Dagblaðið - 14.09.1978, Síða 12
12
i
DAGBLAÐIÐ. FIMMTUDAGUR 14. SEPTEMBER1978.
DAGBLAÐIÐ. FIMMTUDAGUR 14. SEPTEMBER 1978.
íþróttir
Iþróttir
Iþróttir
Iþróttir
Iþróttir
Iþróttir
Iþróttir
Iþróttir
Iþróttir
Evrópukeppni
meistaraliða
í Nottingham: — Nottingham Forest, Englandi, —
Liverpool, Englandi, 2-0 (1-0). Mörkin: Birtles og Bar-
rett. Áhorfendur 38.316.
í Aþcnu: — AEK Aþenu, Grikklandi, — FC Porto,
Portúgal, 6-1 (4-0). Mörkin: AEK: Bayevic, 2, Ardizo-
glou, Tassos, Nikolaou, Mavros, Porio; Oliveira.
Áhorfendur 35.000.
í Malmö: — Malmö, Svíþjóð, — AS Monaco,
Frakklandi, 0-0. Áhorfendur 5.500.
t Istanbul: Fenerbache, Tyrklandi, — PSV Eind-
hoven, Hollandi, 2-1 (2-1). Fenerbahce: Rasit og Emin.
PSV: Brandts. Áhorfendur 45.000.
t Tampere: — Haka, Finnlandi, — Dinamo Kiev,
Sovétrikjunum, 0-1 (0-0). Mark Kiev: Boltacha á 72.
mín. Áhorfendur 4000.
t Belfast: — Linfield, Norður-trlandi, — Lille-
ström, Noregi, 0-0. Áhorfendur 6000.
t Belgrad: — Partizan Belgrad, Júgóslavíu —
Dynamo Dresden, 2-0 (1-0). Mörkin: Prekazi og
Djurovic. Áhorfendur 50.000.
í Torino: — Juventus, Ítalíu, — Glasgow Rangers,
Skotlandi, 1-0 (1-0). Virdis. Áhorfendur 70.000.
t Schkodra, Albaniu: — Vlaznija, Albaniu, —
Austria Wien 2-0 (1-0). Mörkin: Zhega og Ballgjini.
Áhorfendur 15000.
í Madrid: — Real Madrid, Spáni, — Progres
Niedercorn, Luxemborg, 5-0 (3-0). Mörkin: Jensen,
Juanito, 2, Del Bosque og Wolff. Áhorfendur 60.000.
t Nicosia: — Omonia Nicosia, Kýpur, —
Bohemians, írlandi, 2-1 (1-1). Mörkin: Omonia:
Kanaris og Gootokritou. Bohemians: P.O’Connor.
Áhorfendur 14000.
í Brugge: — FC Bruggc, Belgiu, — Wisla Krakow,
Póllandi, 2-1. Mörkin: Brugge: Ceulemans og Cools.
Wisla: Kapka. Áhorfendur 17.000.
t Ziirich: — Grasshoppcrs Ziirich, Sviss, —
Valletta, Möltu, 8-0 (3-0). Mörkin: Ponte, 2, Sulser, 5,
Wehrle. Áhorfcndur 3.200.
t Köln: — Köln, V-Þýzkalandi, — Akranes, tsland,
4-1 (3-1). Mörkin: Köln: Neumann, 2, Littbarski og
Konopka. Akranes: Matthías Hallgrímsson. Áhorf-
endur 9000.
í Brno: — Zborjovka Brno, Tékkóslóvakíu —
Ujpest Doza, Ungverjalandi, 2-2 (0-1). Mörkin: Brno:
Kroupa, Janecka.
t Óðinsvéum: — OB, Danmörku — Lokomotiv,
Soffiu, Búlgariu, 2-2 (2-0). Mörk: OB: Nielsen, 2,
Lokomotiv: Kolev og Velitzkov. Áhorfendur 7700.
UEFA-keppnin
í Braga: — Braga, Portúgal, — Hibernians, Möltu,
5-0 (3-0. Mörk Braga: Xico, Gordo, 4, Lito. Áhorf-
endur 35 þúsund.
í Moskvu: Torpendo Moskvu, Sovétríkjunnm—
Molde, Noregi, 4-0 (2-0). Mörkin: Vasilyev og Miro-
nov, Grishm og Stuchilin.
í Tbilsi: — Dynamo Tbilisi, Sovétríkjunum, —-
Napoli, ttaliu, 2-0 (1-0). Mörkin: Kipiani og Shengelia.
t Mönchengladbach: — Borussia, V-Þýzkalandi, —
Sturm Graz, Austurriki, 5-1. Mörkin: Borussia:
Bruns, 2, Gores, Nielsen og Simonsen. Graz:
Schaffer. Áhorfendur 10.000.
