Dagblaðið - 28.11.1978, Side 8

Dagblaðið - 28.11.1978, Side 8
DAGBLAÐIÐ. ÞRIÐJUDAGUR 28. NÓVEMBER 1978 .. \ 8' HÖGGDEYFAR Geysilegt úrval höggdeyfar flestar tegundir bifreiöa Póstsendum um allt land Höggdeyfir Dugguvogi 7 — Sími 30154 Reykjavík Viö viljum minna viðskiptavini okkar á að enn er hægt að fá gardinur hreinsaðar og pressaðar samdægurs. Ef komið er með þær að morgni eru þær tilbúnar að kvöldi. Efnalaugin Grímsbæ, Efstalandi 26, simi 85480 IMý læknastofa Hef opnað læknastofu í Læknastöðinni,. Álfheimum 74, viðstalsbeiðnir í síma 86311. Árni V. Þórsson Sérgrein barnalækningar, efnaskipta- og innkirtla- sjúkdómar. Styrkur til háskólanáms f Noregi Norsk stjórnvöld bjóða fram styrk handa islenzkum stúdent eöa kandídat til háskólanáms í Noregi háskólaárið 1979—80. Styrktíma- bilið er níu mánuðir frá 1. september 1979 að telja. Styrkurinn nemur 2.300 norskum krónum á mánuði en auk þess greiðast 500 norskar krónur til bókakaupa o.fl. við upphaf styrktímabilsins. Umsækjendur skulu vera yngri en 30 ára og hafa stundað nám a.m.k. tvö ár við háskóla utan Noregs. Umsóknum um styrk þennan, ásamt afritum prófskírteina og meðmælum, skal komið til menntamálaráðuneytisins, Hverfisgötu 6, Reykjavik, fyrir 15. janúar nk. Sérstök umsóknareyðublöð fást í ráðuneytinu. Menntamólaróðuneytið Útboð vegna virkjunar Tungnaár við Hrauneyjafoss Landsvirkjun óskar eftir tilboðum i næstu áfanga byggingarfram- kvæmda við virkjun Tungnaár við Hrauneyjafoss. Tveir verkhlutar verða boðnir út að þessu sinni. Annar verkhlutinn er steypuefnis- og steypuframleiðsla samkvæmt útboðsgögnum 306-4. Hinn er bygging stöðvarhússsamkvæmt útboðsgögnum 306-5. Útbóðsgögnin verða fáanleg á skrifstofu Landsvirkjunar, Háaleitis- braut 68, Reykjavík, frá og með mánudeginum 27. nóvember 1978 gegn óafturkræfri greiðslu að fjárhæð kr. 75.000,- fyrir eitt safn af út- boðsgögnum fyrir hvorn verkhluta. Verð á viðbótarsafni er kr. 45.000.- Einstök viðbótarhefti úr útboðsgagnasafni kosta kr. 15.000,- hvert. Landsvirkjun mun aðstoða væntanlega bjóðendur við vettvangs- skoðun, verði þess óskað. Hverjum bjóðanda er frjálst að bjóða í annan hvorn verkhlutann eða í báða. Tilboðum samkvæmt bæði útboðsgögnum 306-4 og 306-5 skal skila til Landsvirkjunar eigi síðar en kl. 14.00 að íslenzkum tíma hinn 16. febrúar 1979. Reykjavik, 26. nóvember 1978 Landsvirkjun /* „Einstæður atburður á þingi” „Vil ekki teljast samstarfstákn ríkisstjórnarinnar” —sagði Bragi Sigurjónsson er hann sagði af sér forsetatign ef ri deildar „Ég vil ekki teljast samstarfstákn rikisstjórnarinnar.” sagði Bragi Sigur- jónsson (A), þegar hann í gær sagði af sér stöðu forseta efri deildar Alþingis til að mótmæla frumvarpinu um „við nám gegn verðbólgu". „Frumvarpið er bitlaust og rangsleitið,” sagði Bragi. Hann sagði, að það „horfði til vafasamra úrbóta” og ekki væri nýttur fórnar- og sanv starfsvilji, sem væri til staðar hjá al- menningi. Bezta kjarabótin nú hefði verið umtalsverð minnkun verðbólgu. Hann kvaðst harma, að ríkisstjórn- in hefði nú lotið að sömu vinnu- brögðum og fyrirrennari hennar og