Dagblaðið - 09.11.1978, Side 1
Karpov varð fyrstur
með hamingjuóskimar
— þegar Ijóst var að Friðrik yrði næsti forseti Alþjóðaskáksambandsins
— „Mun beita mér fyrir einingu í sambandinu” sagði Friðrik í viðtali við DB í gærkvöldi
„Jú, þetta fylgi, sem ég hlaut í síðari
kosningunum var að sumu ieyti óvænt
en þó ekki eins óvænt og úrslita-
tölurnar í fyrri umferðinni,” sagði
Friðrik Ólafsson í viðtali við DB.
„Ég vonast til að geta axlað þá
ábyrgð, sem þessu kjöri fylgir. Ég er
auðvitað mjög ánægður með úrslitin,”
sagði Friðrik.
„Það óvænta í kosningunum var
það, hversu litill munur var á okkur
frambjóðendunum í fyrri
umferðinni.”
Mendez frá Puerto Rico hlaut 31 at-
kvæði en Friðrik 30. Gligoric rak svo
lestina með aðeins einu atkvæði
minna en Friðrik og var þar með úr
leik.
„Við vorum ekki í þingsalnum
meðan kosið var og talið,” sagði
Friðrik, „heldur sátum við uppi í her-
bergjum Mendez hér á Sheraton-
Buenos Aires.
Ég dreg ekki dul á það, að ég er
ákaflega ánægður með úrslitin. Ég
geri mér grein fyrir því, að þau eru
árangur mikillar vinnu margra
manna. Ég þakka öllum þeim, sem
studdu mig á þessari leið í forsetastól
FIDE. Án þeirra væri þetta ekki
orðinn veruleiki.
Það hefur ekki alltaf verið friðsælt í
FIDE. Ég mun beita mér fyrir
einingu í sambandinu og vinna
skákinni það, sem ég get með styrk
góðra manna.
Ég býst við þvi að menn sjái á at-
kvæðatölunum, að kosningin leit
þannig út að hún gæti farið hvernig
sem var. Við Gligoric erum kannski
vanari að tapa en Mendez. Að
minnsta kosti varð Mendez fyrir
miklum vonbrigðum, en Gligoric
líkast þvi að vera feginn að úrslit voru
komin, þótt hann biði lægri hlut.”
Gligoric hafði lýst því yfir, að hann
myndi sjálfur styðja Friðrik, ef sú
staða kæmi upp, að hann keppti ekki
við hann um forsetastólinn Við það
stóð hann og svo virðist sem Austur-
Evrópufulltrúarnir hafi flestir gert
það.
Karpov, heimsmeistari, varð fyrstur
manna til að rísa úr sæti sínu og óska
Einari S. Einarssyni forseta Skáksam-
bands íslands með sigur Friðriks, þar
sem þeir sátu Einar, Högni Torfason
og fleiri stuðningsmenn hans.
Guðmundur G. Þórarinsson var
einn þriggja manna, sem önnuðust
talningu atkvæða. Þegar kjörnefndin
kom fram á sviðið og afhenti Harry
Golombek úrslitin til að kynna þau,
leyndi sér ekki gleðisvipurinn á
Guðmundi. Tilkynningin var stutt:
„Rabel Mendez 34 atkvæði, Friðrik
Ólafsson 57”.
Ungfrú Inike Bakker var endur-
kjörin framkvæmdastjóri FIDE, eða
Federation Internationale des Echesc,
eins og sambandið heitir fullu nafni.
Sveinn Jónsson aðstoðarbankastjóri
Seðlabankans, var kjörinn gjaldkeri
FIDE. Sveinn er viðskiptafræðingur,
Friðrik Ólafsson ásamt Einari S.
Einarssyni, sem unnið hefur drjúgt
starf við forsetaframboð Friðriks.
sem kunnugt er. Hann er reyndar
mágur Friðriks Ólafssonar, kvæntur
Ástu Ólafsdóttur. Það er hins vegar
regla, að gjaldkeri FIDE sé landi for-
setans.