í Esch: — Jeunesse Esch, Luxemborg, —
Lausanne, Sviss, 0-0. Áhorfendur 2.000.
í Milanó: — AC Milanó, ttalíu, — Lokomotiv
Kosice, Tékkóslóvakiu, 1-0 (1-0). Markið: Novellino.
Áhorfendur 65.000.
í Split: — Hajduk Split, Júgóslaviu, — Rapid
Wienerberger, Austurríki, 2-0 (1-0). Mörkin: Cop og
Luketin. Áhorfendur 20.000.
t Austur-Berlín: — Dynamo Bcrlín, A-Þýzkalandi,
Rauða stjarnan Belgrad. Júgóslaviu, 5-2 (3-2). Mörk-
in: Dynamo: Riediger, 3, Netz og Brillat. Rauða
stjarnan: Sestic og Savic. Áhorfendur 26.000.
í Izmir: — Falatasaray, Tyrklandi, — WBA, Eng-
landi, 1-3. Mörkin: Galatasaray: Fatih, víti. WBA:
Robson og Cunningham, 2. Áhorfendur 50.000.
í Jena: — Carl Zeiss Jena, A-Þýzkalandi, —
Lierse, Belgíu, 1-0 (1-0). Markið: Töpfer. Áhorfendur
12.000.
t Enschede: — Twente, Hollandi, — Man. City,
Englandi, 1-1. Mörkin: Twente: Thoresen. Man. City:
Watson. Áhorfendur 12.000.
í Borás: — Elfsborg, Sviþjóð, — Strassborg,
Frakklandi, 2-0 (2-0). Mörkin: Svensson og Magnus-
son. Áhorfendur 5.000.
í Bilbao: — Atlctico Bilbao, Spáni, — Ajax
Amsterdam, Hollandi, 2-0 (1-0). Mörkin: Van Dord,
sjálfsmark, og Vidal. Áhorfendur 45.000.
í Nantes: — Nantes, Frakklandi, — Benfica,
Portúgal, 0-2. Mörkin: Chalana og Nene.
í Kuopio: — Kuopio Palloseura, Finnlandi, — B-
1903, Kaupmannahöfn, Danmörku, 2-1 (1-1). Mörkin:
Kuopio: Monkkonen og Heiskanen, B-1903: Haar-
bye. Áhorfendur 646.
í Timosoara: — Timosoara Politehnica, Rúmeniu,
— MTK, Ungverjalandi, 2-0 (1-0). Mörkin: Cotec og
Platinisan. Áhorfendur 20.000.
t Pitesti: — Arges Pitesti, Rúmeniu, — Panathinai-
kos, Grikklandi, 3-0 (1-0). Mörkin: Toma og Moi-
ceanu. Áhorfendur 20.000.
t London: — Arsenal, Englandi, — Leipzig, A-
Þýzkalandi 3-0 (0-0). Mörkin: Stapleton, 2, og Sunder-
land. Áhorfcndur 34.233.
t Gijon: — Real Sporting Gijon, Spáni, — Torinó,
ttaliu, 3-0 (2-0). Mörkin: Ferrero og Moran, 2. Áhorf-
endur 30.000.
í Prag: — Dukla Prag, Tékkóslóvakíu, — Lane-
rossi, Ítalíu, 1-0 (1-0). Markið: Nehoda. Áhorfendur
14.000.
t Edinborg: — Hibernian, Skotlandi, — Norrköp-
ing, Sviþjóð, 3-2 (1-0). Mörkin: Hibernian: Higgins, 2,
og Temperley. Norrköping: Ohlsson og Andersson.
Áhorfendur 10.000.
t Kristiansand: — Start, Noregi, Esbjerg, Dan-
mörku, 0-0. Áhorfendur 1.417.
t Vestur-Berlín: — Hertha, V-Þýzkalandi, —
Trakia Plovdiv, Búlgaríu, 0-0. Áhorfendur 4.000.
í Basel: — Basel, Sviss, — Stuttgart, V-Þýzka-
landi, 2-3 (1-1). Mörkin: Basel: Stohler og Tanner.
Stuttgart: Hoeness og Ohlicher, 2. Áhorfendur
25.100.
t Duisburg: — MSV Duisburg, V-Þýzkalandi, —
Lech Poznan, Póllandi, 5-0 (4-0). Mörkin: Worm, 2,
Jara, Alhaus og Buessers. Áhorfendur 8.000.
t Sofia: — CSKA Sofia, Búlgariu, — Valencia,
Spáni, 2-1 (1-0). Mörkin: CSKA: Djevizov og Hrístov.
