Dagblaðið

Ulloq

Dagblaðið - 09.11.1978, Qupperneq 17

Dagblaðið - 09.11.1978, Qupperneq 17
DAGBLAÐIÐ. FIMMTUDAGUR 9. NÓVEMBER 1978. Gylfi Traustason fyrrv. kaupfélagsstjóri. DB-mynd SB Dularfullt umslag og litasjónvörp Þegar verið var að vinna i bókhaldinu á skrifstofu kaupfélagsins á Flateyri fannst i peningaskáp þar umslag, sem valdið hefur talsverðum heilabrotum. 1 þvi voru kvittanir og úttektarnótur, allt frá þeim tima er Gylfi Traustason varð kaupfélagsstjóri eftir föður sinn 1976. Það hefur reynzt árangurslaust að biðja kaupfélagsstjórann fyrrverandi um skýr- ingar á þessu. 1 umslaginu var meðal annars kvittaður reikningur frá óvið- komandi aðila upp á um 160 þúsund krónur og er talið að sá reikningur hafi verið greiddur úr kassa kaupfélagsins. 1 janúar og marz sl. voru keypt á reikning kaupfélagsins tvö litasjónvörp frá verzlun í Reykjavík. Á reikningt.um var sérstaklega tekiö fram að tækin Gunnlaugur Finnsson, form. stjórnar kaupfélagsins og fyrr- um alþingismaður, vildi ekkert segja um málið í samtali við DB. væru seld án söluskatts — sém þýðir í raun til endursölu. Þessi tæki voru aldrei seld i kaupfélaginu og i bókhaldinu er ekkert um þau — annað en að tækin voru greinilega borguð með ávisun frá Kaupfélagi Önfirðinga. Andvirði þeirra var samanlagt nær sjö hundruð þúsund. Kaupkröfur Endurskoðandi Sambandsins og kaup- félagsins á Flateyri hafa nú í samráði við nýjan kaupfélagsstjóra, sem ráðinn var þegar Gylfi fór, komið nokkru lagi á bókhaldið og skilað bráðabirgðauppgjör- um. Eins og fyrr segir er skattrann- sóknardeildin nú með málið, en af hálfu stjórnar kaupfélagsins hefur ekki verið tekin ákvörðun um hvort óska ber eftir sakadómsrannsókn. Gylfi Traustason hefur krafizt þess af stjórn kaupfélagsins að hún borgi sér vangreidd laun nokkra mánuði aftur I timann. Án þess að stjórnin hafi komið saman til að ræöa málið sérstaklega mun afráðið að taka öllum kröfum kaup- félagsstjórans með ýtrustu varfærni og öllum fyrirvörum. Úr forstjórastöðu hjá Kaupfélagi Ön- firðinga hvarf Gylfi til starfa hjá út- gerðarfélaginu Hjálmi á Flateyri. Líkt á komið ... Lesendur rekur kannski minni til þess, að fyrir tæpu ári var rakin í Dag- blaðinu saga annars bókhaldsmisferlis og sinnuleysis i stjórn sveitarfélagsins. Leiddi það til þess á endanum, eftir margar yfirferðir bókhalds hreppsins, að sveitarstjórinn, Kristinn Snæland, fór frá. Bókhaldari hreppsins á þeim tíma var Gylfi Traustason. Og kaldhæðnin er kannski sú að ann- ar kjörinn endurskoðandi kaupfélagsins, Guðmundur Jónas Kristjánsson, var á þessum tíma endurskoðandi hreppsins. Bókhaldssukkið i kaupfélaginu, falsan irnar og söluskattsvikin komust upp þegar Guðmundur Jónas taldi sig áður hafa séð færsiur þessum likar. - ó.vald. pesst b«»er bl sö'° Chevrolet Monte Carlo 1974 I toppstandi. 8 cyl., sjálfskiptur, afl- stýrí, aflhemlar, rafmagnsrúður, rafmagnslæsingar, snúningsstólar, sportfelgur og lituð gler. Skipti mögu- leg. Upplýsingar veittar , i síma 19235 (35433) eftir kl. 5 og um helgina. 