Dagblaðið - 28.11.1978, Page 2

Dagblaðið - 28.11.1978, Page 2
2 / Þannig var umhorfs i þakpappaverksmiðjunni i Garðabæ þann 20/10 1975 er þar hafði orðið'hiikill bruni. Níi er kvartað undan mengun frá þakpappaverksmiðjunni. Garðabær: Mengun af völdum þakpappaverksmiðju J.S. hringdi: Ég átti leið um Garðabæ i gær. Þar cru póstafgreiðsla og apótek hlið við hlið. Þar bak við er þakpappaverk- smiðja þar sem mikið er unnið með tjöru. Mikil loftmengun er þarna af völdum tjörunnar. Það á vist að heita að heilbrigðiseftirlitið hafi heyrt þetta en a.m.k. hefur það ekkert gert. Þegar ég kom þarna á póstafgreiðsluna lagði mikla stybbu á móti mér. Þessi stybba er einnig i apótekinu þar sem verið er að útbúa lyf handa sjúku fólki. Þetta álít ég stórvarasamt og finnst mér að heilbrigðiseftirlitið ætti að taka þetta til ath‘ugunar. PARTNER ER NÝTT VÖRUMERKI FYRIR VANDAÐAN OG ÞÆGILEGAN FATNAÐ buxuríyrira'3 VERSLUNIN VERSLUNIN VERSLUNIN : LIKI'L K/\LT/\I IK'K1 FEYIvlK LAUGAVEGI 8 BERGSTAÐASTRÆTI 4A LAUGAVEGI 27 VERSLUNIN D/iLBÆR HVERFISGOTU 32 J ________DAGBLAÐIÐ. ÞRIÐJUDAGUR 28. NÓVEMBER 1978 Til JC f élaga og annarra lesenda Til JC félaga og annarra lesenda. 1 kjallaragrein eftir undirritaðan sl. föstudag var ofangreindur hópur manna kallaður Junior Chamber deild. Þar sem auðvelt er að leggja þann skilning i textann að ein- hver tengsl séu á milli hópsins á myndinni og Junior Chamber hreyf ingarinnar er undirrituðum bæði Ijúft og skylt að geta þess að sú hugsun lá vitaskuld ekki að baki textans. Nafn Junior Chamber var eingöngu notað i merkingunni ungliðadeild og sérstaklega valið vegna óbeitar rauðliða hópsins á Junior Chamber sem og öðru heilbrigðu félagsstarfi. Nafnið er því sett fram í striðnishug til bolsévika og til að kalla fram sterkar andstæður i þjóðlifinu, með sama hugarfari/Og þegar vigt vatn var notað til að kveða niður húsdrauga. Junior Chamber hreyfingunni óskar undirritaður hins vegar langra og ánægjulegra lifdaga og skilur vel rétt- lát sárindi þeirra JC félaga sem lögðu rangan skilning í textann. Ásgeir Hannes Eiriksson, verzlunarmaður. Raddir lesenda Ljós í kirkju- garðana B.M., húsmóðir í Kópavogi, hringdi: Mér datt í hug þegar ég las bréf Signýjar Sveinsdóttur um Ijósleysið i kirkjugörðunum að þetta vandaniál mætti leysa án þess að rafmagn yrði leitt i garðinn. í Raftækjabúðinni i Kópavogi fást luktir með oliukertum i. Þetta ættu aðstandendur hinna látnu að athuga. Þarna væri a.m.k. bráða birgðalausn á þessú'máli þar til sam- staða næst um rafmagnið. Gunnar Þorkelsson hringdi. Mig langar til að benda á i sanv bandi við umræðuna um jólaljósin i kirkjugörðum, að slík Ijós eru i kirkju- garðinum i Hafnarfirði. Sá aðili sem sá um þessi Ijós i Fossvogskirkjugarðin um á sínum tima sér núna um þau i Hafnarfirði og er mikil ánægja hjá fólki aðgeta fengið þessa þjónustu. Jólaljós eru í kirkju- garðinum í Hafnarfirði Hugað að leiði látins ástvinar. Greinilegt er að fólk saknar þess að geta ekki sett Ijós á leiðin yfir hátiðarnar. Bréfritari bendir á leið til þess. DB-mynd Ragnar Th. Sig. ■■ V

x

Dagblaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Dagblaðið
https://timarit.is/publication/260

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.