Valencia: Solsona. Áhorfendur 40.000.
a
______________-
Karl Þórðarson sýndi góðan leik I Köln.
Erlend Uö sýna Skagamanninum snjalla
nú mikinn áhuga. Telja verður liklegt að
Karl ásamt Pétri Péturssyni hverfi nú i
atvinnumennsku.
Snilldartaktar Karís í
Köln en ósigur Skagans
4-1, í Evrópukeppni meistaraliða. Matthfas Hallgrímsson
skoraði eina mark Skagamanna
Skagamenn biðu lægri hlut í Köln i
gærkvöld í Evrópukeppni meistaraliða,
1-4 gegn þýzku meisturunum, FC Köln.
Leikurinn i Köln var þó ekki einstefna að
marki Skagamanna — bikarmeistarar
ÍA léku ákaflega vel, drifnir áfram af
stórgóðum leik Karls Þórðarsonar —
minnsta mannsins á vellinum, sem þó var
sá stærsti. Hvað eftir annað hreif Karl
áhorfendur með snilldarleik sínum og
hann lagði upp mark Skagamanna á 30.
mínútu, lék upp vinstri vænginn, gaf
góða sendingu fyrir á Matthías Hall-
grimsson, sem skoraði af öryggi af stuttu
færi, — hans fyrsta mark i 7 leikjum.
En mark Skagamanna var ekki hið
fyrsta — tvívegis hafði Jón Þorbjörns-
son hirt knöttinn í netmöskvum marks
Skagamanna. fyrsta mark FC Köln kom
á 13. minútu, Neumann gaf góða send-
ingu inn í vitateig ÍA og Littbarski
skoraði með skalla af stuttu færi. Á 26.
mínútu bætti FC Köln við öðru marki
sínu, enn var Neumann á ferðinni, skall-
aði i netið — enn af stuttu færi. Jón Þor-
björnsson beinlinis fraus á línunni —
mörkin undirstrikuðu mun atvinnu-
manna og áhugamanna, ódýr mörk. En
Skagamenn létu ekki deigan siga. —
Köln skoraði sitt þriðja mark á 40. mín-
útu, óvænt mark — skyndisókn og Neu-
mann skoraði með skalla af stuttu færi,
3-1.
1 upphafi síðari hálfleiks átti Pétur
Meistarar Liverpool
töpuðu í Nottingham
—gegn Forest, 2-0 og eru nú í stórhættu að falla út í
1. umferð ffyrsta sinn í Evrópukeppni
Evrópumeistarar Liverpool eru í
mikilli hættu að falla úr keppni — þegar
í 1. umferð. Ensku meistararnir Notting-
I ham Forest sigruðu Liverpool 2—0 á
| Gity Ground i Nottingham í gærkvöld
I — og það var 22 ára gamall nýliði, Gary
Birtlcs sem varð Liverpool að falli.
: Birtles lék aðeins sinn þriðja leik með
! Forest — en hann skoraði á 26. mínútu
og lagði upp annað mark Forest aðeins
þremur mínútum fyrir leikslok en þá
; skoraði bakvörðurinn Colin Barrctt.
Liverpool lék sinn 100. Evrópuleik —
| leikir Forest hins vegar taldir á fingrum
i annarrar handar. Þrátt fyrir það átti
: Liverpool mjög í vök að verjast á City
j Ground. Liverpool hefur ekki enn tapað
leik í 1. deild á Englandi og ósigurinn í
| Nottingham er verulegt áfall fyrir
| Evrópumeistarana síðastliðin tvö ár.
j Hvort þeim tekst að halda hinu góða
í striki í 1. deild — og hvort Evrópumeist-
arar Liverpool falla út þegar í 1. umferð
í Evrópukeppni meistaraliða, á eftir að
koma í ljós, en slíkt hefur ekki gerzt áður
hjá hinu fræga félagi eftir 15 ár í
| Evrópukeppninni.
í Tórínó lék Glasgow Rangers við
Juventus — með alla ítölsku stjörnuleik-
mennina sína. Pietro Paolo Virdis
skoraði fyrir Juventus þegar á 9. mínútu
en þrátt fyrir þunga sókn Juventus urðu
mörkin ekki fleiri, hinum 70 þúsund
áhorfendum í Tórínó til sárrar raunar.
Annað frægt lið, Real Madrid vann
áreynslulítinn sigur i Madrid, gegn
Progress Niederhorn frá Luxemburg5—
0. Áhorfendur í Madrid voru 60 þúsund.
Jensen, Juanito 2, Del Bosque og Wolff
skoruðu mörk Real. FC Brugge vann í
úrslitum gegn Liverpool á Wembley í
vor, nauman sigur gegn pólsku
meisturunum Wisla frá Krakow, 2—1.