Bækistöðvar FIDE eru nú í Amster-
dam og verða það þar til þær hafa
verið fluttar til íslands.
-BS.
Foreldrar Fridrikv
Hluuudu ekki á poppid. — missiu affyrstu frélium
um kjör sonarsins — baksída.
45
milljón
lítraraf
umdeildum
vökva
Það er ekki litið af mjólk sem Flóa-
búið getur afgreitt til viðskiptavina
sinna á einu ári, — 45 milljónir litra af
þessum hvita og bragðgóða vökva, sem
læknar og vísindamenn hafa deilt um
árum saman. Liklega eru þó flestir
sammála um ágæti mjólkurinnar, það
sýnir hin mikia sala hennar. í gær
skoðuðu blaðamenn mjólkuriðnað
Sunnlendinga og segir nánar frá því I
blaðinu á morgun.
-GAJ/DB-mynd Hörður.
1» H
Nýtt „Flateyrardæmi”: —
FALSANIR, BOKHALDSBROT
OG SÖLUSKATTSSVIK
Hrikaleg staða er nú komin upp hjá
Kaupfélagi önfirðinga á Flateyri.
Hefur bókhaldsrannsókn leitt i ljós
umfangsmikil söluskattssvik. visvit-
andi bókhaldsfalsanir, rangfærslur,
mikla bókhaldsóreiðu, gífurlega
rýrnun vörubirgða og verulegan óút-
skýrðan sjóðsmismun.
Kaupfélagsstjóranum var sagt upp
starfi sl. vor og hefur endurskoðunin
staðið yfir allar götur siðan. Er
bókhaldið nú til meðferðar hjá
rannsóknardeild rikisskattstjóra-
embættisins, en engin ákvörðun hefur
verið tekin um kröfu um sakadóms-
rannsókn af hálfu stjórnar
kaupfélagsins.
Gunnlaugur Finnsson, formaður
stjórnar Kaupfélags önfirðinga, sagði
í samtali við DB, að á meðan málið
hafi ekki verið endanlega afgreitt hjá
stjórninni vildi hann ekki tjá sig um
það.
Á aðalfundi félagsins, sem haldinn
var fyrir skömmu á Flateyri, flutti
útdrátt úr skýrslu sinni til
stjórnarinnar Geir Geirsson, löggiltur
endurskoðandi Sambandsins, en
stjórnin hafði fengið hann til að koma
vestur til að reyna að fá botn I málið.
í máli Geirs á fundinum kom m.a.
fram, að niðurstöðutölur reikninga
kaupfélagsins væru falsaðir og að
tilraunir hafi verið gerðar til að
leyna fölsuninni. í mjög ófullkomnu
bókhaldi væru skráðar inn- og út-
borgarnir til félagsins og bendi margt
til þess, að kaupfélagsstjórinn, Gylfi
Traustason, þurfi að gera grein fyrir
verulegum sjóðsmismun.
Hann talaði um gróft bókhaldsbrot
og falsanir með tilheyrandi söluskatts-
svikum, sem í lok maí námu samtals
um 16 milljónum. Óhætt mun, að þvi
er endurskoðandinn sagði, að hækka
þá upphæð um 10 milljónir til að fá
hugmynd um vexti og viðurlög.
Rýrnun á vörubirgðum félagsins
hefur reynzt gífurleg samtals um 15
milljónir á 17 mánaða timabili til
mánaðamóta mai-júní sl. Þannig kom
fram á fundinum, að rýrnunin í fyrra
var 2.7% og fyrstu fimm mánuði
hrikaleg uppákoma
hjá Kaupfélagi
Önfirðinga á Flateyri
þessa árs 11.4%. Halli á rckstri
kaupfélagsins frá ársbyrjun 1976
nemur hálfri elleftu milljón króna.
Margsinnis mun hafa verið reynt
að fá fyrrverandi kaupfélagsstjóra til
að gefa skýringar á ýmsum atriðuni i
þessu máli, en það hefur verið
árangurslaust, skv. þeim nákvæmu
upplýsingum, sem DB hefur aflaðsér.
-ÓV.
Sjá bls. 16-17.
7