sýnt kjark- og úrræðaleysi. Stundar hagsmunir flokka hefðu verið settir ofar hagsmunum almennings. Bragi bað annan varaforseta deildarinnar, Jón Helgason (F) að taka við fundarstjórn. Eyjólfur Konráð Jónsson (S) sagði, að þetta væri ein- stæður atburður í sögu síðari tíma, að forseti bæðist lausnar vegna ágrein- ings við stjórnarfrumvarp. Eyjólfur sagði, að Alþýðuflokkurinn væri klof- inn vegna svika samstarfsflokka hans í ríkisstjórn. Jón Helgason lýsti 8. grein þingskapa, sem kveður svo á, að for- seti megi hætta, ef „meirihluti þing- deildar leyfir”. Frekari meðferð máls- ins varsíðan frestað. - HH í> Bragi Sigurjónsson. Vi Flateyrardæmið, //. hluti: r r STJORN KAUPFELAGSINS SVARAR SKRIFUM DB — um málefni Kaupfélags Önfirðinga á Flateyri íblaðinu 9. nóv. sl. 1. Stjórnin harmar að máli þessu er slegið upp á þann veg, sem gert var í blaðinu og annar og grófari háttur á hafður en almennt tíðkast um frá- sagnir blaða af svipuðum eða alvar- legri málum. 2. Stjórnin telur rétt að koma þvi á framfæri að blaðamaðurinn birtir sem afbrotaatriði athugasemdir endurskoðanda á frumstigi, sem beint var til stjómar og svör hafa fengizt við. Er sums staðar um rangtúlkun að ræða eða ranglega sagt frá miðað við þær staðreyndir sem fyrir liggja. Er leitt til þess að vita, að frumathuga- semdir endurskoðanda til stjórnar skuli hafa borizt blaðinu og þeim gerð skil á þann veg. sem það var gert. 3. Það liggur i hlutarins eðli, að fyrrver- andi kaupfélagsstjóra var ekki vikið f.rá störfum að ástæðulausu I maíbyrj- un sl. vor. Hitt er óafsakanlegt, að at- hugasemdir sem skýringar fást á, skuli vera gerðar að ákæruatriðum fyrir alþjóð og með því brotið grund vallarsiðalögmál varðandi persónu- vernd einstaklinga eða sakbornings. Virðist nóg að gera það þegar og ef slík ákæruatriði liggja fyrir af hálfu hins opinbera eða annarra ákærenda. Stjórnin mun ekki standa i frekari blaðaskrifum um þetta mál. Stjórn Kaupfélags Önfirðinga, Flateyri. Þrátt fyrir allt vinnufárið í Þorlákshöfn: SETJA A SVIÐ LEIKRIT JÖKULS Undanfarið hefur verið æðisgengið vinnuálag á fólki í Þorlákshöfn. Þar hefur verið söltuð sild dag og nótt, og búið er að salta i yfir tíu þúsund tunnur. Á sama tima þurfti að pakka stórri saltfisksendingu til Portúgal. En nú eru komin síldarlok og um helgina fór fríður hópur með rútum suður yfir heiði að skemmta sér i Reykjavík, líklega í Þórskaffi að því við höfum fregnað. Og í gærkvöld frumsýndi leikfélagið á staðnum „Pókók” eftir Jökul Jakobsson i félags- heimilinu. Leikarar eru allir heima- menn. Kristbjörg Kjeld er leikstjóri, en auk þess hafa Gylfi Gunnarsson myndlistarmaður og söngsveitin Þokkabót lagt þeim lið. - IHH Leikhópurinn i Þorlákshöfn. Annar frá hægrí með stóreflis lögregluhúfu er formaður leikfélagsins, Vernharður Linnet, fjórða frá hægrí i sömu röð er Berg- þóra Árnadóttir söngvari, en auk þess mikið af góðu fólki, litt þekktu sem lands- þekktu.

x

Dagblaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Dagblaðið
https://timarit.is/publication/260

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.