Áhorfendur i Brugge voru 17 þúsund,
Ceulemanns og Colls skoruðu fyrir
Brugge en Kapka fyrir Wisla Krakow.
Tveir óvæntir heimasigrar vöktu
mikla athygli i Evrópúkeppni
meistaraliða. Annars vegar stórsigur
AEK frá Aþenu gegn portúgölsku
meisturunum, FC Porto, 6—1. Staðan í
leikhíéi var 4—0 og 35 þúsund áhorf-
endur í Aþenu voru i sjöunda himni.
Bayevic, 2, Ardizoglou, Tassos,
Nikolaou, og Mavros skoruðu fyrir
AEK en Oliviera svaraði fyrir Porto. Þá
vakti athygli leikur í Sckhodra í
Albaníu. Þar sigraði Vlaznija Albaníu,
hið þekkta lið Austria frá Vin, 2—0,
Zhega og Ballgjini skoruðu fyrir
Albaniumenn.
Pétursson, undir smásjá erlendra félaga,
tvívegis tækifæri. Hann átti skalla
naumlega framhjá á 3. mínútu og
skömmu síðar þrumuskot, sem mark-
vörður Köln varði glæsilega. Þá komst
Pétur innfyrir vöm Kölnar, en mark-
vörður Köln hirti knöttinn af tám hans.
Eins og svo oft áður var mikil ógnun í
kring um Pétur en á 15. mínútu fór
Pétur illa með gott tækifæri — Svein-
bjöm lék í gegn um vörn Köln, gaf á
Pétur, sem hitti ekki knöttinn í góðu
færi.
Skagamenn sýndu hinum þýzku mót-
herjum sínum enga undanlátssemi, léku
af skynsemi og reyndu að halda knettin-
um. En við ofurefli var að etja og á 26.
mínútu siðari hálfleiks kom fjórða mark
Köln. V-þýzki landsliðsbakvörðurinn
Konpoka skoraði með góðu skoti af 25
metra færi, 4-1.
Skagamenn léku vel, drifnír áfram af
stórgóðum leik Karls Þórðarsonar. Leik-
menn börðust vel, allir — og Pétur
Pétursson var mjög ógnandi. En engu að
síður unnu Þjóðverjarnir 4-1, vegna
skorts á einbeitni Skagamanna á mikil-
vægum augnablikum, ódýr mörk.
Munurinn hefði ekki þurft að vera jafn
mikillogjjauiibarvkiú^^^^^^^^^
ttalinn Pietro Mennea er nú fljótasti
maður Evrópu, hann varð tvöfaldur
Evrópumeistari i Prag nýverið, i 100
metra hlaupi og 200 metrunum. Á Bari á
ftaliu hljóp Mennea 100 metrana á 9.99
en hlaup Mennea var ekki löglegt, með-
vindur var 7 m/sek., of mikill til að metið
verði viðurkennt. Bezti tfmi Mennea i
hæfllegum vindi er 10.19. Evrópumetið á
Valery Borzov, 10.07.
Tvö mörk Krankl
fyrir Barcelona
í 3-0 sigri gegn sovézku
bikarmeisturunum. Ipswich og
AZ ’67 skildu löfn í Hollandi
Markakóngur Evrópu síðastliðið ár,
Austurríkismaðurinn Hans Krankl, var
á skotskónum i Barcelona gegn sovézku
bikarmeisturunum Schaktor Donetsk.
Heitt í kolunum þegar
Ajax tapaði í Bilbao
— knötturinn virtist fara í hliðarnetið en mark dæmt og
leikmenn Ajax mótmæltu mjög
Atletic Bilbao, Spáni vann 2—0 sigur
|á Ajax, Amsterdam í Bilbao í UEFA-
keppninni i gærkvöld. Mikill hiti og
Iharka var i Bilbao. Van Dord skoraði
sjálfsmark þegar á 10. mínútu og Ajax
átti i vök að verjast. En leikmenn Ajax
sóttu i sig veðrið, sóttu stift i von um að
jafna. Á 58. minútu náði Atletio Bilbao
jskyndisókn og Vidal skaut að marki.
ínötturínn virtist fara i hliðarnetið, en i
netmöskvunum hafnaði knötturinn.
Jómarínn ráðfærði sig við linuvörð sinn
dæmdi siðan mark. Leikmenn Ajax
nótmæltu mjög. Þeir vildu meina að gat
hafi verið á nctinu, en allt um það þótti
narkið i Bilbao dularfullt.
Ensku liðunum gekk vel i UEFA-
|<eppninni. WBA vann athyglisverðan
sigur í Tyrklandi gegn Galatasary,
-1. 50 þús. áhorfendur hvöttu Galata
laray mjög en það dugði skammt —
Robson og Cunningham skoruðu mörk
WBAen Fatih svaraðifyrirTyrkina.
