Dagblaðið - 28.11.1978, Qupperneq 24
Upphlaup í Alþýðuf lokknum
„STJORNIN ER DAUÐ EN UT-
FÖRIN FER FRAM SÍÐAR”
—segir Bragi Sigurjónsson
Mikil ólga er i Alþýðuflokknum
vegna þess að flokkurinn beygði sig
fyrir Ólafi Jóhannessyni i vísitölu-
málinu. Þetta kom meðal annars fram
á flokksstjórnarfundi flokksins um
helgina, þegar þingmenn gerðu grein
fyrir frumvarpinu um „viðnám gegn
verðbólgu”.
Þingmenn kepptust þar við að
afsaka sig og lýsa yfir, að þeir hefðu
samþykkt frumvarpið með mikilli
tregðu og í því fælist fráhvarf frá
kosningastefnu. flokksins. Það gengi
ekki nógu langt i baráttunni við
verðbólguna. Bragi Sigurjónsson þing-
maður sagði, að stjórnin væri dauð en
útförin færi fram siðar, á útmánuðum.
Benedikt Gröndal, formaður flokks-
ins, sagði, að féllust Alþýðuflokks-
menn ekki á frumvarpið mundi Ólafur
kenna þeim um, er öll kauphækkunin.
14,1%, yrði látin koma til fram-
kvæmda. Ólafur Björnsson, bæjarfull-
trúi í Keflavik, sagðist hafa ætlað að
segja af sér öllum trúnaðarstöðum
fyrir flokkinn vegna visitölumálsins,
en nú mundi hann láta það bíða, því
að hann vildi styðja baráttu Braga
Sigurjónssonar. Bragi hefur sagt af sér
forsetadómi í efri deild í mótmæla-
skyni, eins og DB greindi frá i gær.
Þingmennirnir Vilmundur Gylfason,
Finnur Torfi Stefánsson og Gunnlaug-
ur Stefánsson lögðu til, að frumvarpið
yrði stutt, um annað væri ekki að
ræða eins og komið væri. Arni
Gunnarsson þingmaður sagðist eigin-
lega biðjast afsökunar á að vera þing-
maður Alþýðuflokksins við þessar
aðstæður, þegar svo mikið hefði verið
gefið eftir. Jóhanna Sigurðardóttir
þingmaður kvað þetta ekki mundi
endurtaka sig fyrir 1. marz. Flokkur-
inn mundi þá sýna meiri hörku. Fleiri
þingmenn tóku undir það. Bragi Níels-
son þingmaður sagði.að flokkurinn
hefði orðið að þola svínbeygingu.
Eggert G. Þorsteinsson sagði, að þing-
mennirnir hefðu með þessum vinnu-
brögðum staðfest fjárlagafrumvarp
Tómasar Árnasonar. Aðrir flokks-
stjórnarmenn voru margir hverjir
harðir í gagnrýni á þingliðið fyrir,
hvernig til hefði tekizt i vísitölu-
málinu. Fundurinn stóð í þrjár og
hálfa klukkustund.
Óánægjan birtist síðan í gaer í
afsögn Braga Sigurjónssonar og á
þingflokksfundi Alþýðuflokksins.
HH
Myndirnar sýna þegar borgarstarfsmenn voru að undirbúa borgina fyrir hlákuna miklu. Innsetta myndin að neðan var tekin i
morgun á einum af fáum stöðum þar sem vatn hafði setzt að, á horni Suðurlandsbrautar og Kringlumýrarbrautar.
DB-myndir Hörður og Ragnar.
Þrátt fyrir asahlákuna:
Sluppum að mestu
við „umferðarvötnin”
Stöðubreyt-
ingar
íbanka-
kerfinu
Hinn kunni skákmaður Gunnar
Gunnarsson, sem verið hefur
fulltrúi Útvegsbankans í gjald-
eyrisdeild bankanna, Laugavegi
77, verður nú útibússtjóri Útvegs-
bankans i Hafnarfirði.
Gunnar Hjartarson, sem hefur
verið útibússtjóri Búnaðarbankans
á Hellu, verður sparisjóðsstjóri á
Dalvík.
HH.
Járn fauk
íBreið-
holti og
ófært
austur
— en alltfórbeturen
á horfðist og ekki |
ervitaðum
hrakninga fólks á
Suðui landsvegi l
Allmikið var að snúast hjá
lögreglunni í Árbæ i gærkvöldi af
völdum veðurs og óhappa því
samfara. Útkall kom t.d. vegna
þess að járn tók að fjúka af þaki
húss sem er í byggingu. Svipti-
vindar eru miklir á ýmsum stöðum
í Breiðholtinu, að sögn Björns
Sigurðssonar varðstjóra. En svo
fór að fok varð ekki nema aðallega
af einu þaki.
