Dagblaðið - 14.09.1978, Blaðsíða 3

Dagblaðið - 14.09.1978, Blaðsíða 3
3 DAGBLAÐID. FIMMTUDAGUR 14. SEPTEMBER 1978._ Engir verð- miðará erlendum pappírskiljum — í Bókaverzlun Sigfúsar Eymundssonar Þ.B. hringdi og vildi segja fáein orð um sölu pappírskilja í verzlunum borg- arinnar. Hann sagði að í Bókaverzlun Sigfúsar Eymundssonar væri en^in þessara bóka merkt i hillunum. „Þar er aðeins skrá sem sýnir verðið í erlendri mynt. Slíkri skrá er hægt að breyta í hvert skipti sem gengis- breyting er nefnd.” Þ.B. sagði, að í Mál og menningu væri þessu öðru vísi farið. Þar væri hver bók merkt. „Þegar 'þessu er háttað eins og í Bókaverzlun Sigfúsar Eymundssonar þá er ógerningur fyrir kaupandann að gera sér grein fyrir því, hvort gömlu birgðirnar hafi verið hækkaðar.” Þ.B. sagði að því fylgdi sterkur grunur, þar sem bara er um eina skrá að ræða, og hefði hann einnig rekið sig á að bækur væru oft mun dýrari í Bókaverzlun Sigfúsar Eymundssonar en i öðrum bókaverzlunum. Af þessu tilefni gerðu DB-menn sér ferð í tvær bókaverzlanir í miðbænum, Bókaverzlun Sigfúsar Eymundssonar og Bókaverzlun Snæbjarnar og athuguðu hvort erlend- ar „pocket-bækur” væru verðmerktar í hillunum. Því reyndist þannig háttað í Bókaverzlún Snæbjarnar en hins veg- ar voru allar erlendu bækurnar ómerktar í Bókaverzlun Sigfúsar Eymundssonar. » Frá Bókaverzlun Sigfúsar Eymunds- sonar. Þar gefur að líta mikið úrval er- lendra pappírskilja. Bækurnar eru ekki verðmerktar. Ljósmynd Ari. Spurning dagsins Eru Flugleiðir einokunar- fyrirtæki? Magnús Einarsson: Flugfélög eiga ekki að vera einokunarfyrirtæki. En hvort þau eru það vegna lélegrar stjórnsemi eða vegna lélegs eftirlits hins opinbera skal ég ekki segja. Sveinn Þorbergsson: Ég á erfitt með að gera mér grein fyrir því hvort Flugleiðir eru einokunarfyrirtæki vegna þess að ég þekki ekki til þess. Afsökunarbeiðni í grein í Dagblaðinu mánudaginn 11. september sl. undir fyrirsögninni „Andlegt náttúruleysi” o.s.frv. voru hafðar eftir mér óheyrilegar verðhækkanir á myndavélum m.a. vegna hins nýja „luxusskatts” ríkis- stjórnarinnar. Mér er ljúft og skylt að játa að mér urðu á þau mistök að taka sem sannar Raddir lesenda Bflstjór- inn stakk af 5155—6267 hringdi og hafði þá sögu að segja að hann hafði farið á Hótel Sögu sl. sunnudag. „Þar sem jafnan er miklum vandræðum bundið að ná í leigubíl að dansleik loknum fór ég út af ballinu dálítið fyrir kl. 1 og náði fljótlega i leigubifreið. Var þessi bifreiö af gerðinni Mercedes Benz, Ijós að lit og bílstjórinn miðaldra maður. Síðan þurfti ég að skjótast inn aftur. Til þess að tryggja mér bílinn afhenti ég bílstjóranum 2000 krónur. Þegar ég kom út aftur var bifreiðin hvergi sjáanleg. Ég hafði verið alveg granda- laus og mér því láðst að taka niður númer bilsins. Þetta þótti mér heldur ómerkilegt. Ef bílstjórinn hins vegar hefur á einhvern óskiljanlegan hátt misst af mér án þess að ætla sér það þá getur hann komið þessum pening- um til DB og þannig hreinsað þennan blett af stéttinni.' upplýsingar sem ágætur viðskipta- vinur gaf mér kvöldið áður. Hið sanna er, að myndavélar eru eina Ijós- myndavaran sem mismunandi hátt vörugjald er ekki lagt á, þ.e.a.s. allt sem við á að éta, filmur, pappír, lins- ur, leifturljós, kvikmyndatæki hvers konar og fleira og fleira er skattlagt sem flottræfilsháttur. Afleiðingin hlýtur að verða sú að tslendirigar beina eftir beztu getu fjármagni sinu inn i verzlun annarra landa. Gott er til þess að vita að þjóðarhagur íslendinga er með þeim fádæmum að þeir geta miðlað öðrum þjóðum af efnum sínum. Ég hef dregið minn lærdóm af fyrr- greindum misskilningi og það er von mín að hin nýja ríkisstjórn geri það sama. Það er skoðun margra spámanna að fyrri rikisstjórn hafi m.a. fallið vegna skorts á upplýsingum til almennings. Núverandi ríkisstjórn virðist ætla að brenna sig á því sama. Allar „efnahagsráðstafan- ir” hennar virðast annað hvort slíkt myrkraverk að enginn tals- maður fyrirfinnst eða að þeim finnst almenningi hreinlega ekki koma málið við. Það er von min að úr þessu verði bætt með því aö útskýra jafnóðum gjörninga, orsakir þeirra og afleiðingar. Með kærri kveðju, Hilmar Helgason. Hreiðar L. Jónsson: Það dettur mér ekki i hug að halda. Mér finnst þetta frekar vera þjóðþrifafyrirtæki. Haraldur Sigfússon: Ég skal ekkert um það segja. Ég held nú samt að þeir vilji komast yfir sem mest af fluginu hér. Karl Sveinsson: Ja, ég mundi nú segja að þeir vildu komast yfir allt sem þeir ná í. Mér finnast skrítin þessi flugfélagskaup hjá þeim undanfarna daga. Kári Gunnarsson: Nei, það held ég ekki. Þetta er þjóðþrifafyrirtæki. Þeir hljóta að græða svona mikið fyrst þeir geta keypt þessi fyrirtæki. Á meðan þeim gengur vel er ég ánægður.

x

Dagblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Dagblaðið
https://timarit.is/publication/260

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.