Dave Watson náði forustu fyrir
Manchester City í Enschede i Hollandi
gegn Twente. En Twente náði að svara
fyrir sig í síðari hálfleik, Thoresen
jafnaði og þar við sat. Arsenal vann
góðan sigur á Highbury í Lundúnum,
gegn'Dynamo Leipzig — 3—0. Staðan i
leikhléi var 2—0, en á einni mínútu fljót-
lega i síðari hálfleik skoraði trinn Frank
Stapelton tvívegis. Alan Sunderland
bætti við þriðja markinu, en hann átti
auk þess skot í stöng, Brady, bezti maður
vallarins átti og skot í slá fyrir Arsenal
— en hinir 34 þúsund áhorfendur i
Lundúnum fóru ánægðir heim.
Borussia Mönchengladbach vann
stóran sigur á Sturm Graz, Austurríki i
Mönchengladbach, 5—1. Bruns, Gores
og Danirnir Nielsen og Simonsen
skoruðu mörk Borussia en Schaffer
svaraði fyrir Sturm Graz. Áhorfendur
voru aðeins 10 þúsund. 1 Borás sigraði
Elfsborg franska liðið Strassborg, sem
þegar hefur náð forustu í Frakklandi,
2— 0. Áhorfendur í Borás voru 5000.
Svenson og Magnusson skoruðu fyrir
Elfsborg. Benfica frá Portúgal vann
góðan sigur á Nantes í Frakklandi, 2—
0. Chalana og Nene skoruðu mörk
Benfica. Hibernian, Skotlandi vann
nauman sigur á Norrköping i Edinborg,
3- 2.
1 Kuopio í Finnlandi áttust við
Kuopio og B—1903. Finnarnir sigruðu
2—1 en aðeins 646 áhorfendur sáu
leikinn. Þá áttust við í Kristiansand í
Noregi Start og Esbjerg. Þar varð jafn-
tefli, 0—0 — og áhorfendur aðeins rétt
um 1400.
Barcelona sigraði 3—0 að viðstöddum
60 þúsund áhorfendum. Krankl skoraði
tvívegis og Sanchez bætti við þriðja
marki Barcelona.
Ensku bikarmeistararnir Ipswich
Town náðu jafntefli i Hollandi gegn AZ
’67 frá Alkmaar, 0—0 jafntefli. í
Kaupmannahöfn vann Frem athyglis-
verðan sigur á frönsku bikar-
meisturunum Nancy. Michel Platini,
stjarna franska liðsins, var ekki með
Nancy og Frem sigraði 2—0 með
mörkurn Jacobsen og Hansen. Athygli
vekur, að á Idrætsparken voru aðeins
1136 áhorfendur. Banik Ostrava vann
óvæntan sigur i Portúgal, sigraði
Sporting Lissabon 1 —0.
Enn góður
sigur Watford
Tveir leikir fóru fram i gærkvöld i
ensk-skozka bikarnum, báðir i Skot-
landi. Mortun úr úrvalsdeildinni skozku
sigraði 2. deildarliö Oldham 3-0. Þá
sigraði Partick úr úrvalsdeildinni, 3.
deildarlið Mansfield 1-0.
Þá úrslit frá Englandi:
3. deiid:
Exeter — Shrewsbury 0-1
Lincoln — Watford 0-5
4. deild:
Hereford — Reading 0-0
Wigan — Rochdale 3-0
Ingi Björn Albertsson sendir knöttinn af öryggi i netmöskvana úr vitaspyrnu, jafntefli í Laugardal, 1-1.
DB-mynd Hörður Vilhjálmsson.
Valsmenn skóku þýzku knatt-
spyrnurisana frá Magdeburg
—Valur hefði verðskuldað sigur gegn Magdeburg
Valsmenn bættu enn einni
skrautfjöður i hatt sinn er þeir í gær-
kvöld í Laugardal gerðu jafntefli við a-
þýzku bikarmeistarana, FC Magdeburg,
1—1. Ekkert islenzkt félagslið getur
státað af jafn góðrí útkomu i
Evrópukeppni á heimavelli og Valur. Að
vísu aðeins einn sigur i sjö heimaleikjum
— en fimm jafntefli. Aðeins Celtic getur
státað af sigrí gegn Val í Reykjavik, en
stórlið á evrópskan mælikvarða eins og
Benfica, Magdeburg og Standard hafa
orðið að fara frá íslandi án sigurs.