1 Patreksfjörður: Menn skiptast í hópa um minnismerki Patreksfjarðar Sagan segir að irskir sægarpar hafi lent í vonzkuveðri og hafvillu. Þeir hétu því á heilagan Patrek, að ef þeir næðu landi, myndu þeir skíra þann stað I höfuðið á honum. Og þeir fundu fjörð á Vestfjörðum, sem þeir nefndu Patreksfjörð. Á síðasta vetri ákvað Magnús Guð- mundsson á Patreksfirði að reistur yrði 20 metra hár minnisvarði um hinn heilaga Patrek á Patreksfirði. Hugmynd þessi hefur oft komið upp, allt frá fjórða tug þessarar aldar, en aldrei orðið að veruleika. Magnús segir m.a. um fyrirhugaða gerð minnismerkisins: „Það minnis- merki sem hugmynd mín snýst um yrði stærsta og mesta minnismerki sem reist yrði hér á landi. Ég ákvað að varðinn yrði reistur uppi á fjalli, en þaðan sæist hann alls staðar að I Pat- reksfirði og viðar. Ég leitaði undirtekta bæjarbúa og fékk alls staðar ótrúlegar góðar undir- tektir eins og söfnunarlistar sýna. Þar eru loforð um vinnu til uppbyggingar varðans, sumir buðu mér tæki og bif- reiðir endurgjaldslaust yrði af fram- kvæmdum. Ég sótti þess vegna um lóð undir fyrirhugaðan varða. Fyrrverandi hreppsnefnd hafnaði umsókninni, en nefndin var klofin í þeirri ákvörðun og munaði aðeins einu atkvæöi. Nú er komin ný hreppsnefnd og mun ég að sjálfsögðu sækja um lóðina aftur." Magnús biður síðan alla þá er styðja hann i þessu máli aö senda teikningar, hugmyndir um fyrirhugaðan varða og fjárframlög eða loforð um vinnu. Hann varðveitir allt slíkt til þessa mál- efnis. Magnús býr að Strandgötu 3, Patreksfirði. Síminn er 1264 og P.O. Box 75. Magnús dreifði síöan undirskrifta- listum á Patreksfirði þar sem farið var fram á fjárframlag eða loforð um vinnu við varðann. Nöfn þeirra er leggja sitt af mörkum til verksins verður síðan greypt í töflu í húsi i undirstöðu varðans. DB hafði samband við Úlfar B. Thoroddsen sveitarstjóra á Patreks- firði og sagði hann að upphaf þessa máls hefði verið það, að fram kom til- laga frá Lionsklúbbi Patreksfjarðar um að reisa minnisvarða um heilagan Patrek. Siðan fór Magnús Guðmunds- son af stað og þvi voru tvö mál I gangi. Lionsklúbburinn hefur fengið vilyrði fyrir lóð. „Þetta mál er á umræðustigi,” sagði sveitarstjóri. Ég tel heppilegra að sam- tök eins og Lionsklúbburinn standi að gerð sliks minnismerkis, en ég veit ekki um afstöðu nýrra hreppsnefndar- manna. Ég tel reyndar að Magnús sé frekar að þessu til að skemmta skratt- anum.” Þá ræddi DB við Sigurgeir Magnús- son, formann Lionsklúbbs Patreks- fjarðar. Hann sagði að fyrir lægju ákveðnar tillögur sem nú væru komnar í vinnslu. Tillögur þessar eru eftir Þórdisi Tryggvadóttur málara. Patreksfjörður. Guðmundur Elíasson er nú að vinna við mótun tillagnanna. Hann hefur stundað myndlistar- og myndhöggv aranám heima og erlendis. Sigurgeir sagði að enn hcfði ekki ,verið sótt um ákveðna lóð undir minnisvarðann, en Patrekshreppur hefði heitið frágenginni lóð, klúbbnum að kostnaðarlausu. Nefnd hefur lagt til að minnismerkið standi á granda við Patrekshöfn. Sú ákvörðun er þó ekki endanleg. Gerð minnisvarðans verður fjármögnuð meó söfnun og frjálsum framlögum fiá einstaklingum og félögum. „Ljóst er að framkvæmdin verður nokkuð dýr," sagði Sigurgeir. „Þetta kostar þó nokkrar milljónir. En engin söfnun hefur farið fram enn, en þó eru framlög komin á aðra milljón til verks- ins. Þar af lagði Patrekshreppur fram 300 þúsund kr. er samþykkt var vil- yrðiðum lóðina." Jll , V eftir breytingar Verið velkomin til viðskipta. Fram til þessa hafa börnin bara fót á sig í Melissu. En nú geta þau tekið mömmu og ömmu með sér því þær fá tíka fót á sig í Melissu. Framvegis mun Metíssa verzla með föt á kvenfólk á ötíum aldri. Kjólar, pils, buxur, blússur, mussur, peysur. OPIÐ LAUGARDAGA LAUGAVEGI66 SÍM112815

x

Dagblaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Dagblaðið
https://timarit.is/publication/260

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.