnings,” sagði Gunnvör um bók-
ina.
- ELA
Dagný Kristjánsdóttir les söguna en hún er einnig þýðandi.
Einbýli — vesturbær.
Höfum í sölumeðferð stórglæsilega eign sem gæti hentað fyrir
sendiráð eða stóra fjölskyldu. Húsið er 220 ferm auk bilskúrs.
í húsinu eru 60—70 ferm stofur, mjög stórt eldhús og 5—6
stór herbergi. Eignaskipti koma til greina fyrir íbúði vesturbæ
með stórum stofum. Upplýsingar aðeins á skrifstofunni en
ekki í sima.
Kóngsbakki
2ja herb. íbúð á jarðhæð. Stór geymsla, sér garður.
Hverfisgata
Tvær þriggja herb. íbúðir í sama húsi. 70 ferm hvor íbúð.
MávahHð
2ja herb. 60 ferm risíbúð
Óðinsgata
2ja herb. 60 ferm íbúð á sérhæð.
Hjallavegur
3ja herb., 80 ferm risíbúð.
Brávallagata
3ja herb. 70 ferm íbúð á 4. hæð. Stórar svalir, útborgun 7 millj.
Framnesvegur
3ja herb. ný 80 ferm ibúð á l. hæð, ekki jarðhæð.
Bræðraborgarstígur
4ra herb. ibúð, 120 ferm, á 4. hæð. Suðursvalir, 40 ferm stofa. Góð
sameign.
ÁKheimar
4ra herb., 120 ferm íbúð á 3ju hæð. 60 ferm stofur.
Digranesvegur
Neðri sérhæð 150 ferm, 4 svefnherb., 2 stofur, suðursvalir, 35 ferm
bilskúr.
Bræðraborgarstígur
Raðhús, rúmlega tilbúið undir tréverk, 225 ferm auk kjallara.
Sumarbústaðarlóð
í Mosfellssveit höfum við l/2 ha lands við Langavatn.
Mosfellssveit
Fokhelt einbýlishús, 150 ferm grunnflötur auk 150 ferm jarðhæðar.
Bílskúr.
Mosfellssveit
Fokhelt raðhús, 96 ferm grunnflötur. Tvær hæðir og kjallari með inn-
byggðum bílskúr.
Norðurmýri v
Tvær 3ja herb. íbúðir, 85 ferm hvor, i sama húsi. Bilskúr fylgir ann-
arri íbúðinni.
Laugarnesvegur
2ja herb. 60 ferm nýstandsett íbúð i risi. Útb. 5,5 til 6 millj.
Grindavík
110 ferm einbýlishús á einni hæð. Gler og miðstöð komin. Bilskúr 35
ferm. Skipti á 2ja til 3ja herb. íbúð í Rvík koma til greina.
BreiðhoK
3ja herb. 85 ferm íbúð, 30 ferm. bilskúr.
BreiðhoK
5 herb. 120 ferm. íbúð. 30 ferm.. Bilskúr.
Breiðholt
5 herb. 110 ferm. íbúð. Bílskýli.
Óskum eftir:
Einbýlishúsi,
helzt á einni hæð í Breiðholti. Má kosta 30—35 milljónir full-
klárað að utan og innan. Útborgun yfir 20 millj. eftir sam-
komulagi. Upplýsingar á skrifstofunni og í heimasíma sölu-
manns.
Gömlu járnklæddu timburhúsi
með ca 70 ferm grunnfleti, kjallari, hæð og ris. Má þarfnast stand-
setningar.
3ja herb. íbúð,
90 til 100 ferm með góðu holi og minnst 35 ferm stofu á 4. hæð i
snyrtilegri blokk. Góð útborgun.
Eignaskipti
Gnoðarvogur
160 ferm 6 herb. íbúð, neðri sérhæð, svalir í suður, í skiptum
fyrir einbýlishús í Vogum, Heimum eða Laugarási eða svip-
uðum slóðum. Góð milligjöf.
Húsamiðlun Fasteignasala.
Templarasundi 3. Simar 11614 og 11616.
Sökistjóri:
VHhelm Ingimundarson. Heimasími 30986.