Frammistaða Valsmanna gegn
Magdeburg hlýtur að teljast ein hin
bezta íslenzks félagsliðs i Evrópukeppni
— ekki aðeins jafntefli, heldur hvernig
Valsmenn léku, komu þýzku vörninni i
vandræði — já, sigurinn hefði allt eins
getað orðið Vals i Laugardal.
Fyrir tíu árum léku Valsmenn við hið
þekkta stórlið Benfica með Eusebio í
broddi fylkingar og náðu frægu jafntefli,
0—0 að viðstöddum liðlega 18 þúsund
áhorfendum. í gærkvöld léku Valsmenn
við Magdeburg — Evrópumeistara
bikarhafa 1974 með tíu a-þýzka lands-
liðsmenn innanborðs og jafntefli varð,
1—1. Að því leyti eru viðureignir Vals
við Benfica og Magdeburg ólíkar, aö
gegn Benfica lágu Valsmenn lengst af i
vörn, ánægöir með jafntefli. í gærkvöld
voru Valsmenn hvergi smeykir, sóknar-
leikurinn var á köflum beittur, sigurinn
hefði allt eins getað orðið Vals —
tækifæri þeirra voru ekki lakari en
Magdeburg — Valsmenn léku upp á
sigur. Frammistaða Vals er merki um
sókn islenzkrar knattspyrnu, merki um
hugarfarsbreytingu. íslenzk félagslið
hafa í gegn um árin borið allt of mikla
virðingu fyrir erlendum félögum —
minnimáttarkennd. Þetta hugarfar
hefur þýtt að i raun áður en leikur hefst
þá er íslenzka liðið einu til tveimur
mörkum undir — með breyttu hugarfari
geta íslenzk lið náð betri árangri, þó að
sjálfsögðu sé við ramman reip að draga.
Fyrri hálfleikur var fremur tiðinda-
litill, bæði lið fóru sér hægt en greinilegt
að Valsmenn báru allt of mikla virðingu
fyrir a-þýzku bikarmeisturunum. Of
mikið fát, knötturinn gefinn of fljótt, og
þá iðulega tfl andstæðings. A-
Þjóðverjar höfðu undirtökin án þess þó
að vera verulega ógnandi. Raugust átti
gott skot úr teignum, sem Sigurður varði
vel, á 26. mínútu gaf Guðmundur Þor-
björnsson á Albert Guðmundsson, fyrir
opnu marki en a-þýzku varnarmennirnir
náðu að bægja hættunni frá. Hálfdán
Watford heldur sínu striki — stór-
sigur Watford í Lincoln sannar svo ekki
■veröur um viilzt að liðið hans Elton John
hefur nú sett stefnuna i 2. deild, eftir að
hafa hlotið meistaratign 4. deildar i vor.
Knötturínn á leið I netmöskvana — Sigurður Haraldsson markvörður Vals hefur
þegar kastað séi*— og skot Wolfgang Steinbach á leið í mannlaust markið. Slæmt
hjá Sigurði. — DB-mynd Sveinn Þormóðsson.
átti gott skot, eftir laglegan samleik
Valsmanna og greinilegt að
Valsmenn voru að öðlast meiri trú á1
sjálfa sig, eftir því sem á leikinn leið.
Valsmenn sluppu naumlega fyrir
horn er Sigurður Haraldsson missti
klaufalega frá sér sendingu fyrir mark
Vals á 3. mín. siðari hálfleiks — en
Pommerenke skaut yfir af stuttu færi.
Valsmenn komu æ meir inn í myndina,
og á 9. minútu fengu Valsmenn bezta
tækifæri leiksins. Ingi Björn Albertsson
lék laglega á Decker, aftasta varnar-
mann Magdeburg og komst einn að.
marki — aðeins Heyne, markvörður
eftir en Heyne varði skot Inga—þar fór
sannarlega gott tækifæri forgörðum,
knötturinn fór af Heyne og naumlega
framhjá. Valsmenn voru nú hvergi
smeykir við orðstír Magdeburg,
öðluðust sjálfstraust með hverri
mínútunni — en einmitt þá dundi
ógæfan yfir. Steinbach gaf á Joachim
Streich, er aftur sendi stutta sendingu til
Steinbach og hann komst á auðan sjó í
vítateig Vals — og skoraði með góðu
skoti, sem Sigurður Haraldsson réð ekki
við, 0—1.
Valsmenn hinsvegarlögðuekki árar í
bát. Spiluðu vel frá vörn og á 18. minútu
björguðu Þjóðverjar á linu. Guðmundur
Þorbjörnsson braust laglega upp vinstri
vænginn, gaf vel fyrir. Heyne, mark-
vörður átti í höggi við Inga Björn, frá
.þeirn barst knötturinn út í teiginn. Þar
stökk Atli Eðvaldsson hærra en þýzkur
varnarmaður, skallaði að tómu markinu
og i netmöskvana stefndi knöttuinn en
Raugust bjargaði í línu, skallaði frá upp
undir þverslá.