Þá urðu vissar hörmungar sam
fara ferðalögum fólks í átt austur
yfir heiði. í Árbæjarstöðinni var
hitastigið í gær ein gráða ofan við
frostmark og þýðir það venjulega
frost á fjallinu. Þar var á tímabili i
gærkvöldi slyddubylur. Björn
sagði að vaskir menn á góðum
bilum hefðu snúið við umferð við
Bláfjallaveg. Áhlaupið stóð hins
vegar ekki ýkja lengi og er liða tók
á kvöld og nótt fór veður batnandi
og allir komust leiðar sinnar án
slysa.
Gifurleg bleyta er á vegum á
Suðurlandi að sögn vegagerðar
manna á Selfossi, en þeir höfðu
ekki tíðindi af hrakningum að
segja.
-ASt.
Reykvíkingar og fleiri sluppu
í nótt og morgun við flóð og
vandræði sem hlotizt hafa af
asahláku sem þeirri sem hér
hefur verið næstum sólarhring.
Nú sjást varla pollar sem áður
hafa oft verið eins og stöðuvötn,
og erfið umferð, á ýmsum
punktum gatnakerfisins.
Ástæðan mun tvíþætt. Hlákan
kom hægt og starfsmenn
borgarinnar og bæjanna í kring
hreinsuðu vel frá niðurföllum í
gær. Þá er ennþá svo til enginn
klaki í jörðu og tekur því jörðin
betur við vatninu en oft áður.
-ASt.
Ógæfan snýst enn gegn Þérshaf narbúum:_____________________________
Dagný landaði í Reykja-
vík vegna bihinar
— var að veiða fyrsta farminn til að bæta atvinnuástandið í Þórshöfn
Flest verður Þórshafnarbúum að gerðir samningar um að Siglufjarðar- þegar bilun varð í skipinu og það varð
ógæfu þessa dagana. Sem kunnugt er togarinn Dagný legði upp á Þórshöfn að halda til Reykjavikur, þar sem
hefur skuttogara þeirra, Fonti, verið fram yfir áramótin og var togarinn fyrsta „Þórshafnarfarminum” var
lagt vegna rekstrarörðugleika með byrjaður veiðar í þeim tilgangi. landað í gær. Ekki mun Dagný alvar
fiskleysi og atvinnuleysi í kjölfarið. Var Dagný að veiðum við Suð- lega biluð og er vonast til að skipið
Til að bæta þar nokkuð úr voru vesturströndina undanfama daga, komistá veiðarmjögfljótlega. -G.S.
Srfálst, úháð dagblað
ÞRIÐJUDAGUR 28. NÖV. 1978.
Endurskins-
merki fyrir
DB-blaðbera
og sölubörn
Dagblaðið hefur látið útbúa endur-
skinsmerki, sem blaðburðarbörnunum
um land allt hafa verið send. Óskar
blaðið eindregið eftir því að börnin
lími merkin á yfirhafnir sínar. Eitt
slikt merki getur skipt sköpum núna í
myrkrinu. Geislarnir sem merkin
senda frá sér sjást úr talsverðri
fjarlægð og geta forðað frá óhappi. Þá
munu sölubörnin í Reykjavik einnig fá
slík merki á yfirhafnir sínar þegar þau
mæta til að selja blaðið.
Sængin
tókað
sviðna
— en reykskynjarinn
vakti fólkið af svefni
Slökkviliðið var kallað i nótt kl.
3.40 að Nýlendugötu 41 í Reykjavík.
Þar varð það óhapp að unglingur hafði
sofnað út frá logandi náttborðslampa
sínum og nam sæng hans við
lampann. Af þessu sviðnaði sængin og
reykur tók að stiga frá rúmfölunum.
En þá fór reykskynjari í herberginu í
gang og allir vöknuðu svo tjón má
kalla lítið sem ekkert og allt hafi farið
betur en á horfðist — og má ætla að
reykskynjarinn eigi þar drjúgan hlut
að máli. ASt.
Hver sá ekið
á Fannarbfl!
Bakkað var á sendiferðabil frá
Þvottahúsinu Fönn í gærmorgun um
hálfellefuleytið þar sem hann stóð
fyrir framan skrifstofuhús Dagblaðs-
ins í Þverholti 11. Skemmdist bíllinn
nokkuð. Af ummerkjum þótti sýnt að
um vörubíl hafi verið að ræða, og
hefur hann trúlega bakkað á Fannar-
bílinn. Sjónarvottar eru beðnir að hafa
samband við Fönn.
„Þakið”
við 278
þúsund
„Þakið” á kauphækkuninni 1.
desember er við 278 þúsund króna
mánaðarlaun fyrir dagvinnu samkv.
upplýsingum BSRR. Þeir, sem það
hafa eða meira, fá um sextán þúsund
króna kauphækkun.
Þeir sem hafa til dæmis 150 þúsund,
fá rúmlega niu þúsund króna
kauphækkun. Eins og frarti er komið
nemur hækkunin 6,13 prósentum, og
kemuráölllaunundirþakinu. -HH.
/3* Kaupio <A
'3 TÖLVUR: £
Jg QGTÖLVUUR «
BANKASTRÆTI8