Aðeins fimm minútum siðar jöfnuðu
Valsmenn. Aukaspyma, há sending inn
í vítateig Vals og Atli Eðvaldsson stökk
upp, ætlaði að skalla fyrir en þýzkur
varnarmaður beinlinis stökk á bakið á
Atla, sem féll við. Dómarinn benti
umsvifalaust á vítapunktinn — viti. Ingi
Björn gegn a-þýzka markverðinum
Heyne. Það var ekki að sjá að Ingi Björn
væri taugaóstyrkur, öryggið sjálft
uppmálað skoraði hann neðst í
markhornið, 1—1. Valsmenn fögnuðu
innilega.
Það var greinilegt að hin mikla mót-
spyrna Valsmanna kom A-Þjóðverjum
nokkuð í opna skjöldu. Þeir reyndu að
keyra hraðann upp en vörn Vals var
sterk með Dýra Guðmundsson, sem
bezta mann. Á 35. mínútu átti
Guðmundur Þorbjörnsson hörkuskot af
30 metra færi en naumlega framhjá. Það
stefndi í jafntefli, lokamínúturnar
hægðu þýzkir hraðann, greinilega sáttir
vð jafntefli — gáfu hvað eftir annað til
markvarðar.
Þvi jafntefli — í leik þar sem Vals-
menn báru hróður íslenzkrar knatt-
spyrnu. Enn einu sinni hafa islenzkir
knattspyrnumenn komið á óvart gegrt-
A-Þjóðverjum. Það er erfiður leikur
framundan í Magdeburg. A-Þjóðverjar
munu ekki hyggja á neinar ölmusur
þar, irTOnu keyra hraðann upp og
áreiðanlega reyna að vinna stóran sigur.
Að sjálfsögðu eru möguleikar Vals-
manna hverfandi í Magdeburg, þar sem
ísland náði frægu jafntefli, 1—1, en
hver veit. Frammistaða Valsmanna
erlendis hefur að vísu ekki verið beysin.
Jafntefli gegn Benfica, 0—8 ósigur
í Lissabon: Jafntefli gegn Standard,
1—8 ósigur í Liege — en leikur Vals í
Laugardal sannar að Valsmenn eiga
sterku liði á að skipa og þrátt fyrir að
áframhald í Evrópukeppni sé hverfandi
þá er liðið allt of sterkt til að hljóta jafn
slæma útreið og fyrir 10 árum í Lissabon
— það er merki um framför íslenzkrar
knattspyrnu.
Bezti maður Vals í gærkvöld var
Guðmundur Þorbjörnsson, öðlast sjálfs-
traust með hverjum leik við erlend lið,
jafnt með Val og landsliðinu. Þá var
lngi Björn frískur — Albert Guðmunds-
son einnig. Atli Eðvaldsson gerði á
köflum laglega hluti, en datt niður þess á
milli.
Dýri Guðmundsson var kóngur
í vörninni, bakverðirnir Grímur
Sæmundsson og Magnús Bergs sterkir,
og þrátt fyrir ungan aldur er ekki hægt
að merkja taugaveiklun hjá Sævari Jóns-
syni. Sigurður Haraldsson varði á
köflum vel, en var ekki nógu sannfær-
andiá köflum.
-H. Halls.
Lyftingaáhöld
Ný islenzk framleiðsla á mjög góðu verði.
Einn öxull 1,70 m langur og tveir öxlar 40 cm langir.
Tvö lóð ■ 10 kg, fjögur lóð 5 kg og fjögur 2,5 kg.
Gott statif fylgir hverju setti.
Upplýsingar fyrst um sinn hjá auglýsingaþjónustu DB
i sima 27022.
Nr.—14799.
.
Evrópukeppni
bikarhafa
í Beveren: — Beveren, Belgiu, — Baliymena,
Noróur-írlandi, 3-0 (2-0). Mörkin: Albert, Stevens og
Schönberger. Áhorfendur 17.000.
I Kaupmannahöfn: — Frem, Danmörku, — Nancy,
Frakklandi, 2-0 (1-0). Mörkin: Jacobsen og Hansen.
Áhorfendur 1.136.
í Barcelona: — Barcelona, Spáni, — Shakhtyor,
Sovétrikjunumn, 3-0 (2-0). Mörkin: Krankl, 2,
Sanchez. Áhorfendur 60.000.
I Sosnowiec: — Zaglebie, Póllandi, — Innsbruck,
Austurriki, 2-3 (1-2) Mörkin: Zaglebie: Zarychta og
Szarynski. Innsbruck: Koncilia, Oberacher og
Braschler, víti.
í Stanke Dimitrov: — Marek Dimitrov, Búlgaríu,
— Aberdeen, Skotlandi, 3-2 (0-1). Mörkin: Marek: V.
Petrov, Ivan Petrov, 2, Aberdeen: Jarvie og Harper.
Áhorfendur 20.000.
í Rijeka: — Rijeka, Júgóslavíu, — Wrexham,
Wales, 3-0 (2-0). Mörkin: Tomic, Durkalic og Cukrov.
Áhorfendur 9.000.
í Alkmaar: — AZ ’67, Hollandi, — Ipswich, Eng-
landi, 0-0. Áhorfendur 18.000.
í Salonika: — PAOK, Grikklandi, — Servette
Genf, Sviss, 2-0 (0-0). Mörkin: Koudas og Sarafis.
Áhorfendur 25.000.
í Búdapest: — Ferencvaros, Ungverjalandi, —
Kalmar, Sviþjóö, 2-0 (2-0). Mörkin: Nyilasi og Major.
Áhorfendur 24.000.
í Dublin: — Shamrock Rovers, írlandi, — Apoel
Nicosia, Kýpur, 2-0 (1-0). Mörkin: Giles og Lynex.
Áhorfendur 5.000.
í Valetta: — Floriana, Möltu, — Inter Milanó,
Ítalíu, 1-3 (0-1). Mörkin: Floriana: Ray Zuereb, viti.
Inter: Altobelli 3, eitt viti. Áhorfendur 15.000.
í Reykjavik: — Valur — Magdeburg 1-1. Ingi
Björn Albertsson fyrir Val, Steinbach fyrir Magde-
burg.
í Lissabon: — Sporting Lissabon, Porúgal —-
Banik Ostrava, Tékkóslóvakíu, 0-1. Antalik skoraöi
mark Banik Ostrava. Áhorfendur 50 þúsund.
Árangur Vals
vakti athygli
Frammistaða Valsmanna I gærkvöld
vakti verulega athygli og Reuterfrétta-
stofan tvitók i fréttaskeytum árangur
Vals. í fréttum Reuters af Evrópukeppni
bikarhafa segir fyrst frá viðureign Vals
og Magdeburg. „t Evrópukeppni bikar-
hafa lék Valur frá Reykjavik stórvel og
náði jafntefli gegn stórliði Magdeburg
(mighty Magdeburg). Björn Albertsson
jafnaði, áhorfendum i Reykjavik til mik-
illar gleði,” segir i fréttaskeyti Reuters.
Áöur hafði Reuter sagt frá hinum
óvæntu úrslitum, einnig f upphafi skeytis
um Evrópukeppni bikarhafa. „í 1. um-
ferð Evrópukeppni bikarhafa, Reykja-
vík, tsland; „snatched a piece of glory”
þegar þeir náðu jafntefli gegn stórliði
Magdeburg (mighty Magdeburg) 1-1 í
Reykjavik. Wolfgang Steinbach náði
forustu fyrír Magdeburg á 57. minútu en
Íslendingarnir börðust hetjulega og jöfn-
uðu með marki Björns (Inga Björns) Al-
bertssonar 12 minútum síðar.”
Ali mætir
Leon Spinks
íhringnum
Muhammed Ali, fyrrum heimsmeist-
arí, stefnir að þvi að verða eini maðurinn
til að endurheimta heimsmeistaratitilinn
i hnefaleikum þrívegis. Á föstudagsnótt-
ina munu Ali og Leon Spinks mætast i
hríngnum i New Orleans og Angelo
Dundee þjálfari Ali er bjartsýnn.
„Muhammed hefur aldrei æft betur.
Hann hefúr ekki verið i betra formi sfðan
f Manila.” Einmitt f Manila vann
Muhammed Ali einn minnisstæðasta
sigur hnefaleikanna er hann sigraði Joe
Frazier — í 14. lotu 1975. Þá mættust
kapparnir f þriðja sinn, i blóðugri bar-
áttu. „Leon Spinks er góður boxari, en
Muhammed Ali hefur viljann nú. Hann
er maður sem þarf að hafa markmið til
að keppa að. Nú hefur hann það, að
verða fyrsti maðurínn til að vinna heims-
meistaratitilinn þrfvegis. Það mun skipta
sköpum fyrir hann,” sagði Angelo
Dundee, þjálfari Ali. Fyrír ósigurinn
gegn Leon Spinks mátti greinilega sjá
kæruleysi, áhugaleysi Ali f hríngnum,
rétt eins og um skylduverk væri að ræða.
Skyldi Dundee hafa rétt fyrir sér? Mun
sá mesti — the greatest — endurheimta
titilinn?